Þjóðviljinn - 19.05.1990, Síða 10
VIÐHORF
Lýðræðislegt og mannúðlegt samfélag
Eftir örfáa daga fáum við að
kjósa. Loksins eftir 4 ár fáum við
að láta í ljósi skoðanir okkar á því
sem ráðamenn borgarinnar hafa
gert eða látið hjá líða að gera. Á
milli kosninga fá borgarbúar litlu
sem engu að ráða um mál sín.
Þeir sem fara með stjórn borgar-
innar hafa þarafleiðandi sáralítið
aðhald. Stjórnendur sem hafa
lítið aðhald hafa mikil völd. Vald
leiðir oft til spillingar. Algjört
vald leiðir til algjörrar spillingar.
Lýðræðislegt
samfélag
Lýðræðið er ekki atkvæðataln-
ing á fjögurra ára fresti. í hugtak-
inu lýðræði felast réttindi og
skyldur kjósenda og kjörinna
fulltrúa. Lýðræði felur það meðal
annars í sér að áður en komist er
að niðurstöðu skuli fara fram
rökræða. Stjórnendur borgarinn-
ar sem koma sér undan pólitísk-
um rökræðum eru með því að
auka vald sitt. Kjósandi sem
Einar Gunnarsson skrifar
skiptir sér ekki af stjórnmálum
styður þann flokk sem hefur mest
völd.
Ég er þeirrar skoðunar að
brýnasta verkefni væntanlegra
borgarfulltrúa sé einmitt að finna
leiðir til þess að veita stjórnend-
um borgarinnar meira aðhaid en
þeir hafa nú. Virkt lýðræði er að
mínu mati besta vörnin gegn því
að valdið spilli.
Ég er líka þeirrar skoðunar að
lýðræði sé besta trygginging fyrir
því að borgin fái mannúðlegra
yfirbragð en hún hefur nú. Ég hef
trú á þvf að rökræða borgarbúa
um máleíni barna, rökræða um
málefni aldraðra og rökræða um
önnur félagsleg málefni muni
leiða til mannúðlegra borgarlífs.
Eini flokkurinn sem hefur mót-
aða stefnu í því hvernig má dreifa
valdinu og auka lýðræðið er Al-
þýðubandalagið. Því miður vant-
ar okkur aukin áhrif í stjórnkerf-
inu til þess að þessi stefna nái
fram að ganga.
>yÁ stæðanfyrir þessu er
ekki eingöngu sú að
Kópavogur greiðir mun
betri laun, heldur líka sú
að allur aðbúnaður
starfsfólks er tilfyrir-
myndar... “
Mannúðlegt
samfélag
Fólk sem af einhverjum ástæð-
um fer á mis við það skjól og ör-
yggi sem heimilið á að veita
þarfnast stuðnings samfélagsins.
Ungt fólk, sem mætir afskipta-
leysi samfélagsins þegar það
þarfnast umönnunar þess, verður
tilfinningasljótt. Biturð og ör-
vænting einkennir framkomu
þess. Tilfinningasljótt, biturt og
örvæntingarfullt fólk getur orðið
umhverfi sínu hættulegt. Stjórn-
endur sem gera sér þetta ekki
ljóst eru því ennþá hættulegri.
Umhyggja er að mínu mati
virkari uppeldisaðferð þegar til
lengdar lætur en refsing. Góð
umönnun barna og unglinga er í
- mínum huga fyrirbyggjandi starf.
Þess vegna tel ég hana arðbæra
þegar til lengdar lætur þó hún til
skamms tíma sýnist dýrari en
refsingin. Með góðri umönnun
aldraðra erum við sem yngri
erum ekki aðeins að endurgreiða
það sem við skuldum þeim heldur
einnig að leggja drög að framtíð-
aröryggi okkar sjálfra. Ég er
þeirrar skoðunar að samfélagið
eigi fremur að sýna þegnum sín-
um umhyggju en refsivöndinn.
Kannski er það þess vegna sem ég
er vinstri maður en ekki hægri
maður.
í komandi borgarstjórnar-
kosningum veljum við á milii þess
hvort áhersla verður lögð á
mannúðleg sjónarmið eða sjón-
armið markaðshyggjunnar.
Mannfyrirlitning markaðshyggj-
unnar hefst þar sem fjárráðin
enda. Við sem erum vinstri menn
beygjum okkur ekki undir þetta.
Enda sjáum við það sem hlutverk
okkar að hamla gegn mannfyrir-
litningu markaðarins með því að
halda á lofti virðingu fyrir mann-
inum.
Tökum málstað mannúðar.
Markaðshyggja er mannskemm-
andi. Öruggt val til vinstri. Velj-
um G-listann.
Einar Gunnarsson er formaður Fé-
lags blikksmiða og skipar 6. sætið á
G-Iista Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík.
Al iR
Utboö
Efnisvinnsla á Vestfjörðum 1990
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í vinnslu á
efni í 10 námum í ísafjarðar- og Barðastrandar-
sýslum, nánar tiltekiö á svæðinu frá Skutulsfirði
til Kollafjarðar.
Áætlað magn 50.000 rúmmetrar.
Verkskil skulu vera þannig: 12.500 m3 fyrir 15.
júlt 1990, 13.000 m3 fyrir 1. nóvember 1990,
10.500 m3 fyrir 10. júll 1991 og 14.000 m3 fyrir 1.
september 1991.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á ísafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 21. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 28. mai 1990.
Vegamálastjóri
V/M Utboð Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í eftirtalin verk: w 1. Klæðlngar á Norðurlandl vestra 1990.
V Magn: T vöföld klæðing 67.000 fermetrar, ein- föld klæðing 115.000 fermetrar.
v'tííki skal kikið 1. saptember 1990.
2. Efnisvlnnsla á Norðurlandi vestra 1990. Magn: 22.000 rúmmetrar. Verki skal lokið 15. ágúst 1990. Útboðsgögn veröa afhent hjá Vegagerð rlkisins á Sauðárkróki og f Fteykjavfk (aðalgjaldkera) frá ogm eð 21. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 28. maí 1990. Vegamálastjóri
MENNTAMÁLARÁÐUNiEYTIÐ
Laus staða
Við Kennaraháskóla íslands er laus til umsóknar staða
lektors á sviði upplýsingatækni og tölvunotkunar I námi
og kennslu.
Umsækjandi skal hafa lokið viðurkenndu háskólanámi á
sviði tölvunarfræði, upplýsingatækni eða kennslutækni,
ásamt háskólaprófi I uppeldis- og kennslufræðum, t.d.
kennaraprófi.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af kennslu og
skólastarfi og hafi starfað að verkefnum tengdum upp-
lýsingatækni og tölvunotkun.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsækjandi skal láta fylgja umsókn sinni ítarlega
skýrslu um ritsmíðar sínar og rannsóknir, svo og upplýs-
ingar um námsferil sinn og störf. Þau verk, sem umsækj-
andi óskar að dómnefnd fjalli um, skulu einnig fylgja.
Umsóknir skulu hafa borist til menntamálaráðuneytisins,
Sölvhólgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 20. júní n.k.
Menntamálaráðuneytið,
17. maí 1990
AUGLYSINGAR
(ff
Utboð
Félagsmalastofnun Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39, sími 678500
Staða
áfengisfulltrúa
Laus er staða áfengisfulltrúa Félagsmálastofn-
unar Reykjavíkurborgar. Starfið felur í sér
samhæfingu þjónustu stofnunarinnar á þessu
sviði, ráðgjöf, forvarnir og meðferð mála
áfengis-og vímuefnasjúklinga.
Krafist er félagsráðgjafamenntunar eða sam-
bærilegrar háskólamenntunar.
Reynsla í meðferðarvinnu með áfengis- og
vímuefnasjúklingum er mjög æskileg.
Frekari upplýsingar veitir Gunnar Sandholt vfir-
maður fjölskyldudeildar, sími 678500.
Umsóknurr. skal skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 2. hæð á
umsóknareyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 4. júní n.k.
Slökkvistöðin í Reykjavík
Laus staða
í slökkviliðinu í Reykjavík er laus staða starfs-
manna í eldvarnaeftirliti. Umsækjandi skal hafa
tæknimenntun eða hafa langa starfsreynslu í
slökkviliði.
Umsóknir berist undirrituðum fyrir 17. júní 1990.
Reykjavík 18. maí 1990
Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík
AUGLÝSINGAR
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Reykjavíkur-
hafnar óskar eftir tilboðum í byggingu kranabrautar fyrir
Reykjavíkurhöfn, og nefnist verkið:
Kleppsbakki - lenging í vestur - kranabraut
Verkið er fólgið í rekstri steyptra staura undir kranabraut,
byggingu brautarbita og frágangi regnvatnslagna og burð-
arlags.
Helstu verkþættir eru:
1. Rekstur á 34 steyptum straurum.
2. Bygging brautarbita alls 102 metrar.
3. Uppsetning kranaspora alls 102 metrar.
4. Lagning regnvatnslagna, alls 250 metrar.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr.10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 12. júní
1990 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 Simi 25800
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu
Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í frágang á lóð, lagnir,
byggingu spennistöðvar, geymslu ofl. við Útsýnishús á
Öskjuhlíð.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 2300 m2
Fylling og jöfnun 8900 m2
Landmótun 8300 m2
Hellulagnir 4000 m2
Malbik 3900 m2
Snjóbræðslulagnir 7900 m2
Pípulagnir 1600 m
Verklok eru 1. október 1990.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 5. júní
1990 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKÚRBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Borgarverkfræð-
ings í Reykjavík óskar eftir tilboðum í að fullgera III. áfanga
Grandaskóla.
Stærð hússins er 855 m2. Lokið er að steypa undirstöður
og botnplötu.
Skilatími verks er 1. júlí 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 25.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 14. júní
1990 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 Simi 25800
Útboð
Suðurlandsvegur um Múlakvísl
1990
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan
greint verk.
Lengd kafla 3,8 km, fyllingar 24.000 rúmme*ra
og burðarlag 4.000 rúmmetrar.
Verki skal lokið 10. september 1990
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisini
á Selfossi og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá o<
með 21. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.0(
þriðjudaginn 5. júní 1990.
Vegamálastjóri