Þjóðviljinn - 24.05.1990, Síða 11
__X>1?V1^TA'\7T1^
_________KJlL jl JVIAV JJv__
Deilt um grundvallaratriðin
Sviptingar og deilur innan minnihlutans hafa einkennt aðdraganda
kosninganna. Sérstaða flokka óljós vegna áherslu á málefnasamstöðu
síðast liðin fjögur ár. Deilt um grundvallaratriði en einstök kosninga-
mál lítið afgerandi. Fá ný andlit í borgarstjórn næstu fjögur árin
Umræðan um sameiginlegt framboð á vinstri vængnum í komandi
sveitarstjórnarkosningum var hvergi jafn áköf og í Reykjavík, en Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur þó sjaldan eða aldrei séð andstæðinga sína
jafn sundraða og nú. Framboðsmálin í Reykjavík hafa ekki aðeins
valdið upphlaupum í öflugasta andstöðuflokknum sem nú er, fram-
boðin hafa heldur aldrei verið jafn mörg og nú. Þó er deilt um grund-
vallaratriði í þessum kosningum eins og áður.
Sjálfstæðisflokkinn og minnihlutaflokkana greinir á um grundvaliaratr-
iði í pólitík. Minnihlutinn gagnrýnir glæsihallastefnu Sjálfstæðisflokks-
ins og vanrækslu hans í málefnum barna, aldraðra og annarra þeirra
sem mest þurfa á samhjálpinni að halda. Mynd Kristinn.
Víða um land hefur tekist sam-
fylking með ýmsum flokkum og
hópum á vinstri væng stjórnmál-
anna. Þetta hefur gerst með ýms-
um formerkjum, en yfirieitt hef-
ur frumkvæðið verið Alþýðu-
bandalagsins. Það hefur síðan
fengið til liðs við sig Alþýðu-
flokk, Kvennalista, Framsóknar-
flokk eða aðra.
I stærstu sveitarfélögunum hef-
ur samfylkingarhugmyndin þó
ekki fengið hljómgrunn. í Kópa-
vogi, í Hafnarfirði, á Akureyri og
ekki síst í Reykjavík eru framboð
jafn mörg eða fleiri en síðast.
Fá ný andlit
Það er athyglisvert að ef úrslit-
in í Reykjavík verða nokkurn
veginn í samræmi við skoðana-
könnun Félagsvísindastofnunar
frá því fyrir helgi, verður sáralítið
„nýtt blóð“ í borgarstjórn á kom-
andi kjörtímabili. Líklegt er að
hjá minnihlutaflokkunum verði
eina breytingin sú að Ólína Þor-
varðardóttir komi í stað Guðrún-
ar Ágústsdóttur.
Niðurstöður sömu könnunar
benda til þess að hlutfall milli
minnihluta og meirihluta verði
óbreytt, en aðrar kannanir hafa
gefið Sjálfstæðisflokknum mun
meira fylgi.
Það er eðlilegt að athyglin
beinist að nýja framboðinu, Nýj-
um vettvangi, sem fæddist eftir
miklar sviptingar. Skoðanakann-
anir virðast sýna að Nýr vettvang-
ur er að taka við hlutverki Al-
þýðubandalagsins í minnihlutan-
um, en meirihluti Sjálfstæðis-
flokksins virðist standa nokkuð
traustum fótum.
Deilur á
deilur ofan
Tilraunir til þess að mynda
sameiginlegt framboð minnihlut-
aflokkanna fóru endanlega út um
þúfur í febrúar og í mars. Flokk-
arnir ákváðu að setja saman
framboðslista hver fyrir sig.
í Alþýðubandalaginu ákvað
meirihluti að bjóða fram G-lista,
en það var langt í frá góð sam-
staða um það í ABR.
Um miðjan mars voru svo
stofnuð Samtök um nýjan vett-
vang með það að markmiði að
bjóða fram til borgarstjórnar. Fé-
lagið ákvað síðan að efna til próf-
kjörs í samvinnu við Alþýðu-
flokkinn og fleiri aðila, m.a.
ÆFR.
Kristín Ágústa Ólafsdóttir
borgarfulltrúi ákvað að ganga til
liðs við Nýjan vettvang. Það vakti
litla hrifningu hjá ABR og urðu
af því miklar deilur í fjölmiðlum.
En deilum innan minnihlutans
var alls ekki lokið með því. Þegar
úrslit í prófkjöri H-listans lágu
fyrir fór einn frambjóðendanna,
Bjarni P. Magnússon, í fýlu í viku
eða svo. í kjölfarið var þeirri hug-
mynd jafnvel hreyft að bjóða
fram sérstakan A-lista með
Bjarna P. í forystu og fjölga
þannig enn framboðum gegn
Sjálfstæðisflokknum. Bjarni
hresstist þó og tók sæti sitt á H-
listanum.
Yfirlýsinga-
stríö
Alþýðubandalagið hefur orðið
verst fyrir barðinu á H-listanum,
enda eru fjölmargir Alþýðu-
bandalagsmenn í forystu fyrir
nýja aflinu. Birting og hluti ÆFR
styðja H-listann en ekki G-
listann og vafi hefur leikið á af-
stöðu formanns Alþýðubanda-
lagsins til framboðanna tveggja.
Yfirlýsingar Ólafs Ragnars um
framboðsmálin í Reykjavík
leiddu til mikils fjölmiðlastríðs
milli hans og Sigurjóns Péturs-
sonar í apríl. Ólafur Ragnar lýsti
hvorki yfir stuðningi við G-
listann né H-listann og Sigurjóni
fannst sú afstaða Ólafs tilefni til
formannsskipta í flokknum.
Þannig hafa framboðsmál
minnihlutaflokkanna og einkum
þó Alþýðubandalagsins ein-
kennst af deilum og sundurlyndi,
enda þótt góð málefnasamstaða
hafi náðst með flokkunum um
flest mál í borgarstjórn á kjörtím-
abilinu.
Litlar
breytingar
Sjálfstæðisflokkurinn virðist
hins vegar ganga heill og óskiptur
til þessara kosninga, enda þótt
ágreiningur sé þar um ýmis mál.
Kannski réði það nokkru um þá
ákvörðun flokksins að efna ekki
til prófkjörs fyrir þessar kosning-
ar.
Davíð Oddsson fer fyrir meiri-
hlutanum sem fyrr og að öðru
leyti hafa orðið sáralitlar
breytingar á D-listanum síðan
síðast. Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson hefur færst upp í
fjórða sæti listans á kostnað Páls
Gíslasonar, sem nú skipar átt-
unda sætið. Anna K. Jónsdóttir
skipar nú fimmta sætið, en hún
var í þrettánda sæti síðast.
Borgarfulltrúarnir Árni Sigfús-
son, Júlíus Hafstein og Páll Gísla-
son eru í öruggum sætum, en
Jóna Gróa Sigurðardóttir hefur
verið látin víkja fyrir Guðrúnu
Zoéga í níunda sætinu. Guðrún
var í 17. sæti 1986. Hilmar Guð-
laugsson borgarfulltrúi hefur
jafnframt verið færður niður í 12.
sæti, en hann var í því sjötta við
síðustu kosningar. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur níu borgarfull-
trúa.
Fylgishrun
G-listans?
G-listi Alþýðubandalagsins
hefur annan svip en síðast. List-
inn var settur saman eftir forval,
þar sem Sigurjón Pétursson vald-
ist til forystu. Hann á að baki 20
ára feril í borgarstjórn.
Guðrún Ágústsdóttir borgar-
fulltrúi var í þriðja sæti listans síð-
ast, en skipar nú annað sætið.
Guðrún Kr. Óladóttir, varafor-
maður Sóknar, skipar þriðja sæt-
ið, Ástráður Haraldsson lögfræð-
ingur það fjórða og Stefanía
Traustadóttir, félagsfræðingur og
formaður ABR, er í því fimmta.
Alþýðubandalagið vann nokk-
uð á í síðustu kosningum og náði
þremur borgarfulltrúum, en
skoðanakannanir benda til fylgis-
hruns flokksins að þessu sinni.
Kvennalistinn
í skugganum
Ólína Þorvarðardóttir sigraði í
prófkjöri Nýs vettvangs, en hún
hefur ekki áður tekið þátt í pólit-
ísku starfi. Kristín Á. Ólafsdóttir
skipar annað sætið, en Bjarni P.
Magnússon það þriðja. Bjarni er
í raun eini Alþýðuflokksmaður-
inn á meðal tíu efstu á H-
listanum. Fái H-listinn það fylgi
sem skoðanakannanir gera ráð
fyrir verða þessi þrjú líklega
borgarfulltrúar, en Guðrún Jóns-
dóttir, Hrafn Jökulsson og Ás-
geir Hannes Eiríksson varaborg-
arfulltrúar. Alþýðubandalags-
menn munu því hafa nokkuð
sterka stöðu í borgarmálaráði
Nýs vettvangs.
Nýr vettvangur á eins og gefur
að skilja ekki fulltrúa í borgar-
stjórn, en Bjarni P. Magnússon
situr þar fyrir hönd Alþýðu-
flokksins og Kristín Ágústa fyrir
hönd Alþýðubandalagsins.
Elín G. Ólafsdóttir borgarfull-
trúi skipar efsta sæti Kvennalist-
ans. Hún var í öðru sæti síðast en
tók við borgarfulltrúastarfinu af
Ingibjörgu S. Gísladóttur á miðju
þessu kjörtímabili. Kvennalist-
inn tók aðeins að litlu leyti þátt í
opinberum deilum um sameigin-
legt framboð, þótt leiða megi að
því líkur, að afstaða þeirra hafi
átt stóran þátt í að koma í veg
fyrirsamfylkingu. Konurnarhafa
að sama skapi verið lítt áberandi í
kosningabaráttunni. Kvennalist-
inn á einn borgarfulltrúa.
Obreytt
hjá Framsókn
Tvö efstu sæti Framsóknar-
flokksins eru áfram skipuð þeim
Sigrúnu Magnúsdóttur borgar-
fulltrúa og Alfreð Þorsteinssyni.
Hallur Magnússon blaðamaður
hefur tekið þriðja sætið, en hann
skipaði fjórða sæti listans síðast.
Þessir þremenningar bera hitann
og þungann af baráttu B-listans,
sem hefur einn borgarfulltrúa.
Önnur framboð eru ekki líkleg
til stórræða, en þó skal ekki gert
lítið úr fylgi Flokks mannsins í
síðustu kosningum. Þá fékk M-
listinn eitt atkvæði á móti hverj-
um fjórum hjá Kvennalista og
eitt á móti hverjum fimm at-
kvæðum Alþýðuflokksins.
Framboð græningja sýnir
kannski þá auknu áherslu á um-
hverfismál sem orðið hefur, en
framboðið er þó ekki líklegt til
þess að höggva skörð í fylgi ann-
arra framboða.
Deilt um grund-
vallaratriði
Því var spáð í fréttaskýringu í
Þjóðviljanum þegar deilur um
Nýjan vettvang stóðu sem hæst
að Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti
ekki að hafa verulegar áhyggjur
af tilburðum vinstri manna. Það
virðist ætla að ganga eftir. Sterk
staða Davíðs Oddssonar og hörð
andstaða hans við óvinsæla ríkis-
stjórn eru minnihlutaflokkunum
heldur ekki til framdráttar.
Einstök kosningamál hafa öll
verið minna afgerandi nú en fyrir
fjórum árum, en engu minna er
þó deilt um grundvallaratriði.
Samstaða minnihlutans á kjör-
tímabilinu gerir þeim erfiðara um
vik að skapa sér sérstöðu nú,
enda sameinast þeir um að
gagnrýna félagsmálapólitík Sjálf-
stæðisflokksins og glæsihalla-
stefnu þeirra. Þeir deila á van-
rækslu Sjálfstæðisflokksins í mál-
efnum barna, aldraðra og ann-
arra þeirra sem helst þurfa á sam-
hjálpinni að halda.
NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 11
D-listinn
Sjálfstæðisflokkur:
1. Davíð Oddsson borgarstjóri. 2.
Magnús L. Sveinsson formaður
VR. 3. Katrín Fjeldsted læknir. 4.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson lögfr.
5. Anna K. Jónsdóttir lyfjafræð-
ingur. 6. Árni Sigfússon fram-
kvæmdastjóri. 7. Júlíus Hafstein
framkvæmdastjóri. 8. Páll Gísla-
son læknir. 9. Guðrún Zoéga
verkfræðingur. 10. Sveinn Andri
Sveinsson laganemi.
V-Hstinn
Samtök um kvennalista:
1. Eh'n G. Ólafsdóttir borgarfullt-
rúi. 2. Guðrún Ögmundsdóttir fél-
agsráðgjafi. 3. Ingibjörg Hafstað
skrifstofustúlka. 4. Elín Vigdís
Ólafsd. kcnnsluk. og húsm. 5.
Margrét Sæmundsdóttir fóstra og
húsmóðir. 6. Hólmfriður Garðars-
dóttir framkv.stjóri. 7. Guðrún
Erla Geirsdóttir myndlistarkona.
8. Helga Tulinius jarðeðlisfræð-
ingur. 9. Kristín A. Ámadóttir.
10. ína Gissurardóttir deildar-
stýra.
B-iistinn
Framsóknarflokkur:
1. Sigrún Magnúsdóttir borgarf-
ulltrúi. 2. Alfrcð Þorsteinsson for-
stjóri. 3. Hallur Magnússonblaða-
maður. 4. Áslaug Brynjúlfsdóttir
fræðslustjóri. 5. Osk Guðrún Ara-
dóttir. 6. Sigurður Ingólfsson
tæknimaður. 7. Margeir Daníels-
son framkvæmdastjóri. 8. Arn-
þrúður Karlsdóttir fjölmiðlafr. 9.
Anna Kristinsdóttir húsmóðir. 10.
Þorsteinn Kári Bjarnason bóka-
vörður.
M-listinn
M-Iisti Flokkur mannsins:
1. Áshildur Jónsdóttir markaðs-
stjóri. 2. Sigríður Hulda Richards.
verslunarm. 3. Halldóra Pálsdóttir
sölumaður. 4. Friðrik Valgeir
Guðmundsson málmiðn.m. 5.
Einar Leo Erlingsson nemi. 6. Sig-
urður Sveinsson leigubflstjóri.
7.Guðmundur Garðar Guð-
mundsson. 8. Svanhildur Óskars-
dóttir fóstra. 9. Guðmundur Sig-
urðsson bréfberi. 10. Áslaug Ó.
Harðardóttir kennari.
Z-listinn
Grænt framboð:
1. Kjartan Jónsson verslunarmað-
ur. 2. Óskar D. Ólafsson verka-
maður. 3. Gunnar Vilhelmsson
ljósmyndari. 4. Sigrún M. Krist-
insdóttir nemi. 5. Sigurður P.
Sveinsson sölumaður. 6. Sigríður
E. Júiíusdóttir nemi. 7. Metúsal-
em Þórisson markaðsstjóri. 8.
Guðmundur Þórarinss.
kvikm.gerðarm. 9. Árni Ingólfs-
son myndlistarmaður. 10. Sigurð-
ur M. Grótarsson endurskoðandi.