Þjóðviljinn - 08.02.1991, Page 8
NÝTT
þJOÐVILJINN
Útgefandlr Útgáfufélagið Bjarki h.f Framkvæmdastjórl: Hallur Páll Jónsson Rltstjórar: Ami Bergmann, Ólafur H. Torfason, Helgi Guðmundsson llmsjónarmaður Helgarblaðs: Ragnar Kartsson Fréttastjórl: Slgurður A. Frlðþjófsson Afgrelðsla:« 6813 Auglýsingadeild:» Símfcix: 68 19 35 Vérð: 150 krónur I la Setning og umbrot Prentun: Oddi hf. 33 68 13 usasöl Prents 10-68 13 31 J míðja Þjóðvil ans hf.
Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson Aðsetur: Slðumúfa 17, 108 Reykjavlk
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Þegar stríðinu lýkur
Hemaðarsérfræðingum mistókst að
spá fyrir um framvindu fyrstu þriggja vikn-
anna í átökunum við Persaflóa, sem nú
eru liðnar. Fjölmargir þeirra sem hvöttu til
stríðsins gerðu ráð fyrir því að unnt væri
að lama írak með leiftursókn í nokkra
daga. Enda varforsenda árásanna sú, að
viðskiptaþvinganir og aðrar aðferðir til
þess að herða að stjórn Saddams Huss-
eins yrðu of seinvirkar.
En stríðið dregst á langinn. Fréttir af
miklum árangri fjölþjóðaliðsins í byrjun
reyndust byggðar á misskilningi, mistök-
um og ónákvæmni. Sumir héldu að land-
hernaður hæfist innan einnar eða tveggja
vikna frá upphafi loftárásanna. Nýjustu yf-
irlýsingar foringja bandamanna benda til
þess að þeir geri ráð fyrir allt að þriggja
mánaða átökum, fari sem horfir. En vitan-
lega getur enginn spáð um þróunina eða
metið afleiðingarnar til fulls.
Það eitt er víst, að í Ijós er að koma það
sem margir friðarsinnar spáðu; stríðið er
óhugnanlegra og flytur með sér meiri
hörmungar og eyðileggingu en unnt er að
gera sér grein fýrir. Og nú er látið í það
skína að efnavopnum eða enn hroðalegri
eyðingartækni verði beitt á báða bóga, ef
nauðsyn krefur. Hermdarverk í vestræn-
um heimi hefjast, fáir verða óhultir með
þjóðum þeim sem að bardögunum
standa. Tekist hefur að efla hugarfar hat-
ursins, hefndanna og ofstækisins. Því of-
beldi kallar á ofbeldi. Með ungum kynslóð-
um margra arabalandanna eru nú ræktað-
ar hugmyndir sem eiga eftir að bera
þroska eftir einn, tvo eða þrjá áratugi.
Hugmyndir um réttlæti einhverra, ranglæti
annarra, drengskaparskyldur og heilagan
rétt. Ungu kynslóðinni með þjóðum
bandamanna, sem sefur róleg, eru brugg-
uð ráð úti í heimi.
Þessu stríði lýkur ekki, frekar en öðrum,
þegar vopnin eru kvödd. Persaflóastríðið
er bein uppskera fyrri átaka, líkt og ill skip-
an mála og skipting Evrópu var afleiðing
styrjalda. Og Eyðimerkurstorminn lægir
ekki strax og brynsveitirnar taka sér hvíld.
Sveipir hans eiga eftir að leika lengi um
hvern krók og kima þessa heimshluta og
með þróunarríkjunum samanlögðum. Þeir
bera mikla ábyrgð sem völdu leið styrjald-
arinnar og langvarandi afleiðinga hennar.
Hugsanlegt er enn, að með einhverjum
hætti náist vopnahlé eða að samningaum-
leitanir geti hafist. Frásagnir af hugarfari
íraskra stríðsfanga og yfirlýsingum þeirra
geta gefið til kynna að írösk stjórnvöld
standi höllum fæti með þjóð sinni. En
hvort sem uppreisn innan hersins, fall
Saddams Husseins, sigur fjölþjóðaliðsins
eða vopnahlé fyrir frumkvæði íransstjórn-
ar eða annarra verður til þess að binda
enda á átökin, verður eftirleikurinn beisk-
ur. Bandaríkjastjórn hefur þegar reynt að
slá á þá strengi að hún muni taka þátt í
endurreisn íraks að stríði loknu. Þar gera
menn sér þess fulla grein að sigurinn
verður dýrkeyptur í meðvitund arabaþjóð-
anna. Harðni átökin enn og dragist á lang-
inn verða þau einnig að krabbameini með
þjóðum bandamanna, þurfi þær að horfast
í augu við verulegt mannfall á vígstöðvun-
um og stöðuga ógn í heimalöndum sínum
vegna hryðjuverkahópa.
Stríði sem að sögn fjölþjóðaliðsins
byggir á umsvifamestu sókn veraldarsög-
unnar, lýkur ekki. Það verður með okkur,
með börnum okkar og barnabörnum.
Engu stríði lýkur fyrr en vopnagerð heims-
ins fær að lúta fýrir smíði plóganna. ÓHT
0-ALIT
WA© A ÞAP þýfe,
rJ^KA SWDNA te
Vie Þfe
^MtANDUR ppp
8 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 8. febrúar 1991