Þjóðviljinn - 08.02.1991, Blaðsíða 13
Götuvígin
í brjóstum okkar
Við erum reiðubúin að deyja fyrir frelsið." Fundarmaðurtalar á fundi I Taurage. Ljósm.: ólg.
„Fyrir hönd fundarmanna
og okkar íbúa Taurage vil ég af
heilu hjarta þakka fyrir þann
drengskap og það hugrekki sem
þið Isiendingar hafið sýnt með
stuðningi ykkar við sjálfstæðis-
baráttu okkar hér í Litháen.
Þessi barátta hefur ekki
bara verið friðsöm. Hún hefur
kostað okkur blóðfórnir, og á
síðustu dögum hafa 14 manns
fórnað lífi sínu fyrir freisi þjóð-
ar sinnar.
Þið hafíð séð götuvígin í
Vilnu og ég get staðfest það fyr-
ir hönd alira sem hér eru stadd-
ir, að þessi götuvígi eru hlaðin í
brjóstum okkar allra. Við erum
öll reiðubúin að láta Iífíð fyrir
frelsið."
Eitthvað á þessa leið hljómaði
ræða eins fundarmanna á opnum
borgarafundi sem íslensku þing-
mennimir Ami Gunnarsson, Eyj-
ólfur Konráð Jónsson og Jóhann
Einvarðsson sátu í bænum Taur-
age um 200 km norðvestur af
Vilnu síðastliðinn sunnudag
ásamt með blaðamanni Nýs Helg-
arblaðs.
Fundur þessi mun seint líða úr
minni þeirra er hann sóttu, og
hann var tvímælalaust einn
áhrifarikasti atburðurinn í að
mörgu leyti sögulegri ferð sendi-
nefndar Alþingis til Litháen um
síðustu helgi.
Við höfðum haldið frá Vilnu
um morguninn og átt stuttan fund
með bæjarstjóranum i þessum
litla bæ, sem telur um 30.000
íbúa, og átt tal við biskup lút-
hersku kirkjunnar í Litháen og
vomm síðan leiddir í menningar-
miðstöð bæjarins án þess að vita i
raun hvað biði okkar þar.
Þar vomm við skyndilega
leiddir inn í fundarsal sem tekur
um það bil 600 manns i sæti, þar
sem hvert einasta sæti var skipað.
Þegar þingmennimir gengu í sal-
inn risu fundarmenn úr sætum og
fognuðu gestunum með lang-
vinnu lófataki.
Það var strax ljóst af andlitum
fundargesta, að tilefni þessa fiind-
ar var þeim alvömmál, og það má
fullyrða að sjaldan eða aldrei hafa
islenskir þingmenn hlotið aðra
eins athygli á stjómmálafundi.
Þaðmátti heyra saumnál detta
þegar Ámi Gunnarsson hóf mál
sitt og eftirvæntingin skein úr
hveiju andliti, og þegar hann til-
kynnti fundarmönnum að þing-
mennimir væm hingað komnir til
þess að vinna að fullri og form-
legri viðurkenningu á sjálfstæði
Litháens risu allir viðstaddir úr
sætum og klöppuðu ákaft, og það
mátti sjá tár í augum margra.
Þetta vom rúnum rist andlit af
harðri lífsbaráttu og áratuga nið-
urlægingu og fátækt, og það var
eins og þetta fólk tryði vart sínum
eigin augum og eymm, að heyra
slík orð af vömm hinna erlendu
gesta.
Þingmennimir lýstu hug-
myndum sínum um lýðræði og
frelsi einstaklingsins og rétt
hverrar þjóðar til að ráða sér sjálf,
auk þess sem þeir lýstu áhrifun-
um sem þeir hefðu orðið fyrir af
ferð sinni.
Þegar þeir höfðu allir lagt sitt
til málanna og skýrt meðal annars
fyrir fundargestum, að þótt þcir
stæðu fyrir andstæðar fylkingar í
íslenskum stjómmálum, þá væm
þeir allir einhuga í þessu máli,
stóð einn maður upp í miðjum
salnum og mælti þau orð sem rak-
in vom hér í upphafi.
Þetta var lágvaxinn maður en
ákveðinn i fasi og svo fastur fyrir
og hljómmikill í orðum sínum, að
það var eins og þau kæmu ein-
hvers staðar djúpt úr þjóðarsál-
inni. Þau vom jafnframt svo til-
fmningaþmngin að það var eins
og salurinn talaði allur einum
rómi þessa manns, og fjölmargir
fundargesta támðust.
Ræðan sagði allt sem þetta
fólk hafði að segja. Það þurfti
ekki fleiri ræður. Nokkmm skrif-
legum fyrirspumum var síðan
svarað og í lokin komu fundar-
gestir og færðu þingmönnunum
blóm og gjafir á meðan aðrir risu
úr sætum sínum og kvöddu með
dúndrandi lófataki.
„Þetta er minnisstæðasti fund-
ur sem ég hef nokkum timann set-
ið,“ sagði Ami Gunnarsson eftir
fundinn, og hinir þingmennimir
Frásögn af
feröalagi til
LITHÁEN
tóku í sama streng. Þeir vom
sýnilega allir djúpt snortnir og
fúrðu lostnir í senn.
Viðtökur fundargesta höíðu
sagt þeim meira en öll orð forset-
ans, forsætisráðherrans og ann-
arra ráðamanna í Litháen, sem
þeir höfðu setið fundi með síð-
ustu daga.
Hvemig gat það gerst, að
samfélag þjóðanna skyldi láta þá
kúgun og niðurlægingu viðgang-
ast, sem þetta fólk hafði mátt þola
í hálfa öld án þess að það ætti sér
vart nokkum málsvara?
Hvemig má það vera að þeir
sem nú standa blóðugir upp fyrir
axlir i hemaði suður i Irak i nafni
frelsis og lýðræðis skuli athuga-
semdalítið láta það viðgangast að
rúllað sé yfir þessa gömlu evr-
ópsku menningarþjóð með of-
beldi og óstjóm sem lýsir gjald-
þroti sínu best nú í skriðdrekun-
um sem við sáum fyrir framan út-
varpshúsið, sjónvarpstuminn, út-
gáfumiðstöð dagblaðanna og
pappírslagerinn? Hvergi annars
staðar en þar sáum við rauða fána
blakta í Vilnu, og er nú lítið lagst
fyrir það gamla ffelsistákn.
Valdaránstilraun
setuliðsins
Þegar sovéski herinn lét til
skarar skríða í Vilnu þann 13.
janúar síðastliðinn var það greini-
lega ætlunin að steypa lýðræðis-
lega kjörinni ríkisstjóm og þingi
þjóðarinnar. Hermennimir á
skriðdrekunum stefndu að þing-
húsinu líka, þar sem forsetinn Vy-
tautas Landsbergis var innan
dyra, en urðu ffá að hverfa því
það stóðu tugþúsundir manna
vörð um húsið.
Það er furðuleg reynsla að
koma í þinghúsið í Vilnu í dag.
Á leiðinni þurftum við að aka
í gegnum tvö rammgerð götuvígi
sem gerð em af stórum steyptum
bryggjukeijum og strendingum úr
strengjasteypu. Það sama blasir
við þegar komið er að þinghúsinu
sjálfu, það er allt meira og minna
umlukið slíkum steinblokkum,
jámnetum, gaddavírsflækjum og
sandpokavígjum. Varðeldar loga
víðsvegar í kringum húsið, þar
sem fólkið sem staðið hefur vörð
um húsið dag og nótt síðustu vik-
umar, heldur á sér hita í 13 gráða
ffosti.
Víggirðingin í kringum þing-
húsið hefiir öll verið skreytt með
hvers konar yfirlýsingum, teikn-
ingum og slagorðum, þar sem
fólk hefur fengið útrás fyrir hug-
myndaflug sitt og heift i garð
stjómvalda í Moskvu. Þar bland-
ast saman níðmyndir af Gorbat-
sjov og yfirvöldunum og helgi-
myndir sem bera vott um þann
trúarlega arf sem sjálfstæðis-
hreyfing Litháen styðst við, en yf-
irgnæfandi meirihluti þjóðarinnar
játar rómversk kaþólska trú. Á
viggirðingunni umhverfis þing-
húsið er líka fjöldi bamateikn-
inga, sem lýsa margar á áhrifarík-
an hátt hvemig bömin upplifðu
skelfingamóttina 13. janúar síð-
astliðinn.
Níöstólpi og altari
Á torginu hefiir sovétvaldinu
einnig verið reistur níðstólpi úr
nokkmm sverum tijábolum sem
þar hallast hver að öðmm. Á hann
hafa fyrrverandi flokksfélagar og
aðrir neglt heiðursmerki sín og
önnur þau hefðartákn, sem sovét-
valdið hefur verið iðið við að
skreyta þegna sína með. Orður
með borða, heiðursmerki með
hamri og sigð og vangamyndir af
Lenín, barmmerki og djásn þess
menningarsnauða yfirvalds, sem
ekki kann að mæta orðum öðm
vísi en með skriðdrekum.
Þama vora líka sovésk vega-
bréf í hrönnum negld upp á fjög-
urra tommu nagla og skírteini of-
físera og annarra yfirmanna í
hemum og viðurkenningarskjöl
og fánar, og þótt níðstöng þessi
væri orðin yfirhlaðin af slo-auti
vom menn enn að bera þangað
upphefðartákn sín og negla í
staurinn, enda vom hamarinn og
naglamir til taks hveijum sem
vildi.
Nokkur lítil öltum höfðu
einnig verið reist á torginu og við
víggirðinguna framan við þing-
húsið, þar sem helgimyndimar
vom upplýstar af kertaljósum og
á einum stað á víggirðingunni
mátti sjá íslenska fánann málaðan
með orðunum „Þakka þér ís-
land“.
Föstudagur 8. febrúar 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA13