Þjóðviljinn - 18.01.1991, Blaðsíða 28
Föstudagur 18. janúar 1991 - 56. árgangur 12. tölublað
EYJAR RAFRUN H.F. Smirtinvpni 11 F
... alla daga ARNARFLUG INNANLANDS hf. Reykjavíkurflugvelli - sími 29577 Alhliða rafverktakaþjónusta
Sími641012
.
Grænu fjölskyldumar á Islandi eiga að komast að þvi hvemig það gefst að vera vistarvænn I innkaupum og ella (hversdagslffinu.
Norrænt umhverfisár
Grænar
fjölskyldur
óskast
Verkefni á vegum nor-
ræns umhverfisárs:
Fimm íslenskar Qöl-
skyldur eiga að lifa
grænu hversdagslífi í
fjóra mánuði
Þetta hefur fengið alveg skin-
andi góð viðbrögð. Við erum
komnir með átta fjölskyldur sem
vilja taka þátt í þessari grænu til-
raun og erum mjög ánægðir með
það, segir Einar Sæmundsen,
garðyrkjustjóri í Kópavogi, í sam-
tali við Nýtt Helgarblað.
I febrúar hefst verkefni í
tengslum við norrænt umhverfis-
ár, sem felst í því að um 25 fjöl-
skyldur á Norðurlöndum munu
leitast við að lifa vistarvænu lífi
næstu fjóra mánuðina. Um síð-
ustu helgi var auglýst eftir sjálf-
boðaliðum til þess að taka þátt í
þessari tilraun, en gert er ráð fyrir
að fjölskyldur í Kópavogi, á
Akranesi, í Neskaupstað, Grinda-
vík og á Eyrarbakka taki þátt í
verkefninu fyrir íslands hönd.
Vinabæir þessara bæja á Norður-
löndunum taka einnig þátt í verk-
efninu.
Verkefnið á að hefjast í byrjun
febrúar og standa út maí, og segist
Einar Sæmundsen gera ráð fyrir
að græna fjölskyldan í Kópavogi
verði valin eftir helgi.
- Græna fjölskyldan á að leit-
ast við að lifa vistarvænu lífi, en
það er svo spuming hvað felst í
því. Á hinum Norðurlöndunum
má gera ráð fyrir að orkuspamað-
ur verði mjög í brennidepli, en hér
verður áherslan líklega meiri á að
draga úr umbúðum, að nota end-
urunnar vömr og vörur sem ekki
skaða umhverfið. Þá hef ég meðal
annars þvottaefni og þess háttar í
huga. Einnig verður að huga að
notkun einkabíls og möguleikum
á því að nota almenningssam-
göngur.
- Kannski verður þessi tilraun
framtíðin fyrir okkur öll, segir
Einar við Nýtt Helgarblað.
Gera má ráð fyrir að fjöl-
skyldumar 25 bregði talsvert út af
venjunni meðan tilraunin stendur
yfir. Þær eiga að halda dagbók,
skrá hvað er erfitt og hvað auðvelt
og svo ffamvegis. Að þessu fjög-
urra mánaða tímabili loknu verð-
ur dagbókum fjölskyldnanna og
öðmm gögnum svo safnað saman
og verður unnin skýrsla upp úr
þeim. Loks er gert ráð fyrir að
fjölskyldumar hittist næsta sumar
og beri saman bækur sínar.
En telur Einar að íslensku
fjölskyldunum reynist auðvelt að
vera vistarvænar?
- Það hefúr alls ekki verið það
til þessa, en þetta er að breytast.
Maður er aðeins að byija að sjá
vistarvænar vömr í stórmörkuð-
um og sums staðar em hillur
merktar sérstaklega, til dæmis þar
sem endumnninn pappír er á boð-
stólum. Sala á slíkum pappír hef-
ur stóraukist bæði til heimila og
fyrirtækja.
- Við emm að taka við okkur í
þessu og sjálfúr reyni ég alltaf að
kaupa vistarvænar vömr þegar ég
á kost á því, segir Einar Sæmund-
sen.
-gg
Einar Sæmundsen: Það hefur alls
ekki verið auðvelt að vera vistar-
vænn á fslandi, en þetta er að
breytast. Mynd: Kristinn.
O I
J GRÆt
LETTOSTAR , þrír góðir á léttu nótunum
MUNDU EFTIR OSTINUM
LÉTTOSTUR
rf-í