Þjóðviljinn - 28.12.1990, Blaðsíða 6
ERLENDAR FRETTIR
Sovétríkin-Rússland
Stríð í efnahagsmálum
Hrun á næsta leiti ef samkomulag tekst ekki hið bráðasta,
segir Gorbatsjov
Alvarlegasta vandamálið,
sem við Gorbatsjov Sovét-
ríkjaforseta blasir er hann fer
Innbrot og
liðhlaup
Sovéskir hermenn í austurhluta
Þýskalands fremja allt að 30 glæp-
um og afbrotum daglega og 15- 30
menn stijúka úr sovéska hemum þar
í viku hverri, segir þýska rannsókn-
arlögreglan. Algengustu afbrot her-
mannanna eru innbrot í verslanir og
heimili í leit að vestrænum neyslu-
vamingi, sem þar er nú víða orðið
mikið um. Sovésku hermennimir
þama valda einnig oft umferðar-
slysum, að sögn lögreglunnar,
vegna kæruleysis við akstur.
Skaut fimm
Drukkinn mexíkanskur lög-
reglumaður skaut fimm manneskjur
til bana á aðfangadagskvöld í fata-
verslun í Guadalajara, borg í mið-
hluta Mexíkó Kyrrahafsmegin.
Mannfagnaður af tilefni hátíðarinn-
ar stóð yfir í versluninni og hélt Iög-
reglumaðurinn að dóttir hans væri
þar í óleyfi hans. Reiddist hann er
hann fann hana ekki, með fyrr-
greindum afleiðingum.
Kólombískur
stríðstollur
Um 420 kólombískir lögreglu-
menn vom drepnir og yfir 530
særðir á árinu sem er að líða af
einkahersveitum og leigumorðingj-
um kókaínbaróna og öðmm glæpa-
mönnum, að sögn lögregluyfir-
valda. Flestir þessara manna urðu
kókaínhringunum að bráð. Em hér
ekki meðtaldir þeir lögreglumenn,
sem féllu á árinu fyrir vinstrisinnuð-
um skæmliðum. Lögreglan segist á
sama tíma hafa náð verulegum ár-
angri í baráttunni við eiturlyfja-
að stjórna samkvæmt nýsam-
þykktri stjórnarskrárviðbót
um aukin völd sér til handa,
verður uppreisn rússneska
sambandslýðveldisins, þess
langstærsta af sovétlýðveldun-
um, sem hefur um helming íbúa
þeirra.
í gær sagði Gorbatsjov í þing-
ræðu að hmn yrði í efnahagslífi
Sovétríkjanna og sjálf myndu þau
leysast upp ef sovéska stjómin og
sú rússneska jöfhuðu ekki hið
snarasta ágreining sinn um efna-
hagsmál.
Lýst var yfir fúllveldi Rúss-
lands i maí og hefúr það síðan
mjög farið sínu fram í efnahags-
málum, gert viðskiptasamninga
við erlend ríki og lagt áherslu á að
ná fullum ráðum yfir náttúmauð-
lindum sínum. Má heita að síðan
geisi efnahagslegt strið milli
Rússlands og Sovétríkjanna, svo
undarlega sem það kann að
hljóma. Gorbatsjov kallar það
„strið með lagasetningum“, þar
eð þing beggja hafa verið iðin við
að skáka hvort öðm á víxl með
nýjum og nýjum samþykktum.
Rússneska stjómin undir fomstu
Borísar forseta Jeltsín hefur þrá-
sinnis haft tilskipanir sovésku
stjómarinnar að engu og ekki gert
sér far um að fara leynt með það.
Gera má ráð fyrir að þessi
átök Sovétríkjanna og stærsta
lýðveldis þeirra séu ein af megin-
orsökum lömunar þeirrar og ring-
ulreiðar er nú tröliríður sovésku
efnahagslífi. Bróðurparturinn af
tekjum á fjárlögum Sovétríkjanna
kemur ffá Rússlandi og vegna
deilna þessara aðila hefur ekki
enn tekist að ganga frá sovésku
fjárlögunum fyrir komandi ár. í
gær sagði Valentín Pavlov, fjár-
málaráðherra Sovétríkjanna, að
vegna þessa gæti svo farið innan
skamms að ríkinu yrði ekki unnt
að standa skil á launum til opin-
berra starfsmanna og eftirlaunum.
Reuter/-dþ.
Öngþveitið í efnahagsmálum Sovétrlkjanna, þar á meðal mikill skortur á
aigengasta neysluvarningi, stafar að verulegu leyti af valdastreitu
stjórna þeirra Gorbatsjovs og Jeltsíns I efnahagsmálum. Hér er sýnt inn
I fiskbúð (Moskvu.
Hrakspár ívrir Gorbatsiov
Einvaldur yfir engu?
Horfur taldar á að ágreiningur miðstjórnar og lýðvelda lami starfsemi sambandsráðs og dragi
kraftinn úr stjórnarskrárviðbót um stóraukin völd til Gorbatsjovs
Þjóðfulltrúaþing Sovétríkj-
anna samþykkti á annan í
jólum tillögur Gorbatsjovs um
stóraukin völd honum til handa
og andstæðingar hans a.m.k.
segja að þar með sé hann orð-
inn valdameiri, stjórnarskrá
samkvæmt, en nokkur Sovét-
ríkjaleiðtogi hafi verið áður.
Helstu atriði tillagnanna, sem
með samþykktinni urðu greinar i
stjómarskrá, em að stofnuð verða
sambandsráð, öryggisráð og að
ríkisstjómin heyrir beint undir
forseta. Þá er stofnað varaforseta-
embætti, sem mikil völd heyra
undir. Samkvæmt tillögunum fær
Gorbatsjov nú möguleika á að
taka úrslitaákvarðanir á svo að
segja öllum sviðum stjóm- og
efúahagsmála.
'ilvióskiptamanna
banka og sparisjóóa
Lokun
2. janúar
og eindagar
vbda.
Vegna áramótavinnu veröa
afgreiðslur banka og sparisjóða
lokaðar miðvikudaginn
2. janúar 1991.
Leiðbeiningar um eindaga víxla
um jól og áramót
liggjaframmi í afgreiðslum.
Reykjavík, 12. desember 1990.
Samvinnunefnd bankaog sparisjóóa
Gorbatsjov verður í forsæti
bæði sambands- og öryggisráðs. í
því fyrmefnda geta átt sæti yfir 50
fulltrúar og eiga forsetar sovét-
lýðveldanna að vera þar á meðal.
Samþykktir ráðsins, ef gerðar em
með tveimur þriðju hlutum at-
kvæða, eiga að vera bindandi fyr-
ir sovétlýðveldin. Öryggisráð á að
verða einskonar „innri ríkis-
stjóm“ með það fyrir augum að
sjá til þess að tryggt verði öryggi
ríkis, efnahags og umhverfis, eins
og það er orðað. í því verða m.a.
vamarmálaráðherra, utanríkisráð-
herra, innanríkisráðherra og æðsti
maður leyniþjónustunnar KGB.
Stuðningsmenn Gorbatsjovs
segja að sambandsráð hafi mögu-
leika á að takmarka völd hans og
verði hann þegar til kastanna
komi að ná samkomulagi í flest-
um málum við forseta lýðveld-
anna. En með Iýðveldunum og
sovésku miðstjóminni er nú slíkur
Stalíns-
dýrkun
aflögð
Á annan í jólum gerðist sá
sögulegi atburður í Albaníu að
Ramiz Alia, núverandi hæstráð-
andi þar, tilkynnti að Flokkur
vinnunnar, alráður kommúnista-
og ríkisflokkur þarlendis frá lok-
um heimsstyrjaldarinnar síðari,
hefði ákveðið að Iáta af Stalíns-
dýrkun, þar eð sú væri ósk alþýð-
unnar, eins og það er orðað.
Verða nú styttur af þeim gamla,
sem í marga áratugi hafa sett svip
á albanskar borgir, rifnar niður og
önnur tákn honum helguð Qar-
lægð. Er þá svo komið að í engu
landi heims er þessi frægasti Ge-
orgíumaður sögunnar hafður í há-
vegum opinberlega.
ágreiningur að sumir ætla að hann
muni lama starfsemi sambands-
ráðsins og leiða til þess að lítið
verði úr þeim fyrirætlunum Gor-
batsjovs að koma efnahagnum á
réttan kjöl og tryggja ríkiseiningu
með hinni nýju stjómarskrárvið-
bót.
Greg Treverton, bandarískur
sovétríkjafræðingur sem var í
þjóðaröryggisráði Hvíta hússins á
stjómartið Jimmys Carter, er
meðal þeirra sem ekki hafa trú á
að samþykktir sovéska þjóðfúll-
trúaþingsins í fýrradag verði Gor-
batsjov til eflingar. „Þetta er
framhald valdabaráttu, sem und-
anfarið hefur staðið yfir,“ segir
Treverton. „Hann (Gorbatsjov)
fær meiri og meiri völd yfir minna
og minna, uns svo verður komið
að hann verður einvaldur yfir
engu.“
Reuter/-dþ.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi
Erlendur Indriðason Skúlaskeiði 18 Hafnarfirði lést á Sólvangi 25. desember. Vilhelmína Arngrímsdóttir Sigurfljóð Erlendsdóttir Anna Erlendsdóttir Kristján J. Ásgeirsson
Davíð Erlendsson Vignir Erlendsson Inga Áróra Guðjónsdóttir
Amgrímur Erlendsson Steinar Erlendsson Erla M. Erlendsdóttir Ólafur Örn Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
6.SÍÐA •
-JINN
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Gunnar Ólafsson
Haga, Selfossi
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 29. des-
ember kl. 13.30.
Ragnheiður Hannesdóttir
Hannes Gunnarsson Ása Bjarnadóttir
Magnús Gunnarsson Guðrún Ingvarsdóttir
Ólafur R. Gunnarsson Bergrún Sigurðardóttir
Sigurður K. Gunnarsson Þórunn Jónsdóttir
og barnabörn.