Þjóðviljinn - 19.09.1990, Page 9

Þjóðviljinn - 19.09.1990, Page 9
FRETTIR Eigin fjaðrir og annarra Athugasemd frá Einari Birni Nýstofnað fyrirtæki ísteka hef- ur s.l. tvo mánuði haft fyrrum lyfjaverksmiðju þrotabús G. Ól- afsson hf. á leigu og er með skammtímasamning, aðeins um framhald þeirrar leigu. Engu að síður má skilja af grein á við- skiptasíðu Mbl. 13. sept. s.l. að nú loksins væri framkominn aðili sem nokkur afrek gæti unnið. Fylprófið umtalaða er ljóm- andi gott framlag til lífefnaiðnað- arins en það er bara ekki framlag ísteka né hugmynd, einu sinni ekki hugmynd Harðar Kristjáns- sonar eins. Fylprófið og tilurð þess er lokapunktur prófana og tilrauna sem hér á landi voru unnin í sam- vinnu þriggja aðila þ.e. Tilrauna- stöðvar Háskólans að Keldum, G. Ólafsson hf. og Lífefnafræði- stofu læknadeildar Háskóla fs- lands. Sannleikur málsins er sá að hið fyrsta próf í þessari lotu var alger- lega hannað og unnið af þeim Eggert Gunnarssyni og Ólafi Andréssyni sérfræðingum á Keldum og í raun eru allar aðrar tilraunir og endurbætur byggðar á þeim grunni. Reyndar má gjarna koma hér fram um leið þakklæti til þeirra Guðmundar Péturssonar læknis forstöðumanns Tilraunast. á Keldum og Páls A. Pálssonar þá- verandi yfirdýralæknis, sem alla tíð hafa sýnt þessum þróunar- verkefnum sérstaka velvild. Þetta próf var ómissandi þáttur í skipulagi og hagræðingu fram- kvæmda við söfnun til hormóna- vinnslu G. Ólafsson hf. og eins og að líkum lætur fundu eigendur hryssa fljótt hversu þýðingar- mikið prófið var vegna þeirra eigin rekstrar og því með árunum æ meiri ásókn, utan blóðsöfnun- arinnar, í prófið sem slíkt. Það hefur því um alllangan tíma verið á dagskrá að fá fram próf sem sameinaði öryggi hins fyrra og einföldun framkvæmdar og helst styttan biðtíma einnig (hluti einföldunar). Það var vissan um allnokkurn markað hérlendis og vonin um verulegan markað erlendis, sem var mestur hvati þess að sam- vinna áðurnefndra þriggja aðila hélt áfram einmitt um þetta sér- staka þróunarverkefni. Miðjumaður og samræmingar- aðili flestra sameiginlegra verk- efna þessa þrílita hóps hefur frá upphafi verið Bergþóra Jónsdótt- ir, framleiðslustjóri hjá G. Ólafs- son hf., og æði er langt síðan að við þrjú, undirritaður, Bergþóra og Hörður Kristjánsson fyrst ræddum um áframhaldandi þró- un fylprófs til þeirrar veru sem hið nýja próf nú býr yfir. Það verður að segj ast eins og er að mér er það mjög til efs að hefði Hörður Kristjánsson ekki verið starfsmaður G. Ólafsson hf. og tekið þátt í framþróun margvís- legra mála þar og í þróunarverk- efnum sem fyrirtækið átti með áðurnefndum innlendum og reyndar erlendum aðilum einnig, hefði honum nokkru sinni dottið fylpróf í hug hvað þá að vinna að þróun þess. Ég hefi aldrei dregið í efa hæfni eða kunnáttu Harðar Kristjáns- sonar og trúi því ennþá staðfast- lega að hann sé sá dugandi vís- indamaður sem við bundum í upphafi vonir við, en því sorg- legra er að sjá hann brjóta, ég vona í gáleysi, þá sjálfsögðu skyldu hvers alvöruvísindamanns að geta hverju sinni grundvallar verka sinna og frumkvöðla, en þó umfram allt samstarfs síns við aðra vísindamenn um framgang Markaðsnefnd landbúnaðar- ins hefur gefið út vandaðan bækling á fjórum tungumálum fyrir erlenda ferðamenn um ís- lenskar matvörur, þann fyrsta sinnar tegundar. Nefnist hann á ensku „The Shopper‘s Guide to Icelandic Food“. Bæklingurinn er litprentaður og í handhægu formi, ætlaður til að kynna erlendum ferða- mönnum mikið úrval innlendra matvara og auðvelda þeim innkaup. Fjallað er um uppruna íslenskra matvæla, gæðakröfur sem hér eru gerðar og fram- leiðslueftirlit. Texti bæklingsins er á 4 tung- umálum, ensku, þýsku, frönsku og sænsku, auk þess sem tegunda- og vöruheiti eru á ís- lensku. Honum verður dreift í 40 þús. eintökum fyrir næsta sumar og þróun þess verkefnis, sem um er rætt hvort sem um áfanga- skýrslu eða lokskýrslu er að ræða. Það voru eðlilegir hlutir og í samræmi við stöðu mála þá að hið fyrra próf var fullunnið að Keld- um. Það var á sama hátt eðlilegt að lokaþáttur nýja prófsins yrði hjá Herði Kristjánssyni og nú vona ég að hann geri sjálfum sér þann greiða að gera rétta grein fyrir sameiginlegum afrekum sín- um og sinna samstarfsaðila. íslenskum fyrirtækjum trúi ég að sé almennt óskað velfarnaðar hér á landi einnig ísteka nýju fyr- irtæki, en hingað til hefur fáum ef nokkrum fyrirtækjum dugað lánsfjaðrir til flugsins og allra síst séu þær tíndar af dauðum búki. ísteka ætti að reyna fyrst sínar eigin fjaðrir og sjá hvað þær duga. Reynslu annarra gætu þeir nýtt sé hún þeim tiltæk en skreyting með lausum lánsfjöðr- um er vita haldlaus. Reykjavík, 14. september 1990 Einar Birnir Ferðaþjónusta Útlendingar og íslenskur matur Markaðsnefnd gefur út kynningarbœkling í 40 þús. eintökum RANNSÓKNARÁÐ RÍKISINS LAUGAVEGI13 W1 REYKJAVlK BRÉFSlMI NR. 29814 SlMI 21320 Auglýsing um forverkefni Rannsóknaráð ríkisins hefur ákveðið að veita styrki til forverkefna er miði að því að kanna forsendur nýrra áhugaverðra rannsókna- & þró- unarverkefna. Um slíkastyrki getasóttfyrirtæki, stofnanir og einstaklingar. Við mat á umsóknum verður sérstaklega litið til röksemdafærslu um tæknilegt og hagrænt mikilvægi verkefnisins og hugmynda um leiðir til að koma niðurstöðum verkefnisins í framkvæmd, ef það skilar já- kvæðum árangri. Markmiðið með stuðningi við forverkefni ér að kortleggja betur tæknileg og þróunarleg vanda- mál og markaðsþörf, svo og forsendur sam- starfs, áður en lagt er í umfangsmikil r & þ verkefni, sem hugsanlega verða styrkt úr Rann- sóknasjóði. Gert er ráð fyrir að upphæð stuðnings við for- verkefni geti numið allt að 500.000,- krónum. Umsóknarfrestur er til 15. október nk. á m.a. erlendar ferðaskrifstofur, helstu ferðamiðstöðvar og bfla- leigur. Fjallað er um 8 helstu ma- tvörutegundir, kjöt, fisk, fugia og egg, ost og smjör, mjólkurvörur, brauð og álegg, þorramat og ann- an hefðbundinn mat. Fylgja helstu matvöruheiti á íslensku og þýðing þeirra á erlendu málun- um. (Fréttatilkynning) Leiðrétting Þess misskilnings gætti í blað- inu í gær þar sem sagt var frá til- lögu um að gerð yrðu göng undir Miklubraut við Rauðagerði fyrir fótgangandi, að Kristín Á. Ólafs- dóttir hefði flutt tillöguna. Það rétta er, að það voru fulltrúar allra minnihlutaflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur sem fluttu tillöguna. Það var hins veg- ar Kristín sem lagði fram fyrir- spurn í borgarráði fyrir rúmri viku um hvað liði þessu máli þar sem tillögunni hefði verið vísað frá borgarstjórn til borgarráðs í apríl sl. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 þlÓÐVIUINN Þjóðviljinn óskar eftir bílstjóra í afleysinga- útburð. Verður að hafa bíl. Vinsamlegast hafið samband við afgreiðslu blaðsins. S. 681333. ALÞYÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið Norðurlandi vestra Aðalfundur kjördæmisráðs Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Norðuriandi vestra verður haldinn ( Suðurgötu 10 Siglufirði, laugardaginn 22. september og hefst klukkan 13. Dagskrá: 1. Aðalfunbdarstörf 2. Undirbúningur kosninga og framboðsmál. 3. Flokksstarfið. 4. Stjómmálaástandið. Stjómin. Alþýðubandalagið Norðurlandskjördæmi eystra Alþýðubandalagið Raufarhöfn Fundur í Alþýðubandalagsfélagi Raufarhafnar fimmtudagskvöld 20. sept. kl. 20.30. Á dagskrá: Kosning fulltrúa á kjördæmisþing og umræður um þjóðmál og stjórnarsamstarfið. Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðar- og samgönguráðherra mætir á fundinn. Alþýðubandalagið Húsavík Fundur í Alþýðubandalagsfélaginu Húsavík laugardaginn 22. sept. kl. 10.00 árdegis í Snælandi. Á dagskrá: Kosning fulltrúa á kjördæmisþing og umræður um þjóðmál og stjórnarsamstarfið. Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðar- og samgönguráðherra mætir á fundinn. Alþýðubandalagið Akureyri Fundur í Alþýðubandalaginu Akureyri laugardaginn 22. sept. kl. 14.00 í Lárusarhúsi. Á dagskrá: Kosning fulltrúa á kjördæmisþing og umræður um þjóðmál og stjórnarsamstarfið. Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðar- og samgönguráðherra mætir á fundinn. Alþýðubandalagið Ólafsfirði Fundur í Alþýðubandalaginu Ólafsfirði sunnudagskvöldið 23. september kl. 21.00 í Tjarnarborg. Á dagskrá: Kosning fulltrúa á kjördæmisþing og umræður um þjóðmál og stjórnarsamstarfið. Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðar- og samgönguráðherra mætir á fundinn. Ármann Sigurbjörg Stefanía Arni Þór Alþýðubandalagið í Reykjavík Starfshættir og skipulag ABR Félagsfundur ABR verður haldinn í kvöld kl. 20.30 miðvikudag 19. september, að Hverfisgötu 105. Fundarefni: 1. Starfshættir og skipulag Alþýðubandalagsins í Reykjavík. Frummælendur: Ármann Ægir Magnússon, Sigurbjörg Gísladóttir og Stefanía Traustadóttir. — 2. Önnur mál. Fundarstjóri: Árni Þór Sigurðsson. Stjórn ABR A.B.R. á Borginni Auðlindir íslands Verömætasköpun meö bættum vinnubrögðum í sjávarútvegi Laugardaginn 22. september nk. kl. 10 verður Skúli Alexandersson alþingismaður frummælandi á fundi á Hótel Borg. skúli Efni fundarins er spurningin um hvort hægt sé að auka ha- gvöxt með bættum vinnubrögðum í sjávarútvegi. Félagar fjölmennið á fundinn og takið þátt í umræðum. Stjórn ABR

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.