Þjóðviljinn - 24.05.1990, Side 14
,X—REYKJAVIK
r
Guðrún Agústsdóttir
Þyrftum
lengri
kosninga-
baráttu
Guörún Ágústsdóttir (haldiö hefur neyöst til aö grfpa til ósanninda til að reyna
að rétta sinn hlut.Mynd: Jim Smart.
Guðrún Ágústsdóttir er í öðru
sæti G-lista Alþýðubandalags-
ins í Reykjavík. Hún hefur ver-
ið borgarfulltrúi frá 1982 og
varaborgarfulltrúi 1978 til 1982.
Þá var hún líka formaður
Strætisvagna Reykjavíkur og
situr þar enn í stjórn. Hún hefur
m.a. verið fulltrúi AB í Félags-
ráði, Skipulagsnefnd Reykja-
víkur og Byggingamefnd aldr-
aðra og frá því í október 1988
hefur hún verið aðstoðarmaður
menntamálaráðherra.
- Hvað fínnst þér helst hafa
einkennt kosningabaráttuna að
þessu sinni?
Kosningabaráttan fór mjög
seint af stað, ekki síst vegna þess
að Sjálfstæðismenn vilja ekki
heyja kosningabaráttu. Þeir hafa
ekki áhuga á því að draga fram í
dagsljósið vanrækslusyndir sínar
í uppbyggingu félagslegra þátta í
borginni. I öðru lagi er það
óvenjulegt svo að ekki sé meira
sagt að formaður Alþýðubanda-
lagsins hefur ekki treyst sér til að
lýsa stuðningi við framboð G-list-
ans í Reykjavík. I þriðja lagi skul-
um við gera okkur grein fyrir að
flokkurinn hefur mælst með lítið
fylgi á landsvísu að undanfomu. I
nýlegri skoðanakönnun fékk
hann ekki nema sjö prósenta fylgi
sem er langlægsta prósentutala
sem sést hefur.
- Um hvað hefur kosninga-
baráttan fyrst og fremst snúist?
Hún hefur fyrst og fremst
snúist um aðalbaráttumál AI-
þýðubandalagsins til margra ára.
Borgin er rík og gæti verið félags-
Ieg fyrirmyndarborg á heims-
mælikvarða. Peningum hefur ver-
ið varið á rangan hált í minnis-
merki og steinsteypu í stað upp-
byggingar í þágu barna, aldraðra
og unglinga.
Við höfum ráðist gegn ger-
ræðislegum stjómarháttum
íhaldsins og lagt fram mótaðar til-
lögur um raunverulegt hverfalýð-
ræði.
Þá hefur kosningabaráttan
líka snúist um umhverfismál og
samgöngumál í borginni. Síðast
en ekki síst hefur hún svo snúist
um spillinguna sem þrifst í skjóli
meirihlutavalds íhaldsins og höf-
um við bent á fjölmörg dæmi um
slíkt.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
átt mjög erfitt með að svara gagn-
rýni okkar í þessum málum. í
hvert skipti sem við höfum haft
tækifæri til að kynna málstað
okkar í opinni umræðu á jafnrétt-
isgrundvelli hafa Sjálfstæðis-
menn farið halloka. Ihaldið hefur
neyðst til að grípa til ósanninda til
að reyna að rétta sinn hlut.
- Geturðu nemt dæmi um
ósannindi íhaldsins?
Þeir fullyrða til dæmis að
búið verði að leysa dagvistar-
vandann næsta haust. Staðreynd-
in er hins vegar sú að yfir tvö þús-
und böm em á biðlistum eftir
dagvistarplássi og búið er að
banna skráningu giftra foreldra
eftir dagheimilisplássi. Borgarbú-
um hefur fjölgað um 14 þúsund á
síðustu átta ámm sem er svipaður
fjöldi og býr á Akureyri. Og sam-
kvæmt könnun Byggðastofnunar
er hér aðallega um ungt fólk að
ræða sem borgin hefúr vemlegar
tekjur af og á böm.
Það er langt frá þvl að upp-
bygging dagvistarheimila hafí
náð að haldast í hendur við þessa
miklu Ijölgun enda hefur biðtími
einstæðra foreldra eftir dag-
heimilisplássi fjórfaldast á síð-
ustu átta árum.
Þá hefur íhaldið forðast eins
og heitan eldinn að ræða öldran-
armálin fyrir opnum tjöldum,
ekki síst vegna þess að þeir hafa
ekki byggt eina einustu sérhann-
aða leiguíbúð fyrir aldraða allt
kjörtímabilið þrátt fyrir að tólf
hundmð manns em á biðlista eftir
slíku húsnæði og þar af hefúr Elli-
máladeild borgarinnar metið að
sex hundmð manns hafi brýna
þörf fyrir úrvinnslu þegar í stað.
Unglingamálin hafa líka setið
á hakanum með þeim afleiðing-
um að vandamál meðal unglinga
hafa stóraukist og vil ég þar
benda á aukið ofbeldi og notkun
vímuefna.
Þessi mál hafa verið dregin
fram í dagsljósið í kosningabar-
áttunni og aukin vitneskja al-
mennings um þetta er þegar farin
að draga úr því mikla fylgi sem
skoðanakannanir sýndu að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafði við upp-
haf kosningabaráttunnar. Við
vildum gjaman hafa lengri tíma
fram til kosninga til að koma
slefnumálum okkar enn betur á
framfæri við almenning.
- Nú sýna skoðanakannanir
I Reykjavík að margir af stuðn-
ingsmönnum Alþýðubanda-
lagsins virðast ætla að greiða H-
Iistanum atkvæði sitt að þessu
sinni. Hvernig skýrirðu þetta?
Neitun formanns á að lýsa
yfir stuðningi við framboð
flokksins í Reykjavík gæti orðið
til þess að einn og einn maður
sem annars hefði kosið G-listann
lítur ekki á það sem pólitísk vista-
skipti að fara yfir á H-listann.
Ljóst er að hluti af okkar fólki
hefúr gengið til liðs við Alþýðu-
flokkinn, Borgaraflokkinn og
fleifi aðila án þess að það geri sér
raunverulega grein fyrir að í því
felst stuðningur við stefnu ann-
arra flokka, ekki bara í borgar-
málum heldur á landsvísu.
Það hlýtur að vera umhugsun-
arefni fyrir vinstrafólk að Al-
þýðuflokkurinn kemur til með að
eigna sér kosningaútkomu H-list-
ans og telja hana stuðning við íyr-
irvaralausa inngöngu í Efnahags-
bandalagið og álver hvað sem það
kostar, skítt með skatta og lágt
raforkuverð sem Islendingar
verði að niðurgreiða.
Okkar fólk vildi sameiginlegt
framboð gegn íhaldinu I Reykja-
vík. Því var ég hjartanlega sam-
mála. Bæði Kvennalisti og Fram-
sókn lýstu sig á móti því og Al-
þýðuflokkurinn var aldrei heill í
sinni afstöðu. Það voram við hins
vegar.
Framboð Nýs vettvangs hefur
ekki fækkað ífamboðum í
Reykjavík og það er athyglisvert
að samkvæmt nýjustu skoðana-
könnunum fær það framboð
færri atkvæði en G-Iistinn fékk
í síðustu kosningum.
Mér finnst að fólk verði líka
að muna að ágreiningur innan
minnihlutans í borgarstjóm hefur
aðallega verið við Alþýðuflokk-
inn. Þar má nefna andstöðu við
foreldrarekin dagheimili, and-
stöðu við raunvemlegt lýðræði,
sem er eitt helsta baráttumál okk-
ar G-listafólks. Sú lýðræðisand-
staða kom skýrt ffam síðastliðið
vor þegar borgarfúlltrúi Alþýðu-
flokksins gekk með íhaldinu gegn
eindregnum vilja foreldra og
kennara í Ölduselsskóla um ráðn-
ingu skólastjóra þar. Þá lýsti hann
því yfir að hugmyndir um sam-
eiginlegt framboð stjómarand-
stöðunnar í borginni væm dauðar
vegna þess að við sýndum lýð-
ræði í verki og þar með fékk
Sjöfn Sigurbjömsdóttir krati ekki
skólastjórastöðuna.
Þá má minna á tillögu þeirra
um að selja Hitaveituna og Raf-
magnsveituna en þau fyrirtæki
mala borgarbúum gull.
- Hvað viltu segja að lok-
um?
Meginpólamir í borgarstjóm
em Sjálfstæðisflokkur og Al-
þýðubandalag. Það er hætta á
jafnvægisleysi í borgarstjóm ef í-
haldið hefúr ekki það sterka mót-
vægi sem Alþýðubandalagið hef-
ur verið.
Nýr vettvangur getur ekki
verið sá póll. Þar er fólk úr öllum
áttum og óvíst hvort það geftir
starfað saman eftir kosningar. Ég
skora á vinstrafólk að hugsa sig
vel um hvemig atkvæði þess er
best varið til að tryggja vinstri-
stefnu og vinna að því að gera
Reykjavíkurborg að fyrirmyndar-
borg félagslegrar þjónustu.
Hvort telur vinstrafólk Guð-
rúnu Kr. Óladóttur varaformann
Sóknar frambjóðanda G-listans
líklegri til að vinna í anda vinstri-
stefnu eða Ásgeir Hannes Eiríks-
son frambjóðanda H-listans?
-rb
%
FERDASKRIFSTOFA
ÍSLANDS
Skogarhlið IM 101 Rcykjavik Simi: 91 -2SMSS Idcx - 2019
Tdcfax: 9I -62SH95
HVÍTASUNNUFERÐ UM SUDURLAND
1.-4. júni
Dvalið verður ó Hótel EDDU, Kirkjubæjarklaustri, og farið þaðan í skoðunar- og skemmtiferðir.
Á meÓal óhugaverðra staða mó nefna:
Meðalland - Skarðsfjöruviti - Skaftóreldahraun - Núpsstaðaskógur - Skaftafell - Kapellan Núpsstað - Byggðasafnið Skógum
Verð kr. 16.650,- ó mann.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi kr. 1.650.-
Innifalið í verði er:
Akstur og leiðsögn
3 gisfinætur með morgunverði
2 nestispakkar
3 kvöldverðir
HRINGFERÐ UM ISLAND
14. - 23. iúli
10 daga hringferð um landið undir leiðsögn hins reynda fararstjóra Guðmundar Guðbrandssonar.
Farið verður um helstu héruð londsins þar sem fólki gefst kostur ó að skoða fagra og merka stoði, rifja upp atburði og sögur
þeim tengdar og njóta nóttúru londsins óhyggjulaust um mat, næturstað og leiðir.
Verð kr. 58.850,- ó mann.
Aukagjald fyrir eins monns herbergi kr. 7.950.-
Veittur er 10% afslóttur fyrir lífeyrisþega.
Innifalið í verði er:
Akstur og leiðsögn
9 gistinætur með morgunverði
9 kvöldverðir
Hódegisverður siðasta daginn
Allar nónari upplýsingar veitir:
FERÐASKRIFSTOFA ÍSLANDS,
Skógarhlíö 18, 101 Reykjavík,
sími 25855.
14 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Fimmtudagur 24. maí 1990