Þjóðviljinn - 08.02.1991, Blaðsíða 23
Verðir laganna komnir á sporið: Úr þáttaröð Davids Lynchs
Tvídröngum.
Trylltir tónar
frá Tvídröngum
Bandaríski leikstjór-
inn David Lynch átti
mikilli velgengni að fagna
á síðasta ári. Fyrst voru
það Tvídranga-þættirnir
(Twin Peaks), sem slógu í
gegn en síðan kvikmynd-
in „Tryllt ást“ (Wild at
heart). Tónlistin í þessum
verkum hefur einnig vak-
ið mikla athygli og nú
skulum við beina vasa-
ljósinu að henni.
David Lynch hefiir
sjálfur yfirumsjón með tón-
listinni, en aðal hjálpar-
hella hans er hið gamal-
reynda tónskáld Angelo
Badalamenti. Hann hafði í
mörg ár samið tónlist fyrir
ýmsa sjónvarpsþætti, aug-
lýsingar og einstaka kvik-
myndir, en eftir að sam-
starf hans við Lynch hófst
hafa hlaðist á hann kvik-
myndaverkefni. Samvinna
þeirra hófst árið 1986 þeg-
ar Lynch vann að myndinni
„Blue velvet“. Framleið-
andinn Fred Caruso mælti
með Badalamenti til að
semja titillag fyrir mynd-
ina. Á þessum tíma vann
Badalamenti að kántri-
söngleik og var þar var ung
söngkona, Julee Cruise, við
æfingar. Lynch mætti á æf-
ingu og heillaðist strax af
hinni sérstöku rödd Cruise
og hún var fengin til að
syngja titillag Blue velvet,
hið angurværa „Mysteries
of Love“.
Samstarfið hefur hald-
ist síðan. Lynch á allar
grunnhugmyndir en Ba-
dalamenti kemur þeim til
skila. Þeir dvelja saman i
hljóðveri, Badalamenti við
flygilinn, og spinna tónlist-
ina. Þegar t.d. Lynch biður
um dimma skrýtna
stemmningu, hamast Ba-
dalamenti á flyglinum, seg-
ulbandið í gangi, og ekki er
hætt fyrr en tekist hefur að
ná fram nákvæmlega því
sem Lynch vildi. Á síðasta
ári komu fjórir titlar út úr
þessu skrítna samstarfi;
sólóplata Julee Cruise,
„Floating in the night“,
myndbandið „Industrial
symphony No 1“, og tón-
listin úr Tvídrangaþáttun-
um og úr Trylltri ást.
Á „Floating in the
night“ syngur Julee Cruise
tíu lög. Platan hefiir verið í
vinnslu síðan Wamer Brot-
hers fyrirtækið heyrði og
hreifst af „Mysteries of lo-
ve“, en það lag er að finna
á plötunni. Hinn englalegi
söngstíll Cmise er fullkom-
inn í að túlka texta Lynch
sem fjalla flestir um svif
ýmiskonar um óravíddir
ástarinnar og gætu allt eins
verið eftir ástfangna ferm-
ingartelpu með óráði. Tón-
listin er ljúf og flýtur áfram
í óræðu gufumistri en kem-
ur þó sífellt á óvart með
kynlegum smáatriðum.
Platan hlaut einróma lof
gagnrýnenda og var af
mörgum talin með bestu
plötum siðasta árs.
Myndbandið „Industri-
al symphony No. 1“ er um
klukkutíma löng upptaka
frá samnefndum gemingi
sem David Lynch setti upp
í New York 1988. Julie
Cmise syngur nokkur lög
af sólóplötunni, oftast
hengd upp á þráð nokkrum
metrurn yfir sviðinu. Þar
fara ffam dularfullir hlutir,
dvergur sagar í tijástofh,
naktir líkamar skríða út og
inn um bílhræ og risastórt
geimhreindýr birtist með
látum, svo fátt eitt sé nefht.
Á Tvídrangaplötunni
em þijú lög af sólóplötu
Cmise og svo ýmsar
stemmur úr þáttunum. Þeir
sem fylgjast sem spenntast-
ir með þáttunum ættu endi-
lega að fá sér plötuna og
rifa upp ýmsa unaðshrolli.
Sérstaklega er þemað um
hina myrtu Lauru Palmer
eftirminnilegt, en þar tekst
tónlistinni að magna upp
kitlandi gæsahúð og gefa í
skyn að ekki sé allt sem
sýnist og að undir yfirborð-
inu kraumi óljós illska.
Tónlistin úr Trylltri ást
hefur selt vel hér á landi
upp á síðkastið. Þar er
Juliee Cmise víðsfjarri en
Lynch og Badalamenti
magna upp ýmiskonar
skrítnar stemmningar.
Einnig er að finna á plöt-
unni tvö gömul Elvis-lög
sem leikarinn Nicolas Cage
syngur með tilþrifum,
nokkra sígilda slagara, tvö
lög ffá popparanum Chris
Isaak og mjög kröftugt
speed-metal lag ffá hljóm-
sveitinni Powermad. Sú
hljómsveit kemur ffá
Minneapolis og Iagið,
„Slaugterhouse“ kom fyrst
út á breiðskífu þeirra „Ábs-
olute power“ árið 1989.
Tvíeykið Lynch og Badala-
menti em nú að vinna að
söngleik og kæmi ekki á
óvart að þar yrðu famar al-
gjörlega ótroðnar slóðir.
-GUNNI
Engar
hömlur!
Óvæntur glaðningur rekur á dansgólf
áhugamanna nú um fótfimi nú um helgina
þegar Manchester- sveitin 808 STATE treð-
ur upp í Lídó í kvöld og annað kvöld.
Hljómsveitin kom til landsins á mánudag
og vann að myndbandi ásamt kvikmynda-
gerðarmanninum Óskari Jónassyni sem
m.a. hefur gert flest myndbönd Sykurmol-
anna. Myndbandið er fyrir lagið „Oops“,
gefið verður út á smáskífu í byrjun aprfl, og
er tekið ofan og neðan jarðar í nágrenni
Reykjavíkur. Það er sjálf Björk Guð-
mundsdóttir sem fer með aðalhlutverkið í
Iaginu og í myndbandinu, en samstarf
Bjarkar og 808 STATE hófst þegar hún
hringdi í þá á síðasta ári og bað þá um að
vina með sér að nokkrum hugmyndum sem
hún hafði í huga. Lögin urðu tvö, „Qmart“
og áðurnefnt „Oops“ og eru bæði á annarri
breiðskífu 808 STATE sem kemur út í byrj-
un mars.
808 STATE er í dag ein vinsælasta dans-
hljómsveit Bretlands og hefur margoff komið
lögum sinum á topp 20 breska smáskífiilist-
ans. Meðlimimir era fjórir, höfuðpaurinn
Martin Price sem veitir hljómsveitinni tónlist-
arlega andagift, tölvusnillingur hljómsveitar-
inanr Graham Massey sem forritar og tekur
upp, og plötusnúðamir Darren og Andy. Tón-
list 808 STATE flokkast undir harða Hause-
tónlist og hefiir haft stefhumótandi áhrif á
danstónlist nýhafins áratugar.
í stuttu spjalli við Björk sagðist hún líta á
sig sem „session" meðlim í lögunum tveim, þó
hún hafi samið bæði texta og laglínu. Hún
skilgreindi tónlistina sem Búrúndí trommu-
slátt Manchesters, og sagði að 808 STATE
væri ein af fáum danshljómsveitum í Bretlandi
í dag sem hefði einhvem karakter. „Flestar
danshljómsveitir Bretlands eru að elta á sér
skottið, hafa engar nýjar hugmyndir, en 808
STATE era að fara eitthvað,“ sagði Björk og
bætti við: „Tónlist 808 STATE er danstónlist
og fólk má ekki taka hana fyrir annað. Fólk á
ekki að setjast niður með heymartól og stúdera
lögin. Þetta er líkamatónlist." Til leiðbeining-
ar fyrir tónleikagesti hafði Björk þetta að
segja: „Þegar fólk kemur á tónleikana verður
það að dansa. Fólk á helst að mæta í æfingar-
göllum og sleppa sér lausu. Engar hömlur!"
Björk kemur fram með 808 STATE og
HELGARVAGG
Fólkið sem lætur þig svitna um helgina: Björk og 808 State. Mynd: Jim Smart.
frumflytur lögin tvö. Auk fjórmcnninganna
kom plötusnúðurinn Tony Ross til landsins og
Gunnar L.
Hjálmarsson
mun stjóma tónaflóðinu fyrir og eftir hljóm-
leikana bæði kvöldin. Hann er vinsælasti
plötusnúður í Bretlandi um þessar mundir og
hefur þeytt skífiim á vinsælustu skemmtistöð-
um Bretlands og Ibiza. I lokin er rétt að minn-
ast á að sérstakt laserljósakerfi verður sett upp
í Lidó fyrir kvöldið, en kerfið er sérforritað
fyrir 808 STATE og alltaf notað á hljómleik-
um þeirra í Bretlandi.
- Gunni
Föstudagur 8. febrúar 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SfÐA 23
Vaggtíðindi
■Trommarinn fingrafimi, Birgir
Baldursson, er hættur f Bless og
genginn í Sálina hans Jóns míns.
Sálin er að vinna að nýju efni og
óráðið er um útgáfu. Auk þess að
vera í Sálinni er Birgir aðstoðarmað-
ur í dauða- poppsveitinni Reptilicus
og fastur meðlimur f Mannakorni,
ásamt þeim Magnúsi Eiríks, Pálma
Gunnars og Hammond-hetjunni
Karli Sighvats, sem nýverið gekk í
sveitina. Sami hópur myndar einnig
Blús-kompaníið sem nú er í hljóðveri
að hljóðrita blús-skífu. Áætlað er að
gefa plötuna út með vorinu...
■Television hét eftirminnileg
rokksveit sem starfaði í New York og
gaf út tvær breiðskífur. Þegar leiðir
skildi 1979 sneri aðalmaðurinn, Tom
Veriain, sér að sólóverkefnum og
gaf út þrjár sólóskífur á sfðasta ára-
tug. Nú virðist sem Veriain sé orðinn
leiður á sólóbaukinu, því Television
hafa komið fram af og til upp á síð-
kastið og góðar líkur eru á varanlegri
endurreisn...
■.Svissneski sérvitringurinn, Di-
eter Meier sem leiðir danspopp-
hljómsveitina Yello hefur stofnað
eigið hljómplötufyrirtæki f Bretlandi,
Solid Pleasure. Fyrsta afurð fyrir-
tækisins er ný Yello-plata í vor...
■Þungarokkssveitin Bootlegs
gaf út sína aðra breiðskífu seint á
síðasta ári og seldist hún vel. Nú eru
mannabreytingar í gangi; gítarieikar-
inn G. Hannes Hannesson og
söngvarinn Júníor eru mættir, en nýr
gítarieikari Gunnar Bjarni er genginn
í sveitina. Gítarieikarinn Nonni hefur
tekið sér stöðu við hljóðnemann aft-
ur. Hljómsveitin stefnir á mikið tón-
leikahald á næstunni. G. Hannes er
hins vegar að íhuga gítarleikara-
stöðutilboð frá hinni efnilegu dauða-
rokksveit Infusoria, sem áður hét
Sororicide, en áform Júníors eru á
huldu...
■Ómar Arnarsson í plötubúðinni
Þruman á Laugavegi hefur gefið út
snældu með pönkhljómsveitinni
Sogblettum. Um er að ræða fimm
lög sem voru á fyrstu plötu þeirra og
á fyrstu Snari safnspólunni, en báðir
þessir titlar hafa verið ófáanlegir um
árabil. Snældan verður aðeins fáan-
leg í Þrumunni. Næstu útgáfuform
eru óákveðin, en hugmyndir eru
uppi um að gefa út hljómleikaefni
með rokkhljómsveitinni Dýrið geng-
ur laust...
■Tónlistarlíf úti á landsbyggð-
inni er oftast ekki mikið f sviðsljós-
inu, en nú berast fréttir um öfiugt
rokklíf á Húsavik. Rotþró, ein helsta
hljómsveitin þaðan, er væntanleg til
Reykjavíkur í næstu viku og mun
leika á Kjallara keisarans, fimmtud.
14., og á Tveim vinum sunnud. 17.