Þjóðviljinn - 29.03.1990, Qupperneq 2
FRETTIR
Vegaáœtlun
Kreppan bitnar á framkvæmdum
Breytingar á vegaáætlun: Vegna ástands efnahagsmála og aðhaldsaðgerða aukastframlög
til vegaframkvœmda ekki á þessu ári eins og stefnt var að
ályktunartillögunni segir að með vegna aðhaldsaðgerða í verð- mála í ár. í vegaáætlun fyrir árin
Lögð hefur verið fram á Alþingi
þingsályktunartillaga á vegum
rfldsstjórnarinnar um breytingar
á vegaáætlun sem hafa munu í för
með sér að sú aukning sem sam-
gönguráðherra Steingrímur J
Sigfússon hafði stefnt að í vega-
framkvæmdum verður ekki.
Samkvæmt ályktuninni verða
framlög til vegamála í ár heldur
lægri en síðustu tvö ár en heldur
hærri en þau voru á árinu 1987.
í athugasemdum með þings-
samþykkt vegaáætlunar á Al-
þingi síðast liðið vor hafi verið
mörkuð sú stefna að ráðist skyldi
af auknum krafti í ýmis stórverk-
efni, svo sem jarðgöng, stórbrýr
og framkvæmdir á höfuðborgar-
svæðinu. Stefnumörkun þessi
hafi byggt á auknu fé til vega-
gerðar þannig að þessi verkefni
væru möguleg ásamt hefðbundn-
um verkefnum. Við þau þröngu
efnahagsskilyrði sem nú ríki og
lagsmálum, sem ma. tengist ný-
gerðum kjarasamningum, hafi
hins vegar ekki reynst unnt að
auka fjármagn til þessara hluta í
ár.
Árið 1987 fóru samtals í fjár-
veitingum og lánsfé 4,4 miljarðar
til vegamála hér á landi, 4,8 milj-
arðar árið 1988, 4,7 miljarðar
árið 1989 og samkvæmt fram-
lagðri þingsályktunartillögu
munu fara 4,5 miljarðar til vega-
1989-1990 var hins vegar gert ráð
fyrir að 5,3 miljarðar færu til
vegamála en sú upphæð var síðan
lækkuð í 4,6 miljarða og í fjár-
aukalögum er gert ráð fyrir enn
meiri lækkun upp á 79 miljónir.
Af þessum sökum verður ekki
komist hjá að endurskoða áætl-
unina fyrir yfirstandandi ár, segir
í athugasemdum.
Steingrímur J. Sigfússon sam-
gönguráðherra sagði ályktunina
fela í sér að dregið væri úr fjár-
veitingum til allra meginútgjalda-
þátta miðað við þá vegaáætlun
sem samþykkt var í fyrravor.
„Þetta þýðir í sem stystu máli að í
stað þess að auka framkvæmdir
verulega eins og ætlunin var,
verða framkvæmdir svipaðar á
þessu ári og þær hafa verið und-
anfarin tvö ár og nokkru meiri en
árið 1987,“ sagði Steingrímur J.
Sigfússon samgönguráðherra.
-hmp
Virðisaukinn
Fyrsta inn-
heimta góð
Um 900 miljónir innheimtar í tolli áfyrsta gjald-
daga en 40 miljónir í vanskilum. Óvissa um skil á
fyrsta almenna gjalddaga þann 5. apríl
Guðrún Ásta Sigurðardóttir
deildarstjóri I fjármálaráðu-
neytinu segir fyrstu innheimtu
virðisaukaskatts i tolli þann 15.
mars hafa gengið nokkuð vel. Alls
innheimtust 900 miljónir króna í
virðisaukaskatti fyrir janúar og
febrúar á þessum fyrsta gjald-
daga frá því virðisaukaskatturinn
var tekinn upp en um 40 milljónir
eru enn útistandandi.
í fjármálaráðuneytinu biðu
menn spenntir eftir því að sjá
hver skilin á vsk. í tolli yrðu en
ákveðinn frestur var gefinn á
greiðslu vsk. af innflutningi til að-
lögunar fyrir innflytjendur. Guð-
rún Ásta sagði ráðuneytið frekar
sátt við þessa niðurstöðu.
Á þriðjudag sendi ríkisskatt-
stjóri síðan út gíróseðla til al-
mennra greiðenda virðisauka-
skatts sem hefur gjalddaga þann
5. apríl. Nokkuróvissaríkirífjár-
málaráðuneytinu um inn-
heimtuna þar sem ákveðinn hluti
heildarinnheimtu endurgreiðist
til fiskvinnslu og húsbyggjenda
og ákveðinn hluti virðisauka-
skatts greiðist einnig til baka
vegna matvæla.
Sérfræðingar ráðuneytisins
reikna með að brúttóinnheimta
verði um 6 miljarðar á mánaðar-
grundvelli og að eftir endur-
greiðslur standi eftir um 3,5 milj-
arðar í ríkiskassanum. Bolli
Bollason hagfræðingur í fjár-
málaráðuneytinu segir spennandi
að sjá hvernig virðisaukaskatts-
kerfið virki með tilliti til endur-
greiðslukerfisins, en vildi ekkert
segja um það fyrr en niðurstaða
lægi fyrir eftir fyrsta gjalddaga.
Annar gjalddagi virðisauka-
skatts er 5. júní. _hmp
fslensklr matreiðslu- og framreiðslunemar gerðu góða ferð til Stafangurs í Noregi á dögunum þar sem þeir tóku þátt í
Norðurlandakeppni nema í þessum greinum. Framreiðslunemarnir unnu sína keppni og matreiðslunemarnir urðu númer
tvö í sínum flokki. í gær var |',:>'m haldið hóf í Holiday Inn og sjást þeir hér á myndinni talið frá vinstri: Helga Björg
Finnsdóttir og Fjóla Guðnad' ; matreiðslunemar, Sigrún Kr. Magnúsdóttir frkvstj. Sambands veitinga- og gistihúsa
sem tók þátt í skipulagningu keppninnar, Halldór Malmberg leiðbeinandi framreiðslunemanna og gullverðlaunahafarnir
með bikarinn á milli sín: Gunnar Már Geirsson og Arnar Þór Vilhjálmsson. Mynd: Jim Smart.
Mengun
Fengu ekki fjárveitingu
Hollustuvernd ríkisins hefur ekki aðstöðu til aðfylgjast með PCB- mengun hér á landi
Við sóttum um fjárveitingu
fyrir 2-3 árum tfl þess að
kanna hvar eiturefninu PCB
hefði verið fargað hér á landi en
fengum synjun. Við höfum þess
vegna ekki haft aðstöðu til að
fylgjast með því sem skyldi, sagði
Olafur Pétursson forstöðumaður
mengunarvarna hjá Hollustu-
vernd ríkisins í viðtali við Þjóð-
viljann í gær.
Það hefur komið fram í fréttum
að eigendur jarðarinnar Eiðis á
Langanesi hafa höfðað mál á
hendur bandaríska hernum
vegna mengunar af völdum raf-
þétta og rafspenna sem innihéldu
eiturefnið PCB. Tækjunum var
fargað á sorphaugum hersins á
Heiðarfjalli á árunum 1956-69 en
þá rak herinn ratsjárstöð á fjall-
inu. Er talið að 5 miljónir rúm-
metra í fjallinu séu mengaðir og
mun mengunin berast í
grunnvatnið eftir nokkur ár.
Sú spurning hefur vaknað
hvort sambærileg mengun hafi átt
sér stað á öðrum athafnasvæðum
bandaríska hersins hér á landi, til
dæmis á Straumsnesfjalli,
Stokksnesi eða í Hvalfirði.
Ólafur Pétursson sagði að starfs-
menn Hollustuverndar grunaði
að tækjum sem innihalda PCB
hefði verið fargað víða um land
og ekki bara af bandaríska hern-
um.
„Þetta lá lengi í þagnargildi en
á undanförnum árum hefur hafist
umræða um PCB-mengun. Við
mældum slíka mengun á Austur-
landi fyrir allnokkru og í Sunda-
höfn í fyrra en höfum ekki haft
aðstöðu til að fylgjast með þróun-
inni. Okkur grunar að tækjum
sem innihalda PCB hafi víða ver-
ið fargað hér á landi. Við höfum
ekki haldið uppi reglubundinni
könnun á því,“ sagði Ólafur.
-ÞH
Stefnumót í Iðnó
Leikarar Þjóðleikhússins bregða
í dag undir sig betri fætinum og
flytja leiksýninguna Stefnumót
úr Þjóðleikhúsinu í Iðnó vegna
endurbóta á Þjóðleikhúsinu. Svo
skemmtilega vill til að þrír leikar-
anna hófu leikferil sinn sem at-
vinnuleikarar við frumsýningu á
Kaupmanni í Feneyjum í Iðnó í
mars 1945, þannig að þeir eiga
núna 45 ára leikafmæli. Þetta eru
þeir Róbert Arnfinnsson, Bald-
vin Halldórsson og Gunnar
Eyjólfsson. Aðrir leikarar í sýn-
ingunni geta einnig minnst fyrri
leiksigra í Iðnó.
Grímutölt í
Reiðhöllinni
Á morgun, föstudag, verður
keppt í Grímutölti í Reiðhöllinni
en þátttakendur verða að hlíta
þeirri reglu að knapi má ekki
þekkjast og verður því að skreyta
sig og hest sinn að vild. Við verð-
Frá æfingu á Hjartatrompetinum.
Hjartatrompet íslenska leikhússins
Nýtt íslenskt atvinnuleikhús frumsýnir í kvöld nýtt íslenskt leikrit.
Leikhúsið kallast íslenska leikhúsið, en markmið þess er að setja upp
íslensk verk og hvetja unga rithöfunda til leikritunar. Leikritið sem
frumsýnt verður í kvöld er eftir Kristínu Ómarsdóttur og nefnist
„Hjartatrompet". Leikstjóri er Pétur Einarsson. Að íslenska leikhús-
inu standa auk þeirra Kristínar og Péturs leikararnir Guðlaug María
Bjamadóttir, Halldór Björnsson, Þórarinn Eyfjörð og Þórdís Arnl-
jótsdóttir auk Höllu Helgadóttur búningahönnuðar og Ingileifar
Thorlacius leikmyndateiknara. Sýnt er í Leikhúsi Frú Emilíu í Skei-
funni 3C og hefst sýning kl. 20.30. Næstu sýningar eru á laugardag og
sunnudag en leikritið verður aðeins sýnt 12 sinnum.
launaafhendingu fella knapar
grímu. Keppt er í tveimur flokk-
um, flokki fuilorðinna og í flokki
16 ára og ungri. Fyrir fimm efstu
sæti í báðum flokkum verður
veittur bikar til eignar. Þetta er í
annað skipti sem keppt er í þess-
ari grein á vegum Reiðskólans og
vann fuglahræða fyrstu verðlaun
fyrir búning í fyrra skiptið.
Grímutöltið hefst kl. 21.
Skilafrestur
að renna út
Frestur til að skila verkum í verð-
launasamkeppni á sviði lista
meðal ungs fólks rennur út 31.
mars. Það er Listahátíð í Reykja-
vík sem stendur að keppninni
með stuðningi íslandsbanka, sem
kostar framkvæmd hennar og
leggur til verðlaunafé að upphæð
400 þúsund krónur. Þátttakendur
geta skilað inn hverju sem er, svo
fremi sem það með nokkru móti
getur talist einhverskonar list.
Þegar hafa borist á þriðja hundr-
að verk í keppnina; ljóð, sögur,
myndverk, tónsmíðar, kvik-
myndir og dansverk. Stjórn List-
ahátíðar hefur þó lýst yfir sér-
stökum áhuga á verkum sem
samin eru út frá grunnhugmynd-
inni „íslendingur og haf“, en það
er einungis ábending en ekki skil-
yrði fyrir þátttöku. Þátttakendur
skulu vera 19 ára og yngri og er þá
miðað við skiladag. Verk má
senda eða skila á skrifstofu Lista-
hátíðar, Gimli við Lækjargötu,
101 Reykjavík. Brynja Bene-
diktsdóttir, formaður Bandalags
íslenskra listamanna, er í forsæti
dómnefndar. Úrslit verða kunn-
gerð við opnun Listahátíðar í júní
í sumar.
Sendiráð hættir
Sendiráð Þýska alþýðulýðveldis-
ins á Islandi að Ægissíðu 78 hættir
starfsemi sinni frá og með 1. apríl
nk. Starfsemin flyst í sendiráð
DDR í Osló, Drammensveien
111 B, 0273 Osló 2, sími 43 12 80.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 29. mars 1990