Þjóðviljinn - 05.04.1990, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 05.04.1990, Blaðsíða 11
I DAG VIÐHORF Framhald af 5 innan hæfilegra marka ekki síst þegar við förum með almanna- valdið. Það má því ekki vera bara áhugamál einhverra sérvitringa að koma í veg fyrir að fólk standi í þeim sporum í opinberu starfi að þurfa að vega eigin hagsmuni - (kannski beina fjárhagslega) - á móti öðrum hagsmunum sem e.t.v. eru þá fyrst og fremst af siðferðilegum eða hugsjóna- legum toga. Þess vegna eru skýr lög um „hagsmunaárekstra“ allra hagur. Djúp milli þjóðfélagshópa: Þó eru lög og reglur ekki alltaf mikils virði ef almenn viðhorf - og tísk- an - eru þeim andstæð. Þegar valdsmenn og háttsettir starfs- menn - sem við viljum öll fá að bera þónokkra virðingu fyrir - umgangast lögin af léttúð og hika jafnvel ekki við að hygla sínum kumpánum - þá hefur það slæm áhrif á móralinn í samfélaginu. Þegar djúp skapast á milli hug- myndaheima - á milli afkomu- möguleika fólks á íslandi þá er hætt við að spennan sem af slíku leiðir valdi skaða í samfélaginu og þróunarmöguleikum til fram- tíðar - þá er ekki bara um að ræða samstöðu og samkennd íslend- inga. Meirihlutaofbeldi: Það meiri- hlutavald sem ráðandi öfl í samfélaginu fara með hefur að minni hyggju misboðið „minni- hlutanum“ - í þessu tilfelli álít ég að allur almenningur tilheyri því sem ég hér kalla minnihluta. Samstaðan um kjarasamningana sem nú hafa almennt verið sam- þykktir er einungis samstaða valdastéttanna - hvar í stjórnmálaflokki sem þær skipa sér. Venjulegur íslendingur veit og finnur að með þessum samn- ingum er verið að festa í sessi þá misskiptingu sem hefur verið að þróast síðustu ár og einkum á tímabilinu sem liðið er síðan vaxtafrelsið og lánskjaravísitalan náðu saman í þeim „dúett“ sem nú vegur svo sárlega að afkomu venjulegra barnafjölskyldna á voru landi. Börnum misboðið: Ekki síst þegar í samningunum felst að grunnskólinn fær enn rýrðan hlut (og er hann þó sá rýrasti í okkar heimshluta og getur ekki einu sinni séð um börnin hálfan dag hvað þá meir- víða úti um land fá yngstu börnin e.t.v. einn dag í viku; skólaárið í þéttbýlissamfé- lagi nútíma íslands er ennþá jafnstutt og þegar flestar mæður voru heima og mikill hluti þjóð- arinnar bjó í sveitinni.) Það eru því hörmuleg rök gegn skóla- umbótum að lenging skóla- dagsins - skólamáltíðir og fleiri óhjákvæmilegir hlutir kosti pen- inga. Það hefur engin þjóð efni á því að vanrækja grunnmenntunina - vanrækja börnin - og vanvirða skólakerfið og starfsfólk þess, það bitnar á mönnum síðar. Hérlendis hefur sá skollaleikur verið stundaður að skjóta sér á bak við skammtímaerfiðleika í efna- hagsmálum til að þrengja hlut al- menningsskólans. Skólaskelfingar — skólaumbæt- ur: Auðvitað er margt að laga í skólunum - stjómun er í molum - vinnumórallinn allt of slakur - og það mætti lengi telja - en flest það sem aflaga hefur farið í grunnskólunum á síðustu árum má rekja með einum eða öðmm hætti til hinnar almennu niður- lægingar sem skólarnir hafa sætt um nokkurt skeið. Það vita allir að skólunum er ætlað að sinna fleiri og fleiri þáttum uppeldisins á sama tíma og fjármunir fást ekki. Fjölmiðlun - neysla og allar aðstæður í samfélaginu gera skól- unum erfiðara um vik í sam- keppninni um athygli barnanna. Við sem þar störfum bemm okk- ar ábyrgð á ástandinu - við höf- um bmgðist ef svo má segja - og það hafa allir brugðist okkur. Kannski hefur „kjaraþráhyggja“ - og viðvarandi óánægja með lé- leg laun orðið til þess að kennarar og skólastjórnendur hafa látið þetta skilningsleysi yfir sig ganga. Við emm oft sökuð um að vinna ekki vinnuna okkar - standa ekki í stykkinu. Því miður er talsvert af gagnrýni í okkar garð á rökum reist - of margir vinna ekki vinn- una sína - of margar stofnanir menntakerfisins skortir metnað - og margir em óhamingjusamir í skólunum bæði starfsmenn og nemendur. Auðvitað verðum við að taka til í okkar eigin garði - við verð- um að bæta stjórnun - og við verðum að losa okkur undan því ámæli að við vinnum ekki nema fáeina mánuði á ári og þá bara rétt fram yfir hádegi. Þetta eru verkefni fýrir kenn- ara og skólastjóra að vinna, en um leið verðum við að treysta því að það sé hægt að skapa meiri skilning á mikilvægi grunnmenntunar - á mikilvægi uppeldisins - bæði fyrir lífsham- ingju einstaklinganna og fyrir þróunarmöguleika samfélagsins alls. Það má enn þrauka: En góðir áheyrendur ennþá hlýtur að vera von - við erum ekki komin á upp- ■ boð í útlöndum - við höfum enn- þá einhverjar hæstu þjóðartekjur sem þekkjast - við búum við lægra skatthlutfall en flestir ná- grannar okkar - jafnvel miklu lægra. Þess vegna er svigrúm til að auka og bæta ókeypis starf- semi dagvistarbarnaskóla - og al- mennrar heilbrigðis- og öldrun- arþjónustu - hvað sem líður miskunnarlausum áróðri til ó- frægingar opinberri þjónustu. - Við höfum nægan þjóðarauð en við verðum að huga vel að jafnari skiptingu þeirra gæða. Græðgi er það viðhorf sem verðbólgan nærist á- forréttinda- hyggja og forræðishyggja er það viðhorf sem vaxandi kjaramunur hefur stuðst við. Sjálfsskilningur þjóðarinnar verður þvert á móti að byggjast á því viðhorfi að við getum og að við megum vera íslendingar. Hvernig okkur vegnar á er- lendum mörkuðum byggist nefni- lega ekki síst á því að við trúum því að við höfum eitthvað að bjóða - eitthvað sem enginn ann- ar hefur. Við vitum að við höfum ennþá tiltöiulega ómengað umhverfi og við vitum líka að við höfum BÆKUR menningu sem er einstök og skiptir máli á vettvangi þjóð- anna. Þetta tvennt eru verðmæti sem við höfum að selja öðrum - ekki í eitt skipti fyrir öll - heldur alla daga um ókomna framtíð. Þess vegna megum við ekki láta skammsýna stundarhagsmuni óvandaðra sölumanna eyðileggja fyrir okkur það sem við eigum saman - og það sem við erum. Við eigurn möguleika á er- lendum vettvangi sem fram- leiðendur vöru sem á engan sinn líka - og við verðum að keppast við að skapa ímynd hins einstaka - þess ómengaða - þess áreiðan- lega. Við verðum að koma fram af sanngirni og heiðarleika og sýna sjálfstæða stefnu sem ekki sveifl- ast af skyndilegri hagnaðarvon á þingi þjóðanna. Með slíku móti munum við verðskulda eitt atkvæði sem veg- ur þá hátt upp í það sem hin efna- hagslegu stórveldi fara með á al- þjóðavettvangi. Til þess að svona megi takast verðum við auðvitað að breyta um áherslur - breyta um viðhorf og víkja til hliðar græðginni og skyndihagnaðarvoninni. Við þurfum líka að víkja til hliðar þeirri hugsun valdbeiting- ar sem tekur formlega skil- greiningu meirihlutasamþykktar framyfir eðlilega kröfu um virð- ingu fyrir rétti minnihlutans. Og kannski er eitt brýnasta hagsmunamál lýðræðis á Islandi nútímans að komið verði á nokk- urs konar „úreldingarsjóði" fyrir notaða pólitíkusa og aðra valda- menn. Þar sem sett verði mjög afgerandi ákvæði um að enginn geti setið nema takmarkaðan tíma í valdastöðum. Slík breyting ætti e.t.v. að tengjast hugsanlegu afnámi æviráðningar opinberra starfsmanna. Við þær aðstæður væri tekinn frá mönnum sá bikar að geta með hyglingum skapað sér velvilja sem framlengir póli- tískt líf manna. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru og ekki gefist tóm til að gera neinu efni fullnægjandi skil. Eg vona þó að ljóst sé að mér er töluvert niðri fyrir - og ég leyfi mér einnig að vona að meðal les- enda Ieynist einhverjir skoðana- bræður og systur. „Við megum aJdrei samþykkja leikreglur alræðisins;“ sagði for- seti Tékkóslóvakíu hér á dögun- um - og þeir hafa haft erindi sem erfiði. Við megum heldur ekki sam- þykkja þá breytingu sem kjara- munurinn og viðhorfsmunurinn framkallar á íslandi - slíkt stríðir gegn réttlætisviðmiðunum fólks - og það án tillits til stjórnmála- skoðana. Við höfum nokkuð að varð- veita og við höfum einnig margt að læra af hræringum samtímans úti í hinum stóra heimi. Þar er ekki bara að finna gróðavon á ný- jum mörkuðum - þar er líka að finna hugmyndir og hugsun sem kann að gagnast okkur. Ég veit að auðvitað er hægara um að tala en í að komast, en vita megum við það að „heilbrigð skynsemi“ þarfnast liðsauka í baráttunni fyrir betra lífi venju- legra íslendinga. Rit um upphaf norrænnar sagnaritunar Út er komin bókin Die Anfange der islándisch-norwegischen Geschightsshreibung eftir Gu- drun Lange. Hún er gefin út af Bókmenntastofnun Háskóla ís- lands og Bókaútgáfu Menningar- sjóðs og er 47. bindi í ritröðinni Studia Islandica. Ritið, sem samið er á þýsku, fjallar um „Upphaf norrænnar sagnaritunar“. I því er m.a. leitað svara við þeirri spurningu, hvaða stöðu hið latneska verk norska munksinsTheodoricusar, Histor- ia de antiquitate regum Nor- wagiensium, sem er meðal þriggja elstu varðveittra yfirlits- verka um sögu Noregskonunga, gegni innan norrænnar sagna- ritunar og hvernig tengslum þess sé háttað við íslenskar bók- menntir. Höfundur telur ekki eingöngu dróttkvæði, heldur líka bækur Sæmundar fróða og Ara fróða, Elstu Ólafs sögu helga og Ólafs sögu Tryggvasonar eftir Odd munk Snorrason vera heim- ildir Theodoricusar, sem sýni, að hin norska konungasagnaritun á 12. öld hafi verið háð þeirri ís- lensku. Þá eru könnuð tengsl Historia de antiquitate regum Norwagiensium við hin tvö elstu yfirlitsverkin, Historia Norvegiæ og Ágrip af Noregskonunga sög- um, og er niðurstaðan sú, að öll þrjú yfirlitsverkin hafi m.a. notað sameiginlegar íslenskar ritheim- ildir. Tilurð og þróun konunga- sagna fá þannig á sig fleiri myndir en hingað til hefur verið talið. Höfundur beitir bæði sögulegri og samtímalegri rannsóknar- aðferð og skoðar verkefni sitt í samhengi við evrópska miðalda- sagnaritun almennt, en það hafa fæstir gert til þessa. Bókaútgáfa Menningarsjóðs tllÁAllll 111111 fimmtudagur. 95.dagurársins. IJlUliV iy I Rlll Sólarupprás í Reykjavík kl. 6.32 FYRIR50ÁRUM Lögreglan bannar sýningar á gamanleik. Fannsteinhverjum háttsettum nærri sér vegið? Sjónleikurinn „Stundumog stundum ekki“, sem Leikfélagið ætlaði að hefja sýningar á i gær- kvöld, var bannaður af lögregl- unni með þeim forsendum að hann yrði að teljast „ósiðferði- legur" og höggvaof nærri pers- ónum í pólitískum stöðum. DAGBÓK APÓTEK Reykjavik: Helgar- og kvöldvarsla lyfjabúða vikuna 30. mars til 5. apríl er í Háaleitis Apóteki og Vesturbæjar Apóteki. Fyrrnefnda apótekið eropið um helgar og annast næturvörslu alla daga 22 til 9 (til 10 frídaga). Síðarnefnda apótekið er opið á kvöldin 18 til 22 virk daga og á laugardögum 9 til 22 samhliða hinu fyrr- nefnda. LÖGGAN Reykjavík...........sími 1 11 66 Kópavogur...........sími 4 12 00 Seltjarnarnes.......sími 1 84 55 Hafnarfjörður ......sími 5 11 66 Garðabær............sími 5 11 66 Slökkvilið og sjúkrabílar: Reykjavík...........sími 1 11 00 Kópavogur...........simi 1 11 00 Seltjarnarnes ......sími 1 11 00 Hafnarfjörður ......sími 5 11 00 Garðabær............sími 5 11 00 LÆKNAR Læknavaktfyrir Reykjavík, Seltjarn- arnes, og Kópavog er í Heilsuverndar- stöö Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til kl. 08, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, síma- ráðleggingarog tímapantanir í síma 21230. Upplýsingar um lækna- og lyfja- þjónustu eru gefnar í símsvara 18888. Borgarspítalinn: Vakt virka daga f rá kl. 8 til 17 og fyrir þá sem ekki haf a heimilis- lækni eða ná ekki til hans. Landspítal- inn: Göngudeildin eropin kl. 20 til 21. Slysadeild Borgarspítalans er opin all- an sólarhringinn simi 696600. Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan sími 53722. Næturvakt lækna sími 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt sími65666, upplýsingar um vaktlækna sími51100. Akureyri: Dagvakt kl 8 til 17 á Lækna- miðstöðinni slmi: 23222, hjáslökkvilið- inu sími 22222. hjá Akureyrar Apóteki sími 22445. Farsfmi vaktlæknis 985- 23221. Keflavík: Dagvakt. Uppjýsingar s. 3360. Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna sími 1966. SJÚKRAHÚS Heimsóknartimar. Landspitalinn: Alla daga 15 til 16 og 19 til 20. Borgarspital- Inn: Virkadaga 18:30 til 19:30, umhelg- ar 15 til 18 og eftir samkomulagi. Fæð- ingardeild Landspítalans: 15 til 16. Feðratimi 19.30 til 20.30. Öldrunar- lækningadeild Landspitalans Hátúni 10 B. Aila daga 14 til 20 og eftirsamkomu lagi. Grensásdelld Borgarspitala: Virka daga 16 til 19, helgar 14 til 19.30. Heilsuverndarstöðin við Barónsstíg opin alla daga 15 til 16 og 18.30 til 19.30. Landakotsspitali: Alla daga 15 til 16 og 18.30 til 19. Barndeild: Heimsóknirann- arraenforeldrakl. 16til 17daglega. St.Jósefsspitali Hafnarfiröi: Alladaga 15 til 16 og 19 til 19.30. Kleppsspftal- inn: Alla daga 15 til 16 og 18.30 til 19. Vestmannaeyjum: Alla virka daga 15 til 16 og 19 til 19.30. Sjúkrahús Akra- ness: Alla daga 15.30 til 16 og 19til 19.30. Sjúkrahúsið Húsavík: Alladaga 15til16og 19.30 til 20. YMISLEGT Hjálparstöð RKÍ: Neyðarathvarf fyrir unglinga, Tjarnargötu 35. Simi: 622266, opið allan sólarhringinn. Sálf ræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræði- legum efnum. Sími: 687075. MS-félagið, Álandi 13. Opiðvirkadaga frá kl. 8 til 17. Síminn er 688620. Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum Vest- urgötu 3. Opið þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtudaga 13.30 til 15.30 og kl. 20til 22, sími 21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra, sem oröið hafa fyrir sifjaspellum, sími 21500, sím- svari. Upplýslngar um eyðni. Sími 622280, beint samband við lækni/hjúlrunarfræð- ing á miðvikudögum kl. 18 til 19, annars símsvari. Samtök um kvennaathvarf, simi 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða orðið fyrirnauðgun. Samtökin 78. Svarað er i upplýsinga- og ráðgjafarsima félags lesbía og homma á mánudags- og fimmtudags- kvöldum kl. 21 til 23. Símsvari á öðrum tímum. Siminn er 91 -28539. Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu: sími: 27311. Rafmagnsveita bilanavakt sími: 686230. Rafveita Hafnarf jarðar: Bilanavakt, sími: 652936. Vinnuhópur um sif jaspellamál. Sími 21260allavirkadaga kl. 13til 17. Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga- nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30 og 22.00 áfimmtudagskvöldum. „Opið hús“ krabbameinssjúklinga Skógarhlíð 8 er „Opið hús“ fyrir alla krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á fimmtudögum kl. 17 til 19. Samtök áhugafólks um alnæmis- vandann sem vilja styðja smitaðaog sjúka og aðstandendur þeirra. Hringið í sima 91 -2240 alla virka daga. Stígamót, miðstöð tyrir konur og böm sem orðið hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi. Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar,-Vestur- götu3, R. Símar: 91 -626868 og 91 -626878 allan sól- arhringinn. GENGIÐ 30. mars 1990 Bandaríkjadollar........... 61,14000 Sterlingspund.............. 100,50500 Kanadadollar................. 52,20500 Dönsk króna................... 9,44610 Norsk króna................... 9,32300 Sænsk króna................... 9,98370 Finnskt mark................. 15,27160 Franskur franki............ 10,72490 Belgískur franki.............. 1,74460 Svissneskur franki........... 40,86350 Hollenskt gyllini............ 32,05660 Vesturþýskt mark............. 36,10590 (tölsk líra................... 0,04896 Austurrískur sch.............. 5,12940 Portúg. escudo................ 0,40810 Spánskur peseti............... 0,56330 Japanskt jen.................. 0,38844 írskt pund................... 96,57400 KROSSGÁTA Lárétt: 1 ragn4glyrna 6stefna7spé9fyrir- höfn 12 deila 16 draup 15planta 16karl- mannsnafn 19 kyrrð 20 karl21 vondir Lóðrétt: f 52 áþekk 3 fjöri4frumelnd5 mánuður 7 hungraði 8gat10skordýr11 gleði 13 fax 17 gljúfur 18 leiði . Lausn á siðustu krossgátu Lárétt: 1 geig4hýri6 eir 7 haft 9 ósar 12 laust 14æða15eik16svani 19tæki20ánar21 at- aöi Lóðrétt: 2 eða3 geta4 hrós 5 óa 7 hvæsti 8 flaska10Steini11 rökkri13una17vit18 náð Flmmtudagur 5. april 1990 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.