Þjóðviljinn - 02.02.1990, Side 19
HFJ.GARMENNINGIN 1
Nemendaleikhúsið frum-
sýnir í kvöld annað verkefni
leikársins: Óþelló eftir William
Shakespeare í þýðingu Helga
Hálfdanarsonar. Hafliði Arn-
grímsson, Guðjón Pedersen og
Grétar Reynisson unnu leik-
gerð verksins, sem sniðin er
að þörfum nemanna níu á
fjórða ári í Leiklistarskóla ís-
lands, en auk þeirra koma fram
þrír nemendur úrfyrsta bekk
skólans.
Harmleikurinn Óþelló er skrif-
aður í byrjun sautjándu aldar og
hafa líkur verið leiddar að því að
frumuppfærsla hafi farið fram í
veislusalnum í Whitehall árið
1604 og þá jafnframt verið fyrsta
leiksýningin, sem leikhópur
Shakespeares setti upp fyrir Jak-
ob I Englandskonung. Söguna
um márann Óþelló er Shakespe-
Jagó (Ingvar Eggert Sigurðsson) bruggar launráð sín. Myndir - Jim Smart.
Lygar og lævísi í Lindarbæ
Nemendaleikhúsið frumsýnir Óþelló
are talinn hafa fundið í einni af
sögum ítalans Giraldi Cintio. í
sögu Cintios er að finna þemað
um afbrýðisemina: Óþelló fer
með sigur af hólmi í samkeppn-
inni um ástir Desdemónu og sá
harmleikur, sem á eftir fylgir, er
afleiðing afbrýði Jagós.
í meðförum Shakespeares
verða málin flóknari, þótt enn
sem fyrr eigi afbrýðin hlut að
máli. En ástæður Jagós fyrir lyga-
vef þeim sem hann fléttar í kring-
um hjónabandssælu Óþellós og
Desdemónu eru hinsvegar orðn-
ar margræðari. Afbrýðisemi í
kvennamálum á þar lítinn hlut að
máli, þótt að vísu láti Jagó þau
orð falla að eitthvað hafi hann
heyrt um að hann sé kokkáll
Óþellós - og henti sér vel að trúa
því. Desdemónu er Jagó hinsveg-
ar sama um, það sem fyrir honum
vakir er að ná sér niðri á manni,
sem hann hatar vegna valda hans,
vinsælda, metorða - og ham-
ingju.
Hatur Jagós, metorðagirnd
hans og afbrýðisemi er sá öxull
sem leikurinn snýst um. En þótt
allar persónur leiksins fléttist inn
í útsmoginn lygavef Jagós er fóm-
arlamb hans fyrst og fremst
Óþelló. Afbrýðisemi er fjarri eðli
hans, hann er eins góður og göf-
ugur og sannri hetju sæmir þar til
efasemdir og illur grunur verða til
þess að hann missir stjómina.
Baltasar Kormákur Samper fer
með hlutverk Óþellós og Des-
demónu leikur Edda Amljóts-
dóttir, Ingvar Eggert Sigurðsson
leikur Jagó og Harpa Amardóttir
Emilíu konu hans. Kassíó er
leikinn af Bimi Inga Hilmarssyni,
Hilmar Jónsson leikur Montanó,
Erling Jóhannesson Lodovikó,
Eggert Arnar Kaaber Roderigó
og Katarína Nolsö Biönku.
Onnur hlutverk fylla leikaramir
níu svo upp í eftir því sem þörf
krefur.
Guðjón Pedersen leikstýrir
Óþelló, leiklistarráðunautur er
Hafliði Amgrimsson og leik-
mynd og búningar em eftir Grét-
ar Reynisson, sem naut aðstoðar
írisar Sigurjónsdóttur. Lýsingu
annast Sveinn Benediktsson
ásamt Guðjóni og Grétari. Sýn-
ingar verða í Lindarbæ.
Harpa Arnardóttir og
Eggert Arnar Kaaber:
Gæti alveg
eins gerst
í dag
- Það er mjög skemmtilegt að
fást við Óþelló, þótt þetta sé
auðvitað mikið verk að ráðast í,
segja Harpa Arnardóttir (Emil-
ía) og Eggert Amar Kaaber (Ro-
derigó).Við báðum um að Guð-
jón og Hafliði ynnu með okkur
að öðm verkefni ársins og það að
setja upp Óþelló er þeirra tillaga.
Leikgerðin miðast aðallega að
því að stytta leikritið, eða þjappa
því saman, og persónum er sleppt
eða tvær gerðar að einni svo
leikritið henti Nemendaieikhús-
inu. Par að auki er áhersla lögð á
þau atriði sem við vinnum út frá
sem þungamiðju leiksins.
- Allar persónur leikritsins
eiga sína örlagasögu, sem
ákvarðast út frá því sem hinar
persónumar gera og segja, eða
öllu heldur því sem ekki er sagt.
Það er víst óhætt að segja að þetta
fólk búi ekki við opið samskipta-
kerfi, því ef það ræddi málin í
stað þess að ala með sér gmn-
semdir hvert í annars garð væri
þama enginn harmleikur á ferð-
inni. Þetta er dæmi um hvemig
ágimd, afbrýðisemi og metorða-
gimd geta mengað mannshugann
að því marki að hann endar á að
kaffæra sjálfan sig.
- Þótt leikritið sé skrifað um
1600 er efni þess í fullu gildi,
þetta gæti alveg eins gerst í dag og
er sjálfsagt að gerast einhvers
staðar núna í einhverri mynd.
Hvað finnst ykkur um hlutverk
Emilíu og Roderigós?
- Emilía er kona Jagós en er
fengin til að vera fylgdarkona
Desdemónu, segir Harpa. - Það
má segja að hún lendi á milli
tveggja elda, annars vegar Jagós,
og hins vegar Desdemónu.
Það er mjög gaman að nálgast
þetta hlutverk því í handritinu er
það fremur opið og hægt að fara
margar leiðir við að túlka það.
Þetta er manneskja sem heyrir og
sér margt, en segir fátt.
- Roderigó er mikill vinur Jag-
ós og ástfanginn af Desdemónu,
segir Eggert. - Hann verður
bandamaður Jagós gegn Óþelló
og á sinn þátt í því að gefa honum
hugmyndina að því hvemig hann
geti náð sér niðri á honum. En
Roderigó er einungis verkfæri
Jagós, sem hefur hann að féþúfu
og notfærir sér ást hans á Des-
demónu til að hrinda áformum
sínum í framkvæmd.
- Roderigó er auðvitað bæði
saklaus og trúgjam að því leytinu
til að hann trúir því að Jagó sé
vinur hans og það blindur af ást
að hann verður að trúa því að
hann hafi möguieika á að vinna
Desdemónu með einhverjum
ráðum, og það notar Jagó sér.
Hver finnst ykkur munurinn
aðallega vera á vinnunni fyrir
Grímuleik og fyrir Óþelló?
- Þetta- er náttúrlega alveg
gerólíkt. Bæði er vinnuaðferðin
allt öðmvísi og eins em leikritin
eins ólík og frekast má vera. Sú
leið sem við fóram við Grímuleik
var ákvörðuð alveg frá upphafi,
leikstjórinn mætti með ákveðna
mynd af því hvemig sýningin ætti
að vera og þá mynd fylltum við
svo upp í.
I þetta sinn höfum við haldið
öllum leiðum opnum að meira
eða minna leyti og þar með haft
möguleika á að prófa okkur
áfram, velja og hafna. Þannig
hefur þessi heimur, sem við
drögum upp í sýningunninnynd-
ast í gegnum sameiginlega léit, og
það hefur verið mjög gaman að
taka þátt í þeirri leit.
Eins hefur verið ánægjulegt
að fást við texta í bundnu máli.
Orðin em svo falleg og sérstök að
þau kalla fram mjög sterka
mynd, sem maður leitast ósjálf-
rátt við að túlka. Svona form-
bundinn texti kallar líka á sterka
formskynjun bæði í líkama og
rými, það fellur ekki hvað sem er
að hrynjandi hans svo hann
mótar að vissu leyti form sýning-
arinnar.
LG
Haldið til Kýpur, Emilla (Harpa Amardóttir) og Bianka (Katarína Nolsö) fremst á myndinni.
Föstudagur 2. febrúar 19SC NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19