Þjóðviljinn - 25.10.1990, Qupperneq 12
þlÓÐVILIINN
Fimmtudag ur 25. október 1990 201. tölublað 55. árgangur
EYJAR
aUadaga
ARNARFLUG
INNANLANDS hf.
Reykjavíkurflugvelli - Sími 29577
■ SPURNINGIN ■
Hvaða hug berðu til Green-
peace-samtakanna?
Smári Guðmundsson
nemi:
Ég get ekki borið hlýjan hug til
þeirra vegna afstöðu þeirra til
hvalamálsins.
Þorsteinn Kristbjörnsson
nemi:
Hann er bæði jákvæður og nei-
kvæður. Greenpeace hefur gert
bæði góða og slæma hluti.
Karl Vernharðsson
myndlistarmaður:
Mjög jákvæðan vegna baráttu
þeirra fyrir náttúruvernd og að
hluta til vegna hvalsins. Þetta er
hið besta mál, eins og sagt er.
Rfllif Greenpeace, flaggskip
IVIV Greenpeace-samtak-
anna á Atlantshafi lagði úr höfn
í morgun. Skipið hafði hér
nokkurra daga viðkomu eftir
ævintýralega ferð til Novaja
Zemlja í Barentshafí, en þar
voru samtökin að mótmæla fyr-
irhuguðum kjarnorkuvopnatil-
raunum Sovétmanna þar.
Það er greinilegt að félags-
menn samtakanna geta átt von á
að lenda í ýmsum hremmingum,
því fjórir þeirra voru handteknir
eftir að hafa komist í land. Þá var
þeim hótað skothríð af Sovét-
mönnum sem vildu þá út úr sov-
éskri landhelgi.
Meðlimir áhafnar MV Green-
peace eru 17 talsins og koma frá 9
þjóðlöndum, m.a. frá Bandaríkj-
unum, Hollandi, Skotlandi, Dan-
mörku, Þýskalandi og Astralíu.
Ekki fá allir greidd laun fyrir störf
sín á skipinu, því menn skrá sig
sem sjálfboðaliða i mörgum til-
fellum. Lykilmennimir um borð,
til dæmis læknir og skipstjóri, fá
að sjálfsögðu laun.
Ulrich Jurgens er skipstjóri
MV Greenpeace. Hann er ffá Bre-
men í Þýskalandi og hefur verið í
samtökunum frá 1987. Ulrich
segir að sumir meðlimir séu ein-
ungis í nokkra mánuði á skipinu,
en hverfi svo aftur til sinna starfa.
Hvernig er lífið um borð?
- Það er ekki ólíkt lífi um
sælir þar. Ef við tölum um kjam-
orkuvopnafrí höf í Bandaríkjun-
um er okkur ekki vel tekið, en ef
við tölum um stöðvun á hvalveið-
um þar erum við vinsælir. Og
þegar við tölum um stöðvun á
hvalveiðum á Islandi rísa allir
upp á móti okkur, en þegar við
tölum um kjamorkuvopnalaus
höf hér er viðmótið allt annað.
Hvers vegna gekkst þú i
Greenpeace?
- Mér fannst það skynsamleg
leið til að nýta hæfileika mína.
Þóttfáir gestir kcemu um borð
í MV Greenpeace, kom Július
Sólnes umhverfisráðherra í heim-
sókn. Var þér boðið eða komstu
af sjálfsdáðum?
„Það var búið að ræða um að
ég kæmi á morgun (í dag), en svo
fékk ég upplýsingar um að skipið
færi í nótt, svo þetta varð að ger-
ast strax. Það stóð vel á hjá mér,
þannig að ég ákvað að koma
strax. Eg hef nú ekki hafl mikinn
tíma til að kynna mér mál þeirra,
en við höfum eitt sameiginlegt
áhugamál. Það er að reyna að
stuðla að því að koma í veg fyrir
að geislavirkum úrgangi sé komið
fyrir í geymslum undir sjávar-
botni. Við munum eiga ágætt
samstarf við Greenpeace við að
hjálpast að við að stuðla að því að
slíkt verði bannað,“ sagði Júlíus.
ns.
borð í venjulegu skipi. En það
sem er kannski ólíkt, er að hjá
okkur er allur hópurinn með í að
taka ákvarðanir. Við reynum að
láta alla taka þátt í því sem gert er
og bera ábyrgð.
Þar sem baráttumál og -að-
ferðir eru ekki alltaf mjög vinsœl-
ar, geta félagar samtakanna lent
í óþægilegum og jafnvel hættu-
legum aðstæðum.
Verður þú aldrei
hræddur?
- Nei, eigin-
lega ekki. Að-
gerðir okkar eru
ekki jafn hættu-
legar og þær virð-
ast. Við reynum
að taka eins litla
áhættu og við get-
um í aðgerðum,
og áður en þær
hefjast höfúm við
æft þær svo fólk
geti tekið því sem að höndum ber.
Þegar þið voruð í Novaja
Zemlja hótaði skipstjóri sovéska
skipsins að skjóta á ykkur. Trúð-
irðu að hann myndi gera það?
- Á tímabili hélt ég það já. En
síðan varð þróunin sú að ég vissi
að það yrði ekki gert. Þeir skjóta
alltaf viðvörunarskoti og gerðu
það þama. Eftir það vissi ég að
þeir myndu ekki gera meira. En
þeir hótuðu okkur aftur, og við
fórum.
Veistu hvert viðhorf íslend-
inga er til Greenpeace?
— Já, ég veit það. Til dæmis í
dag (í gær) er skipið opið almenn-
ingi og það hafa bara 5 manns
komið. Það hafa margir keyrt
framhjá skipinu og öskrað á okk-
ur „fúck off‘. Við eigum mikið
verk fyrir höndum í að kynna
samtökin fyrir Islendingum. Við
þurfum að sýna að við erum ekki
bara að beijast gegn hvaladrápi
eins og margir Islendingar virðast
halda. Það er bara 5% af allri okk-
ar baráttu. Tilgangur þessarar
. heimsóknar er að kynna baráttu
Greenpeace fyrir kjamorku-
vopnafríum höfúm og banni gegn
kjamorkuknúnum skipum. Álit
fólks á okkur fer eftir því um
hvað við erum að tala í hveiju
landi. Ef við tölum um efnaiðnað
í Þýskalandi erum við ekki vin-
Ulrich Jurgens skipstjóri MV Greenpeace sýndi Júlíusi Sólnes umhverfisráðherra skipið í gær. Þótt skipið væri opið almenningi var ekki mjög gest-
kvæmt hjá þeim Greenpeacemönnum, og þegar Þjóðviljann bar að garði um miðjan dag höfðu einungis 5 gestir komið. Myndir Jim Smart.
Greenpeace
Alþjóðlegir sjálfboðaliðar
Gayle Scobie
húsmóðir:
Mér finnst Greenpeace alveg
eiga rétt á sér. Samtökin vinna
að góðum málum og ekki veitir
af á þessum síðustu og verstu
tímum.