Þjóðviljinn - 13.11.1990, Side 3

Þjóðviljinn - 13.11.1990, Side 3
FRETTIR Álviðræður Mikið verk óunnið Birgir Isleifur Gunnarsson: Málið ekki eins langt komið og gefið hefur verið í skyn hér heima að var farið yfir allan orku- samninginn og reynt að greina hvaða mál væru ágrein- ingur um,“ sagði Birgir ísleifur Gunnarsson, en hann á sæti í nefnd stjórnar Landsvirkjunar sem á nú í viðræðum við Atl- antsál-hópinn um orkusöluverð vegna fyrirhugaðs álvers. Birgir sagði að það hefði mið- að ágætlega áfram á fundi aðil- anna í London í lok síðustu viku. Agreiningsmálin voru rædd og sagði Birgir að þau væru fjöl- mörg. Stærstu málin eru endur- skoðunarákvæði og trygginga- mál, en Birgir vildi ekki tjá sig um smáatriði viðræðnanna í sam- tali við Þjóðviljann í gær. Orku- verðsmál voru lítið rædd og taldi Birgir að íslenska nefndin væri í nokkuð þröngri stöðu með orku- verðið, þvi hann býst við að erfitt verði að hreyfa mikið við því sem áður hefur verið gert i því sam- bandi af hálfu íslenskra stjóm- valda. Hann sagði að niðurstaðan hefði orðið að hittast aftur 9.-10. desember n.k. i Reykjavík og hafi menn verið sammála um að ná sem lengst í samningaviðræðun- um þá. Hann sagði að Landsvirkj- un hefði verið tilbúin til að funda í endaðan nóvember, en Atlants- áls- menn töldu sig þurfa lengri tíma fyrir næsta fund. Birgir sagði að enn væri margt ógert og að sér sýndist sem málið væri ekki kom- ið eins langt og gefið hafi verið í skyn hér heima. í fréttatilkynningu vegna fundarins lýstu fulltrúar Atlants- áls yfír ánægju sinni með árang- urinn, en bættu við að „sú mikla undirbúningsvinna sem þarf til að ljúka öllum atriðum málsins er mun tímafrekari en upphaflega var talið“. -gpm ,Glæsilegt Islandsmet Pétur Guðmundsson HSK kastaði kúlunni 21,26 metra og bætti þrettán ára gamalt met Odrepandi áhugi og metnað- ur ásamt miklum æfingum er galdurinn á bak við þennan árangur. Framundan er svo keppni á Heimsmeistarsmótinu í Sevilla í mars á næsta ári. Þangað til þarf ég að einbeita mér að því að bæta útkastið og auka kraftinn,“ segir nýbakað- ur íslandsmeistari í kúluvarpi bæði innan- og utanhúss, Pétur Guðmundsson. Pétur Guðmundsson kúlu- varpari úr HSK setti nýtt og glæsilegt íslandsmet í kúluvarpi utanhúss um helgina, á Varmár- velli í Mosfellsbæ, þegar hann kastaði kúlunni 21,26 metra og bætti þar með þrettán ára gamalt met Hreins Halldórssonar um 17 sentimetra. Nokkrum dögum áður hafði Pétur kastað kúlunni 20,66 metra í keppni innanhúss í Reiðhöllinni og bætti þar líka þrettán ára gam- alt met Hreins Halldórssonar um sjö sentimetra. Þessi Islandsmet Péturs eru þau fyrstu sem kappinn hefúr sett á ferli sínum, en hann hefúr æft kúluvarp markvisst í fjögur til fimm ár. Kaststíll Péturs er álíkur þeim sem kringlukastarar nota og nær hann að snúa sér í einn og hálfan hring áður en kúlunni er kastað. „Það munaði aðeins hárs- breidd að ég hefði dottið út úr kasthringnum í stóra kastinu því ég fylgdi því svo vel eftir. En sem betur fer hafði ég betur í barátt- unni við plankann,“ sagði Pétur Guðmundsson. -grh Prófkiör Hreggviði hafnað Iprófkjöri Sjálfstæðiflokkks- ins í Reykjanesi hafnaði fyrrum þingmaður Borgara- flokksins Hreggviður Jónsson í 12. sæti. Hann er nú þingmaður Sjálfstæðisflokksins; varamað- ur hans Kolbrún Jónsdóttir lenti í 9. sæti. Þingmennimir Olafúr G. Ein- arsson og Salome Þorkelsdóttir lentu í tveimur efstu sætunum og hlaut Olafur afgerandi kosningu. Ami Mathiesen, sonur Matthíasar Mathiesen, fékk fleiri atkvæði alls en Salome en færri í fyrsta og annað sæti og lenti því í þriðja sæti. Ámi Ragnar Ámason lenti í Qórða sæti, Sigríður A. Þórðar- dóttir í fimmta sæti og María E. Ingvadóttir í því sjötta. Sjálfstæðismenn á Norður- landi vestra röðuðu á lista hjá sér um helgina. Pálmi Jónsson al- þingismaður skipar efsta sætið, Vilhjálmur Egilsson annað og Hjálmar Jónsson prestur það þriðja. -gpm Matarskammtsins neytt út í guðsgrænni náttúrunni. Erlend rányrkja á landinu C yrstu tiu mánuði þessa árs 1 komu hingað til lands 131.893 ferðamenn sem var aukning um 8,3% miðað við sama tíma árið 1989. Það er því Ijóst að um enn eitt metárið er að ræða þvi fjöldi ferðamanna er þegar orðinn meiri en allt ár- ið í fyrra. Þetta segir þó ekki allt um þær tekjur sem landinn hefúr af erlendum ferðamönnum. Það hef- ur færst mikið í vöxt að erlendar ferðaskrifstofúr selji og skipu- leggi ferðir til Islands. Hópamir hafa komið hingað til lands í eig- in langferðabílum hlöðnum bens- íni, mat og drykkjarfongum, þannig að hópamir hafa ekki þurft að kaupa vömr og þjónustu hér á landi. Eðlilega hafa margir hafl áhyggjur af þessu. „Þeim fjölgar stöðugt sem koma hingað með Norrænu á eig- in rútum með erlenda leiðsögu- menn og erlendan kost,“ sagði Ragnar A. Þórsson leiðsögumað- ur í samtali við Þjóðviljann. Aðgerðir verði samræmdar Ragnar hefur undanfarið unn- ið að því að reyna að samræma aðgerðir þeirra aðila sem vinna við ferðamannaþjónustu í land- inu. Hann bendir á að þessir er- lendu aðilar fái oft innlendan leiðsögumann með í fyrstu ferð- ina, og er þá leiðsögumaðurinn jafnframt kennari, þannig að í næstu ferð telja erlendu aðilamir sig ekki þurfa á innlendum leið- sögumanni að halda. Það sama gildir um innlenda rútubílstjóra. Þeir em fengnir til að aka erlend- um hópum um landið, og er þá er- lendur leiðsögumaður með. Eftir að leiðsögumaðurinn hefúr farið i eina slíka ferð með innlendum bílstjóra telur hann sig geta sagt erlendum bílstjóra til í næstu ferð. „Smámsaman hefúr þetta orð- ið til þess að erlendir aðilar em famir að sniðganga íslenska að- ila. íslenskir rútubilstjórar em í dag að þjálfa upp erlenda leið- sögumenn og íslenskir leiðsögu- menn að þjálfa upp erlenda rútu- bílstjóra. Það gefúr auga leið að þeir þurfa ekkert á okkur að halda í ffamtíðinni,“ sagði Ragnar. Ragnar vill að settar verði skýrar reglur um það að löggiltir íslenskir leiðsögumenn séu í öll- um ferðum sem famar em í at- vinnuskyni með erlenda ferða- menn. „Leiðsögn felur í sér fleira en að rata um landið. Hún felur í sér að kynna ferðamönnum land og þjóð, sögu, jarðsögu og fleira og síðast en ekki síst umgengnina um landið. Þessir liðir skipta meginmáli. Þetta er ekki síst spumingin um gæði ferðaþjón- ustu sem boðið er upp á hér á landi. Þá er þetta líka spumingin um hvort við ætlum að hafa ein- hveijar tekjur af erlendum ferða- mönnum eða hvort við ætlum að láta útlendinga raka saman gróð- anum. Fjöldi erlendra ferða- I BRENNIDEPLI „Fjöldi erlendra ferðamanna segir lítið um hagnaðinn v hér heima því margir þeirra kaupa litla sem enga ferðaþjónustu en skilja eftir sig djúp sár í náttúrunni“ manna segir lítið um hagnaðinn hér hcima því margir þeirra kaupa litla sem enga ferðaþjónustu en skilja eftir sig djúp sár í náttúr- unni. Með öðmm orðum má segja að það sé stunduð erlend rányrkja á landinu,“ sagði Ragnar. Viýlög I samgönguráðuneytinu er verið að vinna að frumvarpi um skipulag ferðamála hér á landi og er ætlunin að leggja það fram fyr- ir áramót. Þá er nefnd að störfúm að vinna að reglugerð um þessi mál. Formaður nefndarinnar er Ámi Þór Sigurðsson, starfsmaður samgönguráðuneytisins. Ámi sagði að í frumvarpinu yrði ákvæði um að í skoðunar- ferðum yrðu leiðsögumenn með full réttindi, en þó yrði heimild til að sækja um undanþágu ffá því ef fúllreynt væri að innlendur leið- sögumaður fengist ekki. „Það er nóg til af innlendum leiðsögumönnum sem tala al- gengustu tungumálin og geta far- ið með hópa um landið í rútum. Hinsvegar vantar oft leiðsögu- menn sem tala tungumál sem ekki em jafn algeng og leiðsögumenn sem em þjálfaðir í fjallaferðum og gönguferðum,“ sagði Ami Þór. Hann sagði að hingað til hefðu ekki verið neinar reglur í gildi um komu erlendra ferða- mannahópa hingað til lands. í nýju lögunum verða erlendu aðil- amir að sækja um leyfi í gegnum íslenska aðila og verða þeir krafð- ir um leyfin þegar þeir koma hingað til lands. Séu ekki allir pappírar í lagi verður þeim snúið við. „Markmiðið er að reyna að draga úr skipulögðum erlendum ferðum og beina ferðamönnunum inn í íslenska hagkerfið,“ sagði Ami Þór. Afengi í rútum Ragnar sagði að það væri regla að veita áfengi i erlendu langferðabílunum og Ámi Þór sagðist kannast við það. Að sögn Ragnars er þetta ekki leyfilegt í íslenskum langferðabílum og Ámi Þór taldi að þetta væri ólög- legt með öllu. „Það verður að stöðva þetta með lögregluvaldi ef annað dugar ekki,“ sagði Ámi Þór. Matarskammturinn sem er- lendu hópamir taka með sér hefúr verið töluvert til umræðu. Hingað til hafa þeir mátt taka 10 kiló á hvem ferðamann en nú stendur til að minnka þann skammt í þijú kíló. Er stefút að því í fjármála- ráðuneytinu að gefa út nýja reglu- gerð um matarinnflutninginn fyr- ir áramót. Ragnar telur að slík reglugerð sé mjög til bóta en óttast að erfitt verði að fylgjast með því hversu mikið er flutt inn. „Það er auðvelt að fela mat í þessum stóru langferðabílum og tollgæslan á Seyðisfirði þarf að vera í stakk búin til þess að leita vel og vandlega í þessum rútum, en að meðaltali koma tvær til þijár slíkar rútur til landsins í hverri ferð.“ Þá benti Ragnar á að töluvert væri um að erlendu hópamir tjölduðu í nágrenni opinberra tjaldstæða. Þannig kæmust þeir hjá því að borga fyrir tjaldstæðið en nýttu samt sem áður þá þjón- ustu sem tjaldstæðin bjóða upp á. „I öðrum löndum þar sem ferðaþjónusta er mikilvæg at- vinnugrein, gilda mjög strangar reglur. Framtíð þessarar atvinnu- greinar hér á landi byggist á því að það náist víðtæk samstaða meðal aðila í íslenskri ferðaþjón- ustu um að það gildi algert jafn- rétti á milli innlendra og erlendra aðila í ferðaþjónustunni. Á með- an við setjumst ekki niður og reynum að samræma krafta okkar heldur áfram að fjara undan okk- ur,“ sagði Ragnar. -Sáf Þriðjudagur 13. nóvember - ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.