Þjóðviljinn - 19.05.1990, Page 2
Skoðanakönnun
Davíð á undanhaldi
Miðað viðfyrri kannanirferfylgi Sjálfstœðisflokksins
minnkandi. Nýr vettvangur í sókn
Fylgi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík fer minnkandi ef
marka má niðurstöður könnunar
sem Félagsvísindastofnun gerði
fyrir Morgunblaðið og birt var í
gær. Að sama skapi virðist sem
Nýr vettvangur sé það framboð
sem einna helst getur velgt sjálfs-
tæðismeirihlutanum undir ugg-
um.
Samkvæmt niðurstööum könn-
unarinnar á fylgi flokkanna sem
bjóða fram til borgarstjórnark-
osninganna fengi Sjálfstæðis-
flokkurinn 55,9% atkvæða og 9
borgarfulltrúa. Það er all miklu
minna en flokkurinn fékk í skoð-
anakönnun sem DV gerði í lok
. síðasta mánaðar en þá bentu nið-
urstöður könnunarinnar til þess
að hann fengi allt að 14 borgar-
fulltrúa.
í könnun Félagsvísindastofn-
unar fær Nýr vettvangur 23,3%
atkvæða og 3 borgarfulltrúa,
Kvennalistinn 7,2% og einn full-
trúa, Alþýðubandalag 6,7% og
einn mann kjörinn og Framsókn-
arflokkur 6,1% og einn fulltrúa í
borgarstjórn. Grænt framboð
fékk 0,6% atkvæða og engan
mann en Flokkur mannsins ekk-
ert.
Spurt var í gegnum síma og í
úrtakinu voru 918 manns í
Reykjavík sem var slembiúrtak
úr þjóðskrá. Fjöldi þeirra sem
svöruðu var 618 eða 67% en 103
neituðu að svara eða 11%. Um
130 manns fundust ekki, fluttir,
fjarverandi eða alls 14%. Sími .
var lokaður hjá 7 manns eðá 1%
og látnir, sjúkir eða erlendir
ríkisborgarar voru 60 talsins eða
7%.
Sigrún Magnúsdóttir efsti
maður á B-lista Framsóknar-
flokksins sagði niðurstöður
könnunarinnar benda til þess að
flokkurinn væri á réttri leið þó að
þær sýndu jafnframt að á bratt-
ann sé að sækja. Sigrún sagði að
Framsóknarflokkurinn fengi
ávallt meira fylgi þegar talið er
upp úr kjörkössunum en í skoð-
anakönnunum.
Sigurjón Pétursson oddviti G-
Iista Alþýðubandalagsins sagði
könnuna sýna verri stöðu hjá
flokknum en hann hafði búist
við. Sigurjón sagði að ef þetta
hefði verið niðurstaðan úr kjör-
kössunum væri það mjög slæmt.
Hins vegar hafí fylgi flokksins
Hafís
Varasamur
skipum
Enn er mikið af hafís skammt
undan Vestfjörðum og er hann
varasamur skipum. Þór Jakobs-
son veðurfræðingur segir að fátt
eitt bendi til þess að hann hrekist
á brott á næstunni þar sem spáð
er hægviðri á þessum slóðum.
í ískönnunarflugi Landhelgis-
gæslunnar í fyrradag kom í ljós að
gisin ísspöng er í aðeins 15 sjó-
mílna fjarlægð út frá ísafjarðar-
djúpi en aðalísjaðarinn er 40 míl-
ur norðvestur frá Barða. Þá er
ísinn 23 mflur norðvestur frá
Straumnesi, 19 mflum norður frá
Kögri, 20 mflur norður frá Homi,
32 mflur norður frá Skaga, 30 mfl-
ur vestur frá Kolbeinsey og 26
mflur norður frá eynni.
Þá hefur ísinn borist austur á
bóginn og í könnunarflugi Gæsl-
unnar reyndist hann vera í 80
sjómflna fjarlægð frá Rauðanúp.
-grh
iðulega mælst mun verr í skoð-
anakönnunum en reyndin hafi
síðan orðið.
Ólína Þorvarðardóttir sem
skipar efsta sæti á H-lista Nýs
vettvangs segir að niðurstöðurn-
ar sýni það og sanni sem þau hafi
fundið fyrir síðustu daga og vik-
ur. Ólína segir að nú sjáist það
svart á hvítu að Nýr vettvangur er
eina raunhæfa mótvægið við of-
urefli Sjálfstæðisflokksins í borg-
inni sem er ágætis niðurstaða og
hvetur til frekari dáða.
Elín G. Ólafsdóttir sem er í
efsta sæti á V-lista Kvennalistans
segir niðurstöðurnar sýna að
hlutfall D-listans sé alltof hátt og
að V-listinn þurfi nauðsynlega að
bæta við sig fylgi. Þó sé ekki öll
nótt úti enn því vika sé til stefnu
áður en kosið verður.
-grh
Þau sem hlutu dvalarstyrki Menningarsjóðs í ár ásamt formanni menntamálaráðs við afhendinguna í Næpunni í gær.
Mynd:Jim Smart.
Menntamálaráð
Út vil ek
Menningarsjóður styrkir listamenn til utanfarar
Rithöfundarnir Birgir Sigurðs-
son og Vigdís Grímsdóttir,
Sigrún Guðjónsdóttir myndlista-
maður og Blásarakvintett
Reykjavíkur hlutu f gær styrki
Menningarsjóðs að upphæð 100
þúsund krónur til þess að fara
utan og dvelja þar við listiðkanir.
Auk þess hlutu tólf listamenn
ferðastyrki að upphæð 50 þúsund
krónur.
Sólrún Jensdóttir formaður
Menntamálaráðs afhenti lista-
mönnunum styrkina í gær. Alls
bárust ráðinu um 60 umsóknir
um utanfarastyrkina. Heildar-
upphæð styrksins í ár er lægri en í
fyrra vegna slæmrar fjárhags-
stöðu sjóðsins af því að bókaút-
gáfan stendur höllum fæti.
Menntamálaráð er kosið af Al-
þingi eftir hverjar þingkosningar.
Ráðið er skipað fimm fulltrúum
sem annast stjóm Menningar-
sjóðs. Meginverkefni sjóðsins er
að standa að útgáfu ritverka sem
almennir bókaútgefendur ráða
síður við. BE
Hæstiréttur
Máli Halls
vísað fra
Meirihluti dómara í Hæstarétti
hefur vísað máli ákæruvaldsins
gegn Halli Magnússyni blaða-
manni á Tímanum frá dómi. Þrír
dómarar af flmm voru sammála
um þetta og ástæðan er ófullnægj -
andi málatilbúnaður ákæruvald-
sins. Framhald málsins er óljóst.
Undirréttur hafði fundið Hall
sekan um ærumeiðandi ummæli í
garð séra Þóris Stephensens,
staðarhaldara í Viðey. Hallur
hafði verið dæmdur til þess að
greiða séra Þóri miskabætur og til
þess að greiða sakarkostnað.
Tveir dómarar Hæstaréttar
vildu staðfesta dóm undirréttar
yfir Halli. -gg
Sorpmót-
mæli ítekuð
Bæjarráð Mosfellsbæjar ítrek-
aði í gær fyrri mótmæli gegn
fyrirhugaðri sorpböggunarstöð í
Gufunesi.
í ályktun bæjarráðs segir m.a.
að í ljósi þeirrar umfjöllunar sem
orðið hafi að undanförnu um
sorpböggunarstöð í Gufunesi
vilji bæjarráð Mosfellsbæjar enn
og aftur ítreka mótmæli sín gegn
urðun sorps í Álfsnesi.
Bæjarráð krefst þess af stjórn
Sorpeyðingar höfuðborgasvæðis-
ins að sorpböggunarstöðin verði
byggð á lóð byggðarsamlagsins í
Hafnarfirði og að sorpið verði
urðað í Trygghólamýri við Krísu-
vík fjarri mannabyggð.
Bæjarráð Mosfellsbæjar telur
að með þessu geti skapast friður
milli allra sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu um málið.
-rb
Vöruskipti
Hagstæð um
3,6 miljaröa
Vöruskiptajöfnuðurínn á
fyrstu þrem mánuðu þessa árs
var hagstæður um 3,6 mijjarða
króna, sem er mjög svipað og á
sama tíma í fyrra, en þá var hann
hagstæður um 3,5 mijjarða króna
á sama gengi.
Fyrstu þrjá mánuði þessa árs
voru fluttar út vörur fyrir 19,9
miljarða króna en inn fyrir 16,3
miljarða. _sáf
Grundarkjör
Farið fram á rannsókn
Félag íslenskra stórkaupmanna óskar rannsóknar á meintri
lagersöfnun fyrir hönd félagsmanna sinna
Félag íslenskra stórkaupmanna
hefur farið fram á það við
Rannsóknarlögreglu ríkisins að
hún rannsaki viðskipti Grundar-
kjörs við ellefu fyrirtæki sem að-
ild eiga að FÍS. Samkvæmt til-
kynningu frá FIS skuldar Grund-
arkjör þessum heildsölufyrir-
tækjum 14,6 miljjónir króna.
í tilkynningu FÍS segir að
Grundarkjör hafi allt fram að
lokun verslana þess, fengið af-
greiddar vörur frá fyrirtækjunum
ellefu. í fjölda tilvika hafi engar
greiðslur fengist fyrir vörurnar
frá Grundarkjöri. Þá hafi Grund-
arkjör ekki boðist til að skila því
sem eftir var af birgðum við lok-
un verslana fyrirtækisins.
Félag íslenskra stórkaup-
manna óskar eftir því að rann-
sókn Rannsóknarlögreglu beinist
að fjórum þáttum og kannað
verði hvort um refsiverða hátt-
semi hafi verið að ræða. í fyrsta
lagi hvort Grundarkjör hafi af-
hent þriðja aðila ógreiddar vörur
og þannig skotið eignum sem
Grundarkjör hafi ekki borgað
fyrir undan óumflýjanlegu
gjaldþroti. I öðru lagi hvort
Grundarkjör hafí með lagersöfn-
un sinni vísvitandi svikið vörur út
úr heildverslunum. í þriðja lagi
hvort eigendur Grundarkjörs
hafi á síðustu mánuðum tekið fé
út úr rekstri fyrirtækisins til
einkanota og þannig rýrt
greiðslugetu Grundarkjörs með
óeðlilegum hætti og að lokum
hvort eigendur hafi haldið rekstri
áfram löngu eftir að ljóst var að
greiðslugeta fyrirtækisins var
þorrin. FÍS vill einnig vita hvort
um refsivert athæfi hafi verið að
ræða þegar Grundarkjör gaf út
ávísanir sem reyndust innistæðu-
lausar. .
-hrnp
Nemendafélag listaskólanna
Svavar kaupi SS-hús
Listnemar skora á menntamálaráðherra að kaupa nýbyggingu
Sláturfélags Suðurlands undir listaskóla
Nemendur IVlyndlista- og hand-
íðaskóla Islands, Tónlistar-
skóla Reykjavfkur og Leiklistar-
skóla íslands skora á
menntamálaráðherra að kaupa
nýbyggingu Sláturféiags Suður-
lands til að leysa húsnæðisvanda
skólanna.
Listnemar hafa undanfarið
safnað undirskriftum undir
áskorun til menntamálaráðherra
og verða þær afhentar Svavari
Gestssyni á Kjarvalsstöðum á
morgun, þar sem nú stendur yfir
sýning á lokaverkefnum nem-
enda Myndlista- og handíða-
skólans.
Safnast hafa nokkur þúsund
undirskriftir nemenda og kenn-
ara skólanna, auk þess hefur
fjöldinn allur af starfandi lista-
mönnum og fleira listelskandi
fólk sknfað undir áskorun list-
nema.
2 S(ÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 19. maf 1990