Þjóðviljinn - 02.02.1990, Side 18
SKÁK
HELGI
ÓLAFSSON________________________
Skákmeistari Reykjavíkur 1990
Þröstureða Hannes
Með réttu ætti Skákþingi
Reykjavíkur nú að vera lokið og
sigurvegari fundinn en veikindi
eins keppanda, Þrastar Þórhalls-
sonar, gera það að verkum að allt
er á huldu með sigurvegara og
skák hans við A-Þjóðverjann
Steffen Lamm sem frestað var á
miðvikudagskvöldið ræður úrslit-
um í mótinu. Hannes Hlífar Stef-
ánsson hefur haft forystu allt
mótið en á sunnudaginn tapaði
hann óvænt fyrir Lamm, eigin-
manni Sigurlaugar Friðþjófsdótt-
ur, og það gerði Þresti kleift að
komast upp fyrir hann með sigri
yfir Víkingsmarkverðinum
kunna Ögmundi Kristjánssyni.
Er síðasta umferð hófst á mið-
vikudagskvöldið gat Þröstur alls
ekki mætt til leiks og þá gerðu
skákstjórar sig seka um mistök.
Veikindi geta alltaf komið upp og
Skákþing Reykjavíkur er raunar
þekkta „flensumót“ en eini rétti
leikurinn var að fresta einnig
þeim skákum sem vörðuðu efsta
sætið. Svipað atvik kom upp á
Boðsmóti TR 1971 og fékk
skákstjórinn Svavar G. Svavars-
son múrarameistari hrós fyrir að
dæma skák efsta manns, Þóris
Ólafssonar, tapaða því hann gat
ekki mætt vegna vinnu. Harður
úrskurður er réttlætanlegur þó að
mati undirritaðs hefði hin leiðin,
að flytja til úrslitaskákirnar, ver-
ið sanngjarnari. Aðalatriðið er
að síðasta umferð skákmóta lýtur
ákveðnum lögmálum og það á að
vera regla að öllum skákum sé
lokið fyrir hana.
Nóg um það. Staða efstu
manna fyrir skák Þrastar og
Lamm er þessi: 1. Hannes H.
Stefánsson 9Vi v. 2. Þröstur Þór-
hallsson 9 v. + frestuð skák. 3.
Þröstur Árnason 8’A v. 4. Steffen
Lamm 8 v. + frestuð skák. 5.-7.
A-þýski þátttakandinn setti strik í reikninginn hjá Hannesi
19. Hadl De6
20. b3?!
Ingi Fjalar Magnússon, Pálmi
Pétursson og Magnús Ö. Úlfars-
son V/i v. 8.-12. Lárus Jóhannes-
son, Héðinn Steingrímsson, Tóm-
as Björnsson, Dan Hansson og
Þór Örn Jónsson 7 v. + 1 biðskák
hver.
Af þessum skákmönnum hefur
frammistaða 16 ára pilts Inga
Fjalars Magnússonar kannski
komið mest á óvart en hann hefur
haldið sér í toppbaráttunni allt
mótið.
Hannes Hlífar Stefánsson -
Steffen Lamm
Óregiuleg byrjun
1. e4 d6
2. d4 Rf6
3. f3 c5
4. d5 e6
5. dxe6 Bxe6?
(Ónákvæmni, Eftir 6. .. fxe6
má svartur all vel við sinn hag
una. Eins og skákin þróast fær
svartur einangrað peð og greini-
lega lakara tafl.)
6. Re2 Rc6
7. Rf4 d5
8. exd5 Rxd5
9. Rxe6 fxe6
10. c3
(10. Bb5 var lakara vegna 10. ..
Dh4+ 11. g3 Db4+ eða 10. ..
Da5a+ strax.)
10. ..a6
11. De2 Df6
12. g3 Be7
13. Bh3 e5
14. Rd2 0-0
15. Re4 Dg6
16. Bg2
(Eðlilegra var 16. 0-0, en
Hannes óttaðist 16. .. Rf4! sem
leysir öll vandamál svarts.)
16. .. Had8
17. Bd2 Kh8
18. 0-0 h6
(Betra var 20. Bcl og stöðuyf-
irburðir hvíts eru augljósir).
20. .. b5
21. h4 Dg6
22. Kh2 Hfe8
23. Bh3 b4
24. Hcl bxc3
25. Rxc3 Rxc3
26. Bxc3 Rd4
27. De3 Bf6
28. Ba5?
(Hannes gáir ekki að sér. Hon-
um hefur sýnilega sést yfir næsta
leik svarts sem gerir stöðu hvíts
skyndilega mjög erfiða.. Betra
var 28. Bg2 eða jafnvel 28. Hfel.
Raunar hefur hvítur teflt skákina
hálf linkulega t.d. var óþarfi að
leyfa riddaranum að hasla sér völl
á d4. Og með gegnumbroti á mið-
borðinu snýr svartur dæminu
við...)
a b c d e f g h
28. .. e4!
29. fxe4 Hxe4
30. h5 De8!
31. Dd3 He2+
32. Kgl
(Eða 32. Khl Dxh5 33. g4 De5
og svartur vinnur.)
32. .. He3!
33. Dg6 Hxg3+!
(Vinningsleikurinn. Hannes á
enga möguleika í framhaldi skák-
arinnar.)
34. Dxg3 Re2+ 38. Hxc5 De2+
35. Kg2 Rxg3 39. Khl Rag3+
36. Hxf6 gxf6 40. Kgl De3+
37. Bxd8 Rxh5
- og hvítur gafst upp.
Keppni í unglingaflokki er lok-
ið og þar sigraði Helgi Áss Grét-
arsson með fullu húsi, hlaut 9
vinninga af 9 mögulegum.
Keppendur í opna flokknum á
Skákþingi Reykjavíkur voru 106
sem er metþátttaka. í unglinga-
flokki tefldu 54. Hraðskákmót
Reykjavíkur fer fram n.k. sunnu-
dag og hefst kl. 14 í Skákheimili
TR að Faxafeni.
Skákkeppni stofnana hefst
mánudaginn 5. febrúar með
keppni í A-riðli og miðvikudag-
inn 7. febrúar hefst keppni í B-
riðli. Skráning stendur yfir þessa
dagana.
Lausná
skákþraut
í síðasta þætti birtist eftirfar-
andi skákþraut:
a b c d e f g h
Hvítur mátar í 3. leik.
Lausn: 1. Db2! Kd7 2. De5! Kc6
(eða 2... Kc8 3. Dc7 mát) 3. De4
mát.
a b c d e f g h
Hvítur mátar í 3. leik.
Halldór
Karlsson
Þann 22. janúar sl. lést Halldór
Karlsson trésmíðameistari á sex-
tugasta aldursári. Hann var skák-
vinur fram í fingurgóma, tók
sjálfur þátt í skákmótum og
styrkti beint og óbeint skákstarf-
semi í landinu án þess þó að hafa
hátt um það. Undirritaður hafði
nokkur kynni af Halldóri og get-
ur tekið undir allt það sem sagt
hefur verið um hann. Það er ekki
hægt að ímynda sér að hann hafi
nokkru sinni eignast óvildar-
mann um dagana. í spjalli mínu
við Halldór kom fram dálæti hans
á nokkrum af höfuðsnillingum
skáklistarinnar, einkum þeim
Vasily Smyslov fyrrum heims-
meistara og Kúbumanninum
José Raoul Capablanca, heims-
meistara 1921-‘27. í skákum
þeirra fyrirfinnst það sem Hall-
dór hafði í mestum metum, kyrrð
og einfaldleiki sem þeir einir hafa
á valdi sínu sem skilja hin dýpri
rök skáklistarinnar. Sannir
heiðursmenn þeir Smyslov og
Capablanca. Það var Halldór
líka.
40 ára afmæli Breiðfir&inga
Opna afmælismótið hjá Breiðfirð-
ingum í Reykjavík verður spilað um
næstu helgi, í Sigtúni. Búist er við að
um 50 pör muni taka þátt í mótinu
sem verður með barometer-sniði og 2
spil milli para.
Brídgehátíð í samvinnu Flugleiða,
Bridgesambandsins og Bridgefélags
Reykjavíkur verður um aðra helgi.
Hátíðin er tvískipt þ.e. tvímennings-
keppni ca. 42 para á föstudeginum og
laugardeginum og opinni sveita-
keppni (Flugieiðamótið) á sunnudeg-
inum og mánudeginum. f tvímenn-
ingskeppninni verða 2 spil milli para,
en 9 umferðir verða spilaðar í sveita-
keppninni (6 á sunnudeginum og 3 á
mánudeginum, hver umferð 10 spila
leikir). Skráningu í tvímennings-
keppnina lýkur nú um mánaðamótin,
en í sveitakeppnina 9. febrúar.
Vitað er um 2 erlendar sveitir (með
vissu) sem munu sækja okkur heim á
Bridgehátíð. Önnur frá Svíum,
skipuð þeim Göthe, Gullberg, Mor-
ath og Lindquist og hin frá USA,
skipuð þeim Polowan, Lynn Deas
(heimsmeistari kvenna), Molson og
Svíanum Fallenius, sem búsettur er í
New York þessa dagana. Reynt hefur
verið við Jose Damiani frá Frakk-
landi, nv. forseta alþjóðasambands-
ins, um að koma með sveit með sér,
en óvíst er hvort kappinn á heiman-
gengt þessa dagana. Tímasetningin er
þessi: Upphaf kl. 20 á föstudeginum,
til ca. kl. 1 og síðan 10 árdegis á
laugardeginum. Á sunnudeginum
hefst spilamennska kl. 13 og verða
spilaðir 3 leikir um eftirmiðdaqginn
og aðrir 3 um kvöldið. Á mánudegin-
um verður svo hafist handa kl. 15 og
þá lokið við þá 3 leiki sem þá verða
eftir. Spilað verður eftir Monrad-
fyrirkomulagi á Flugleiðamótinu.
Aðaltvímenningskeppni Breiðfirð-
inga í Reykjavík hófst í síðustu viku.
54 pör (108 manns) taka þátt í keppn-
inni.
Eftir 3 umferðir í aðalsveitakeppni
Reyðar- og Eskifjarðar, er staða efstu
sveita þessi:
Eskfirðingar 69, Jónas Jónsson 68,
Trésfld 54.
Eftir 15 umferðir af 25 í aðaltví-
menningskeppni Skagfirðinga í
Reykjavík, er staða efstu para orðin
þessi:
Aðalbjörn Benediktsson-Jóhannes
Guðmannsson 130, Guðrún
Hinriksdóttir-Haukur Hannesson
126, Jón Stefánsson-Sveinn Sigur-
geirsson 101 og Lárus Hermannson-
Rúnar Lárusson 100.
Skráning í íslandsmót kvenna og
yngri spilara í sveitakeppni, sem spil-
að verður í febrúar, stendur yfir hjá
Bridgesambandinu.
Skipan stigefstu sveita landsins í
dag er þessi:
Verðbréfamarkaður'íslandsbanka:
Sævar Þorbjörnsson, Karl Sigurhjart-
arson, Örn Arnþórsson, Guðlaugur
R. Jóhannsson, Guðmundur Páll
Arnarson og Þorlákur Jónsson.
Flugleiðir: Jón Baldursson, Aðal-
steinn Jörgensen, Ragnar Magnús-
son, RúnarMagnússon, RagnarHer-
mannsson og Matthías Þorvaldsson.
Tryggingamiðstöðin: Sigtryggur
Sigurðsson, Bragi Hauksson, Hrólfur
Hjaltason, Ásgeir Ásbjörnsson, Ás-
mundur Pálsson, Guðmundur Pét-
ursson, Ólafur Lárusson, Hermann
Lárusson, Anton R. Gunnarsson,
Friðjón Þórhallsson, Jakob Kristins-
son og Júlíus Sigurjónsson.
Modern Iceland: Magnús Ólafs-
son, Páll Valdimarsson, Valur Sig-
urðsson, Sigurður Vilhjálmsson, Ein-
ar Jónsson.
Samvinnuferðir/Landsýn: Helgi
Jóhannsson, Björn Eysteinsson,
Guðmundur Sv. Hermannsson,
Sverrir Ármannsson, Eiríkur Hjalta-
son og Helgi Jónsson.
B. M. Vallá: Sigfús Örn Árnason,
Gestur Jónsson, Sverrir Kristinsson,
Gísli Steingrímsson, Jón Ingi Björns-
son, Svavar Björnsson. Jón Þorvarð-
arson, Þórir Sigursteinsson, Ómar
Jónsson, Guðni Sigurbjarnason og
Björn Halldórsson, Símon Símonar-
BRIDGE
18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ
Ólafur
Lárusson
son, Hörður Arnþórsson, Hrannar
Erlingsson, ísak Örn Sigurðsson,
Stefán Guðjohnsen.
Delta: Haukur Ingason, Valgarð
Blöndal, Gylfi Baldursson, Sigurður
B. Þorsteinsson, Jón Steinar Gunn-
laugsson, Óli Már Guðmundsson,
Ármann J. Lárusson, Ragnar Björns-
son, Oddur Hjaltason, Jón Þ. Hilm-
arsson, Björgvin Þorsteinsson og
Guðmundur Eiríksson.
Kristján Guðjónsson, Stefán
Ragnarsson, Pétur Guðjónsson, Ant-
on Haraldsson, Jón Sverrisson og
Hilmar Jakobsson, allir frá Akureyri.
Að auki má nefna sveit frá Selfossi,
Akranesi, ísafirði og að austan, auk
þeirra sem ótaldar eru úr Reykjavík
(Sigmundur, Júlíus Sveinn Eiríks,
Guðlaugur Sv. og Sigurpáll).
Við spilaborðið upplifa spilarar
ýmis afbrigði sem leikurinn felur í sér.
Flestar af þessum stöðum eru þekktar
í fþróttinni og bera ýmis nöfn. Lítum
á nokkur dæmi:
S:G2
H:10
T:
L:7
S:KD10 S:-
H:2 H:8654
T:- T:-
L: L:
S:Á43
H:
T:5
L:-
Spaði er tromp og Austur spilar
hjarta. Til að fá 3 slagi, verðum við að
trompa hjartað, og spila síðan tígli.
Vestur er varnarlaus. Þetta spila-
bragð kallast „Robert coup“ kennt
við ungverska spilarann Robert Dar-
vas. Með lítillega breytta stöðumynd
má fá fram franska afbrigðið „en
passant" (framhjáhlaup) sem margir
spilarar kannast við af eigin reynslu.
Kínversk íferð (svíning) er annað
þekkt fyrirbrigði:
N:
Á5
V: A:
K862 G107
S:
D943
Suður gluðrar dömunni af stað og
Vestur er í klípu. Að láta kónginn
vaða á dömuna er ekkert einfalt mál,
eða hvað má segja um þá spila-
mennsku, ef Suður hefði byrjað með:
D109?
Og loks er hér eitt afbrigði af kastþ-
rönjg (squeeze) kennt við Tim Seres
frá Astralíu: þreföld kastþröng, afar
sjaldséð:
S:D H:- T:- L:K
S:- S:K
H:G H:-
T:G T:97
L:3 S:- H:9 T:10 L:Á L:-
Lauf er tromp og spaðasjöu er spil-
að og trompað með ás. Vestur er
varnarlaus, og í raun sama hvað hann
gerir. Ath.
Kastþröng er afbrigði sem kemur
mjög oft fyrir í leiknum og er til í
ýmsum útgáfum.