Þjóðviljinn - 25.10.1990, Page 3
FRETTIR
Nvtt álver
Jðn bað einn
um undirskrift
Eg hef heimildir fyrir því að
viðsemjendur okkar í álmál-
inu höfðu engan áhuga á að
skrifa undir eitt eða neitt eins
og á stóð,“ sagði Ragnar Arn-
aids á félagsfundi Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík í
fyrrakvöld.
Ragnar sagði í samtali við
Þjóðviljann að það hefði ekki ver-
ið einleikið hve mikið kapp Jón
Sigurðsson iðnaðarráðherra lagði
á að fá undirritaða einhveija yfir-
lýsingu í álmálinu í september.
Enginn hefði beðið um undirrit-
un; ekki ríkisstjómin, ekki Lands-
virkjun, ekki samstarfsflokkamir
í ríkisstjóminni né heldur að-
standendur Atlantsáls. Þá segir
Ragnar Amalds að ákafí Jóns í
undirritun hafi verið af pólitísk-
um toga. Hann hafi þurft á henni
að halda vegna framboðs á
Reykjanesi, eins og nú sé að
koma á daginn. Þessi ótímabæra
undirskriftaleiksýning hafi ber-
sýnilega valdið úlfuð meðal
stuðningsmanna álversins og sett
málið í sjálfheldu sem gæti staðið
í nokkra mánuði.
Ragnar sagðist telja að ný-
skipuð viðræðunefnd Landsvirkj-
unar myndi í fyrsta lagi skila af
sér eftir einhveijar vikur. í kjölfar
þess yrði hugsanlega lagt fram
heimildarfrumvarp öðm hvom
megin við áramótin, þingið þyrfti
góðan tíma til að fara yfir málið
en slíta ætti þinginu í mars og
kjósa í maí á næsta ári. Því væri
með öllu óljóst hvort álmálið yrði
afgreitt ftá alþingi fyrir kosning-
ar.
í gær bámst svo fréttir sem
renna stoðum undir orð Ragnars
og birti Ingólfur Margeirsson, rit-
stjóri Alþýðublaðsins, m.a. þetta
eftir Robert Miller, varaforseta
Alumax, í Alþýðublaðinu: „Við
viljum að handtak sé handtak.
Við metum handsal meira en
endalausar undirskriftir. Það er
því slæmt að vita ekki hvort þeir
menn sem við höfum samið við,
hafi umboð eða ekki.“
hágé.
Þakvfir höfuðið
Eindreginn stuðn-
ingur við
Samtökin „Þak yfir höfuðið“
lýsa yfir eindregnum stuðn-
ingi við baráttu Jóhönnu Sig-
urðardóttur félagsmálaráð-
herra fyrir því að félagslega
húsnæðiskerfinu verði tryggt
nægilegt fjármagn svo hægt
verði að hefja framkvæmdir við
amk. jafn margar íbúðir á ár-
inu 1991 og í ár.
Innan samtakanna em Ör-
yrkjabandalag Islands, Sjálfs-
björg - landssamband fatlaðra,
Landssamtökin Þroskahjálp,
Samtök aldraðra, Stúdentaráð
Háskóla Islands, Bandalag ís-
lenskra sérskólanema, Leigjenda-
samtökin og Búseti - landssam-
band. I ályktun samtakanna segir
að fjármagn þurfi að tryggja frá
ríkisvaldinu og lífeyrissjóðunum
og það fjármagn megi ekki taka
frá öðmm jöfnunarsjóðum. Það sé
í hróplegri mótsögn ef nú eigi
Jóhönnu
ekki að standa við fyrirheit um
auknar félagslegar íbúðabygging-
ar, þegar hin nýsamþykktu lög um
félaglegar íbúðir leggi mjög
auknar skyldur á sveitarfélög og
félagasamtök að leysa húsnæðis-
vanda sístækkandi hóps.
Húsbréfakerfið leysi ekki
vanda stórra hópa sem nú séu í
mestri þörf fyrir öraggt húsnæði
og almenna húsnæðislánakerfið,
sem brátt heyri sögunni til, hafi
ekki gert það heldur.
Samtökin Þak yfir höfuðið
hafa haldið uppi öflugri baráttu
fyrir úrbótum í húsnæðismálum
forgangshópa og telja að nú eigi
enn frekar við tillögur þeirra frá í
apríl 1989 um 3-ára áætlun um
tiyggingu fjármagns til að ljúka
megi byggingu á 900-1000 íbúð-
um á ári í félagslega húsnæðis-
kerfinu og skapa víðtæka sam-
stöðu um það átak. ÓHT
A Iþýduflokkkurinn
Osætti formannanna
Jón Baidvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra og for-
maður Aiþýðuflokksins, greip
tii þess óvenjulega ráðs að fá
Flugmáiastjórn til að fljúga
með sig til Genfar strax að
loknum eldhúsdagsumræðum á
Nevðarathvarf
Er í fjárlögum
Svavar Gestsson menntamáia-
ráðherra segir að í tiliögum
menntamálaráðuneytisins í fjár-
lagafrumvarpi næsta árs sé gert
ráð fyrir fjármagni til reksturs
neyðarathvarfs fyrir ungiinga.
í forsíðufrétt Þjóðviljans í gær
segir Arthúr Morthens sérkennslu-
fulltrúi frá því, að slíkt athvarf hafi
verið rekið sl. vetur, fyrir böm sem
af einhveijum ástæðum hefðu dott-
ið út úr gmnnskóla. Svavar sagði
þetta gott mál og hann vildi að at-
hvarf sem þetta yrði starfrækt
áfram og fyrir því yrði barist innan
menntamálaráðuneytisins. -hmp
Alþingi á þriðjudagskvöldið.
Með því móti gat hann verið
viðstaddur síðari dag fundar
utanríkisráðherra Efta.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans greip Jón Baldvin til þessa
ráðs vegna þess að hann vildi ekki
að varaformaður flokksins og fé-
lagsmálaráðherra, Jóhanna Sig-
urðardóttir, talaði við eldhúsdags-
umræðumar. Jóhanna reiddist
þessu og mætti ekki við umræð-
umar, en þar töluðu ásamt for-
manninum Eiður Guðnason og
Ami Gunnarsson.
Þjóðviljinn bar þetta undir Jó-
hönnu og hún vildi ekki kannast
við að ósætti hefði orðið á milli
sín og formannsins. Hinsvegar
sagði hún að umræða um hver
ætti að tala við eldhúsdagsum-
ræðumar hefðu átt sér stað í þing-
flokknum.
„Það er alls ekkert algilt að
það séu alltaf ráðherrar sem taki
þátt í þessum umræðum,“ sagði
Jóhanna.
-gpm
Loftmengun (Austur-Evrópu er gífurleg og Norðurlönd fá sinn skerf af henni. Eftir helgi munu umhverfisráð-
herrar Norðurlanda og ýmissa ríkja I Austur-Evrópu ræða sameiginlegar leiðir til lausnar á þessum vanda.
Norðurlönd í
umhverfisvíking
Umhverfisráðherrar Norð-
urlanda og landa Austur-
Evrópu hittast á ráðstefnu í
Helsinki eftir helgi til þess að
ræða möguleika á samvinnu
þjóðanna við að draga úr sam-
eiginlegu vandamáli þjóðanna:
mengun.
Því var lengi vel haldið fram
af kommúnistum í Austur-Evr-
ópu að mengun væri vandamál
auðvaldsríkjanna. Staðreyndin er
sú að Austur-Evrópa á við gífur-
leg umhverfisvandamál að stríða.
En mengunin i Austur-Evr-
ópu er ekki einkavandi þjóða þar,
Norðurlönd verða einnig mjög
fyrir barðinu á henni. Loftmeng-
un virðir nefhilega engin landa-
mæri. Talið er að Norðurlönd geti
náð meiri árangri i baráttunni
gegn loftmengun með því að að-
stoða við mengunarvamir fyrir
austan en að leggja fé í mengun-
arvamir heima.
Mengunarvarna-
búnaður
Júlíus Sólnes umhverfismála-
ráðherra segir tilgangslítið að
leggja fé í að laga skorstein og
skorstein í Austur-Evrópu, eins
og hann orðar það. Hann telur
mikilvægast að aðstoða þessar
þjóðir við að koma upp fram-
leiðslu á búnaði til mengunar-
vama.
Pólland, Eystrasaltslöndin og
það sem var Austur-Þýskaland
hafa jafhframt talsvert á samvisk-
unni af þeirri mengun sem er að
drepa lífið í Eystrasalti og Norð-
ursjó.
Hvað Norðursjó snertir má
rekja talsverðan hluta mengunar
til iðnaðarhéraða í austurhluta
Þýskalands.
Mengun i Eystrasalti er ekki
síðra vandamál. Þýskaland, Pól-
land, Lettland, Litháen, Eistland
og Rússland liggja öll að Eystra-
salti og losa talsvert af mengandi
efnum í sjó.
Þrír miljarðar
Á þingi Norðurlandaráðs sem
haldið var í Reykjavík í lok febrú-
ar vom samskiptin við Austur-
Evrópu í brennidepli, ekki sist á
umhverfissviðinu. Þá var sam-
þykkt að stofna sérstakt íjár-
mögnunarfyrirtæki sem á að ýta
undir samvinnu norrænna og
austur- evrópskra fyrirtækja um
í BRENNIDEPLI
Súrt regn á Norður-
löndum má að drjúg-
um hluta rekja til iðn-
aðar og orkufram-
leiðslu í Austur-
Evrópu.
Norðurlönd hafa öll
nema Island heitið að
draga verulega úr
losun efna sem valda
sýringu regns og
jarðvegs, en það má
sín lítils þegar svo
stór hluti mengunar-
innar berst með vind-
um frá öðrum löndum
mengunarvamir og hreinni tækni.
Sjóðurinn verður undir stjóm
Norræna fjárfestingarbankans og
fær um þijá miljarða króna til ráð-
stöfunar á næstu sex ámm. Fram-
lag Islands til þessa nemur einum
hundraðshluta sem gerir um þijá-
tíu miljónir, fimm miljónir á ári
næstu sex árin.
Júlíus Sólnes hefur lagt fram
frumvarp um þetta efni á Alþingi
til staðfestingar.
Fyrsti stjómarfundur fyrir-
tækisins verður haldinn um helg-
ina og i kjölfar þess hitta um-
hverfisráðherrar Norðurlanda
kollega sína í Póllandi, Sovétríkj-
unum, Tékkóslóvakíu og Ung-
veijalandi. Norðurlöndin leggja
mikla áherslu á samvinnu við
Eystrasaltslöndin á þessu sviði
sem öðmm.
Úandlika
Það sem Norðurlönd hafa
einkum áhyggjur af er loftmeng-
un sem berst fra Austur-Evrópu
til Norðurlanda.
1 þessu sambandi má nefna til
dæmis að nágrannalönd sjá Norð-
mönnum fyrir 85-90 af hundraði
þess súra regns sem þar fellur.
Vemlegur hluti þess kemur frá
því sem var Austur-Þýskaland, en
mikil mengun berst einnig frá
Vestur-Þýskalandi og Bretlandi
til Noregs.
í athugasemdum við frum-
varp Júlíusar segir að sá hluti
brennisteinssambanda í úrkomu á
Norðurlöndum sem kemur frá
Austur- Evrópu sé á bilinu fimm
til fjömtíu af hundraði. Minnst á
Islandi, en mest i Finnlandi. Hlut-
fallið hvað köfnunarefnissam-
bönd snertir er talið enn hærra.
Súrt regn á Norðurlöndum má því
að drjúgum hluta rekja til iðnaðar
og orkuframleiðslu í Austur-Evr-
ópu.
Norðurlönd hafa öll nema Is-
land heitið að draga vemlega úr
losun efna sem valda sýringu
regns og jarðvegs, en það má sín
lítils þegar svo stór hluti mengun-
arinnar berst með vindum frá öðr-
um löndum.
Jarðhiti
Og ef hugsað er í stærra sam-
hengi má nefna, að um fimmtung-
ur þess koldíoxíðs sem losað er út
í andrúmsloftið kemur frá iðnaði
og orkuframleiðslu í Sovétríkjun-
um. Fjármögnunarfélaginu er ætl-
að að leggja fram hlutafé, ábyrgð-
ir eða lán til samstarfsverkefha
sem komið verður á fót með fyrir-
tækjum á Norðurlöndum og í
Austur- Evrópu.
Með útflutningi á fjármagni,
þekkingu og tækni telja Norður-
lönd sig geta unnið gegn mengun
heima fyrir og í viðkomandi lönd-
um, auk þess sem fjármagnið
kemur fyrirtækjum í þessum
löndum vel.
I athugasemdum með frum-
varpi umhverfismálaráðherra er
tekið fram að til að mynda hita-
veituframkvæmdir munu falla
undir verksvið fjármögnunarfé-
lagsins. Þannig geta íslensk fyrir-
tæki sem tengjast virkjun jarðhita
notið góðs af þessu fjármagni,
sem að mestu leyti kemur frá
frændum okkar.
-gg
ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 3