Þjóðviljinn - 16.06.1990, Side 11
í DAG
VIKULOK
Hrafnseyri
Æskuheimili Jóns Sigurðssonar
r
Hallgrímur Sveinsson: A næsta ári eru liðin 180 ár frá fœðingu Jóns
forseta. Kœrkomið tækifæri til að rijja upp sjálfstæðisbaráttuna og
þátt Jóns Sigurðssonar. Sameiningartákn þjóðarinnar
Þann 17. júní á næsta ári
verða liðin 180 ár frá fæð-
ingu Jóns Sigurðssonar for-
seta sem fæddist þann dag árið
1811. Þá er kjörið tækifæri til
að rifja upp sjálfstæðisbarátt-
una og þátt Jóns Sigurðssonar
í henni. En eins og kunnugt er
hefur sjálfstæðisbaráttan og
Jón Sigurðsson verið samein-
ingartákn þjóðarinnar og
nauðsynlegt að gefa þessum
mikilsverða þætti í sögu þjóð-
arinnar meiri gaum en verið
hefur,” sagði Hallgrímur
Sveinsson á Hrafnseyri.
Á morgun sunnudaginn 17.
júní er þjóðhátíðardagur íslend-
inga en eins og kunnugt er var
stofnað Iýðveldið ísland á Þing-
völlum þennan dag árið 1944
,eflir að landið hafði verið í
konungssambandi við
Danmörku frá 1918.
Safnið opnað
á morgun
Á Hrafnseyri, fæðingarstað
Jóns Sigurðssonar, verður haldin
sígild þjóðhátíð þar sem Styrmir
Gunnarsson ritstjóri Morgun-
blaðsins flytur ræðu dagsins.
Auk þess verður þjóðhátíðar-
daginn opnað safn Jóns Sigurðs-
sonar á Hrafnseyri og verður það
opið fram til 1. september frá
klukkan 13-20. Þar fyrir utan
geta ferðalangar sem leið eiga
um staðinn skoðað safnið utan
hins venjulega opnunartíma, ef
þeir æskja þess.
Uppistaða safnsins eru
myndir sem eiga að minna á
sjálfstæðisbaráttuna og á Jón
Sigurðsson auk muna sem hann
átti. Þar er m.a. ferðakoffort
Jóns sem faðir hans útbjó hann
með þegar hann 17 ára fór til
Reykjavíkur til náms hjá Gunn-
laugi þáverandi dómkirkju-
presti. Ennfremur er í safninu
bréf sem Jón skrifaði, stílabók,
eirketill og þeir minnispeningar
sem gefnir hafa verið í minningu
Jóns sem og þeir peningaseðlar
sem útgefnir hafa verið með
Jón Sigunðsson.
mynd af honum. Á Hrafnseyri er
einnig minningarkapella og
„baðstofa” Jóns Sigurðssonar.
Að sögn Hallgríms Sveins-
sonar heimsækja velflestir
ferðamenn Hrafnseyri sem á
annað borð eiga leið um Amar-
ljörðinn. Á ári hverju em þetta
um 1500 til 2000 manns sem
skrifa nafn sitt í gestabók safns-
ins en trúlega eru þeir mun fleiri
sem koma þar við.
Hallgrímur og ljölskylda
hans hafa búið á Hrafnseyri í 26
ár en sjálfur er hann Reykvík-
ingur. Það var fyrir áeggjan hr.
Sigurbjöms Einarssonar biskups
sem Hallgrímur flutti sig um set
frá Breiðuvík, þar sem hann
veitti forstöðu drengjaheimili, til
Hrafnseyrar til að taka þátt í
uppbyggingu staðarins sem Ás-
geir Ásgeirsson forseti beitti sér
fyrir ásamt öðmm góðum mönn-
um. í mörg ár hefur Hallgrímur
og íjölskylda haft um 250 fjár á
Hrafnseyri en á vetuma er hann
skólastjóri gmnnskólans á Þing-
eyri. Um sex manns em skráðir
með fasta búsetu á Hrafnseyri.
Jarðgöng á milli
Arnarfjarðar
og Dýraf jarðar
Hallgrímur sagði að það
væri mjög góð tilfmning að búa
á Hrafnseyri þó svo að staðurinn
væri meira eða minna einangr-
aður meiri hluta ársins vegna
samgönguerfiðleika yfir vetrar-
tímann. Nýlega sameinaðist
Auðkúluhreppur Þingeyrar-
hreppi en ein af forsendum
þeirrar sameiningar var að sam-
göngur á milli staðanna yrðu
bættar. Á milli er Hrafnseyrar-
heiðin sem er illvigur farartálmi
yfir vetrartímann sökum þess
hve vegurinn yfir heiðina liggur
hátt yfir sjávarmáli.
' Hallgrímur segir að eina
leiðin til að koma á heilsárssam-
göngum innan Vestíjarða sé að
gerð verði jarðgöng á milli Am-
arfjarðar og Dýraíjarðar sem
yrðu þá væntanlega um fjórir
kílómetrar að lengd. „Bættar
samgöngur er algjört lífsspurs-
mál fyrir okkur sem búum héma
í Auðkúluhreppi og með tilkomu
Baldurs, nýju Breiðafjarðarferj-
unnar, hlýtur að koma aukinn
þrýstingur á að ráðist verði í
gerð þessara jarðganga. Fyrstu
merki þess að von sé á að ráðist
verði í gerð þeirra er að þau em
komin inn í Vestfjarðaáætlunina
í samgöngumálum,” segir Hall-
grimur Sveinsson.
Að undanfomu hafa iðnaðar-
menn verið að snurfúsa og mála
húsin á Hrafnseyri svo að þau líti
sómasamlega út, enda hlýtur það
að vera metnaðarmál Islendinga
að vel sé búið að fæðingarstað
sjálfstæðishetju þeirra. Málefni
Hrafnseyrar heyra undir sam-
nefnda nefnd sem heyrir beint
undir forsætisráðuneytið. For-
maður hennar er Þórhallur Ás-
geirsson fyrrverandi ráðuneytis-
stjóri í viðskiptaráðuneytinu.
Auk hans sitja í nefndinni þeir
Halldór Kristjánsson frá Kirkju-
bóli, Ágúst Böðvarsson land-
mælingamaður, Matthías
Bjamason alþingismaður og Jón
Páll Halldórsson framkvæmda-
stjóri á ísafirði. Störf nefndar-
manna em ólaunuð.
-grh
Afþjóðhátíð, fjallkonum og rígningu
Þjóðhátíðardagur á morgun. Að sjálfsögðu er
spáð skúmm á höfuðborgarsvæðinu og í huganum
birtast myndir af fyrri þjóðhátíðum: regnhlífaþyrp-
ing, rifnir bréffánar og forsætisráðherra með blautt
hár ofan í augum. Jæja, maður má ekki vera svona
neikvæður alltaf hreint. Kannski verður bara pínu-
lítil rigning og góð stemmning með Valgeiri, Tóta
trúð, götuleikhúsinu og öllum hinum fastagestun-
um í miðbænum á þjóðhátíðardaginn.
Verst að við skulum ekki hafa komið okkur
upp öðmm í þjóðhátíð, úr því að 17. júní er á
sunnudegi núna, rétt eins og við höfum útbúið ann-
an í jólum, páskum og hvítasunnu. Frídagar em
það sem heldur manni gangandi, ekki satt? Þetta er
búið að vera svo ágætt síðustu mánuði: Sumardag-
urinn fyrsti, uppstigningardagur, annar í hvíta-
sunnu og fleiri góðir dagar, flestir í miðri viku. Svo
er n.júní á sunnudegi og útiböllin bara til hálfeitt!
I svona pistli um þjóðhátíðina er auðvitað við
hæfi að tala svolítið um tilefnið og minnast á Jón
sem spanskgrænn horfir yfir múginn, hneykslast
svolítið á unglingunum sem draugfullir brjóta
flöskur í tilefni dagsins annað kvöld, en það er orð-
in gömul tugga og við látum það eiga sig núna.
Þjóðhátíðardagurinn er góður dagur og tilval-
inn fyrir vinnuþrælana til að skemmta sér svolítið
með bömunum. Ég hlakka a.m.k. til að fara ofan í
bæ með þriggja ára dömuna mína og kaupa fyrir
hana risasleikjó, blörrur og fina fána og útskýra
fyrir henni að fjallkonan heiti ekki íjallkona af því
að hún sé með litið hvítt fjall á höfðinu.
„Fjallkonan tyllir sér á stein og fær sér kók og
smók” söng Spilverkið eitt sinn í anda þcirra með-
vituðu tíma. Það er nú kannski alveg þess virði að
velta því svolítið fyrir sér hver þessi fjallkona er og
afhverju hún er alltaf dregin fram einu sinni á ári.
Hvaða kona er þetta eiginlega? Holdgervingur Is-
lands segja þeir. (Rósa Ingólfs er íjallkonan í
Kópavogi í ár!) Og hvað á lsland sosum sameigin-
legt með hnarreistri konu á þjóðbúningi? Ekki fer
mikið fyrir kvenfólkinu þegar að því kemur að
stjórna þessu sama landi. Og hvar er reisnin?
Aðrir halda því fram að fjallfrúin sé barasta
innflutt og hafi fyrst stigið á land þegar rómantísk
þjóðemishyggja tröllreið öllu hér. Svolítið skondið
að mitt í allri karlrembunni skuli móðurtáknið
alltaf skjóta upp kollinum. Ödipusarkomplexar
kannski? Hvur veit?
En áfram um hátíðahöldin sjálf. Undirrituð
eyddi gærdeginum í að safna saman upplýsingum
um þau um land allt og komst að þeirri niðurstöðu
að á fiestum stöðum er þetta allt saman ákaflega
hefðbundið. Nema kannski í Kópavoginum, þar
sem Rósa Ingólfs er fjallkona og nýi bæjarstjórinn
kemur að ofan til að setja hátíðina. Það er að segja
úr fallhlif. Mér finnst satt að segja svolítið óréttlátt
að Davíð skuli ekki taka upp á einhverju svona til
að skemmta okkur sem búum í höfuðborginni.
Hann sem annars er alltaf svo fyndinn og skemmti-
legur lætur framsóknarmann slá sig út á sjálfum
þjóðhátíðardeginum!
En allt um það. Þjóðhátíð er þjóðhátíð, hvort
sem það rignir eða ekki og fullt af fólki er búið að
leggja á sig ómælt erfiði til að gera hana eftir-
minnilega. Hver og einn ætti því að gera skyldu
sína og taka þátt í gleðinni. Eflir helgina getum við
svo velt okkur upp úr ólátunum í miðbænum og
blómunum sem verða (líklega) slitin upp á Austur-
velli.
Gleðilega þjóðhátíð! -vd.
ÞJ0ÐVILJINN
FYRIR50 ÁRUM
Hinn nýi Háskóli verður vígður
á morgun. Þessi veglega
bygging kostar með húsbún-
aði 1,6 milljón krónur. Hjálpið
til að koma Reykjavíkurböm-
unum úr bænum. Þjóðverjar
tilkynna sókn á öllum vígstöðv-
unum frá hafi til Meuse. Ver:
dun á valdi þýzka hersins. Öfi-
ug þýzk sókn gegn Maginotlín-
unni. Franska stjómin farin til
Bordeaux?
16. júní
laugardagur. 167. dagurárs-
ins. Sólarupprás í Reykjavík kl.
2.56 - sólariag kl. 24.01.
Viðburðir
Lúðvík Jósepsson fæddur árið
1914. Innrás Bandaríkjanna í
Guatemala árið 1954.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavik: Helgar- og kvöldvarsla lyfja-
búða vikuna 15. til 21. júni er i Apóteki
austurbæjar og Breiðholts Apóteki.
Fyrmefnda apótekiö er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga kl. 22 til
9 (til 10 á fri-dögum). Siðamefnda apó-
tekiö er opið á kvöldin kl. 18 til 22 virka
daga og á laugardögum kl. 9 til 22 sam-
hliöa hinu fyrmefnda.
LOGGAN
Reykjavík.................« 1 11 66
Kópavogur.................” 4 12 00
Seltjamames...............n 1 84 55
Hafnarfjörður............tt 5 11 66
Garðabær..................» 5 11 66
Akureyri..................n 2 32 22
Slökkvilið og sjúkrabílar
Reykjavík...................« 1 11 00
Kópavogur...................« 1 11 00
Seltjamames.................« 1 11 00
Hafnarfjörður..............*» 5 11 00
Garðabær..:..................® 511 00
Akureyri....................n 2 22 22
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamar-
nes og Kópavog er i Heilsuvemdarstöð
Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 8,
á laugardögum og helgidögum allan sól-
arhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðlegg-
ingar og timapantanir I tr 21230. Upplýs-
ingar um lækna- og lyfjaþjónustu em
gefnar i simsvara 18888. Borgarspital-
inn: Vakt virka daga frá kl. 8 til 17 ogfyrir
þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná
ekki til hans. Landspitalinn: Göngudeild-
in er opin frá kl. 20 til 21. Slysadeild
Borgarspitalans er opin allan sólarhring-
inn, tr 696600.
Hafnarfjörður Dagvakt. Heilsugæslan,
tr 53722. Næturvakt lækna,« 51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöt,
n 656066, upplýsingar um vaktlaekna,
® 51100.
Akureyri: Dagvaktfrá kl 8 til 17 á Lækna-
miðstöðinni, n 22311, hjá Akureyrar
Apóteki, ”■ 22445. Nætur- og helgidaga-
vakt læknis frá kl 17 til 8 985-23221
(farsími).
Keflavik: Dagvakt, upplýsingar I
14000.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna,
n11966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartíman Landspítalinn: Alla
daga kl. 15 til 16 og 19 til 20. Borgar-
spitalinn: Virka daga kl. 18:30 til 19:30,
um helgar kl. 15 til 18 og eftir samkomu-
lagi. Fæðingardeild Landspitalans: Alla
daga kl. 15 til 16, feðratími kl. 19:30 til
20:30. Fæðingarheimili Reykjavíkur
v/Eiríksgötu: Almennurtimi kl. 15-16 alla
daga, feðra- og systkinatími kl. 20-21 alla
daga. Öldrunariækningadeild Land-
spitalans, Hátúni 10B: Alla daga kl. 14 til
20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspltala: Virka daga kl. 16 til 19, um
helgarkl. 14 til 19:30. Heilsuvemdar-
stöðin við Barónsstfg: AJIa daga kl. 15 til
16 og 18:30 til 19:30. Landakotsspitali:
Alla daga kl. 15 til 16 og 18:30 til 19.
Bamadeild: Heimsóknir annarra en for-
eldra kl. 16 til 17 alla daga. St. Jósefs-
spítali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15 6116
og 19 til 19:30. Kleppsspitalinn: Alla
daga kl 15 til 16 og 18:30 til 19. Sjúkra-
hús Vestmannaeyja: Alla daga kl. 15 til
16 og 19 til 19:30. Sjúkrahús Akraness:
Alla daga kl. 15:30 til 16 og 19 til 19:30.
Sjúkrahúsið Húsavik: Alla daga kl. 15 til
16 og 19:30 til 20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKl: Neyðarathvarf fyrir
unglinga, Tjamargötu 35, n 622266, opið
allan sólarhringinn.
Samtökin 78: Svarað er i upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbia og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21
til 23. Simsvari á öðmm tímum.
n 91-28539.
Sálfræðistööin: Ráðgjöf i sálfræðilegum
efnum, w 687075.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags
laganema, erveitt [ síma 11012 milli kl.
19:30 og 22 á fimmtudagskvöldum.
MS-félagið, Álandi 13: Opið virka daga
frá kl. 8 til 17, » 688620.
„Opið hús" fyrir krabbameinssjúklinga
og aðstandendur þeina í Skógartilíð 8 á
fimmtudögum kl. 17 til 19.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja smitaða og sjúka og
aðstandendur þeirra í 91-2240 og þar
er svarað alla virka daga.
Upplýsingar um eyðni: n 622280, beint
samband við lækni/hjúkrunarfræöing á
miðvikudögum kl. 18 til 19, annars sím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf:« 21205,
húsaskjól og aðstoð við konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauögun.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpa, Vesturgötu
3: Opiö þriðjudaga kl. 20 til 22, fimmtu-
daga kl. 13:30 til 15:30 og kl. 20 til 22,
n 21500, simsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum:« 21500, simsvari.
Vinnuhópur um sifjaspellsmál:
n 21260 alla virka daga kl. 13 til 17.
Stigamot, miðstöð fýrir konur og böm
sem oröiö hafa fyrir kynferðislegu ofbeldi.
Ráðgjöf, fræðsla, upplýsingar, Vesturgötu
3, rt 91-626868 og 91-626878 allan
sólarhringinn.
Bilanavakt rafmagns- og hitaveitu:
n 27311. Rafmagnsveita: Bilanavakt i
« 686230.
Rafveita Hafnarfjarðar: Bilanavakt,
tr 652936.
GENGIÐ
15. júní 1990 Sala
Bandaríkjadollar..............60,51000
Steri ingspund...............103,40300
Kanadadollar..................51,73800
Dönsk króna....................9,38070
Norsk króna....................9,31350
Sænsk króna....................9,89050
Finnskt mark..................15,21690
Franskur franki...............10,60420
Belgiskur franki...............1,73440
Svissneskur ffanki............42,13200
Hollenskt gyflini.............31,68890
Vesturþýskt mark..............35,69390
Itölsk líra....................0,04862
Austurriskur sch...............5,07250
Portúgalskur escudo........... 0,40790
Spánskur peseti................0,57820
Japanskt jen...................0,39165
(rskt pund....................95,71200
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 styrkja4dund
6 drykkur 7 grátur 9 spil
12gröm 14 fiður 15 viö-
kvæm 16 samþykkir 19
eyðir12kjötbitar21
hundur
Lóðrétt: 2 hest 3 keyrir
4halli5sáld7duga8
duttlungar 10 hvassi 11
lofaði13hrygning17
geislabaugur18tró
Lausn á síðustu
krossgátu
Lárétt: 1 koll4skör6
akk7rist9alda12
karpa14tfa15urt16
flagg 19noti20einn21
iðinn
Lóðrétt:2oki3lata4
skap 5 öld 7 rotinn 8
Skafti 10 laugin 11 aft-
ann13róa17lið18
gen
Laugardagur 16. júní 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA11