Þjóðviljinn - 17.05.1990, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 17.05.1990, Blaðsíða 6
X-ÍSAFJÖRÐUR X-ÍSAFJÖRÐUR Smári Haraldsson framhaldsskólakennari Samstarf meirihlutans hefur gengiö vel „Samstarf félagshyggjuflokk- anna þriggja sem hafa haft meiri- hluta í bæjarstjórn ísafjarðar á þessu kjörtímabili og hinu fyrra hefur gengið alveg Ijómandi vel. I sjálfu sér sé ég ekkert því til fyrir- stöðu að þessu samstarfi verði haldið áfram svo framarlega sem við fáum til þess nægilegan stuðn- ing og fylgi frá ísfirskum kjósend- um“, segir Smári Haraldsson framhaldsskólakennari og bæjar- fulltrúi Alþýðubandalagsins í bæjarstjórn fsafjarðar. Tók við á miðju kjörtímabili Smári tók við sem aðalfulltrúi Alþýðubandalagsins í bæjar- stjórninni á miðju kjörtímabilinu eftir að Þuríður Pétursdóttir, sem skipaði efsta sæti á G-listanum vorið 1986, flutti úr bænum. Smári er nú formaður bæjarráðs og hefur verið það síðustu miss- eri. Hann skipar nú annað sæti á framboðslista Alþýðubandalags- ins að eigin ósk til að geta sinnt betur fjölskyldu sinni og kennslu- störfum við Menntaskólann á ísafirði en Smári er líffræðingur að mennt. Fjármál bæjarins Smári segir að honum sé engin launung á því að fjármál bæjar- sjóðs mættu vera mun betri en þau eru í dag. Skuldir bæjarsjóðs eru um 430 miljónir króna. Óldr- unarstofnun skuldar um 110 milj- ónir og hafnarsjóður um 20 milj- ónir króna. Samtals skuldar því bæjarfélagið um 560 miljónir króna. Þrátt fyrir þessa miklu skuldastöðu er bæjarsjóður þó ekki kominn á vonarvöl þó hann sé kominn óæskilega nálægt hættumörkum. Af þeim sökum telur Smári að hagsmunir bæjar- ins hljóti að kalla á að dregið verði úr útgjöldum á næstu árum. Að mati Smára er það hægt með tvennum hætti. Annars veg- ar með því að draga úr fram- kvæmdum eða með því að skera niður rekstur og þar með að draga úr þeirri félagslegri þjón- ustu sem bærinn veitir. Það sé hins vegar stefna Alþýðubanda- lagsins að hægja á framkvæmdum og halda þess í stað þeirri stöðu sem félagsleg þjónusta hefur náð í bænum. Þessi stefna Alþýðu- bandalagsins er skýr og afdráttar- laus. Af hverju þessar miklu skuldir? Smári segir að ástæðumar fyrir þessari miklu skuldasöfnun bæjarins séu ýmsar en einkum vegna þess að við upphaf þessa kjörtímabils höfðu framkvæmdir í bænum að mestu legið niðri í fjögur ár vegna afleitrar fjár- hagsstöðu bæjarsjóðs árið 1982. Þá var beðið með ýmsar fram- kvæmdir og í því sambandi má meðal annars nefna grunn- skólann, sjúkrahúsið, höfnina og íþróttahúsið. Þá má ekki gleyma því að um 90 miljónir af skuldum bæjarins eru tilkomnar vegna Hlífar2. í því máli var bæjarsjóð- ur að bjarga mörgum af eldri íbú- um frá alvarlegum fjárhagsvand- ræðum sem stofnað var til af ein- staklingum úti í bæ. Frjálshyggjufárið Eins og flestum er kunnugt um var geysileg þennsla á höfuðborg- arsvæðinu sem sogaði til sín fólk frá landsbyggðinni og því varð núverandi meirihluti í bæjar- stjórn ísafjarðar að bregðast við á einhvern máta. Átti hann að stuðla að lækkun skulda bæjar- sjóðs eða að fara af stað með eitthvað af þeim brýnu viðfang- sefnum sem höfðu hrannast upp frá fyrra kjörtímabili?. Á meðan frjálshyggjufárið reið yfir lands- byggðina sem ísafjörður fór ekki varhluta af, fækkaði íbúum og íbúðabyggingar drógust saman. Tii að snúa vörn í sókn var valin sú leið að ráðast í eitthvað af þessum framkvæmdum, sem áður er getið í stað þess að missa fleira fólk suður. Þó sú ákvörðun hafi kostað sitt og kemur glögg- lega fram í bágri fjárhagsstöðu bæjarins, hefur verið komið í veg fyrir áframhaldandi fækkun íbú- anna sem hlýtur að vera eitt af höfuðmarkmiðum hvers bæjarfé- lags. Minni tekjur í staðgreiðslunni Þá segir Smári að bæjarsjóður hafi fengið mun minna út úr skattkerfisbreytingunni en reikn- að var með og nemur sá mismun- ur allt að 20 miljónum króna og munar um minna. Bæjarstjórn samþykkti á dögunum að láta kanna hvaða ástæður liggja fyrir þessum mismun. Þá hafi vaxta- okrið haft sitt að segja um slæma fjárhagsstöðu. Ennfremur hafi ýmislegt farið á verri veg en gert var ráð fyrir og þá einkum hvað snertir hinar ýmsu kostnaðará- ætlanir sem gerðar hafa verið um rekstur og annað í þeim dúr. Hins vegar séu öll teikn á lofti um að vextir fari lækkandi þó svo að raunvextir séu ekki inni í þeirri mynd og eins hitt að ef sá stöðug- leiki í efnahagsmálum þjóðarinn- ar verður viðvarandi, sé allt útlit fyrir betri tíð. Gangi það eftir og verði uppsveifla í efnahagslífinu verði ekki svo erfitt að greiða nið- ur þær skuldir sem bærinn hefur stofnað til á yfirstandandi kjört- ímabili. Framhaldsskoli Vestfjarða Eins og gefur að skilja eru skólamál Smára mjög hugstæð og eitt af höfuðviðfangsefnum AI- þýðubandalagsins á þessu kjört- ímabili hefur verið að berjast fyrir því að stofnaður verði fram- haldsskóli á Vestfjörðum með miðstöð á ísafirði. í þeim skóla verði nemendum gert kleift að Þau þrjú efstu á framboðslista Alþýðubandalagsins á Isafirði við bæjarstjórnar- kosningarnar sem fram fara í næstu viku. F.v. Smári Haraldsson framhalds- skólakennari og bæjarfulltrúi sem skipar annað sætið, Bryndís Friðgeirsdóttir kennari sem skipar efsta sætið og Hulda Leifsdóttir verkakona í þriðja sæti. Mynd: grh ljúka sem flestum verknáms- greinum heima í héraði auk bók- legra greina. Verði skólinn að veruleika, sem stefnt er að, mun hann reka skólaútibú á öðrum þéttbýlissvæðum á Vestfjörðum og þannig tengja saman byggð- irnar. Með tilkomu jarðgang- anna verður algjör bylting í sam- göngumálum fjórðungsins, þann- ig að svæðið frá Dýrafirði til ísafj- arðadjúps verður ein heild með öllum þeim ávinningum sem það mun hafa í för með sér. Máttlaus stjórnarandstaða Eins og gefur að skilja hafa bæjarfulltrúar íhaldsins haft allt á hornum sér varðandi fjármála- stefnu meirihlutans í bæjarstjórn- inni og látið í veðri vaka að ef þeir væru við stjórnvölinn væri allt miklu betra. Hins vegar hefur reyndin verið sú að íhaldið hefur verið afar ósannfærandi í mál- flutningi sínum allt þetta kjör- tímabil og bæjarfulltrúar þeirra hafa ekki getað komið sér saman um málefni. Þegar á reyndi við uppstillingu framboðslista þeirra fyrir kosningarnar, sprungu margir þeirra á limminu og niður- staðan varð sérframboð. Smári segir að það þurfi vart að minna ísfirðinga á það hvernig staða bæjarsjóðs var eftir stjórn- arsetu íhaldsins á árunum fyrir 1982. í stuttu máli má segja að hún hafi nánast engin verið, sem skýrir það út af hverju félags- hyggjuflokkarnir urðu að fresta mikilvægum framkvæmdum þeg- ar þeir tóku við eftir kosningarn- ar vorið 1982. Smári segir það mikilvægt fyrir ísfirska kjósendur að hafa þetta í huga nú þegar íhaldið reynir í tveimur hlutum að sannfæra þá um annað. -grh G- listinn 1 Bryndís Friðgeirsdóttir kennari 2 Smári Haraldsson framhaldsskólakenn- ari 3. Hulda Leifsdóttir verkakona 4. Ftögnvaldur Þ. Óskarsson bakari 5. Elísabet Gunnlaugsdóttir húsmóðir 6. Herdfs M. Hubner kennari 7. Elín Magnfreðsdóttir bókavörður 8. Svanhildur Þórðardóttir verslunarmaður 9. Valdimar Birgisson sjómaður 10. Haraldur Tryggvason verkamaður 11. Reynir Sigurðsson sjómaður 12. Gísli Skarphéðinsson sjómaður 13. Tryggvi Guðmundsson lögfræðingur 14. Guðrún Sigurðardóttir skrifstofumaður 15. Gunnar Tryggvason nemi 16. Guðrún Hauksdóttir lyfjafræðingur 17. Eiríkur Guðjónsson verkamaður 18. Pétur Pétursson netagerðameistari Bryndís Friðgeirsdóttir kennari Stöndum vörð um félagslega þjónustu „Forgangsverkefni okkar er að grynnka á skuldum bæjarsjóðs og Ijúka framkvæmdum við grunn- skóla og íþróttahús. Að öðru leytl teljum við ekki forsvaranlegt að ráðast í frekari stórframkvæmdir fyrr en fjárhagsstaða bæjarsjóðs hefur batnað. Þess í stað stað leggjum við áherslu á fegrun og snyrtingu umhverfis, viðhald eigna og að Ijúka við að leggja bundið slitlag á allar ófrágengnar götur. En síðast en ekki síst að staðið verði vörð um þá félags- legu þjónustu sem bæjarfélagið veitir, sem er meðal þess besta í sambærilegum bæjarfélögum“, segir Bryndís Friðgeirsdóttir kennari sem skipar efsta sæti á framboðslista Alþýðubandalags- ins á Isafirði. Úr áttunda sæti í það fyrsta Bryndís Friðgeirsdóttir kenn- ari skipaði áttunda sæti á fram- boðslista Alþýðubandalagsins við síðustu kosningar en leiðir G- listann íþeim kosningum sem fra- mundan eru. Síðustu tvö árin á yfirstandandi kjörtímabili hefur Bryndís verið varabæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins í bæjar- stjórn ísafjarðar. Það sem einkennir G-listann öðru fremur frá öðrum framboð- um þar vestra er hversu hátt hlut- fall kvenna er í fyrstu tíu sætum listans. Þar eru sex konur á móti fjórum körlum og sýnir glögglega þá áherslu sem Alþýðubandalag- ið leggur á jafnréttismál. Fleiri skip og kvóta Að mati Bryndísar er knýjandi þörf á því að iðnráðgjafi taki til starfa á ísafirði og þá í tengslum við útibú Byggðastofnunar og lögð áhersla á að skapa fjöl- breyttara atvinnulíf og styrkja stoðir þess sem fyrir er. Mark- miðið með því er að allir fái vinnu við sitt hæfi. Fiskveiðar og vinnsla sjávaraf- urða er sú atvinnugrein sem at- vinnulíf bæjarins byggir svo til alla afkomu sína á auk ýmissa þjónustustarfa. Af þeim sökum leggur Bryndís þunga áherslu á það að kappkostað verði að auka hlutdeild Isfirðinga í kvótanum sem ekki hafa farið varhluta af þeirri kvótaskerðingu sem verið hefur. Til að svo megi verða verð- ur að kaupa skip og kvóta til bæjarins eftir því sem efni og að- stæður leyfa. Bryndís telur að berjast verði gegn núverandi kvótakerfi og í stað þess er bent á byggðakvóta sem heppilega lausn fyrir staði eins og ísafjörð. Krafa Alþýðubandalagsins er að verði reist stóriðja í landinu, verði kvóti fluttur frá því svæði sem hennar nýtur og til þeirra staða sem ekki njóta góðs af stór- iðjunni. Græða upp opin svæði Umhverfismálin eru ofarlega í huga Bryndísar sem telur að mikið vanti ennþá uppá að þau séu í viðunandi horfi. Meðal þess sem hún leggur þunga áherslu á er að græða upp opin svæði með gróðursetningu blóma og áhersla verði lögð á skógrækt. Þá telur Bryndís nauðsynlegt að settir verði upp bekkir og borð á fleiri stöðum í bænum. En eins og kunnugt er hafa þeir sem fyrir eru, verið einn aðalsamverustað- ur yngri sem eldri bæjarbúa til skrafs og ráðagerða. Lokið verði við frágang aðal- skipulags ísafjarðar sem og deiliskipulagningu alls bæjarins. Skipulagt verði útivistarsvæði í þeirri paradís sem Tungudalur er og einnig í Hnífsdal. Jafnframt að gert verði svæðaskipulag fyrir norðanverða Vestfirði. Sýna gott fordæmi Til að ná því markmiði að fegra umhverfi bæjarins telur Bryndís að fyrirtæki og stofnanir í bænum þurfi að ganga á undan með góðu fordæmi með því að halda lóðum sínum og næsta umhverfi vel til haga. Hið sama gildir um bæjar- búa að þeir hirði vel í kringum lóðir sínar og hýbýli. I þessu sam- bandi verði lögð rík áhersla á að bæta umhverfi á athafnasvæði ná- lægt höfninni með samstilltu átaki bæjarsjóðs, atvinnurek- enda og annarra hagsmunaaðila. Meðal þess sem Bryndís telur mikilvægt í fegrun bæjarins er að Hafnarstræti verði steinlagt og gert að aðlaðandi vistgötu. Enn- fremur verði greitt fyrir umferð gangandi vegfarenda, meðal ann- ars með göngubrautum, ská- brautum og handriðum. Einnig að framkvæmd verði húsa- könnun í bænum og gerð áætlun um að viðhalda svipmóti elsta hluta bæjarins. Fleiri gæsluvelli Þó svo að félagsleg þjónusta sem ísafjarðarbær veitir sé með því besta í sambærilegum bæjar- félögum má alltaf gera betur. Bryndís segir að fjölga þurfi gæsluvöllum í Holtahverfi og í Hnífsdal. Jafnframt sé brýnt að það fólk sem vinnur við dagvist- unarmál fái viðunandi laun því lítið gagn er af því að hafa nóg af stofnunum ef ekki fæst fólk til starfa sökum lágra launa. Þessu þarf að breyta. Fyrir alla unglingastarfsemi þarf að efla félagsmiðstöð bæjar- ins frá því sem nú er og jafnframt að koma upp frjálsiþróttaað- stöðu við íþróttavöllinn við Torf- nes. Þá er fyrir löngu orðið tíma- bært að komið verði fyrir al- menningssalerni og síma fyrir al- menning á Eyrinni sem yrði til mikilla bóta. Sérstaklega þegar hafðar eru í huga þær væntingar sem heimamenn hafa til að efla ferðaþjónustuna við þá sem leggja leið sína til ísafjarðar. í sama tilgangi verði allar merking- ar í bænum stórbættar, bæði með yfirlitsskiltum og götuskiltum. Málefni aldraðra Að mati Bryndísar verður að gera vel við aldraða á ísafirði og kappkosta að bjóða þeim upp á fjölbreytta þjónustu, samkvæmt þeirri áætlun sem bæjarstjórn hefur samþykkt. Uppfylltar verði þær þarfir fyrir heimilshjálp og heimahjúkrun meðal annars á Hlíf. Þá er ófrágengin langlegu- deild á nýja Fjórðungssjúkrahús- inu sem nauðsynlegt er ganga frá hið fyrsta enda þörfin brýn. Enn- fremur verði kannaður sá mögu- leiki að koma upp hjúkrunarhei- mili eða elliheimili á neðstu hæð- inni í Hlíf. Vatn og holræsi Bryndís leggur þunga áherslu á að komið verði upp hreinsibún- aði fyrir vatn í Hnífsdal og í Holt- ahverfi auk þess sem auka þarf neysluvatn í Hnífsdal. Sömu- leiðis verði gert átak til þess að frárennsli verði lagt út fyrir stór- straumsfjörumörk utan við Eyrina. Þegar byrjað verður að bora fyrir væntanlegum jarð- göngum gæti sá möguleiki skapast að þar sé að finna neyslu- vatn fyrir Eyrina. Skilvirkara stjórnkerfi Að mati Bryndísar er stjórnkerfi bæjarins þyngra í vöfum en eðlilegt má teljast og því nauðsynlegt að gera það skil- virkara á þann hátt að bæjarbúar fái fljóta og örugga afgreiðslu sinna mála. Ennfremur þarf að gefa bæjarbúum betri tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þá þarf að kalla fleiri til ábyrgðar í nefndir bæjarins þann- ig að sama fólkið sitji ekki í mörg- um þýðingarmiklum nefndum. í því sambandi verði leitast við að í störfum og nefndum hjá bænum verði ætíð fulltrúar frá báðum kynjum. Bryndís segir að veita þurfi stofnunum og nefndum bæjarins meira sjálfforræði og frumkvæði í sínum málum. Einnig þurfi að auka samstarf á milli stofnana bæjarins, aðskilja þarf störf bæj- arstjóra og hafnarstjóra og að stofnaðar verði ferli- og vinabæj- jarnefndir. Ólafur Helgi Kjartansson D-lista Við síðustu kosningar til bæjarstjórnar á ísafirði buðu fram hinir hefðbundnu fjórflokk- ar en núna hefur flokkunum fjölgað um tvo. Þar ber fyrst að telja í-listann sem er borinn fram af óánægðum sjálfstæðismönnum og Kvennalistinn sem bíður fram í fyrsta skipti til bæjarstjórnar. Úrslit 1986 Niðurstöður kosninganna 1986 ísafjörður Nýtt fólk og nýir voru þær að Alþýðuflokkurinn fékk 578 atkvæði og þrjá menn kjörna og bætti þá verulega við sig frá því í kosningunum 1982. Þá fékk A-listinn 440 atkvæði og tvo menn kjörna. Miklar breytingar hafa orðið á fram- boðslista flokksins frá því síðast og oddviti flokksins er nú Ingi- björg Ágústdóttir sem tekur við af Kristjáni Jónassyni. Framsóknarflokkurinn fékk síðast 231 atkvæði og einn mann kjörinn sem er nákvæmlega sama atkvæðamagn og í kosningunum 1982. Litlar breytingar hafa orðið á framboðslista Framsóknar frá því síðast og er oddviti hans nú sem fyrr Kristinn Jón Jónsson. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 842 atkvæði í kosningunum 1986 og fjóra menn. 1982 fékk flokkurinn Haraldur L. Haraldsson í-lista flokkar 675 atkvæði og jafnmarga menn kjörna. Oddviti flokksins er sem fyrr Ólafur Helgi Kjartansson en töluverðar breytingar hafa átt sér stað á framboðslistanum frá því sem áður var. Aðalbreyting frá því síðast er að nú bíður íhaldið fram klofið. Alþýðubandalagið fékk í síð- ustu kosningum 196 atkvæði og einn mann kjörinn sem er hið Ágústa Gísladóttir V-lista sama og hann fékk í kosningun- um 1982. Þá buðu Óháðir borgar- ar fram og fengu 150 atkvæði og einn mann. Þó nokkrar breyting- ar hafa orðið á framboðslista Al- þýðubandalagsins frá því í kosn- ingunum 1986. Oddviti flokksins er nú Bryndís Friðgeirsdóttir. -grh Kosningabaráttan íhaldið höfuðandstæðinguriim Alþýðubandalagið einbeitir sér að málefnalegri umrœðu og heiðar- legum málflutningi. Látum aðra um hið hefðbundna skítkast. Takmarkið hjá okkur er að Bryndís fái góða kosningu til bæjarstjórnar og að því stefnum við með okkar kosningabaráttu. Við höfum látið hina flokkana um þetta hefðbundna skitkast sem virðist loða við allar kosninga- baráttunnar sem háðar eru hér. í staðinn höfum við einbeitt okkur að málefnunum og kappkostað að koma þeim á framfæri við kjós- endur á sem heiðarlegastan hátt, segir Hulda Leifsdóttir kosninga- stjóri G-listans á ísafirði. Hulda segir að kosningaslagur- inn á milli framboðanna taki mikið mið af þeim klofningi sem varð hjá Sjálfstæðisflokknum og svo virðist sem þeirra tími fari í það að berja hvor á öðrum. Hins vegar ber kosningabarátta félags- hyggjuflokkanna merki þess að þeir hafa verið í meirihluta í bæjarstjórninni í nær tvö kjörtím- abil samfellt og beri því sameigin- lega ábyrgð á stjórn bæjarins á þessum tíma. Hulda segir að sem fyrr sé íhaldið klofið sem óklofið höfuð- andstæðingur G-listans. Hins vegar gráti það fáir nema þeir sjálfir að þeir skuli hafa klofnað út frá persónulegum ágreiningi fremur en málefnalegum. Aftur á móti sé svona klofningsbrölt innan Alþýðubandalagsfélagsins á ísafírði algjörlega óþekkt fyrir- bi.gði. Hulda sagði ennfremur að þeir vestra findu lítið fyrir því brölti sem verið hefur hjá fé- lögum þeirra í Reykjavík, sem betur fer. Mikil blaðaútgáfa Þegar kosningar eru í nánd vakna mörg blöð aftur til lífsins sem legið hafa í dróma frá því síðast var kosið. Þó með þeirri undantekningu þegar þau koma út í sínum hefðbundna jólabún- ingi. Þessi blöð eru: Skutull sem Alþýðuflokkur gefur út, ísfirð- ingur hjá Framsóknarflokki, Vesturland sem Sjálfstæðisflokk- urinn gefur út, Vestfirðingur blað Alþýðubandalagsins. Til við- bótar hafa komið út vegna kosn- inganna svonefnt í-lista blað sem sérframboð óánægðra íhalds- manna stendur að og nú síðast hefur Kvennalistinn hafið blaða- útgáfu vegna kosninganna og nefnir málgagn sitt Piisaþytur. Að sögn Huldu er stefnt að gefa út Vestfirðing út eins oft og mögulegt er fyrir kosningar enda sá vettvangur sem hentar best til að kynna viðhorf og stefnumál G- listans. Sem fyrr kemur jafnréttis- sjónarmið Alþýðubandalagsins hvað gleggst fram í niðurröðun á framboðslista flokksins við þess- ar bæjarstjórnarkosningar. Af fyrstu tíu sætum listans eru sex konur á móti fjórum körlum. Jafnframt er það áberandi hvað listinn endurspeglar vel þann uppruna sem Álþýðubandalagið á fsafírði er sprottið upp úr. Verkmenn, sjómenn, verkakon- ur, kennarar, verslunarmaður, bakari, nemi, lögfræðingur, lyfjafræðingur og fleira í þeim dúr segja meira en fögur orð á hátíðarstundum fyrir hvaða mál- stað flokkurinn stendur. Að sögn Huldu er stefnt að því að halda sameiginlegan framboð- sfund hið fyrsta og einnig er á döfinni að svæðisútvarpið verði með útsendingar frá þeim fundi. Það var þó ekki búið að ganga endanlega frá þessum málum nú fyrir skömmu. Sem fyrr eykst barátta flokk- anna sín á milli um atkvæði kjós- enda þegar nær líður sjálfum kosningadeginum. Því er það nauðsynlegt fyrir alla þá sem vilja leggja sitt af mörkum til að efla Alþýðubandalagið á ísafirði að gerast sjálfboðaliðar til hinna ýmsu starfa sem til falla í baráttu sem þessari. Kosningaskrifstofa G-listans er í gamla embættis- mannaústað sýslumannsins við Hrannargötu og er hún opin alla daga frá klukkan 14-18. _grj, 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. maí 1990 Fimmtudagur 17. maí 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.