Þjóðviljinn - 05.12.1990, Side 1

Þjóðviljinn - 05.12.1990, Side 1
Miðvikudagur 5. desember 1990 — 230. tölublað 55. árgangur Sjálfstœðisflokkurinn Veit ekki sitt rjúkandi ráð Formanni og varaformanni Sjálfstœðisflokksins ber ekki saman um tilurð yfirlýsingarinnar um bráðbirgðalögin. Þingflokksformaðurinn viðurkennir að hafa farið með rangt mál um afstöðu fjarverandi þingmanna Formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins eru ekki sammála um tilurð yfirlýs- ingar þingflokks flokksins um að greiða atkvæði gegn bráða- birgðalögunum frá því á mið- vikudaginn var. Varaformaður- inn Davíð Oddsson telur fráleitt að hugmyndin hafi verið sín, en formaðurinn Þorsteinn Pálsson segir að þeir hafi unnið þetta saman. „Það er fráleitt," sagði Davíð þegar hann var spurður, eftir fund með forystumönnum VSI á mánudag, hvort hugmyndin að yfirlýsingunni væri frá honum komin. „Eg er ekki einusinni í þingflokknum," sagði Davíð; en hann viðurkenndi, þegar hann var spurður, að hann sæti einstaka þingflokksfund. Þorsteinn sagði í gær að hann og Davíð hefðu haft samráð um þetta mál fyrir þingflokksfundinn og að þeir hefðu staðið saman um yfírlýsinguna. „Það kemur varla nokkrum manni á óvart,“ sagði Þorsteinn. „Við höfðum rætt þetta lengi.“ Þorsleinn sagði að þessi hugmynd væri ekki komin ffá einum ffekar en öðrum, þegar honum var bent á að Davíð hefði þvertekið fyrir að hugmyndin kæmi ffá sér. Hann benti á að engin formleg tillaga hafði verið lögð fyrir nefndan þingflokks- fund, heldur hefði afstaðan verið rædd og menn verið sammála. Þorsteinn taldi ekki ástæðu fyrir þingflokkinn að funda sérstak- lega um afstöðu þeirra sem ekki sátu fundinn í síðustu viku, en nokkrir þeirra hafa lýst sig and- víga yfirlýsingunni. Þingflokkurinn hefur enn ekki komið saman til að ræða afstöð- una. Ólafur G. Einarsson formað- ur þingflokksins sagði að ekki yrði fundur fyrir fund fjárhags- og viðskiptanefndar um málið í dag, en við því hafði verið búist. Á blaðamannafúndi í síðustu viku lýstu Þorsteinn og Ólafúr því yfir að allir í þingflokknum stæðu að baki yfirlýsingunni um að greiða atkvæði gegn bráðabirgðalögun- um og að um einróma álit væri að ræða. Síðan hefúr komið í ljós að þetta er alrangt, og viðurkenndi Ólafúr í gær að hann hefði ekki hafi samband við alla af þeim fimm sem ekki sátu á þingflokks- fundinum, en hefði talið sig viss- an um hug þeirra. Hann viður- kenndi að hann hefði ekki sagt rétt frá á blaðmannafúndinum. Aldrei var haft samband við Guð- mund H. Garðarsson, Inga Bjöm Albertsson og Eyjólf Konráð Jónsson, en sá síðastnefndi fékk frí ffá þingflokksfundinum um hádegisbilið á þeim forsendum að ekkert sérstakt væri á ferðinni. Ákvörðun um þessa yfirlýsingu hefúr því borið brátt að, nema að henni hafi verið haldið frá þing- flokksformanninum. Um klukkan tvö í gær taldi Ólafúr að fúndur yrði um málið í þingflokknum fyrir nefndarfund- inn, en síðar um daginn sagði hann að fúndur yrði ekki fyrr en á venjulegum tíma i dag. En um daginn ræddi Ólafúr við Einar Odd Kristjánsson formann VSÍ sem ekki vildi tjá sig um hvað hafði farið þeim á milli. I gær birti DV skoðanakönn- un þar sem ffam kemur að tæp 72 prósent kjósenda eru andvígir af- stöðu Sjálfstæðisflokksins í þessu máli. Einnig var könnuð afstaðan til bráðbirgðalaganna sjálfra og styðja þau rúm 65 prósent kjós- enda samkvæmt könnuninni. Bráðbirgðalögin, eða ffum- varp til laga um launamál einsog þau heita, verða afgreidd úr fjár- hags- og viðskiptanefnd í dag og tekin fyrir á fúndi í neðri deild Al- þingis á morgun. Þar verður mælt fyrir nefndarálitum, en fúndi síð- an ffestað þar til á þriðjudag í næstu viku, þar sem forsætisráð- herra Steingrimur Hermannsson getur ekki verið viðstaddur fúnd- inn á morgun. Þetta upplýsti Ámi Gunnarsson, Alfl., forseti neðri deildar. -gpm Davlð Oddsson borgarstjóri og varaformaður Sjálfstæðisflokksins vlgir hér bflageymslu undir ráðhúsi borgarinnar sem er I byggingu. Hann viður- kennir ekki að hafa átt hugmyndina að yfiriýsingu þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að greiða atkvæði gegn bráðabirgöalögunum frá þvi (siðustu viku, en að þessu hafa sumir leit getur. Mynd: Jim Smart. Nesjavallavirkjun Mistök upp á hálfan miljarð? Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi: Óttast að leggja þurfi í auka- kostnað upp á hundruð miljóna vegna Nesjavallavirkjunar Ottast er að leggja þurfi í hundruða miljóna króna kostnað vegna útfellingar í vatni frá Nesjavallavirkjun, en talið er að útfellingarefnin legg- ist innan á leiðslur hitaveitunn- ar. Orkustofnun varaði við hættu á útfellingu fyrir nokkr- um árum, en þær viðvaranir munu ekki hafa borist til stjórnar Hitaveitu Reykjavíkur. - Mér finnst það ámælisvert að viðvaranir Orkustofnunar um hættu á útfellingu skuli ekki hafa borist stjóm hitaveitunnar, segir Sigrún Magnúsdóttir, borgarfúll- trúi Framsóknarflokksins og full- trúi í stjóm veitustofnana. Á fundi borgarráðs í gær lagði hún til að skipuð yrði nefnd sér- fræðinga til þess að gera úttekt á útfellingarvanda vegna Nesja- vallavirkjunar. Tillögunni var frestað. Vatnið í Nesjavallavirkjun er upphitað ferskvatn. Þegar það blandast jarðvarmavatni frá Reykjum, fellur út kísill, mangan og brennisteinn. Útfellingin leggst svo innan á leiðslur. Ekki er ljóst hve alvarlegt þetta vandamál er, en mögulegt er að leggja þurfi út í vemlegan kostnað til þess að halda vatni frá Nesjavallavirkjun aðskildu frá Reykjavatni. Útfelling er hluti af þeim vanda sem hijáð hefur Reykvík- inga í haust og felst í því að síur við inntak í hús fyllast, einkum af óhreinindum, en einnig vegna út- fellingar. Sigrún Magnúsdóttir segist telja að ef vemleg vandræði em fyrirsjáanleg vegna útfellingar sé óhjákvæmilegt að ráðast í fram- kvæmdir til þess að bæta úr því þegar á næsta ári. Jafnvel er talið að kostnaður við framkvæmdir vegna þessa geti farið í hálfan miljarð króna. -gg 19dagar til jóla Stgúrbjörg Tinna Gunnarsdóttir, sjö ára, teiknaði þessa skemmtilegu jólasveinku.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.