Þjóðviljinn - 25.10.1990, Qupperneq 7
Það hafa helst verið félagar I Bandalagi háskólamenntaðra rlkisstarfsmanna sem hafa setið á þingpöllum það sem af er þingi. Hérfylgjast nokkr-
ir með fyrstu umræðu um bráðbirgðalögin frá því 4. ágúst s.l. þriðjudag. Það virðist ekki að umræðan hafi alltaf verið sérstaklega lífleg, en BHMR-
félagamir tfndust fljótlega af pöllunum, enda töluðu þingmennimir fram á kvöld. Þeir f BHMR hafa sennilega snúið aftur til vinnu sinnar. Mynd: Jim
Smart.
Evstrasaltsríkin
Blaðastyrkir
Fjármálaráðherra svarar Geir H.
Haarde, Sjfl., hvemig íjárveitingum
til blaðanna sé ráðstafað.
I 4. gr. fjárlaga er ekki kveðið á
um fjárveitingu til blaðanna, heldur
er viðfangsefnið styrkur til blaðaút-
gáfu sem í íjárlögum 1990 eru tæp-
ar 62 miljónir kr. sem skiptast svo
milli þingflokkanna:
Sjálfstæðisflokkur: 27 miljónir
Framsóknarflokkur: 17 milj
Alþýðuflokkur: 14 miljónir
Alþýðubandalag: 12miljónir
Kvennalisti: lOmiljónir
Samtök um jafnrétti og félags-
hyggju: 1 miljón.
Allar tölur hér að ofan em rúnn-
aðar af. Þingflokkunum er í sjálfs-
vald sett hvemig þeir veija þessu fé.
Áskriftum rikisins af dagblöð-
um var íjölgað úr 250 í 750 eintök.
Þar af fara 250 eintök til helstu
stofnana ríkisins og 750 til skóla,
sjúkrahúsa og annarra þjónustu-
stofnana rikisins. Öll 750 eintökin
sem heimild er fyrir era í daglegri
dreifingu.
Siðan era í svarinu taldir upp
þeir aðilar er fá blöðin, og má nefna
að Háskóli íslands fær 10 blöð, rik-
isspítalar, Landsspítalalóð, fá 65
eintök, Kleppsspítali 10 eintök og
fleiri aðilar fá nokkur eintök og tug-
ir stofnana fá eitt eintak -gpm
Eigum ekki vitandi vits að stofna til illinda
Páll Pétursson er nýkominn frá Sovétríkjunum og er svartsýnn á ástandið. Hann telur fullveldisviðurkenningu nú ekki
réttu leiðina til að hjálpa Eystrasaltsríkjunum
Páll Pétursson. Mynd: Jim Smart.
Eg held að við eigum að hafa
samráð við önnur ríki ef við
ætlum að láta taka okkur alvar-
lega,“ sagði Páll Pétursson,
þingflokksformaður Fram-
sóknarflokksins, um þings-
ályktunartillögu Þorsteins Páls-
sonar og tíu annarra Sjálfstæð-
ismanna um viðurkenningu á
fullveldi Eistlands, Lettlands og
Litháens.
„Það sem við geram verður
að vera til raunveralegrar hjálp-
ar,“ sagði Páll, en hann er svart-
sýnn á ástandið í þessum löndum,
sem og Sovétríkjunum. Hann var
þama nýlega á ferð sem formaður
sendinefndar á vegum Norður-
landaráðs.
Þarf að koma á
lýðræði
„Eystrasaltslöndin þurfa að
koma sér upp lýðræði, það er ekki
bara það að losa þá undan rúss-
um. Island viðurkenndi fullveldi
þeirra á sínum tíma og hefur
aldrei tekið þá fullyrðingu til
baka, þannig að það er óþörf leið.
Það er sjálfsagt að reyna að leggja
þeim lið á alþjóðavettvangi eins-
og við getum eflir eðlilegum dip-
lómatískum leiðum sem ekki
leiða beint til ófamaðar. Við eig-
um ekki vitandi vits að stofna til
illinda þama,“ sagði Páll um
þingsályktunartillöguna.
„Við vildum auka samskiptin
við Eystrasaltsríkin og við Sovét-
ríkin,“ sagði Páll um tilgang ferð-
arinnar. En í vor fékk sendinefnd-
in ekki að fara til Litháen og því
aflýsti Páll ferðinni en fékk síðar
heimild til að fara hvert sem væri.
„Það sem við voram að gera var
að koma á auknum samskiptum
milli þingmanna i þessum lönd-
um og að ræða sameiginleg hags-
munamál einsog umhverfismál,“
sagði Páll, en hann telur afar þýð-
ingarmikið af eiga gott samstarf
við löndin austan Eystrasalts því
hafið sé að verða mengaðasta inn-
haf á jörðinni og að mengunin
komi að mestu leyti austanfrá.
Illatalaðum
Gorbatsjov
„Við ræddum lika menningar-
mál og efnahagsmál og öryggis-
og vamarmál og þótt Norður-
landaráð fjalli ekki um þau mál þá
gátum við ekki verið að stoppa þá
því þeir vildu tala um þessi mál,“
sagði Páll, en sendinefiidin ræddi
við marga menn í Moskvu og þeir
menn í æðsta ráðinu sem vora
hollir Gorbatsjov vildu koma á
samningi milli ríkjanna um sam-
vera áfram i Sovétríkjunum.
„Þetta vilja ekki öll hin ríkin.
Hasbalatof, sem gengur Jeltsín
næst og er fulltrúi rússneska rikis-
ins, vill slíta tengslin og hann
skóf ekkert utanaf hlutunum og
taldi að Rússland hefði ekki ann-
að en skaða af þessari samvera.
Hasbalatoff sagði að samveran
hefði eyðilagt fyrir Rússlandi
efnahaginn og umhverflð, en síð-
an kæmi ekkert til baka nema
kjaftæði,“ sagði Páll.
Hann sagði að það væri áber-
andi annað álit á Gorbatsjov inn-
an Sovétrikjanna en á Vesturlönd-
um. „Maðurinn á götunni bölvar
Gorbatsjov. Innanlandspólitíkin
hefur ekki gengið upp ennþá,“
sagði Páll, en hann taldi utanríkis-
pólitík Gorbatsjovs hafa gengið
upp, a.m.k. á Vesturlöndum. En
lofaðar umbætur hafa látið á sér
standa innanlands.
Háðir
Moskvu
Sendinefndin fór frá Moskvu
til Eystrasaltsríkjanna og ræddi
við marga ráðamenn þar. „Þeir
vilja alls ekki samþykkja þann
samning sem Gorbatsjov hefur
undirbúið og telja að með því
festist þeir innan Sovétríkjanna,“
sagði Páll, en hann telur að það
verði ekkert auðvelt að slíta
tengslin við Sovétríkin þvi þeir
séu háðir Moskvu sem hafi þá að
mörgu leyti í hendi sér. „Þama er
við gífurlegan vanda að striða á
mörgum sviðum. Efhahagskerfið
er í rúst og allt komið í steik.“
Páll sagði að þessar þijár
þjóðir sem vildu standa einar
teldu sig standa betur einar. Einn-
ig hefðu þær aðra menningu sem
væri evrópskari en annarssstaðar í
Sovétríkjunum. Hann skildi þó að
Gorbatsjov vildi halda í þessi
lönd þvi þau
væra matar-
forðabúr fyrir
önnur ríki.
Betri
búskapur
„Þama er
betri búskapur
en víðast ann-
arsstaðar en
vöraskortur er
samt afar mik-
ill,“ sagði Páll.
Hann sagð-
ist hafa frétt að
síldin sem við
í slendingar
sendum síðast
hefði orðið
ónýt. Næg matvæli era ffamleidd
í Sovétríkjunum en maturinn
kemst ekki á almennan markað
því að svartamarkaðsbraskarar
liggja á vörunni og hún skemmist
og kerfið ræður ekki við dreifing-
una. Eins telja sumir að um
skemmdarverk geti verið að
ræða, og að tilgangurinn sé að
grafa undan Gorbatsjov, sagði
Páll.
samstarfl ýmisskonar við Norður-
lönd; í umhverfismálum, land-
búnaðarmálum, menntunarmál-
um. Þau vilja aukin tengsl við
vestrænar fféttastofur og vina-
bæjasambönd, svo eitthvað sé
nefnt sem Páll minntist á.
Eistland er hið eina þessara
þriggja landa sem á eitthvað vera-
lega sameiginlegt með Norður-
löndum, og þá sérstaklega Finn-
landi. Litháen og Lettland era
frekar mið-evrópsk lönd, fannst
Páli. Hann sagðist ekki geta kom-
ið auga á ásættanlega lausn i sam-
bandi við sjálfstæði þessara þjóða
og óttaðist að ef þau fengju full-
veldi myndu Sovetríkin liðast í
sundur með hugsanlega hræðileg-
um afleiðingum. Hann benti á að
slíti löndin sambandið við Sovét-
ríkin yrði Gorbatsjov líklega
steypt og herinn gæti tekið völd-
in. Því væri ástæðulaust af Islend-
ingum að stofna til illinda.
Fimmtudagur 25. október 1990 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Eystrasaltsrikin óska eftir
-gpm
Jarðhitaréttindi
Oft flutt en aldrei náð fram
Hjörleifur Guttormsson: Eitt af stóru málunum sem vantar löggjöf um
Frumvarp sem kveður á um
að íslenska ríkið eigi allan
rétt til jarðhita sem liggur dýpra
en 100 metra undir yfirborði
landareigna sem eru háðar
einkaeignarétti, sem og annara,
kom til umræðu i neðri deild s.l.
þriðjudag.
„Þetta er eitt af stóra prinsipp-
málunum sem vantar almenna lög-
gjöf um,“ sagði fyrsti flutnings-
maður ffumvarpsins Hjörleifur
Guttormsson, Abl., í samtali við
Þjóðviljann. Hjörleifur taldi óeðli-
legt að auðlindir landsins væra
ekki almenningseign og benti á að
jarðhiti væri í eigu almennings í
löndum einsog Bandaríkjunum og
Nýja-Sjálandi. „Það ber slæmt
vitni um Alþingi að ekki skuli hafa
fengist afstaða í þessu máli,“ sagði
Hjörleifur, en það hafa verið gerð-
ar ýmsar tilraunir til að setja heild-
arlög um jarðhita síðan 1937.
Magnús Kjartansson, iðnaðarráð-
herra í ríkisstjóm Olafs Jóhannes-
sonar, beitti sér fyrir flutningi
framvarps 1972-74 og seinna sem
þingmaður 1974-76, en málið
hlaut aldrei fullnaðarafgreiðslu.
Þetta ftumvarp gengur lengra
og tekur til alls jarðhita hvort sem
er á lághita- eða háhitasvæðum.
Ríkið fengi þó ekki, verði ffum-
varpið að lögum, allan rétt til jarð-
hita, því þeir sem þegar hafa borað
eflir jarðhita og byrjað hagnýtingu
hans fá rétt til að nýta hann án sér-
staks leyfis og án greiðslu og fá
forgangsrétt til ffekari borana og
hagnýtingar ef um sama fyrirtæki
er að ræða.
Hliðstætt framvarp var lagt
fram á þingi 1983 um það leyti
sem ríkisstjóm Gunnars Thorodd-
sens var að fara ffá, en þá var
Hjörleifur iðnaðarráðherra. Málið
varð ekki útrætt, ffekar en seinna
þegar þingmenn Alþýðubanda-
lagsins fluttu svipað framvarp.
Hjörleifur sagði að það hefði
verið fjallað um málið áður í iðn-
aðamefhd og hefði verið nokkur
stuðningur við málið. Núverandi
iðnaðarráðherra Jón Sigurðsson
hefði lýst stuðningi sínum, en það
hefði aldrei reynt á það. Ráðherra
hefur boðað frumvarp um eigna-
rétt á auðlindum.
En Hjörleifur taldi nauðsyn-
legt að ganga ffá málinu til að
eyða óvissu um það, og svo að
þjóðfélagið þyrfti ekki að greiða
jarðhitann dýra verði. Meðflutn-
ingsmenn era Guðrún Helgadóttir
og Ragnar Amalds, bæði þing-
menn Alþýðubandalagsins. Mál-
inu var vísað til 2. umræðu og
nefhdar í gær. gpm