Þjóðviljinn - 24.05.1990, Síða 15
X-STYKKISHÓLMUR
H-listinn
1. Davíð Sveinsson, skrifstofu-
maður. 2. ína H. Jónasdóttir,
verkakona. 3. Ásgeir Þór Ólafs-
son, rafveitustjóri. 4. Bryndís
Guðbjartsdóttir, skrifstofumaður.
5. Hilmar Hallvarðsson, rafvirki.
6. Elín G. Sigurðardóttir, Ijós-
móðir. 7. María Davíðsdóttir,
hjúkrunarfræðingur. 8. Jón Helgi
Jónsson, símaverkstjóri. 9. Eirík-
urHelgason, sjómaður. 10. Guð-
rún Erna Magnúsdóttir,
leiðbeinandi. 11. Emil Þór Guð-
björnsson, sjómaður. 12. Guðrún
Marta Ársælsdóttir, verkakona.
13. Guðmundur Lárusson, fram-
kvæmdastjóri. 14. Einar Karls-
son, verkamaður.
NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 15
X-Vopnafjörður
óháðir
AB og
sigrnðu
Framsókn missti meirihlutann og Sjálfstœðisflokkurinn galt afhroð.
Enginn formlegur meirihluti á kjörtímabilinu
Alþýðubandalagið varð ásamt
óháðum sigurvegari kosninganna
á Vopnafirði síðast og náði
tveimur mönnum í hreppsnefnd.
Framsókn missti hins vegar
meirihlutann og Sjálfstæðisflokk-
urinn tapaði nær helmingi fylgis
síns.
Hreppsnefnd er því þannig
skipuð að Alþýðubandalagið hef-
ur tvo menn, Framsóknarflokk-
urinn þrjá, Sjálfstæðisflokkurinn
einn og óháðir einn.
Sömu listar eru í framboði nú.
Kristján Magnússon er eftir sem
áður efstur á B-listanum, Aðal-
björn Björnsson er efstur á G-
listanum. Steindór Sveinsson er
nýr oddviti D-listans og Ingólfur
bróðir hans fer fyrir H-lista
óháðra.
Enginn formlegur meirihluti
hefur starfað í hreppsnefnd á
kjörtímabilinu.
„Við náðum því langþráða tak-
marki að eignast tvo bæjarfull-
trúa í síðustu kosningum og ætl-
um okkur að halda þeim nú. Bar-
áttan stendur á milli annars
manns okkar og fjórða manns hjá
Framsókn, segir Aðalbjörn
Björnsson, yfirkennari og
hreppsnefndarmaður Alþýðu-
bandalagsins á Vopnafirði, við
Þjóðviljann.
Helstu baráttumál G-listans
eru að sögn Aðalbjörns bygging
smábátahafnar, ný skólabygging
og leikskóli.
„Framkvæmdir við byggingu
leikskólans eru hafnar og við telj-
um að þeim eigi að ljúka á næsta
ári.
Það er einnig brýnt að bæta
íþróttaaðstöðuna með því að
koma upp malarvelli, skapa ung-
lingum betri aðstöðu til félags-
starfs og að koma hér upp fram-
haldsdeild og öldungadeild í
tengslum við Menntaskólann á
Egilsstöðum. Verkefnin eru
næg,“ segir Aðalbjörn.
Hann segir sveitarsjóð hafa
komið mjög vel út úr nýjum
lögum um verka- og tekjuskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga.
Hreppurinn losnaði við dýra
rekstrarliði og ráðstöfunarfé er
mun meira í ár en í fyrra. -gg
■
Aðalbjöm Björnsson: Unnum
mann síðast og viljum halda hon-
um.
Frá Vopnafirði. Framsókn og Sjálfstæðisflokkur þar töpuðu verulegu fylgi síðast, en Alþýðubandalagið og
óháðir unnu á.
Minnihlutaflokkarnir sameinaðir á Vett-
vangi. Gömlu bæjarfulltrúarnir draga sig í
hlé. Sjálfstœðisflokkur hefur haft meirihluta í
sextán ár
Eftir sextán ára meirihluta
Sjálfstæðismanna í hreppsnefnd
og bæjarstjórn Stykkishólms hafa
minnihlutafiokkarnir og óháðir
tekið höndum saman. Hólmarar
hafa aðeins tvo kosti í þessum
kosningum, D-lista Sjálfstæðis-
flokksins eða H-lista Vettvangs.
Að Vettvangi standa Alþýðu-
bandalag, Alþýðuflokkur og S-
listi félagshyggjumanna, en eng-
inn núverandi bæjarfulltrúa þess-
ara lista er í vonarsæti á H-
listanum. Hver þessara lista fékk
einn bæjarfulltrúa árið 1986, en
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
fjóra.
Þess má geta að núverandi bæj-
arstjórn var hreppsnefnd í upp-
hafi kjörtímabils, en Stykkis-
hólmur varð bær á kjörtímabil-
inu.
Davíð Sveinsson skrifstofu-
maður skipar efsta sæti Vett-
vangs, en hann hefur áður starfað
með Alþýðuflokknum og hefur
setið í bæjarstjórn sem varamað-
ur. ína H. Jónasdóttir verkakona
var neðarlega á S-listanum síðast,
en skipar nú annað sæti Vett-
vangs. Ásgeir Þór Ólafsson er í
Kraftar minnihlut-
ans sameinaðir
Davíð Sveinsson, oddviti Vettvangs: Erum
viss um að starfokkar mun skila betri árangri
með sameiginleguframboði
i\ .rkmiðið með þessu sam-
eiginlega framboði er að sameina
krafta minnihlutaflokkanna. Við
vildum reyna nýjar leiðir í stað
þess að hjakka áfram í sama far-
inu og crum viss um að starf okk-
ar skilar mun betri árangri með
þessum hætti, segir Davíð Sveins-
son, oddviti Vettvangs í Stykkis-
hólmi, í samtali við Þjóðviljann.
Davíð var áður á framboðsiista
Alþýðuflokksins og hefur setið
sem varamaður í bæjarstjórn.
„Samstarf minnihlutaflokk-
anna hefði mátt vera meira á
þessu kjörtímabili, en málefna-
ágreiningur hefur ekki verið
áberandi. Við erum samtök
áhugafólks um bæjarmál og mun-
um starfa á vinstri sinnuðum nót-
um.
Hér í Stykkishólmi hafa verið í
gangi stór verkefni sem nauðsyn-
legt er að halda áfram. Það þarf
að klára íþróttahúsið, halda
áfram með byggingu íbúða fyrir
aldraða, ljúka framkvæmdum í
höfninni og fleira.
Það er nauðsynlegt að gera
átak í atvinnumálum bæjarins.
Það er ekki mikið atvinnuleysi
hér, en atvinna er með minna
móti.
Það ríkir nokkur óvissa um
önnur verkefni í framtíðinni. Það
ræðst dálítið af því hvernig ríkið
gerir upp skuld sína við okkur.
Ríkið skuldar okkur 70 miljónir
króna og okkur munar um
minna.
Við rennum auðvitað dálítið
blint í sjóinn með þetta framboð
okkar, en við erum vongóð um
árangur og starf okkar mun nýt-
ast betur hvort sem við verðum í
meirihluta eða minnihluta. Við
höfum breiðan hóp fólks að baki
okkur,“ segir Davíð Sveinsson.
-gg
Sjálfstæðisflokkur hefur haft meirihluta í Stykkishólmi s.l. 16 ár, en nú er aðeins við einn andstæðing að
etja, H-lista Vettvangs.
þriðja sæti og Bryndís Guðbjarts-
dóttir er í því fjórða. Þessir
fjórmenningar þurfa að verða
bæjarfulltrúar ef fella á meiri-
hluta Sjálfstæðisflokksins.
Bæjarfulltrúar listanna þriggja
víkja sem fyrr segir fyrir nýju
fólki. Einar Karlsson, bæjarfull-
trúi Alþýðubandalagsins, skipar
heiðurssæti H-listans, en Guð-
mundur Lárusson Alþýðuflokki
er í þrettánda sætinu. Bæjarfull-
trúi S-listans, Magndís Alexand-
ersdóttir, er ekki á listanum.
Sturla tekur við
Sturla Böðvarsson bæjarstjóri
hefur tekið efsta sæti D-listans,
en Ellert Kristinsson er kominn
niður í baráttusætið. Hann var
efstur á lista Sjálfstæðisflokksins
við síðustu kosningar.
Þrír bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins af fjórum hafa hins veg-
ar dregið sig í hlé eða því sem
næst. Það eru þau Kristín Björns-
Davíð Sveinsson, oddviti Vett-
vangs. DV-myndir.
dóttir, Pétur Ágústsson og Gunn-
ar Svanlaugsson. Gunnar er þó í
fimmta sæti listans.
Bæring Guðmundsson og
Auður Stefnisdóttir eru í öðru og
þriðja sæti D-listans.
Ljóst er að það verður minni-
hlutaflokkunum erfitt að
Sturla Böðvarsson bæjarstjóri og
efsti maður á D-listanum.
hnekkja meirihluta Sjálfstæðis-
flokksins. Sjálfstæðisflokkurinn
bauð fram með óháðum árið 1978
og náði þá fimm fulltrúum af sjö í
hreppsnefnd. Sagan endurtók sig
í kosningunum 1982, en síðast
tapaðist maður af D-listanum.
-gg
Stykkishólmsframboðin
Nýtt afl og mikil endumýjun