Þjóðviljinn - 05.12.1990, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 05.12.1990, Blaðsíða 4
ÞJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar KLIPPT OG SKORIÐ Ótti við sósíal- isma í útgerð Um helgina birti Moregunblaðið leiðara sem blaðið kallar „Upplausn á hafinu". Þar er fjallað um það undarlega ástand sem kaup og sala á fiskveiði- kvóta hefur skapað. Minnt á það, að í landinu eiga að heita lög sem taka það skýrt fram að fiskimiðin séu sameign þjóðarinnar en, eins og blaðið segir: „þrátt fyrir það eru útgerðarmenn og handhafar kvóta að selja sín í milli veiðiréttindi að tilteknu afla- magni, sem þeir skv. landslögum eiga ekki og eiga því ekki að geta selt eða keypt“. Það er svosem ekki í fyrsta skipti að menn kvarta yfir þessari undarlegu „þjóðargjöf til þeirra, sem af tilviljun stunduðu útgerð hér á landi þegar takmarka þurfti aðgang að fiskimiðum. Meðal annars hefur oftar en ekki verið vakið máls á þessum fáránleika hér í blaðinu. Hitt er svo skrýtið að Morgunblaðið kallar kvótakerfið, sem Sjálfstæðismenn bera ábyrgð á ekki síður en aðrir, „afkvæmi sósíalisma“! Þeim mun furðulegra sem opinber sagnaritari Sjálf- stæðisflokksins telur ekkert eðlilegra en útgerðar- menn eigi fiskinn í sjónum. Annar er sá sósíalismi sem Morgunblaðið hefur áhyggjur af. En hann er sá, að bæjarfélög leggja fé í útgerð til að koma í veg fyrir að kvóti verði seldur úr byggðarlagi. Með öðrum orðum: bæjarútgerðir séu aftur að verða til. Morgunblaðið kallar slíka út- gerð „gamlan draug sem var kannski nauðsynlegur á sínum tíma en er nú algjör tímaskekkja". Varar hann bæjarútgerðarmenn við að þeir verði kenndir við sósíalisma og segir þá vera komna „úr tísku“ í Tékkóslóvakíu og öðrum gömlum kommúnistaríkj- um. Nú er ekki langt síðan borgarstjórnaríhaldið í Reykjavík lagði niður sína bæjarútgerð: hafði það verið að stunda sósíalisma allan þann tíma sem það fyrirtæki var og hét? En í alvöru talað: rétt er að festa hugann við þau orð Morgunblaðsins að bæj- arútgerðir hafi verið nauðsynlegar á sínum tíma. Hvers vegna? Vegna þess að einkaframtakið réð ekki við það verkefni að tryggja fólki atvinnu, svo einfalt er það. Þess vegna myndaðist furðubreið samstaða í einstökum bæjarfélögum um átak á borð við bæjarútgerðir. Og þessi saga er að endur- taka sig núna þótt með öðrum hætti sé. Þegar útgerðarmenn geta ráðskast með sinn kvóta (hvort sem þeir hafa nú fengið hann gefins eða borga eitthvað fyrir hann, sem er skárra) þá er eftir að svara einfaldri og brýnni spurningu: Hvað verður um fólkið í fiskiplássunum sem hefur treyst á útgerð og fiskvinnsiu sér til framfæris eins og fyrri kynslóðir? Ekki er það því að kenna ef t.d. mis- heppnaðir erfingjar kvóta fara með allt í sukk eða gefast upp, vilja hætta. Fólkið í fiskibæjunum getur að sjálfsögðu ekki sætt sig við það þegjandi og hljóðalaust, að sjálf forsenda mannlífs á staðnum sé sett á uppboð og seld - til stærri byggða kannski, eða ef til vill alla leið til Evrópu. Og þá bregða menn á það ráð að beita þeim sjóði sem stærstur er, bæj- arsjóði, til að koma í veg fyrir svo dapurleg málalok. Morgunblaðið á engin svör við spurningum um rétt þeirra sem veiða fisk og vinna hann. Það vill að útgerðarmenn borgi fyrir kvótann, en síðan mega þeir dansa sem þeir vilja með hann á markaðinum frjálsa. En fólkið í sjávarplássunum veit að slíkur dans leysir ekki vanda þess og getur reynst því mjög háskalegur. Því getur Morgunblaðið átt von á æ meiri „sósíalisma“ sameiginlegs átaks fólks í fiskiplássum sem vill og þarf að tryggja sína af- komumöguleika ÁB. Voðaskot í lærið Morgunblaðið tekur sig stund- um til og segir þingmönnum og forystumönnum Sjálfstæðis- flokksins til um það hvemig þeir eigi að haga sér. Þegar svo bregð- ur við er blaðið jafnan ögn skyn- samara en flokksforystan í því að gæta hagsmuna flokksins. í leiðara DV er haft eftir „greindum stjómarsinna“ að Sjálfstæðisflokkurinn skjóti sig alltaf í fótinn í byrjun kosninga- baráttu. Þingflokkur Sjálfstæðis- flokksins hélt uppteknum hætti og skaut sig í lærið á dögunum með því að „samþykkja einróma“ að greiða atkvæði gegn bráðabirgða- lögum ríkisstjómarinnar um BHMR- deiluna. Þetta skot verður lengi í minnum haft enda varla til þess vitað að stjómmálaflokkur hafi haft lag á að ganga svo ræki- lega gegn stuðningsmönnum sín- um og máttarstólpum í háa herr- ans tíð, og það fáum mánuðum fýrir kosningar. Hinn mildi fræðari Höfundur Reykjavíkurbréfs Morgunblaðsins var greinilega al- veg í öngum sínum á sunnudaginn var og sá sig knúinn til að gefa foringjum Sjálfstæðisflokksins ráð við fótarskoti ef það mætti verða til að bjarga andliti flokks- ins. Fyrst rakti greinarhöfúndur í löngu máli hvemig Morgunblaðið hefði alla tíð stutt þjóðarsáttina frægu. Síðan klappar blaðið for- ystumönnum Sjálfstæðisflokksins á kollinn: „Með tilvísun til þessa mála- lilbúnaðar Morgunblaðsins frá því snemma í sumar er það skoðun blaðsins, að málflutningur for- ystumanna Sjálfstæðisflokksins um vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í sambandi við BHMR-deiluna sé réttur.“ Hér er Morgunblaðið í hlut- verki hins góða fræðara, sem af mildi sinni reynir að laða það besta fram í hverjum sínum nem- anda, en veit sem er að nemandinn er ekki jafn námfús eða hæfileika- ríkur og æskilegt væri. Því heldur höfimdur Reykjavíkurbréfs áffam og segir: „en flokkurinn geti samt með engu móti tekið þá áhættu að stefna þjóðarsáttinni í voða. Ef hann treystir sér ekki til að styðja bráðabirgðalögin ber honum skylda til að finna leið út úr vand- anum, sem tryggir áframhaldandi þjóðarsátt og batnandi hag. Hann verður sem sagt að finna leið til að aðskilja þessi tvö mál, bráða- birgðalögin og þjóðarsáttina. Þar er honum mikill vandi á höndum. En trúnaður hans og ábyrgð eru undir því komin, að honum takist að tryggja áframhaldandi þjóðar- sátt. Nú dugir flokknum ekkert minna en Kólumbusaregg. Ef hann yrði til að eyðileggja þjóðar- sáttina með andstöðu við bráða- birgðalögin, yrði honum seint fyr- irgefið og þá yrði honum nánast ólíft í nýrri ríkisstjóm. Svo mikið er í húfi, að hvort sem um stjóm eða stjómarand- stöðu er að ræða verða menn að standa saman um þann árangur sem náðst hefur. Það skiptir máli fyrir atvinnulífið í landinu, sem nú fær í fyrsta sinn í mörg ár, tækifæri til að bæta sinn hag og borga niður skuldir. Það skiptir máli fyrir launþega, sem tugþús- undum saman hafa tekið á sig mikla kjaraskerðingu á undan- fomum mánuðum og missemm og sætt sig við hana f von um, að þjóðarsáttin færi þeim betri tíð. Það er mikill ábyrgðarhluti að stefna þessum vonum í hættu og þessum árangri í voða. En þingflokkur Sjálfstæðis- flokksins hefur tekið sína afstöðu og stendur að sjálfsögðu ábyrgur fyrir henni gagnvart kjósendum. Bráðabirgðalögin njóta ekki stuðnings meirihluta þings og hætta er á að þau falli með þeim ósköpum, sem í kjölfarið mundu fylgja. Almenningur í landinu á þá kröfu á hendur stjómmála- mönnum í öllum flokkum, að þeir taki höndum saman um að leysa þetta mál. Ein leið til þess er sú, að ríkisstjómin og forystumenn Sjálfstæðisflokksins semji um það, að Sjálfstæðisflokkurinn veiti bráðabirgðalögunum braut- argengi með einhverjum hætti en jafnframt verði þing rofið og efnt til kosninga þegar i stað. Verkefni stjómmálamanna í lýðræðisríki er að höggva á Gordionshnúta.“ Að vita ekki sitt rjúkandi ráð Trúr kenningu sinn reynir hinn mildi fræðari að höfða til mannúðar auk heilbrigðrar skyn- semi. Hann biður um að ríkis- stjómin sýni Sjálfstæðisflokknum fyllstu mannúð: hún verður að koma flokknum til hjálpar, skera á þann Gordionshnút sem flokks- forystan hefur hnýtt, annars er vá fyrir dyrum allrar þjóðarinnar. Eins og málum var komið var eðlilegt að Morgunblaðið leitaði til ríkisstjómarinnar í von um heilbrigða skynsemi, þar sem hegðun þingflokks Sjálfstæðis- flokksins undanfama daga vitnar um að hennar sé ekki að leita þar. Aftur á móti er blaðið heldur sein- heppið í tillögugerð sinni. Hvers vegna í ósköpunum hefði ríkis- stjómin átt að kaupa stuðning Sjálfstæðisflokksins við bráða- birgðalögin því verði að ijúfa þing með einhverskonar blessun hans? Ef Sjálfstæðisflokkurinn vildi hnýta sér slíkan Gordionshnút sem hann gerði, þá var auðvitað ekki nema sjálfsagt að leyfa hon- um að gera það f friði. Rétt eins og stjómarandstaðan tekur ekki ábyrgð á ríkisstjóminni er engin ástæða til að ríkisstjómin taki ábyrgð á stjómarandstöðunni. Höfundi Reykjavíkurbréfs er nokkur vorkunn og von að hann reyndi að finna leiðir til að bjarga andliti flokks síns. Það var hins vegar Hjörleifúr Guttormsson sem tók af skarið með því að lýsa yfir að hann myndi sitja hjá við at- kvæðagreiðslu um lögin. Ekki virðist sú breyting á afstöðu hans hafa leyst mikinn vanda fyrir Sjálfstæðisflokkinn því síðan hef- ur varla verið fúndarfært í þing- flokki Sjálfstæðismanna. Ástand- inu sem rikir í þeim herbúðum er stundum lýst með því að segja: þeir vita ekki sitt ijúkandi ráð. hágé. ÞJÓÐVIUINN Síðumúla 37 — 108 Reykjavík Sími: 681333 Símfax: 681935 Útgefandi: Utgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson. Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guömundsson Ólafur H. Torfason. Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson. Aðrir blaðamenn: Bergdls Ellertsdóttir, Dagur Þorieifsson, Elías Mar (pr.), G. Pétur Matthlasson, Garðar Guöjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Heimir Már Pétursson, Hildur Finnsdóttir (pr.) Jim Smart (Ijósm.), Kristinn Ingvarsson (Ijósm.), Ölafur Glslason, Ragnar Karisson, Sævar Guðbjómsson. Skrlfstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir. Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristln Pétursdóttir. Auglýsingastjórl: Steinar Harðarson. Auglýsingar: Sigrlður Sigurðardóttir, Svanheiður Ingimundardóttir, Unnur Ágústsdóttir. Afgreiðslustlórl: Hrefna Magnúsdóttir. Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir, Þórunn Aradótir. Bilstjórí: Jóna Sigurdórsdóttir. Skrifstofa, afgreiðsla, rítstjóm, auglýsingar: Slðumúla 37, Rvlk. Simi: 681333. SÍmfax: 681935. Auglýslngar: 681310, 681331. Umbrot og setnlng: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Oddi hf. Verð I lausasölu: 100 kr. Nýtt Helgarblað: 150 kr. Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr. 4.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 5. desember 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.