Þjóðviljinn - 02.02.1990, Side 13

Þjóðviljinn - 02.02.1990, Side 13
al annars af því að ef fyrirtæki bóndans fer á hausinn, þá er mun erfiðara fyrir hann að finna sér aðra atvinnu en þann sem býr í þéttbýli. En það er ein grundvall- arforsenda þess að sú kerfis- breyting, sem hér er til umræðu verði framkvæmanleg, að tekið verði tillit til þeirrar byggðarösk- unar sem hún kann að hafa í för með sér, og að þeir sem bera tjón af henni fái bættan skaðann. Staðreyndin er sú, að með núver- andi kerfi eru margir smábændur nú í þannig stöðu að þeir lepja dauðann úr skel, svo það er þjóðfélaginu til skammar. Með heilbrigðri samkeppni skapast hagræði sem veita mun svigrúm til þess að gefa mönnum kost á að hætta kotbúskap án þess að þurfa endilega að flytjast af jörðum sín- um. Þeir geta fengið greidda vissa tekjutryggingu og drýgt hana með smáframleiðslu á sinni jörð. Ég er hins vegar sannfærður um það að aðrir bændur, sem búa við góðar aðstæður af náttúrunnar hendi og vegna nálægðar við markaðinn munu geta staðist er- lendan verðsamanburð og nýtt sér sitt hagræði til þess að verða stöndugir og öflugir framleiðend- ur góðrar og vel samkeppnisfærr- ar vöru. Pannig myndi 10 ára áætlun um breytta verðviðmiðun í landbúnaði efla stærri bændur og skapa heilbrigðari og betri landbúnað hér á landi. 1 þessu sambandi má vel taka undir boð- skap Nikolais heitins Búkaríns til bænda: Auðgist! Rökfulltrúa bænda Talsmenn bœndastéttarinnar hafa oft haldið því fram að er- lendar landbúnaðarafurðir séu 1 ekki eins ódýrar og afer látið. Þau verð sem hent séu á lofti séu af- sláttarverð vegna offramleiðslu. Og því er jafnframt haldið fram að gœði og gæðaeftirlit erlendu framleiðslunnar séu ekki í lagi. Óttast þú ekki að þessi saman- burður við útlönd sé að þessu leyti blekking? ekki einhver svokallaður „frjáls markaður", sem að minnsta kosti við okkar aðstæður er hvorki eiginlegur markaður né frjáls. Svæðaskipting búvörufram- leiðslunnar er einnig mikilvæg í þessu sambandi. Þar þarf að horfa sérstaklega til landkosta, nálægðar við markað með dag- legar neysluvörur, félagslegra þátta, byggðastefnu og svo fram- vegis. Kjarnfóðurgjald og kynbætur Getur þú nefnt einhverjar fleiri aðgerðir eða áform stjórnvalda í hagræðingarátt? Já, um síðustu áramót var sá hluti kjamfóðurgjalds, sem renn- ur í ríkissjóð lækkaður, um ná- lægt helming, og nú eru uppi áform um breytingu laga um inn- flutning erfðaefna til kynbóta, einkum á varpfugli, holdafugli og svínum. Báðar þessar aðgerðir eiga eftir að stuðla að lækkuðu vöruverði á eggjum, kjúklingum og svínakjöti. Ég hefði einnig viljað sjá það að óbein skattlagn- ing yrði með öllu afnumin á bú- vöru, þótt ekki hafi náðst sam- komulag um það mál. Þú ert þá ekki að verja óbreytt ástand í landbúnaðarframleiðsl- unni? Nei, langt því frá. Það er held- ur ekki hægt að halda því fram að hér ríki kyrrstaða í þessum mál- um. íslenskur landbúnaður er að ganga í gegnum umfangsmiklar breytingar og þar er unnið að hagræðingu í dag og það verður gert í auknum mæli í framtíðinni. Eg skil vel óþolinmæði manna, en við verðum að sætta okkur við að þessar umbreytingar taka tíma. Landbúnaðurinn og for- svarsmenn hans gera sér manna best grein fyrir því að það er höfuðverkefni að ná verðinu nið- Ef þetta reynist rétt, þá ætti íslenskur landbúnaður ekki að þurfa að óttast erlenda sam- keppni, því hann myndi þá stand- ast samanburðinn hvað verð og gæði snertir. Því hefur einnig verið haldið fram að þetta gæti leitt til land- auðnar, að heilu byggðarlögin myndu leggjast í eyði. Til dæmis hefur hár toílur á innflutt fóður til svína og hænsnaræktar verið rétt- lættur með þvf að það þurfi að vemda sauðfjárræktina fyrir samkeppni vegan byggðasjónar- miða og hefðbundinna búskapar- hátta, sem séu snar hluti íslenskr- ar þjóðmenningar. Eru þetta ekki röksemdir sem taka þarf til- Ut til? Það er lögmál lífsins, að allt breytist, einnig byggðir og bú- hættir. Þjóðfélög verða ekld læst inn í eilífðarmynstur, en ég er satt að segja ekki svo vantrúaður á íslenskan landbúnað, að ég haldi að hann muni leggjast af við minnstu erlenda samkeppni. Hjp röksemdin vegur miklu þyngra: þjóð sem ætlar að einangra sig frá viðskiptum við aðrar þjóðir mun enda í sömu fátæktinni og eymdinni og við sjáum nú í Austur-Evrópu. Tvíþætt byggða- sjónarmið Ef við lítum á byggðaþróunina í heild, þá er í tvö horn að líta: annars vegar sveitirnar, hins veg- ar sjávarþorpin. Fyrir skömmu var tekin hér upp verðmiðun við erlendan markað á fiski á innanlandsmark- aði. Það þýddi um tvöföldun fisk- verðs fyrir neytendur, en skapaði hagræði fyrir sjómenn og útgerð- ina í heild og er þegar til lengdar lætur hagkvæmt fyrir þjóðarbúið. Þegar sambærilegar aðgerðir í landbúnaði koma á dagskrá, sem skapa hagræði fyrir neytendur, ætlar hins vegar allt á annan endann. Hvers vegna? Og það þótt nýlega hafi ágætir framsókn- armenn gert tillögur um innflutn- ing á tannlæknum til þess að stugga við einokunargróða ís- lenskra tannlækna! Nú virðist það aðeins tíma- i spursmál hvenær menn játast undir það hagræði sem felst í frjálsu framsali á fiskveiðikvót- um. Slíkt framsal felur hins veg- ar í sér augljósa hættu fyrir minni sjávarþorp: ef útgerðarmaður á Stöðvarfirði sér sér hag í að selja sinn kvóta til Norðfjarðar, þá er fótunum kippt undan byggð á Stöðvarfirði. Ég tel að þama sé meiri hætta á ferð fyrir byggðim- ar í landinu en nokkuð annað. Og við henni þarf að bregðast m.a. með því að leyfa frjálsa verslun með gjaldeyri um leið og kvótinn verður seldur eða leigður með einhverjum hætti. Að íslenska krónan verði skráð á erlendum gjaldeyrismörkuðum eins og aðr- ir vesturevrópskir gjaldmiðlar. Eins og nú er innheimtir Seðla- bankinn auðlindaskatt af útgerð- inni með einokun á gjaldeyri- sversluninni. Afnám hennar ætti að verða liður í nýrri byggða- stefnu til mótvægis við þá byggða- röskun sem fyrirsjáanleg er á næstu áratugum. Þetta em þær sömu umbætur og þeir em nú að stefna að í A-Evrópu. Þeir hafa fundið það betur en aðrir hvað viðskiptahöftin kosta. Og um leið að ein forsenda óheftra viðskipta er að gjaldmiðillinn sé skiptan- legur á frjálsum markaði. Hvað varðar landbúnaðinn, þá er því nú haldið fram að óhag- ræðið sem núverandi kerfi skapar sé á bilinu 10-15 miljarðar. Þessi óhagkvæmni leggst einnig þungt á sjávarþorpin. Með einokun landbúnaðarins er verið að fórna þeirra hagsmunum. Ef þessi stærðargráða óhgræðisins af ein- okuninni reynist rétt, þá eiga menn að horfast í augu við þá staðreynd og gera viðeigandi ráð- stafanir. Ef þessar tölur reynast rangar, sem ekki hefur verið sýnt fram á, þá ætti íslenskur landbún- aður ekki að þurfa að óttast er- lenda samkeppni og lögvernduð einokun væri þar með óþörf. -ólg ur. Það er ekki rétt sem sumir halda fram að búvömr hafi ekki aðhald á markaðnum. Þær keppa við fisk og aðrar neysluvömr og auðvitað gera menn sér grein fyrir því að verðsamanburður við útlönd er líka fyrir hendi. Þótt ég hafi snúist grimmt gegn öllum hugmyndum um skyndi- ákvarðanir um frjálsan innflutn- ing búvara í von um skjótfenginn ávinning af lágu heimsmarkaðs- verði, þá er ég ekki að útiloka að sú staða kunni að koma upp ein- hvem tímann í framtíðinni, að einhver innflutningur verði talinn réttlætanlegur með viðeigandi hliðarráðstöfunum og að undan- genginni aðlögun og styrkingu á samkeppnisstöðu hinnar inn- lendu framleiðslu. Hins vegar er sú stefna bundin í lögum, að við íslendingar eigum að keppa að ’ því að vera sjálfum okkur nógir um matvæli eins og kostur er. Þessi stefna er rétt og ég styð hana eindregið. íslensk sérstaða Hvaða augum lítur þú framtíð íslensks landbúnaðar? Þegar við verðum búin að vinna okkur í gegnum þessa nauðsynlegu aðlögun að breyttum aðstæðum, sem nú stendur yfir, þá er ég bjartsýnn á framtíðina. Við höfum að mörgu leyti betri aðstæður hér á landi til þess að framleiða hágæðavöru eri víða annars staðar. Hér er minni mengun, færri sjúkdómar og snýkjudýr og því minni þörf fyrir eiturefni. Við getum náð betra og næringarríkara þurrfóðri en aðrir og hér em ekki síðri aðstæður til að reka vélvædd bú sem byggja á aðfluttu fóðri en í nágrannalönd- unum. Við búum ekki við upp- sprengt verð á landi eins og víða erlendis þar sem þéttbýli og önnur landnýting keppa við land- búnaðinn um landrýmið. Allt eru þetta hins vegar vaxandi vanda- mál í nágrannalöndum okkar. Þar hefur líka komið í ljós að hin vélvædda tæknivædda rányrkja sem ég kalla svo hefur skilið eftir sig umhverfisvandamál sem eiga eftir að gera landbúnaðarfram- leiðsluna þar mun dýrari í fram- tíðinni. Allt eru þetta vandamál sem í raun munu styrkja sam- keppnisstöðu íslensks landbún- aðar í framtíðinni og jafnvel opna möguleika fyrir einhvem útflutn- ing síðar meir. Það hefur sýnt sig að í vissum tilfellum skiptir verð- ið ekki máli, heldur gæðin. í Bandaríkjunum er að sögn hægt að fá „verksmiðjuframleidd“ egg fyrir innan við dollar pakkann. Én egg úr hænu sem hefur gengið „frjáls“ á grasi og valið sitt kom sjálf og alist upp við „náttúr- legar“ aðstæður kosta hins vegar 2-3 dollara sama eining. Gagnvart sumu fólki skiptir verð- ið ekki máli þegar hollustan er annars vegar. Það er á þessu sviði sem framtíð íslensks landbúnað- ar liggur meðal annars. Benz og Trabant En eigum við neytendur ekki að fá að velja hvort við kaupum þessa dýru gæðavöru eða verks- miðjuframleidda eggið, sem er ódýrt? Þessu vil ég svara með samlík- ingu úr bílaheiminum, sem ég hef stundum beitt í þessu sambandi: við getum ekki vænst þess að fá Benz-gæði í afurðum fyrir Trabant-verð. Okkar framleiðsla er af Benz-gæðaflokki. Við þurf- um hins vegar að ná verðinu nið- ur í venjulegan fjölskyldubíla- flokk þannig að allir geti veitt sér þessa gæðaframleiðslu. Framtíð- in er „Benz-gæði á Skoda verði“. Það er málið. -ólg Föstudagur 2. febrúar 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 13 Styrkur til Noregsfarar Stjórn sjóðsins Þjóðhátíðargjöf Norðmanna auglýsir eftir umsókn- um um styrki úr sjóðnum vegna Noregsferða 1990. Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur sjóðsins „að auðvelda Is- lendingum að ferðast til Noregs. I þessu skyni skal veita viður- kenndum félögum, samtökum, og skipulegum hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla samskipti þjóðanna t.d. með þátttöku í mótum, ráðstefnum, eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli, þ.e.a.s. ekki eru veittir styrkir til þátttöku í samnorræn- um mótum, sem haldin eru til skiptis á Norðurlöndunum. Ekki skal úthlutað ferðastyrkjum til einstaklinga, eða þeirra sem eru styrk- hæfir af öðrum aðilum." f skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögð á að veita styrki, sem renna til beins ferðakostnaðar, en umsækjendur sjálfir beri dvalarkostnað í Noregi. Hér með er auglýst eftir umsóknum frá þeim aðilum, sem uppfylla framangreind skilyrði. í umsókn skal getið um hvenær ferð verður farin, fjölda þátttakenda og tilgang fararinnar. Auk þess skal til- greina þá upphæð, sem farið er fram á. Umsóknir óskast sendar til stjórnar sjóðsins Forsætisráðuneyt- inu, Stjómarráðshúsinu, Reykjavík, fyrir 1. mars 1990. Útboð Bygginganefnd flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli býður út frágang lóðar fyrir listaverkið „Þotu- hreiður“. Helstu verkþættir eru gerð undirstöðu fyrir lista- verk, fráveitulagnir og malbikun tjarnarbotns (grunnflötur um 2000 m2). Útboðsgögn verða afhent á almennu verk - fræðistofunni h.f., Fellsmúla26 Reykjavík, fráog með fimmtudeginum 1. febr. 1990 gegn 30.000 kr. skilatryggingu. Fyrirspurnir og óskir um upplýsingar skulu ber- ast Almennu verkfræðistofunni eigi síðar en 8. febr. 1990. Tilboðum skal skilað til byggingarnefndar, Varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins Skúlagötu 63, 105 Reykjavík, fyrir kl 14:00 fimmtudaginn 15. febr. 1990. Byggingarnefnd flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli Málflutningsskrifstofa Ragnar Aðalsteinsson hrl. Sigurður Helgi Guðjónsson hrl. Viðar Már Matthíasson hrl. Tryggvi Gunnarsson hdl. tilkynnir, að Othar örn Petersen hrl. hefur flutt lögmannsstarfsemi sína frá Ármúla 17 og gerst meðeigandi í málflutningsskrifstof- unni frá 31. janúar 1990 að telja. Er heiti skrif- stofunnr frá þeim degi MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA Ragnar Aðalsteinsson hrl. Othar Örn Petersen hrl. Sigurður Helgi Guðjónsson hri. Viðar Már Matthíasson hrl. Tryggvi Gunnarsson hdl. Borgartún 24 - sími 27611 Pósthólf 399 - telefax 27186 121 Reykjavík - telex (051)-94014175 BORG G Móðir okkar, tengdamóðir og systir Margrét Hallgrímsdóttir Flyðrugranda 8, Reykjavík er látin. Margrét J. Guðjónsdóttir Ólafur Marteinsson Auðbjörg Guðjónsdóttir Guðmundur Arnaldsson Hallgrímur Guðjónsson Ragnheiður Haraldsdóttir Guðný Védis Guðjónsdóttir ÓlafurMarel Kjartansson Sigurlaug J. Hallgrímsdóttir

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.