Þjóðviljinn - 18.01.1991, Side 7
Saddam (á plakati) borinn af her sfnum - tilgangurinn með gríðar-
legri persónudýrkun á honum kann ásamt með öðru að vera að sam-
eina sundurleitan landslýð.
Lykilstað-
reyodir
um Irak
Tvær ólíkar og andstæðar jyóðir, arabar og
Kúrdar. Sjítar, trúbræður Irana, eru stærsti
trúflokkurinn, en Saddam og flestir aðrir
ráðamenn eru súnnar
STÆRÐ: Rúmlega 438.000
ferkílómetrar.
LANDIÐ: Láglent, nema
hvað norðausturhlutinn, íraska
Kúrdistan, er fjöllóttur. Kjama-
svæði er Mesópótamía, land-
tungan milli fljótanna Evfrat og
Tígris. Gróður er mestur með-
fram fljótum þessum og í íraska
Kúrdistan, annarsstaðar eru
steppur og eyðimerkur, einkum
svæðið suðaustan Evfrats, sem
er næstum helmingur landsins.
LOFTSLAG: Þurrt og heit-
temprað, úrkoma einkum að
vetrarlagi.
ÍBÚAFJÖLDI: 17,6 miljón-
ir, þar af tæplega 30 af hundraði
undir 20 ára aldri. Argangar þeir
sem bestir þykja til herþjónustu
em sem sé hlutfallslega fjöl-
mennir og hefur það ásamt olíu-
auðnum gert Irak kleift að gerast
herveldi, þótt heildaríbúafjöldi
þar sé litlu meiri en í Evrópurikj-
um eins og Hollandi og Tékkó-
slóvakiu.
TUNGUMÁL: Arabíska
(opinbert mál), kúrdneska (ír-
anskt mál, náskylt persnesku),
arameíska, armenska.
ÞJÓÐERNI, TRÚAR-
BRÖGÐ: Þar, eins og víðar í
Vestur-Asíu, er oft erfitt að
greina að þetta tvennt. Hag-
skýrslum og öðmm heimildum
ber illa saman um skiptingu
landsmanna eftir tungumálum,
þjóðemum og trúarbrögðum, en
samkvæmt nýlegum tölum telj-
ast 75 af hundraði þeirra arabar
og 17 af hundraði Kúrdar.
Landsmenn af öðmm þjóðemum
em sagðir vera átta af hundraði.
Kúrdar búa einkum í fjalllendinu
norðaustan til, arabar annars-
staðar. En verulegur munur er á
aröbum Mesópótamíu og hirð-
ingjum eyðimerkurinnar, og er
það svipuð saga og annarsstaðar
úr Vestur-Asíu- og arabalöndum.
Samkvæmt sömu skýrslu em
62 af hundraði landsmanna sjítar
að trú, 35 af hundraði súnna-
múslímar og þrir af hundraði
annarrar trúar menn, flestir
þeirra kristnir.
Súnnar búa einkum norðan-
vert í Mesópótamíu og Kúrdar
og hirðingjar em einnig þeirrar
trúar. Sjítar em flestir í suður-
hluta Mesópótamíu. Þótt þeir
séu fleiri en súnnar em þeir sem
völdin hafa flestir súnnatrúaðir
arabar, og liggur á bakvið þá
upphefð súnna gömul hefð, ríkj-
andi í íslamslöndum annarsstað-
ar en í Iran.
Af kristnum trúflokkum mun
fjölmennust Kaldeakirkja sem
svo er kölluð þarlendis, klofn-
ingur úr kirkju Nestoríana (sem
nú kalla sig einnig Assýringa)
sem gekk inn í kaþólsku kirkj-
una gegn því að fá að halda sín-
um austrænu helgisiðum. Annar
kristinn trúflokkur þar er Nestor-
íanar, sem em eineðlissinnar
(þeirrar trúar að Kristur sé að-
eins eins eðlis, guðlegs). Þeir og
Kaldear tala enn öðmm þræði
arameisku, sem á Krists dögum
var aðalmálið í þeim löndum
sem nú eru írak, Sýrland, Líban-
on og Israel-Palestína. Þessir
trúflokkar og fleiri em stundum
taldir þjóðemi sér.
Enn má nefna Jesída, sér-
kennilegan trúflokk norðanlands
með ýmislegt úr kristni og eldri
trúarbrögðum þar í löndum. Þeir
teljast öðmm þræði kúrdneskur
ættbálkur. Jesídar hafa fýrir satt
að Guð hafi fýrirgefið Kölska
(Lúsífer) að hann gerði uppreisn
gegn honum í himnaríki forðum
tíð. Stafar þetta af óbifanlegri trú
Jesída á sigur hins góða, en
vegna þess hafa þeir óverðskuld-
að orð á sér sem djöíladýrkend-
ur.
Sunnarlega i landi em Man-
dear. Trú þeirra er arfur frá guð-
vísi (gnostík) og írönskum trúar-
brögðum. Frægt er að þeir hafa
Jóhannes skírara í hávegum, en
neikvæða afstöðu til Krists. Af
þeim munu nú sárafáir eftir.
VÆNTANLEG MEÐAL-
ÆVILENGD: 64 ár.
STÆRSTU BORGIR: Bag-
dað (íb. 3,2 milj.), Basra (íb. 1,6
milj.), Mosúl (íb. 1,2 milj.).
EFNAHAGS- OG AT-
VINNUMÁL: Aðalauður lands-
ins er olian; fýrir Persaflóadeilu
fékk það yfir 90 af hundraði út-
flutningstekna sinna fýrir hana.
Fyrir tekjumar af henni hefur Ir-
ak orðið eitt mestu hervelda
heims, auk þess sem á áttunda
áratug og þeim níunda hefur átt
sér stað mikil uppbygging iðnað-
ar. Um 35 af hundraði vinnandi
fólks hefur framfæri sitt af land-
búnaði, en fýrir Persaflóadeilu
vora þó 70-80 af hundraði mat-
væla sem landsmenn neyttu flutt
inn. Þekktasta framleiðsluvara
landsins fýrir tíð olíunnar var
döðlur.
Markvissasta
loftsókn sögunnar
Cheney: í átta af hverjum tíu árásum hittu flugvélar í mark. Ekkert varð
úr árásum á Israel. Lítið um vamir af hálfu Iraka
Saúdiarablsk orrustuflugvél af gerðinni Tornado - aldrei hefur hittnari og
tæknivæddarí flugher farið i stríð.
Afyrstu 14 klukkustundum
nýhafins stríðs milli Banda-
ríkjanna og bandamanna
þeirra annarsvegar og Iraks
hinsvegar flugu bandarískar,
breskar, franskar, saúdiarab-
ískar og kúvætskar stríðsflug-
vélar yfir 1000 árásarferðir inn-
yfir Irak og Kúvæt. Á sama
tíma var yfir 100 stýriflaugum
af gerðinni Tomahawk skotið á
skotmörk í löndurn þessum frá
bandarískum herskipum á
Persaflóa.
Skotmörk flugvéla og eld-
flauga vom öðm fremur stjóm-
stöðvar hers íraka, flugvellir
þeirra og eldflaugastöðvar. Að
sögn Dicks Cheney, vamarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, hittu
flugvélamar mörk sín í 80 af
hundraði árásanna.
Hátæknivæddur
flugher
Fullvíst er talið að aldrei fýrr í
hemaðarsögunni hafi verið gerð
betur tæknivædd loftsókn en
þessi. Er svo að sjá að sú tækni,
sem mun hafa gert árásarflugvél-
unum fært að trufla fjarskipta- og
viðvaranakerfi Iraka, athafna sig
að nóttu til sem á degi og hitta
skotmörkin af meiri nákvæmni en
áður hefur þekkst, hafi orðið til
þess að sóknarflughemum hafi
tekist að lama hemaðarvél íraks
að talsverðu leyti. En Cheney og
fleiri fomstumenn bandamanna
segja að eigi að síður sé fjarri því
að fullur sigur sé unninn og lík-
legt sé að Bandarikjamenn og
bandamenn þeirra eigi eftir að
heyja þama ormstur, sem verði
þeim mannskæðari en sú fýrsta.
Vegna þess hve mikilli tækni
árásarflugvélamar vom búnar til
að miða út skotmörk sín er líklegt
að manntjón óbreyttra borgara
hafi verið með minna móti eftir
því sem gerst hefur í loftárásum,
en um það liggja þó ekki fýrir
neinar greinargóðar upplýsingar.
Sprengingar í Bagdað
Árásunum var haldið uppi
sem ákafast meðan myrkurs naut,
þar eð Irakar em ekki taldir hafa
mikla tækni til loftbardaga í
myrkri, en þær héldu áffam í gær
og búist var við að þær yrðu hert-
ar eftir að birtu brygði.
íranska fréttastofan IRNA
skýrði svo frá að skömmu eftir að
dimmt var orðið í gær hefðu þrjár
gífurlegar sprengingar heyrst í
Bagdað, jafnframt þvi að ákaft
hefði verið skotið af loftvama-
byssum. Samtímis hefðu sending-
ar stöðvast frá íraska sjónvarpinu.
Sjónarvottar í Bagdað segja
að árásarflugvélar hafi hitt m.a.
flugvöll borgarinnar, forsetahöll-
ina og helstu fjarskiptamiðstöð
landsins.
Litið varð um vamir af hálfu
iraska flughersins, en Colin Po-
well, yfirhershöfðingi Bandaríkj-
anna, segir að hann sé enn til stað-
ar. Loftvarnaskothríð Iraka var
ónákvæm.
Engir landbardagar enn
Ekki er vitað til að neitt hafi
orðið úr því hjá Irökum að skjóta
eldflaugum, með eiturgasi eða án
þess, á stöðvar andstæðinganna.
Eina árás íraka útfýrir landamæri
sín og Kúvæts til gærkvöldsins
NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 7
var að stórskotalið þeirra kveikti í
olíugeymi i saúdiarabískri olíu-
hreinsunarstöð nokkra kílómetra
frá landamæmm Kúvæts, en fljót-
lega tókst að slökkva eldinn.
Bandamenn sendu herþyrlur sem
þögguðu niður í skotvirki því,
sem áminnst skothríð kom frá. Að
öðmm leyti hafði ekki komið til
landbardaga í gærkvöldi svo heit-
ið gæti.
Ekki hafði í gærkvöldi enn
komið til eldflaugaárása Iraka á
Israel, eins og þeir höfðu hótað, ef
til vill vegna þess að bandarískar
fiugvélar eyðilögðu tvær eld-
flaugastöðvar í írak skammt frá
jórdönsku landamærunum. Er tal-
ið að flaugamar þar hafi verið
ísrael ætlaðar. Þar í landi létti
fólki stómm við þetta, en tals-
maður hersins þar telur þó að enn
kunni Irakar að eiga flaugar, sem
nota megi til að skjóta eiturgasi á
Israel.
Þrátt fyrir skelfilega útreið á
fýrsta degi stríðsins og lélega
frammistöðu hers síns er Saddam
Hussein íraksforseti áfram hinn
brattasti. í gær kallaði hann Bush
Bandaríkjaforseta Kölska í Hvíta
húsi og kvað Iraka fagna því að
heyja nú „styijöld allra styrjalda“,
sem þeir vissulega myndu vinna
með guðs hjálp. Lagði hann
áherslu á að þetta væri heilagt
strið milli sanntrúaðra (múslíma)
og (kristinna) vantrúarmanna.
Italir og Tyrkir
vígreifir
Sigrar Bandarikjamanna og
bandamanna þeirra fyrsta sólar-
hring stríðsins út af Kúvæt hafa
gert að verkum að ýmsir, sem með
þeim standa en hafa þó ekki verið
ýkja kappsamir um það, hafa nú
fýllst vjgamóði. Þannig ákváðu
stjómir Ítalíu og Hollands í gær að
hersveitir frá þeim skyldu hefja
þátttöku í stríðinu.
Þá samþykkti tyrkneska þingið
í gær, fýrir atbeina Turguts Özal
forseta, að Bandaríkjamönnum
skyldi heimilt að npta flugvelli I
Tyrklandi til árása á Irak. Skömmu
áður hafði þingið samþykkt heim-
ild til „tyrkneskra og erlendra her-
sveita á tyrknesku landi“ að taka
þátt í striðinu gegn lrak.
Berjumst til síðasta
barns
Azmi Shafiq al-Salihi, am-
bassador íraks í Bretlandi, sagði í
gær að ekkert væri írökum síður í
hug en að gefa eftir í Persaflóa-
deilu og láta Kúvæt af hendi.
Myndu þeir berjast til síðasta
bams, eins og ambassadorinn orð-
aði það.
Dæmalaust hrun
olíuverðs
Olíuverð á heimsmarkaði
hrandi um 8,47 dollara á tunnu í
gær, niður í 20.50 dollara og hefur
aldrei fýrr fallið svo mikið á einum
degi. Er þetta verðspá fýrir mars
hjá North Sea Brent í Lundúnum.
Skömmu áður höfðu verðspár
verið yfir 30 dollumm á tunnu í
Asíu. Aðalástæðan til þessa
dæmalausa verðhmns er að ekkert
varð úr því í fyrrinótt og gær að ír-
akar skytu eldflaugum á olíulindir
Saúdi- Arabíu, mesta olíuútflutn-
ingsríkis heims. Búist var við að
þeir gerðu það er strið hæfist á
Persaflóasvæði, og að af því
myndi hljótast tjón á olíumann-
virkjum eða að minnsta kosti tmfl-
anir á olíuffamleiðslu.