Þjóðviljinn - 31.03.1990, Side 6

Þjóðviljinn - 31.03.1990, Side 6
Lög um afhendingu sjúk Sigurður Þór Guðjónsson skrifar í læknalögum er tóku gildi 1. júlí 1988 segir svo í 16. grein: „Lækni er skylt að afhenda sjúkraskrá, alla eða að hluta, sjúklingi eða forráðamanni ef það þjónar ótvíræðum hagsmun- um sjúklings. Leiki vafi á nauðsyn afhend- ingar sjúkragagna eða þyki ástæða til vegna ákvæða laga þessara um þagnarskyldu er lækni heimilt að afhenda land- lækni einum sjúkragögn sem trúnaðarmál til frekari fyrir- greiðslu. Ráðherra setur nánari reglur um afhendingu og varðveislu sjúkragagna og röntgenmynda að fengnum tillögum landlæknis og Læknafélags lslands.“ Læknar hundsa lögin Sama dag og Iögin tóku gildi krafðist ég þess í nafni þeirra að fá afhentar gamlar sjúkraskrár um mig á geðdeild Borgarspítal- ans, þar sem Hannes Pétursson er yfirlæknir og á Kleppsspítalan- um, þar sem yfirlæknir er Tómas Helgason. Þetta gerði ég til að ganga úr skugga um hver væri í reynd réttur sjúklinga hvað sjúkraskrár varðar. f svari Tómasar Helgasonar sagði að hann hefði snúið sér „til landlæknis til þess að leita leiðbeininga hans um hvernig haga skyldi framkvæmd í sam- bandi við 16. grein hinna nýju læknalaga. Pegarþessarleiðbein- ingar hafa borist mun ég svara bréfi yðar... “ Hannes Pétursson synjaði hins vegar að afhenda sjúkraskrána. „...Sjúkraskrár eru ekki af- hentar af geðdeild Borgarspítal- ans, en aðilum bent á að þeir geti haft samband við embætti land- læknis í slíkum tilfellum“. Þessa afgreiðslu taldi ég ekki í samræmi við 16. grein læknalaga. Gerði ég Hannesi grein fyrir því áliti mínu og ítrekaði beiðni mína um afhendingu. Hannes Péturs- son svaraði engu. Ég leitaði því til umboðsmanns alþingis í ársbyrjun í fyrra. Þann 29. desember s.l. felldi hann svo- hljóðandi úrskurð í lok rök- studdrar skýrslu: „Það er því niðurstaða mín, að fara beri með umrædda beiðni Sigurðar Þórs Guðjónssonar um afhendingu sjúkraskráa sam- kvæmt fyrirmælum 1. og 2. mgr. 16. gr. Iæknalaga nr. 53/1988. Eru það tilmæli mín, að land- læknir og heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytið sjái til þess að nefndum lagareglum verði fylgt, að því er beiðni Sigurðar varðar.“ Þess skal getið að umboðsmað- ur tók ekki afstöðu til merkingar orðalagsins að „afhenda" sjúkra- skrá. Alit umboðsmanns sendi ég Hannesi Péturssyni og fór enn fram á að fá sjúkraskrá mína. En Hannes hefur því engu sinnt. Umboðsmaður alþingis fjallaði eingöngu um mál Hannesar. En ég hef einnig ítrekað beiðni mína til Tómasar Helgasonar um af- hendingu sjúkraskráa en hann svarar ekki. Landlæknir hefur tjáð mér að nefndir yfirlæknar synji afhend- ingu sjúkraskránna og hann kunni engin ráð til að ná þeim úr höndum þeirra. Þess vegna ritaði ég nýlega heilbrigðisráðherra bréf þar sem ég bað hann að sjá til þess að farið verði að tilmælum umboðsmanns alþingis og gild- andi lögum verði framfýlgt þegar í stað. En ráðherra lýsir einnig yfir vanmætti sínum. Breytingartillaga um 16. greinina Nú hefur heilbrigðisráðherra lagt fyrir alþingi frumvarp til laga um breytingu á læknalögum nr. 53 1988. Þar er gert ráð fyrir að 16. greinin hljóði svo: „Sjúkraskrá er eign heilbrigð- isstofnunar þar sem hún er færð eða læknis sem hana færir. Lækni er skylt að afhenda sjúklingi eða umboðsmanni hans afrit sjúkraskrár, alla eða að hluta. Sama gildir gagnvart opin- berum aðilum, sem lögum sam- kvæmt athuga kæru sjúklings eða umboðsmanns vegna læknismeð- ferðar. Gildir þetta einnig um sjúkraskrár sem færðar eru fyrir gildistöku þessara laga. Nú telur læknir að það þjóni ekki hagsmunum sjúklings að af- henda framangreindum aðilum afrit af sjúkraskrá og skal læknir þá án tafar afhenda landlækni af- rit sjúkraskrárinnar til frekari fyrirgreiðslu. Landlæknir skal innan fjögurra vikna ákveða hvort viðkomandi fái afrit sjúkraskrárinnar. Ráðherra setur nánari reglur um afhendingu og varðveislu sjúkraskráa að fengnum tillögum landlæknis og Læknafélags ís- lands.“ Á því er enginn vafi að mál mitt hjá umboðsmanni alþingis átti nokkurn þátt í því að menn tóku að endurskoða 16 grein lækna- laga nr. 53 1988. Þess vegna vil ég nota tækifærið og hugleiða þessa lagagrein almennt og sérstaklega fyrirhugaða breytingu á henni. Vona ég að það geri þing- mönnum ekki erfiðara fyrir að taka afstöðu og alþýðumanna að skilja eðli þessa máls er snertir hvert mannsbarn í landinu. Áður en lengra er haldið skal tekið fram að orðin „sjúkraskrá", „sjúkraskýrsla“ og „sjúrnall" eru notuð sem samheiti í þessari rit- gerð og merkja safn hvers kyns skráðra gagna um sjúklinga. Röntgenmyndir og önnur hlið- stæð óskráð sjúkragögn eru hér ekki til umræðu. Hvað merkir að „afhenda“ í 16. gr. læknalaga sem nú hafa verið í gildi í 20 mánuði stendur skýrum stöfum: „Lækni er skylt að afhenda sjúkraskrá“ ...o.s.frv. Maður skyldi ætla að lögmerk- ing orða og orðasamband geti ekki vikið mjög langt frá mál- fræðimerkingu. Nú þýðir orða- iagið að „afhenda“ einfaldlega það að „láta af hendi“ en ekki „afnot“ eða „afrit“ af einhverju. Það skilja allir. Talað var um af- hendingu íslensku handritanna. Þess vegna er eðlilegt að einstak- lingar sem krafist hafa afhending- ar sjúkraskráa, lfti þannig á að „afhending“ merki afhendingu eftir orðanna hljóðan, en ekki eitthvað allt annað. Þess vegna gætu sjúkraskrárnar farið út af heilbrigðisstofnunum og þær hafi ekki meira af þeim að segja; yfir- ráðarétturinn færist frá sjúkra- stofnun til sjúklings. í bréfum mínum til Hannesar og Tómasar lagði ég þennan skilning í orðalag 16. gr. læknalaga enda liggur hann röklega og málfræðilega beint við. Og mér lék einmitt hugur á að vita hvort sá skilning- ur yrði viðurkenndur. Að sjálf- sögðu hefði ég gert aðrar kröfur eftir öðru og ótvíræðara orðalagi. Ef það var vilji löggjafans að „afhending" merkti „afnot“ eða „afrit“ af sjúkraskrá er orðalagið, eins og það er skráð, vítaverð ónákvæmni, er leiðir almenning í villu og bakar einstaklingum óþarfa angur. Það var kastað höndum til þessarar lagasetning- ar og það bitnar á engum nema sjúklingum. Og því fer fjarri að fyrirhugaðar breytingar á 16. grein læknalaga eyði öllum van- köntum hennar, rökleysum og takmörkunum. Mun ég nú sýna fram á það. Ólíkar forsendur Til að byrja með er nauðsyn- legt að skilja hvað liggur að baki þeirri hugsun að fólk fái yfirleitt að sjá sjúkraskýrslur sínar. Hún er eingöngu mannréttindaleg og rís upp af þeirri viðurkenningu allra menningarsamfélaga að það séu einhver veigamestu mann- réttindi hvers manns að einkalíf hans sé virt. Mannréttinda- hugsun nútímans krefst þess að einstaklingar fái að vitra hvað um þá er skráð af opinberum stofn- unum. Krafan um aðgang að eða afhendingu á sjúkraskýrslu á því ekki læknisfræðilegar forsendur. En forsenda þess að læknar eða sjúkrastofnanir geri skýrslur og geymi þær er auðvitað eingöngu læknisfræðileg. Þetta liggur í augum uppi. Og þessir ólíku út- gangspunktar skapa mótsagnir er valda ýmiss konar ágreiningi. Hvers vegna á að geyma sjúkraskrár? En hvers vegna á að geyma sjúkraskrár eftir að sjúklingur út- skrifast? Margir læknar telja raunar að langtíma geymsla á sjúkraskrám þjóni engum til- gangi svo um þetta eru a.m.k. skiptar skoðanir. En ástæðurnar hljóta væntanlega að vera mikil- vægar. Hverjar eru þær? Hafa læknar rökstutt þær? Þekkja alþingis- menn þau rök? Það er blátt áfram engin leið fyrir þingmenn að smíða heilstæða löggjöf um með- ferð sjúkraskráa nema ótvíræð rök komi frá Sæknum um nauð- syn geymsiu á þeim löngu eftir útskrift sjúklings, jafnvel eftir andlát hans. Þetta grundvallar- atriði varðar alla landsmenn og því á slíkur rökstuðningur ao koma fram opinberlega. Þarna flækjast e.t.v. inn í málið þriðju „hagsmunimir“ ef hagsmuni skyldi kalla: tregða voldugra al- þjóðlegra kennivalda til að gefa eftir yfírráð sín á sviðum þar sem þau hafa verið einráð. Auðvitað skerðir það völd lækna að þurfa allt í einu að taka tillit til sjúkl- inga um afhendingu sjúkraskráa. Neitun þeirra á afturvirkni 16. greinar læknalaga stafar einmitt af svona „tregðuhagsmunum". Margra ára sjúkraskrár um nán- ast alla þjóðina em geymdar á heilbrigðisstofnunum. Lög um afhendingu þeirra væra tilgangs- laus ef þau væra ekki afturvirk. Tregðu viðbrögð af þessu tagi þjóna hvorki sjúklingunum né vísindunum. Þau miða eingöngu að því að viðhalda völdum lækna í þjóðfélaginu. Það skyldi þó aldrei vera að tregðulögmálið sé einnig að einhverju leyti að verki í langtíma geymslu sjúkraskráa. Alþingismönnum ber auðvitað að skilja hvers kyns gervi hagsmuni valdahópa frá raun- veralegum hagsmunum samfé- lagsins þegar þeir setja lög í al- mannaþágu. Eignaréttur á sjúkraskrám Sjúkraskýrslur skipa sérstöðu meðal þeirra persónulegu upp- lýsinga er stofnanir samfélagsins hafa undir höndum um þegnana. Á þeim eru svo nærgöngular og persónulegar upplýsingar að þær eru nánast framlenging af okkur sjálfum. Þær eru um starfrænt á- sigkomulag líkama okkar, skynj- ana, hugana og tilfinninga, en allt þetta er bókstaflega við sjálf. Slík skrásetning heggur miklu nær sjálfsímynd okkar en t.d. upplýs- ingar um eignir okkar og pen- inga, jafnvel trúarskoðanir og pólitískar meiningar. Skoðanir okkar eru ekki við sjálf en líkamir okkar og tilfinningar eru það. í lögum um skráningu og meðferð persónuupplýsinga nr. 121/1989 segir t.d. í 4. grein, að óheimil sé skráning ýmissa upplýsinga um einkamálefni einstaklinga, svo sem um litarhátt, kynþátt, stjórnmálaskoðanir, trúarbrögð, hvort maður hafi verið granaður, ákærður eða dæmdur fyrir refsi- verðan verknað, kynlíf og heilsu- hagi, lyfja-, áfengis- og vímuefn- anotkun, veruleg félagsleg vandamál. Það er sem sagt bannað að skrá álíka upplýsingar og eru í sjúkra- skrám nema með alveg sérstök- um lögum. Svo persónulegar og viðkvæmar eru slíkar upplýsingar taldar og því nauðsynlegt að vernda fólk fyrir skráningu þeirra. (Þess má geta að ég veit með vissu um geðsjúrnal, þar sem tengsl sjúklings við „komm- únista“ vora tíunduð.) Það er því augljóst að sjúkraskýrslur eru nærgöngulustu einkamálaskýrsl- ur sem til eru í þjóðfélaginu. Réttur fólks tii að kynna sér þær og fá þær afhentar er því hvergi mikilvægari. Að mínum dómi skiptir form- legur eignaréttur í sjúkraskrám litlu eða engu máli. Hann yrði ávallt skilyrðum bundinn. Og það veltur á öllu hver þau skilyrði eru. Hugsanavilla í lögunum Eins og ég hef bent á era ástæð- urnar fyrir því að fólk eigi heimtingu á afhendingu sjúkra- skráa eingöngu mannréttinda- legar, en nauðsyn þess að geyma skrárnar eingöngu læknisfræði- legar, ef þær era þá nokkrar. Þess vegna era þessi feitletraðu orð í 16. grein læknalaga beinlínis hugsanavilla: „Lækni er skylt að afhenda sjúkraskrá, alla eða að hluta, sjúklingi eða forráða- manni ef það þjónar ótvíræðum hagsmunum sjúklings“. Frá mannréttindasjónarmiði í lýð- ræðisþjóðfélagi hlýtur það ávallt að vera réttur hvers manns að komast í skýrslur stofnana eða einstaklinga um einkamál hans. Sá réttur er í eðli sínu ótvíræður. Annars yrði hann einskis virði. Það er því fyrsta hugsanavillan að þessi réttur fólks til að kynna sér skjöl um einkamál þeirra sé ekki ávallt talinn ótvíræður. Orðið „sjúklingur“ er óþarft í þessari umræðu þó það sé oft notað hér af vana, því málið snýst ekki um „sjúklinga“ vegna sjúkdóma þeirra, heldur um rétt þegnanna yfirleitt varðandi skýrslur um einkahagi þeirra, sem í þessu sérstaka tilfelli eru reyndar sjúkraskrár. Önnur hugsanavill- an leiðir af hinni fyrri: að læknir eigi að meta rétt sjúklings í þessu sambandi. Það nær í ljósi þessar- ar rökræðu engri átt að læknir út frá læknisfræðilegum forsendum meti mannréttindanauðsyn sjúkl- ings, sem hér er ranglega kölluð „hagsmunir", nauðsyn sem er í eðli sínu alveg ótvíræð. Orðalag 16. greinarinnar felur raunar í sér að læknir geti neitað með öllu að afhenda skýrslurnar: ef hann telur ótvírætt að það þjóni ekki „hagsmunum sjúkl- ings“ og telji á því engan vafa. Þá þyrfti hann ekki einu sini að af- henda landlækni gögnin til frek- ari fyrirgreiðslu. í framkvæmd þýðir þessi fyrirvari að réttur sjúklings til að fá afhenta sjúkra- skrá, hvaða merking sem lögð er í afhendinguna, er kominn undir alræði læknisins og honum er í lófa lagið að beita því hvenær sem honum býður svo við að horfa. Af þessum sökum er breytingart- illagan um þetta efni til mikilla bóta. Hún kemur í veg fyrir geð- þótta neitanir lækna. En land- lækni er þá gert að skera úr um „hagsmuni sjúklings“ og fær til þess ákveðinn frest. Nú er land- læknir reyndar læknir og mót- sögnin er felst í því að læknir meti mannréttindi einstaklinga er eftir sem áður óleyst. Það er viðbúið að læknar komi skýrslum til landlæknis beinlínis til að losna við þá óþægilegu ábyrgð að taka sjálfir ákvörðun um afhendingu. Og verður land- 6 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 31. mars 1990

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.