Þjóðviljinn - 24.05.1990, Side 12
Vilja Reykvíkingar að
við séum sameinuð?
Kristín Á. Ólafsdóttir: Svarið mun koma upp úr kössunum á
laugardag
„Hún mamma? Hún er útí bæ að semja eitthvert lag, svo fer hún upp
í útvarp og svo upp í Kringlu og svo kemur hún beint heim og verður
þar!“ Níu ára gömul dóttir Kristínar Á. Ólafsdóttur var greinilega búin
að fá alveg nóg af kosningabaráttunni, þegar blaðamaður hóf leitina
að frambjóðandanum í öðru sæti H-lista Nýs vettvangs í vikunni. Eftir
mikla eftirgrennslan hafðist þó upp á Kristínu Ágústu og við gátum
mælt okkur mót. „Síðasti spretturinn er harður og það er ekki nema
von að börnin séu orðin þreytt á þessu!" segir hún og hlær við þegar
ég segi henni frá viðbrögðum dóttur hennar.
Kristín Á. Ólafsdóttir: „Nýr vettvangur ætlar að berjast fyrir því að þau
kolkrabbatök sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur á borginni verði losuð."
Mynd Jim Smart.
En það eru stefnumál Nýs vett-
vangs sem eru til umræðu og við
gefum Kristínu orðið:
„Helstu stefnumál okkar eru
að komið verði á nútímaþjónustu
við Reykvíkinga. Það þýðir að
börn geti búið við þroskandi um-
hverfi á meðan foreldrarnir eru
að vinna og að gamalt fólk geti
búið við öryggi. Það er eins og
borgaryfirvöld hafi ekki tekið eftir
þeim þjóðfélagsbreytingum sem
hafa orðið hér síðustu áratugina.
Þjónustan miðast við það að
mamma sé heima og jafnvel að
afi og amma búi hjá börnum og
barnabörnum.
Ein skýringin á því að Reykvík-
ingar fá ekki almennilega þjón-
ustu er auðvitaö sú að borgin
launar starfsfólk sitt verr en
önnur sveitarfélög í landinu. Það
kom í Ijós við samanburð í des-
ember sl. að Reykjavík var alls
staðar á botninum og á grunn-
launum munaði allt frá 8-19.000
krónum."
Fimmþúsundkallinn
ómerkilegt útspil
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur
rétt sett fram það kosningaloforð
að borga þeim foreldrum sem
vilja vera heima hjá börnum sín-
um. Fyrir marga hljómar þetta
sjálfsagt mjög freistandi en það
er nú ljóst að Sjálfstæðismenn
eru að tala um 5.000 kr. á mánuði
með barni þannig að þetta er ekk-
ert annað en ómerkilegt útspil
rétt fyrir kosningar. í fyrsta lagi
spyr ég: Hvaða foreldrar myndu
svipta barnið sitt leikskóladvöl-
inni gegn því að fá 5000 kall í
budduna sína? Allir þeir sem
kynnst hafa góðum leikskólum
vita hversu mikils virði sá þroski,
sem börnin fá þar, er.
Og það sér hver heilvita maður
að manneskja sem þarf heilsdags-
vist fyrir barnið sitt vegna úti-
vinnu er engu bættari með því að
fá 5.000 kr. í staðinn fyrir mánað-
arlaunin.
Málefni gamla fólksins eru
einnig eitt af stærstu stefnumál-
um Nýs vettvangs. Sem betur fer
lifa margir af elstu Reykvíking-
unum góðu og innihaldsríku lífi,
sérstaklega þeir sem búa við ör-
yggi í húsnæðismálum og hafa
góða heilsu. Hins vegar býr hóp-
ur þeirra við ömurlegar húsnæð-
isaðstæður og sumir þeirra eiga
jafnvel hvergi heimili.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
gleymt þörfum þessa fólks. Hann
hefur eingöngu keyrt á stefnu
sinni um söluíbúðir þar sem ódýr-
asta íbúðin kostar sex miljónir.
Nýr vettvangur lofar því að
komist hann í meirihluta muni
bætast við 2000 íbúðir í einhvers
konar félagslegu kerfi á kjörtíma-
bilinu. Þær íbúðir eiga að nýtast
bæði gömlu og ungu fólki, t.d.
námsfólki.
Sjálfstæðisflokkurinn felldi
bæði árið 1987 og árið 1989 til-
lögu frá okkur í minnihlutanum
um að borgin sækti um lán til
Húsnæðismálastofnunar fynr
kaupleiguíbúðir. Árið 1988 sam-
þykktu þeir að sækja um lán fyrir
40 íbúðum þegar eðlilegt hefði
verið að borgin hefði fengið hátt í
200 íbúðir bara það ár. Þar með
missti fjöldi Reykvíkinga af
gullnu tækifæri til að komast á
auðveldan hátt yfir öruggt hús-
næði. Þar fyrir utan hefur bygg-
ingarbransinn í Reykjavík misst
af hátt í tveimur miljörðum í
framkvæmdum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ekki á þessu kjörtímabili bætt við
einni einustu sérhannaðri leiguí-
búð fyrir aldraða á þessu kjörtím-
abili. Síðasta verk hans í þeim
efnum var opnun Seljahlíðar rétt
fyrir kosningar árið 1986.“
Skömm að
neyðarlistanum
„En stærsta skömmin er sú að á
neyðarlista Félagsmálastofnunar
eru núna 150 gamalmenni sem
verða að komast á hjúkrunarhei-
mili. Auk þess er fyrirséð með
nokkurri vissu að fram að alda-
mótum munu bætast við 200 ald-
raðir í Reykjavík sem þurfa á
hjúkrunarrýmum að halda.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
aftur og aftur við fjárhagsáætlun
fellt tillögur okkar um að setja
talsvert fé í byggingu hjúkrunar-
heimila. Hann setur í ár 1,8 milj-
ón í B-álmu Borgarspítalans.
Ríkið hefur dregið lappirnar í
þeim framkvæmdum. B-álman
hefur verið í byggingu í 13 ár og
það er fyrirséð að ef ekki verða
settir meiri peningar í hana frá
ríki og borg en gert hefur verið
undanfarin ár, þá muni hún ekki
verða tilbúin fyrr en árið 2023.
Með þennan langa neyðarlista
og ekki fleiri úrræði fyrir augun-
um höfum við sagt og segjum
enn: Borginni ber að greiða
meira en lögboðin 15% til að
tryggja þessa þjónustu."
Skólpiö burt
„f umhverfismálum viljum við
að hreinsun strandlengjunnar
verði lokið á fimm árum, þ.e.
árið 1995, í staðinn fyrir árið 2000
eins og Sjálfstæðisflokkurinn
stefnir að núna. í lok síðasta
kjörtímabils, þegar verkið var
hafið, var sagt að því yrði lokið
1993.
En í dag segir Sjálfstæðisflokk-
urinn að fyrst árið 1993 eigi að
vera búið að safna klóakinu í
leiðslur og þær eiga að liggja að-
eins 500 metra út í sjó. Ekki fyrr
en árið 1998 á að leiða skólpið
þrjá kflómetra frá landi. Þannig
að þangað til megum við eiga von
á því í norðanveðrunum að fá yfir
okkur ansi hressilegar sendingar
af saurgerlum og öðru ógeði.
Við leggjum mikið upp úr því
að útivistarsvæði borgarinnar
verði miklu fleiri, fjölbreyttari og
skemmtilegri en nú er. Mörg opin
leiksvæði eru mjög niðurdröbbuð
hjá borginni og hefur illa verið
sinnt.“
Lýöræöiö
til íbúanna
„Að okkar mati verður að
gjörbreyta stjórnarháttum í borg-
inni. Vissulega búum við við að
kjósa á fjögurra ára fresti og
sumir telja að það sé lýðræðið
með stórum staf en við teljum
það lágmarkslýðræði. Við teljum
að með margvíslegum aðferðum
megi tryggja að íbúarnir hafi
miklu meiri áhrif á það sem
ákveðið er, t.d. með því að hafa
bindandi atkvæðagreiðslur um
stórmál og með því að styrkja
hverfasamtök og koma á laggirn-
ar hverfastjórnum. Slík hverfar-
áð ættu að hafa mikið að segja um
umhverfið, um starfsemi dagvist-
arheimila og skóla í hverfinu, um
félagslíf barna og unglinga og um
íþróttastarf.
Reykjavík er á vissan hátt orð-
in stórborg þar sem miklu fleira
fólk verður einmana en t.d. í litlu
þorpi. Til að vinna á móti þessum
ókostum þéttbýlisins viljum við
nýta kosti hverfanna. Við sjáum
t.d. fyrir okkur hverfahús þar
sem allir íbúar eiga sameiginlega
félagsaðstöðu.“
Topparnir
ekki spuröir
Framboð Nýs vettvangs hefur
verið mjög umdeilt og m.a. hefur
oft verið spurt að því hvaða sam-
leið Ásgeir Hannes Eiríksson eigi
með félagshyggjufólki?
„Fyrir mér er það ósköp ein-
föld skynsemi að fólk, sem hefur
svo til sömu skoðanir um hverju
þarf að breyta í borginni, taki
höndum saman til þess að hafa
eitthvað að segja í ofurveldi Sjálf-
stæðisflokksins. Því miður tókst
ekki að fá alla minnihlutaflokk-
ana í sameiginlegt framboð og
þegar það lá fyrir heyrði ég marga
segja að þeir ætluðu ekki að kjósa
í vor því að það væri óskiljanlegt
að fólk sem væri í pólitík til að
breyta hlutunum gæti ekki unnið
skynsamlega saman.
Ég var því mjög fegin þegar í
ljós kom að það var nógu margt
fólk til staðar, þar á meðal Al-
þýðubandalagsfólk, sem vildi
ekki sætta sig við það ástand sem
blasti við fyrir nokkrum mánuð-
um. Það vildi ekki færa Sjálfstæð-
isflokknum borgina á silfurfati
fyrirhafnarlaust og þess vegna
varð Nýr vettvangur til.
Það sem mér finnst merkilegt
við tilurð hans er m.a. að þetta
gerðist allt neðan frá. Topparnir
voru ekki spurðir, krafan frá
fólkinu var svo sterk að það var
ekki um annað að ræða.
Og nú eru tvö Alþýðubanda-
lagsfélög sem styðja H-listann,
Birting og Félag ungra Alþýðu-
bandalagsmanna. “
Ásgeir Hannes
grýla
„Ég hef orðið vör við að Ásgeir
Hannes hefur verið notaður sem
grýla á fólk og menn hafa m.a.
minnt á hugmyndir hans um fóst-
ureyðingar. Það hefur komið mér
mjög skemmtilega á óvart að
kynnast Ásgeiri Hannesi. Þetta
er húmanisti sem hefur á mörgum
sviðum alveg sömu hugmyndir og
ég um hvernig má tryggja fólki,
og sérstaklega þeim sem eiga
undir högg að sækja, meira rétt-
læti í lífinu. Hins vegar er ég ós-
ammála honum um hvernig á að
bregðast við fóstureyðingum. En
það vill nú svo til að borgarstjórn
tekur ekki á fóstureyðingamálum
og svo vill líka þannig til að Ás-
geir Hannes, eins og allir aðrir
frambjóðendur Nýs vettvangs, er
bundinn af stefnuramma sem
hefur verið samþykktur og undir-
ritaður af okkur.
Ég hef orðið mjög hissa að
heyra sum flokkssystkini mín
nota glundroðakenninguna á
Nýjan vettvang, þessa gömlu
kenningu sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur beitt gegn öllum sín-
um andstæðingum í áratugi. Mér
finnst þetta næstum því spaugi-
legt en líka dálítið sorglegt og vísa
einfaldlega til þess sem ég sagði
áðan um þann ramma sem við
erum öll bundin af.
Nýjum vettvangi ofbjóða, al-
veg eins og Alþýðubandalags-
fólki almennt, þær einræðis-
kenndir sem einkenna stjórn
borgarinnar. Okkur ofbýður ótt-
inn sem við finnum hjá mörgum
sem vinna hjá borginni, sérstak-
lega hjá þeim sem vinna að
hönnun og þeim sem vinna sem
verktakar. Það fólk veit að það er
hættulegt að sýna andstöðu við
Sjálfstæðisflokkinn. Þetta er það
sem við eigum við þegar við segj-
um að hugtakið „borg óttans"
svífi hér yfir höfuðborginni.
Nýr vettvangur ætlar að berjast
fyrir því að þau kolkrabbatök
sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur
á borginni verði losuð. Þessi tök
koma í veg fyrir jafnræði fyrir-
tækja í atvinnulífinu og þau koma
í veg fyrir jafnræði Reykvíkinga
allra til að lifa sómasamlegu lífi.
Ég lít þannig á að öll þau at-
kvæði sem eru greidd Nýjum
vettvangi tjái kröfu fólks um að
við, sem viljum svipaða hluti í
borgarmálefnum, eigum að sam-
eina kraftana og nýta atkvæðin.
Það sem mun koma upp úr kjörk-
össunum er svar við því hvort
Reykvíkingar vilja að við séum
sundruð eða hvort þeir vilja að
við vinnum saman svo að við get-
um orðið aflið sem gerir
draumana að veruleika."
-vd.
H-listi Nýs vettvangs
1. Ólína Þorvarðardóttir 2. Kristín Á. Ólafsdóttir 3. Bjarni P. Magnús-
son 4. Guðrún Jónsdóttir 5. Hrafn Jökulsson 6. Asgeir Hannes Eiríks-
son 7. Gísli Helgason 8. Aðalsteinn Hallsson 9. Pálmi Gestsson 10.
Kristín Dýrfjörð Birgisdóttir 11. Sigurður Rúnar Magnússon 12. Ás-
björn Morthens 13. Rut L. Magnússon 14. Reynir Ingibjartsson 15.
Helgi Björnsson 16. Árni Indriðason 17. Aðalheiður Fransdóttir 18.
Björn Einarsson 19. KristrúnGuðmundsdóttir20. GunnarH. Gunnars-
son 21. Halldóra Jónsdóttir 22. Kristín B. Jóhannsdóttir 23. Haraldur
Finnsson 24. Vilhjálmur Árnason 25. Skjöldur Þorgrímsson 26. Guð-
rún Ómarsdóttir 27. Ragnheiður Davíðsdóttir28. Magnús H. Magnús-
son 29. Magnús Torfi ðlafsson 30. Guðrún Jónsdóttir.
12 SlÐA-NÝTT HELGARBLAÐ Flmmtudagur 24. maí 1990