Þjóðviljinn - 02.02.1990, Síða 23
ANDREA
JÓNSDÓTTIR
Seint en gott
Rickie Lee Jones er afkastalítil
miðað við tónlistarfólk af hennar
frægðargráðu. Fyrsta platan
hennar kom út með glæsibrag
árið 1979, og á henni er það lag
sem enn er það þekktasta sem
frá henni hefur komið, Chuck E.
‘s in love.
Kannski hefur Rickie Lee Jon-
es, eins og fyrsta platan heitir,
verið óþarflega gott byrjanda-
verk, a.m.k. það miklu betra en
næsta plata, Pirates , að sú síðar-
nefnda þótti alllangt frá að stand-
ast henni snúning. Árið 1983 kom
út platan Girl at her volcano, og
enda þótt sú plata sé mjög sérstök
og sjarmerandi, lítur út fyrir að
hún hafi verið gefin út til að Rick-
ie gleymdist ekki, á meðan hún
væri að safna efni, kjarki og '
kröftum í nýja plötu. Á Girl at
her volcano eru nefnilega mestan
part gamlir slagarar, í flutningi
Rickýjar og félaga á klúbbum.
Þetta eru 7 lög á 10 tomma plötu,
t.d. My funny valentine og frá-
bærlega hæg og góð útgáfa af
Don‘t walk away Renée, eða Þótt
líði ár og öld, eins og Bjöggi söng
það. Jæja, svo-kom út platan
Magazine árið 1984, og í leiðinni
las maður um að Rickie hefði átt í
erfiðleikum með áfengi og þaðan
af verri meðul. Platan fékk þó
ágætar viðtökur gagnrýnenda,
sem hafa reyndar alltaf verið
Kápumyndin á Flying Cowboys: I
am singing at your Window.eftir
málarann Jose Esteban Martin-
ez.
miklu ánægðari með plötur Rick-
ýjar en almenningur, nema hvað
fyrsta platan sameinaði þessa
hópa nokk. En, viti menn, heil 5
ár liðu þar til Rickie Lee Jones lét
næst á sér kræla á plötumarkaðin-
um, sem sagt þar til í fyrra. Og
það er ánægjulegt að geta sagt, að
þessi nýja plata hennar, Flying
Cowboys, er alveg ljómandi góð,
gefur þeirri fyrstu ekkert eftir í
heildina tekið, þótt Chuck E. hafi
náttúrlega nú öðlast sess sem eitt
af klassískum dægurlögum og því
erfitt að keppa við hann. En á
Kúrekunum fljúgandi eru sterk
lög eins og Ghetto of my mind,
Just my baby og svo ljúflega góð
útgáfa af gamla hitt-laginu Don‘t
let the sun catch you crying, sem
Gerry and the Pace makers sungu
á bítlatíð í Bretlandi.
Rickie Lee Jones er lík sjálfri
sér á Flying Cowboys, en það er
meiri ferskleiki á þessari plötu en
allar götur síðan fyrsta platan
hennar kom út. Hún hafði líka
góðan mann sér við hlið í
upptökustjórninni, Walter Beck-
er úr Steely Dan, og lið og vana
hljómsveita-stúdíóhunda í undir-
leiknum. Sjálf semur hún bróð-
urpartinn af lögunum, og leikur á
gítar, hljómborð og fleira. Tónl-
istin er blanda af rokki og djassi
og textarnir myndrænir og skáld-
legir, um ást, misjafnlega djúpa,
flökkulíf, sárt aðdráttarafl eiturs-
ins... annars er yfirbragð plöt-
unnar frekar ljóst, en Rickie
heldur alltaf þessari ímynd bó-
hemísks menntamanns, eða
menntaðs og vel upp alins flæk-
ings, og það hlýtur að vera í gegn-
um texta og tóna, því að aldrei
hef ég barið hana augum nema á
misvondum ljósmyndum. En
hvað um það, það ætti enginn að
verða svikinn af plötunum henn-
ar Rickýjar Lee Jones, og síst
þeirri síðustu, hvað þá að verða
miklu fátækari né plássminni.
Góðar stundir.
A
A safnarastiginu
Eins og suma rekur kannski
minni til setti ég hann Donovan
gamla efstan á lista yfir bestu
plötur ársins 1989, enda þótt um
safnplötu væri að ræða: Dono-
van's greatest hits and more.
Þetta er nefnilega afskaplega
skemmtilegt safn, sem sýnir hinar
ýmsu hliðar Donovans frá 7. ára -
tugnum: rokk, draumkenndar
melódiur, popp, keðjusöng, sýr-
umúsík og skoska þjóðlagahefð.
Hér eru helstu hitt-lög Donovans
eins og Sunshine Superman,
Mellow Yellow, Jennifer Junip-
er, Hurdy Gurdy man, Baraba-
jagal, og Catch the wind og Co-
lours í sérstakri útgáfu, perlur
eins og Happiness runs, Season
of the Witch, Atlantis og La-
lena... 20 lög í allt, og það sem
meira er, úrskýringar með hverju
lagi og grein um plötuferil Dono-
vans - fyrirmyndarútgáfa!
The Free Story er líka greinag-
óð, bæði í tónum og letri. Hún er
hins vegar ekki ný - platan kom
út 1973, en var í fyrra gefin út á
geisladiski. Sá er þó galli á gjöf
Njarðar, að Heart breaker er
fórnað til að halda fullum gæðum
- og ég sem hélt að möguleikar
disksins væru óendanlegir - eða
þannig... en á Free-sögunni eru
19 lög þeirrar fræknu en skamm-
lífu sveitar (*68-‘72), þau vinsæl-
ustu (All right now...) og úrval
af stórum skífum. Ætti ekki bara
að falla í kramið hjá gömlum að-
dáendum nú á þessum tímum
áhuga á þungarokki og blús.
A
Tregasveit á Blúslofti
Tregasveitin er ein þeirra
hljómsveita sem hafa verið að
hasla sér völl að undanförnu.
Þessi blússveit ætlar að halda
tónleika á Blúsloftinu í kvöld,
föstudag.
í forystu Tregasveitarinnar eru
þeir feðgar Pétur Tyrfingsson og
Guðmundur sonur hans og má
ekki á milli sjá hvor er betri.
Raunar er sagt að Guðmundur sé
löngu búinn að sanna hæfileika
sína sem einhver albesti gítar-
leikari landsins en Pétur sé efni-
legur söngvari. Eitt er þó víst
ekki skortir þá feðga einlægnina
sem er kjaminn í öllum góðum
blús.
Með þeim feðgum eru þrír aðr-
ir í sveitinni. Þriðji maðurinn í
framlínunni er Sigurður Sigurðs-
son sem syngur og leikur á munn-
hörpu, landsþekktur blúsari og
oft kenndur við hljómsveitina
Kentár. í hryndeildinni eru þeir
Sigurður Ágústsson bassaleikari
og Guðvin Flosason trommu-
leikari.
Tregasveitin kom fyrst fram
opinberlega í marsmánuði á síð-
asta ári og hefur síðan verið að
mótast. í frétt frá þeim félögum
segir að nú séu þeir búnir að finna
sinn tón og skapa sér sinn stíl.
Þeir eru strangtrúarmenn hvað
treganum viðkemur, það er
bannað að leika annað en blús.
Og í kvöld gefst tækifæri til að
hlýða á Tregasveitina á Blúsloft-
inu. Það hét til skamms tíma Ris-
ið og er á efstu hæði Hverfisgötu
105. Þar hefur tekið til starfa nýr
vert, Pálmar Halldórsson, og
hyggur á öflugt skemmtanalíf.
-ÞH
o s o*> ° <=r> -s /
T— LO co - GT^ ro HRINGUR jOHANNESSON
tn • — 00 S: o 5. MÁLVERKASÝN1NG
Z Í 3 —1 < Sýning í Safnahúsinu á Selfossi
f—i — 3. febrúar til 11. febrúar 1990
—1 u Opið virka daga kl. 16.00 - 20.00
j^l LISTASAFN ASÍ og kl. 14.00 - 20.00 um helgar
UKJ Grensásvegur 16, Reykjavík
Listskreytinga-
sjóður ríkisins
Listskreytingasjóður ríkisins starfar samkvæmt lögum nr.
34/1982 og er ætlað að stuðla að fegrun opinberra bygginga með
listaverkum. Verksvið sjóðsins tekur til bygginga, sem ríkissjóður
fjármagnar að nokkru eða öllu leyti. Með listskreytingu er átt við
hvers konar fasta og lausa listmuni, svo sem veggskreytingar
innan húss og utan, höggmyndir, málverk, veggábreiður og hvers
konar listræna fegrun. Skal leitast við að dreifa verkefnum milli
listgreina, þannig að í hverri byggingu séu fleiri en ein tegund
listskreytinga.
Þegar ákveðið hefur verið að reisa mannvirki sem lögin um List-
skreyingasjóð ríkisins taka til, ber arkitekt mannvirkisins og bygg-
ingarnefnd sem hlut á að máli að hafa samband við stjórn List-
skreytingasjóðs, þannig að byggingin verði frá öndverðu hönnuð
með þær listskreytingar í huga sem ráðlegar teljast. Heimilt er
einnig að verja fé úr sjóðnum til listskreytingar bygginga sem
þegar eru fullbyggðar.
Umsóknum um framlög úr Listskreytingasjóði skal beint til stjórn-
ar Listskreytingasjóðs ríkisins, Menntamálaráðuneytinu, Sölv-
hólsgötu 4,150 Reykjavík, á tilskildum eyðublöðum sem þar fást.
Æskilegt er, að umsóknir vegna framlaga 1990 berist sem fyrst og
ekki síðar en 1. júlí n.k.
Reykjavík, 30. janúar 1990
Stjórn Listskreytingasjóðs ríkisins
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalag Hafnarfjarðar
Bæjarmálafundur
Bæjarmálaráð ABH er boðað til fundar mánudaginn 5. febrúar í
Gaflinum við Reykjanesbraut kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Magnús Jón Árnason bæjarfulltrúi kynnir tillögu að fjár-
hagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar fyrir 1990.
2. Endurskoðun á aðalskipulagi bæjarins. Kynning og um-
ræður.
3. Útgáfumál.
4. Önnur mál.
Allir fulltrúar í nefndum og ráðum og aðrirfélagsmenn eru hvattirtil
að mæta vel og stundvislega.
Formaður
Alþýðubandalagið Kópavogi
Opið hús
Opið hús. Rabbfundir alla laugardaga milli 10 og 12 á skrifstofunni
í Þinghóli, Hamraborg 11.
Verið velkomin.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Kópavogi
Skrifstofa félagsins
verður fyrst um sinn opin frá kl. 15-18.30 mánudaga-fimmtudaga.
Félagar eindregið hvattir til að koma á skrifstofuna til að fá fréttir af
málefnum bæjarfólagsins og greiða félagsgjöldin.
Sími 41746. Stjórnln
Laugardagsfundir ABR
Kjaramálin
Opinn fundur um kjaramálin og nýjan kjarasamning verður hald-
inn kl. 11 f.h. laugardaginn 3. febrúar að Hverfisgötu 105, efstu
hæð.
Forystufólk úr verkalýðshreyfingunni heldur stuttar framsögu-
ræður og svarar fyrirspurnum. Einnig verða almennar umræður.
Alþýðubandalagið f Reykjavík
Alþýðubandalagið á Akranesi
Bæjarmálar áð
Alþýðubandalagið á Akranesi boðar tii bæjarmálaráðsfundar f
Rein þriðjudaginn 13. febrúar klukkan 20,30.
Dagskrá:
1. Kynning á fjárhagsáætlun bæjarsjóðs fynr árið 1990.
2. Sölufyrirkomulag HAB.
3. Kirkjuhvoll.
4. önnur mál.
Mætum öll. Stjórnin.
Alþýðubandalagið Kóþavogi
Þorrablót
Hið vinsæla þorrablót Alþýðubandalags Kópavogs verður haldið í
Þinghóli, Hamraborg 11, laugardaginn 3. febrúar.
Húsið opnað kl. 19.
Tríó Þorvaldar Jónssonar og Vordís leika fyrir dansi.
Miðaverð sama og í fyrra, 2.500 krónur. Miðamir seldir á skrifstofu
ABK í Þinghóli. Tryggið ykkur miða í tíma.
Undlrbúnlngsnefndin
Alþýðubandlagið í Reykjavík
Félagsfundur
Alþýðubandalagið í Reykjavík boðar til félagsfundar þriðjudaginn
6. febrúar kl. 20.30 að Hverfisgötu 105.
Dagskrá:
1. Kosning kjömefndar vegna borgarstjómarkosninga og full-
trúa ABR í miðstjórn AB.
2. Staðan í framboðsmálum vegna komandi borgarstjórnar-
kosninga og kynning á fundarsamþykkt Alþýðuflokksfólag-
anna í Reykjavík.
3. Önnur mál.
Félagar fjölmennið og stjórnin minnir á ákvæði fólagslaga um
róttindi sem fylgja greiddum félagsgjöldum.
Stjórnin