Þjóðviljinn - 24.05.1990, Page 6
VIÐHORF
Breyttar áherslur í málefnum aldraðra
Guðrún Kr. Óladóttir skrifar
Ég hef oft velt því fyrir mér
hvernig umhorfs verður þegar
„kurteisa kynslóðin" líður undir
lok. Kynslóðin sem nú telst ald-
raðir íslendingar. Kynslóðin sem
með elju og dugnaði braust út úr
kreppu og gerði ísland að svo-
kölluðu velferðarríki.
Þessi kynslóð sem við hömpum
á hátíðar- og tyllidögum, en kom-
um fram við eins og börn eða
vandamál sem þyrfti að leysa.
Vandamál, sem hinir öldruðu fá
ekki að taka þátt í að finna lausn
á! Nútímaþjóðfélagið ísland er
nefnilega hannað fyrir fólk á aldr-
inum 30 til 60 ára, sem helst á að
hafa komið sér upp húsnæði, allir
hinir aldurshóparnir eru vanda-
mál. Börnin eru vandamál, því
hver á að gæta þeirra meðan
pabbi og mamma eru að komast í
hönnunarklassann, eigið hús-
næði, sem er skilyrði fyrir því að
teljast maður með mönnum á fs-
landi? Unglingar eru líka alveg
svakalegt vandamál, því þeir eiga
það til að gera óskunda í bænum
um helgar vegna þess að þeir hafa
engan almennilegan stað til að
koma saman á. Námsmenn eru
líka bölvað vandamál, því jafn-
framt því sem við keppumst að
því að koma okkur upp kofanum,
neyðumst við til að halda þeim
uppi á meðan á námi stendur.
Allt þetta truflar klifur okkar upp
í meðalmennskuna.
Og svo er það stóra vandamál-
ið, - þessir gömlu, fólkið sem á
engan rétt á sér af því það er ekki
lengur markaðshæf söluvara.
„Æ, það verður að leysa þetta
vandamál, við þyrftum helst að
byggja sérhannaðar nýlendur
fyrir þessa kynslóð, þar sem það
getur dundað sér við föndur og
dútl og helst í engum tengslum
við okkur, klassafólk, hvað þá þá
sem yngri eru!“ Skyldum við,
kröfuharða klassakynslóðin láta
bjóða okkur slíkt virðingarleysi
þegar við komumst á þeirra
aldur? Ætlum við að láta líta á
öldrun sem sjúkdóm og aldraða
sem frávikshóp þegar við verðum
gömul? Ætlum við að hætta að fá
að ráða nokkru um okkar mál
þegar við eldumst? Kurteisa kyn-
slóðin sem kepptist við að skapa
okkar þjóðarauð, og skóp þetta
klassafýrirkomulag,því viðhorfið
var: „Börnin mín eiga sko ekki að
þurfa að hafa það jafn skítt í lífinu
og ég“, kann svo ekki að fóta sig í
einstiginu, því hún var alin upp
við allt aðrar aðstæður en við hin.
Hún var alin upp innan um afa
sína og ömmur, frændur og
frænkur, á heimilum þar sem all-
ar kynslóðirnar voru ein eining.
Við sem erum í framboði fyrir
G-listann viljum gjörbreyttan
hugsunarhátt varðandi málefni
aldraðra. - Við viljum í fyrsta
lagi, að aldraðir Reykvíkingar fái
að taka þátt í ákvarðanatöku um
eigin málefni. Síðastliðinn vetur
flutti fulltrúi G-listans í Félags-
málaráði tillögu þess efnis að Fé-
lag eldri borgara, sem er félags-
skapur um 700 aldraðra Reykvík-
inga, fengi áheyrnarfulltrúa í ráð-
inu þegar málefni sem snerta
aldraða eru rædd. Tillaga sem
þótti fráleit var felld af íhalds-
meirihlutanum í ráðinu en fyrir
nokkrum árum þótti sjálfsagt að
fulltrúi kaupmanna sæti alla
fundi skipulagsnefndar. Þetta er
dæmigert um verðmætamat borg-
arstjórnarmeirihlutans.
Við viljum að aldraðir
Reykvíkingar fái valkosti um það
hvernig þeir hyggist eyða ævi-
kvöldinu, hvort sem um er að
ræða eigin heimili, í sambýli,
þjónustuíbúðum, sérhönnuðum
leiguíbúðum eða í stofnunum -
Við viljum að aldraðir eigi allir,
án tillits til efnahags, jafnan rétt á
öruggu húsnæði, aðstoð og að-
hlynningu í ellinni. í Reykjavík
hefur engin sérhönnuð leiguíbúð
fyrir aldraða verið tekin í notkun
síðan á vordögum 1986, þrátt
fyrir að fyrir liggi gífurlegir bið-
listar. - Við viljum stórelía
heimaþjónustu og að átak verði
gert í því að laða til hennar gott
starfsfólk. - Við viljum að ald-
raðir Reykvíkingar sem kjósa að
dvelja á eigin heimili, eigi kost á
vaktaskiptri heimaþjónustu allan
sólarhringinn, en þeir fáu sem nú
fá einhverja þjónustu, eiga henn-
ar eingöngu kost á virkum
dögum, ádagvinnutíma, þjónust-
an er bönnuð um helgar. - Til að
leysa úr brýnustu umönnunar-
vanda og húsnæðismálum aldr-
aðra, viljum við verja um 20% af
framkvæmdafé borgarinnar, sem
alls eru 3 miljarðar á ári, það er
fyrir utan framkvæmdafé til
gatna og holræsa. Þegar þessum
brýnustu vandamálum hefur ver-
ið mætt, getum við farið að hugsa
fram á veginn, hvernig við, klass-
akynslóðin, ætlum okkur að eyða
ævikvöldinu. Sjálf vildi ég búa í
húsnæði þar sem allar kynslóð-
irnar eru undir einu og sama
þaki. - Húsnæðiseiningu, þar
sem barnaheimili væru í einu
horni, skóli í öðru, íbúðir fyrir
venjulegar fjölskyldur og svo sér-
hannaðar íbúðir fyrir aldraða.
Einingin þyrfti ekkert endilega
að vera stór, en það sem máli
skiptir er að til þess að brjóta upp
þetta andstyggilega þjóðfélags-
mynstur klassakynslóðarinnar
þarf að brúa bilið milli kynslóð-
anna, þannig að þær geti lifað í
sátt og samlyndi frá vöggu til
grafar.
Við hjá G-listanum í Reykja-
vík viljum fyrirmyndarborg í fé-
lagslegum efnum sem íbúarnir
skapa sameiginlega, ungir sem
aldnir. - Til þess að svo megi
verða er valið x-G
Guðrún Kr. Óladóttir er varaformað-
ur Sóknar og skipar 3ja sæti G-Iista
Alþýðubandalagsins í Reykjavík.
1. kjördeild:
2. kjördeild:
3. kjördeild:
4. kjördeild:
5. kjördeild:
AUGLYSING
um bæjarstjórnarkosningarnar i
Hafnarfirði laugardaginn 26. maí 1990
Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 23:00. Kosið verður í Lækjarskóla,
Víðistaðaskóla, á Hrafnistu og á Sólvangi. Kjósendur skiptast á kjörstaði
og í kjördeildir eftir lögheimili 1. desember 1989 sem hér segir:
LÆKJARSKÓLI
Óstaðsett hús, Álfaberg til og með Bæjarhraun.
Dalshraun til og með Hringbraut.
Hvaleyrarbraut til og með Melabraut.
Melholt til og með Suðurbraut 4-10.
Suðurbraut 12-28 til og með Öltutún, svo og óstaðsett
hús (Berg, Brandsbær, Haukaberg, Hraunberg, Jófríðar-
staðir, Krýsuvík, Lindarberg, Lyngberg, Reykholt,
Setberg, Skálaberg, Stóraberg og Stórhöfði).
VÍÐISTAÐASKÓLI
Blómvangur til og með Hjallabraut 1-17.
Hjallabraut 19-96 til og með Miðvangur 1-107.
Miðvangur 108-167 til og með Þrúðvangur, svo og
óstaðsett hús (Brúsastaðir 1, Brúsastaöir 2, Eyrarhraun,
Fagrihvammur, Langeyri, Ljósaklif og Sæból).
HRAFNISTA
9. kjördeild: Vistfólk með lögheimili á Hrafnistu.
SÓLVANGUR
10. kjördeild: Vistfólk með lögheimili á Sólvangi.
Yfirkjörstjórn hefur aðsetur í kennarastofu Lækjarskóla.
Talning fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu og hefst strax að loknum
kjörfundi.
Undirkjörstjórnir mæti í Lækjarskóla kl. 9:00.
YFIRKJÖRSTJÓRN HAFNARFJARÐARKAUPSTAÐAR
21. MAÍ1990
Gísli Jónsson
oddviti
Jón Ólafur Ðjarnason Hlöðver Kjartansson
6. kjördeild:
7. kjördeild:
8. kjördeild:
HÚSGÖGN OG ^
INNRÉTTINGAR eo cn nn
'ARMÚLA 3 OO Ot/ UU
Möppuhillur - bókahillur
fyrir skrifstofur og heimili.
Gengið inn frá Hallarmúla.
Eik, teak, beyki,
mahogny, fura og hvít-
ar með beikiköntum
Athugið!
Verslunin er flutt í
Ármúla 3.