Þjóðviljinn - 31.03.1990, Blaðsíða 15
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Helmlr Helðrún
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Opinn fundur
Opinn fundur hjá Alþýðubandalaginu í
Kópavogi verður haldinn í Þinghóli kl. 20.30
mánudaginn 2. apríl.
Dagskrá:
1. Heiðrún, Heimir, Logi og Valþór ræða
um íþrótta- og skólahús í Kópavogsdal.
2. Inntaka nýrra fólaga.
3. Önnur mál.
Allir velkomnir
Valþór
Stjórnln Logi
Auður Jón Gunnar
Laugardagsfundir ABR
Umhverfismálastefna?
Steingrímur
Hver er stefna Alþýðubandalagsins i umhverfismálum? Hver er
framkvæmdin?
Umræðufundur laugardaginn 31. mars kl. 11. f.h. í Risinu Hverfis-
götu 105.
Málshefjendur verða: Auður Sveinsdóttir, Jón Gunnar Ottósson
og Steingrímur J. Sigfússon.
Allir velkomnir, orðið er laust. Alþyðubandalagið í Reykjavík
Alþýðubandalagið Kópavogi
Opið hús
í Þinghól, Hamraborg 11 kl. 10-12 alla laugardagaframyfirbæjar-
stjórnarkosningar.
Stjórnln
Alþýðubandalagið í Reykjavík
- Frá kjörnefnd:
Fullgildir félagar í ABR hafa nú fengið send forvalsgögn. Frestur til
að skila atkvæðaseðli á skrifstofu AB Hverfisgötu 105, er til kl.
16 mánudaginn 2. aprtl. Skrifstofan verður opin um helgina sem
hér segir: laugardaginn 31. mars kl. 11 -16 og sunnudaginn 1. apríl
kl. 14-16. Á mánudeginum 2. apríl verður skrifstofan opin á skrif-
stofutíma, kl. 9-16.
Þeir sem vilja senda kjörgögn með pósti þurfa að póstleggja þau
eigi síðar en föstudaginn 30. mars.
Fái einhver félagi ekki forvalsgögn í pósti, en telur sig eiga rétt á
því, getur sá hinn sami snúið sértil skrifstofu Alþýðubandalagsins
(s:17500) og óskað eftir gögnum.
Kjörnefnd hvetur félaga til að taka þátt í forvalinu og hafa þar með
áhrif á skipan efstu manna G-listans við borgarstjórnarkosning-
arnar nú i vor.
Kjörnefnd ABR
Alþýðubandalagið Vestmannaeyjum
Vinnufundir - Opið hús
Kosningaundirbúningur frambjóðenda Alþýðubandalagsins í
Eyjum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar er hafin. Vinnufundir
verða haldnir öll fimmtudagskvöld frá klukkan 20.30 í húsi félags-
ins við Bárugötu. Stuðningsfólk er hvatt til að mæta og hafa áhrif á
stefnumótunina. Opið hús verður alla laugardaga frá klukkan 13 -
15.
Frambjóðendur AB
Alþýðubandalagið Kópavogi
Skrifstofa félagsins
verður fyrst um sinn opin frá kl. 15-18.30 mánudaga-fimmtudaga.
Fólagar eindregið hvattir til að koma á skrifstofuna til að fá fréttir af
málefnum bæjarfélagsins og greiða félagsgjöldin.
Sími 41746: Stjórnln
Alþýðubandalagið á Eskifirði
Vinnufundir
Vinnufundir öll mánudagskvöld á Víðivöllum kl. 20.30.
Alþýðubandalagið á Akranesi
Stefnuskrárumræða fyrir
bæjarstjórnarkosningar
Alþýðubandalagið á Akranesi boðar til stefnuskrárumræðu
fyrir bæjarstjórnarkosningarnar og vinnu starfshópa í Rein mánu-
daginn 2. apríl klukkan 20.30.
1. Atvinnu-, kjara- og húsnæðismál. Stjórnendur verða þau Jó-
hann Arsælsson, Guðný Ársælsdóttir og Ragnheiður Þor-
grímsdóttir.
2. Félagsleg þjónusta (ma. málefni aldraðra), barnavernd og
framfærsla. Stjórnendur Hulda Óskarsdóttir og fleiri.
3. Dagvistunarmál. Stjórnandi Guðbjartur Hannesson.
Allt áhugafólk er hvatt til að mæta. Bæjarmálaráð AB
Islenski
svína-
stofninn
Kostir hans og
gallar
Að undanförnu hafa tveir nor-
skir sérfræðingar í svínarækt,
Tor Blichfeldt dýralæknir og
Bjarned Trodahl ferðast milli
svínabúa hérlendis í því skyni að
kynna sér íslenska svínastofninn,
kosti hans og galla. Ferðuðust
þeir félagar hér um á vegum
Svínaræktarfélags íslands og að
ósk þess. Auk þess að vera dýra-
læknir er Blichfeldt einnig kyn-
bótafræðingur, starfar hjá nor-
ska svínaræktarsambandinu og
veitir því ráðgjöf, einkum að þvi
er varðar frjósemi.
í framhaldi af þessu ferðalagi
hélt svo Svínaræktarfélag íslands
fræðslufund um stöðu íslenskrar
svínaræktar, fyrir svínabændur
og aðra áhugamenn. Fór fundur-
inn fram að Hótel Sögu 23. mars
s.l.
Á fundinum hélt Blichfeldt
fróðlegan fyrirlestur um svína-
rækt almennt. Auk þess fjallaði
hann í erindi sínu um ísienska
svínarækt sérstaklega og íslenska
svínastofninn. Að áliti Blich-
feldts eru kostir íslenska svína-
stofnsins einkum þessi:
1. Góð ending og sterkir fætur.
2. Bragðgott kjöt. 3. Góð frjó-
semi.
Helstu gallar eru á hinn bóg-
inn:
1. Of hægur vöxtur grísa, en á
íslandi er dagleg þyngdaraukning
grísa nokkru minni hér en í Nor-
egi. 2. Of mikil fita utan á kjöti.
Telur Blichfeldt að hvað þessa
annmarka áhrærir sé íslensk
svínarækt 10 árum á eftir þeirri
norsku. Á fundinum kom það
fram, og er haft eftir dönskum
fagmanni, að nokkur hluti ís-
lensks svínakjöts sé jafngóður því
danska.
Forystumenn Svínaræktarfé-
lagsins bentu á hversu skýrslu-
hald í atvinnugreininni sé mikil-
vægt skilyrði tii framfara og væri
brýnt að auka það að mun.
-mhg
Búnaðarþing
Vandi
fóður-
stöðvanna
í erindi Egils Jónssonar til Bún-
aðarþings fór hann þess á leit að
þingið „taki til umfjöllunar og af-
greiðslu málefni loðdýrabænda
og ástand þeirrar greinar land-
búnaðarins, er þeir stunda“.
f ályktun sinni um málið bendir
Búnaðarþing á, að nú sé að kom-
ast á lokastig athugun á því að
breyta lausaskuldum loðdýra-
bænda á grundvelli laga þar um.
Lögð er á það áhersla, að þar sem
örðugur fjárhagur hindri uppgjör
lausaskulda, verði allra leiða
leitað til lausnar, m.a. með til-
stuðlan Jarðasjóðs. En þar sem
staða fóðurstöðvanna hafi ekki
verið tekin til meðferðar á sama
hátt og einstaklinganna, kunni
svo að fara, að vandi þeirra komi
í veg fyrir að aðrar úrlausnir komi
að gagni. Því skorar Búnaðarþing
á ríkisstjórn og Alþingi að sjá til
þess, að vandi fóðurstöðvanna
verði leystur á raunhæfan hátta
og felur landbúnaðarráðherra,
Búnaðarfélagi íslands og Stétt-
arsambandi bænda að fylgja því
máli fast eftir.
-mhg
þJÓDVIUINN
FYRIR50ÁRUM
Þrælalögin í framkvæmd. Verka-
mannakaup hækkar aðeins um
örlítinn hlutadýrtíðarinnar.
Verkalýðssamtökin verða að
fylkja sér fast bak við kröfuna um
mánaðarlega kauphækkun í fullu
samræmi viðdýrtíðina. Ríkis-
stjórnin heimtar heimild til að
skera lögboðin gjöld og dýrtíðar-
uppbót til starfsmanna niður um
35%. Ný afturhaldsárás á hag al-
þýðu og félagslegar umbætur.
í DAG
31. mars
laugardagur. 90. dagur ársins.
24. vika vetrar byrjar. Sólarupp-
rás í Reykjavík kl. 6.50 - sólarlag
kl. 20.16.
Viðburöir
Þjóðhátíðardagur Möltu.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavik: Helgar- og kvöldvarsla
lytjabúða vikuna 30. mars til 5. apríl
er í Háaleitis Apóteki og Vesturbæjar
Apóteki.
Fyrrnefnda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22 til 9
(til 10 frídaga). Siðarnefnda apótekiðer
opið á kvöldin 18 til 22 virk daga og á
laugardögum 9 til 22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík............sími 1 11 66
Kópavogur............sími 4 12 00
Seltjarnarnes........sfmi 1 84 55
Hafnarfjörður........sími 5 11 66
Garðabær.............sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabilar:
Reykjavik...........sími 1 11 00
Kópavogur............sími 1 11 00
Seltjarnarnes........sími 1 11 00
Hafnarfjörður.......sími 5 11 00
Garðabær.............sími 5 11 00
LÆKNAR
Læknavaktfyrlr Reykjavfk, Seltjarn-
arnes, og Kópavog er í Heilsuverndar-
stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17
til kl. 08, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, síma-
ráðleggingar og tímapantanir í síma
21230. Upplýsingar um lækna- og lyfja-
þjónustu eru gefnar i símsvara 18888.
Borgarspitalinn: Vakt virka daga frá kl.
8 til 17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspítal-
Inn: Göngudeildin er opin kl. 20 til 21.
Slysadelld Borgarspítalans eropin all-
an sólarhringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt
sími65666, upplýsingar um vaktlækna
sími51100.
Akureyri: Dagvakt kl 8 til 17 á Lækna-
miðstöðinni sími: 23222, hjá slökkvilið-
inu sími 22222. hjá Akureyrar Apóteki
sími 22445. Farsími vaktlæknis 985-
23221.
Keflavík: Dagvakt. Uppjýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna
sími 1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartímar. Landspítalinn: Alla
daga 15 til 16 og 19 til 20. Borgarspital-
Inn: Virka daga 18:30 til 19:30, um helg-
ar 15 til 18ogeftirsamkomulagi.Fæð-
ingardeild Landspítalans: 15 til 16.
Feðratími 19.30 til 20.30. Öldrunar-
lækningadeild Landspitalans Hátúni 10
B. Alla daga 14 til 20 og eftirsamkomu
lagi. Grensásdeild Borgarspitala: Virka
daga 16til 19, helgar14til19.30.
Heilsuverndarstöðin við Barónsstíg
opin alla daga 15 til 16 og 18.30 til 19.30.
Landakotsspitali: Alla daga 15 til 16 og
18.30 til 19. Barndelld: Heimsóknirann-
arraenforeidrakl. 16til 17daglega.
St.Jósefsspitali Hafnarfirði: Alladaga
15 til 16 og 19 til 19.30. Kleppsspftal-
inn: Alla daga 15 til 16og 18.30 til 19.
Vestmannaeyjunv. Alla virka daga 15 til
16 og 19 til 19.30. Sjúkrahús Akra-
ness: Alladaga 15.30 til 16og 19til
19.30. SjúkrahúsiðHúsavik: Alladaga
15 til 16 og 19.30 til 20.
YMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ: Neyðarathvarf fyrir
unglinga, Tjarnargötu 35. Sími: 622266,
opið allan sólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráðgjöf i sálfræði-
legum efnum. Simi: 687075.
MS-félagið, Álandi 13. Opið virka daga
frá kl. 8 til 17. Síminn er 688620.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum Vest-
urgötu 3. Opið þriðjudaga kl. 20 til 22,
fimmtudaga 13.30 til 15.30 og kl. 20til
22, sími 21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra, sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum, sími 21500, sím-
svari.
Upplýsingar um eyðni. Simi 622280,
beint samband við lækni/hjúlrunarfræð-
ing á miðvikudögum kl. 18 til 19, annars
símsvari.
Samtök um kvennaathvarf, simi
21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur
sem beittar hafa verið ofbeldi eða
orðið fyrir nauðgun.
Samtökin 78. Svaraðeríupplýsinga-
og ráðgjafarsíma félags lesbía og
homma á mánudags- og fimmtudags-
kvöldum kl. 21 til 23. Símsvari á öðrum
tímum. Síminn er 91 -28539.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: sími:
27311. Rafmagnsvelta bilanávakt simi:
686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
sími: 652936.
Vinnuhópur um sif jaspellamál. Sími
21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í sima 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 áfimmtudagskvöldum.
„Oplð hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlið 8 er „Opið hús“ fyrir alla
krabbameinssjúklinga og aðstandendur
þeirra á fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmis-
vandann sem vilja styðja smitaða og
sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið í
síma 91 -2240 alla virka daga.
Stígamót, miðstöð fyrir konur og börn sem
orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Ráðgjöf, f ræðsla, upplýsingar. - Vestur-
götu3, R.
Slmar: 91 -626868 og 91-626878 allan sól-
arhringinn.
GENGIÐ
26. mars 1990
Bandaríkjadollar........... 61,70000
Sterlingspund................ 99,47900
Kanadadollar................. 52,41000
Dönsk króna................... 9,42340
Norsk króna................... 9,31180
Sænsk króna................... 9,97090
Finnskt mark................. 15,24770
Franskur franki.............. 10,68210
Belgiskur franki........... 1,73630
Svissneskur franki........... 40,55210
Hollenskt gyllini............ 31,96480
Vesturþýskt mark............. 35,96930
Itölsk líra................... 0,04885
Austurrískur sch.............. 5,11080
Portúg. escudo................ 0,40690
Spánskur peseti............... 0,56210
Japanskt jen.................. 0,39535
Irskt pund................... 96,02700
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 stoö4 vitur6
rispa7bundið9
skoðun12sterti14
hreinn15læri16
heimshlutinn 19 dreitill
20 inn 21 karlmanns-
nafn
Lóðrétt:2vökva3
nabbi 4 ílát 5 gjafmildi 7
fatli 8 drengi 10slotaði
11 tiðin 13 spök 17
mjúk 18 for
Lausn á siðustu
krossgátu
Lárétt: 1 mors4föst6
kný7bali9svik12úld-
na14nes15lúa16
klóri 19 urri 20 ónýt 21
amman
Lóðrétt: 1 oka3skil4
fýsn5sói7bendur8
Iúskra10valinn11
klatti13dró17lim18
róa
Laugardagur 31. mars 1990 pjÖÐVILJINN - SÍÐA 15