Þjóðviljinn - 08.02.1991, Page 20
w
2T~
10
]2 0
T
Jé>
9
T
2J
28
S2
//
2i
2T
~zr
26'
ZT
W
l<r
9
TV
w
y>
V
izr
w
5~
T
5"
Fr
y*
r
W
lb
J6~
2
/<?
^2"
/9
T
f?f
CJ?'
25T“«r
2?
W
F
7T
/5
jsr
W
0
ST
fT
w
[w
w
21
W
w
5
w
2J
W
Ww
¥ ísr
isr
W
w
/s
1/5
W
w
w
w
3W
r
w
TU~
T
)(?
T—JV
¥
W
21
W
Uo
30
1
w
/9
W
J<i TT~ T
10
17-
W~?3
Kf
w~w
w
w~w
2T
;T"R/f
9
U
2T
6
W
w
7zr
Ta
<^rr
zr
w~
m
n
H
72
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓP R S T 11 11 >' Y V..Ý b & Ó
Krossgáta nr. 133
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá örnefni.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðu-
múla 37, 108 Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 133“. Skilafrestur er
þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
V 15 Jé )0 )°! 31 1 25 23
Lausnarorð á krossgátu nr. 129 var Mykjunes. Dregið var úr réttum Verðlaun fyrir krossgátu nr. 133 em
lausnum og upp kom nafn Maríu D. Steingrímsdóttur, til heimils á „Ég og lífið.“ Inga Huld Hákonardótt-
Hjaltabakka 22, Reykjavík. Hún fær senda skáldsöguna „ViHikettir í irræðirviö Guðrúnu Ásmundsdóttur.
Búdapest” eftir Einar Heimisson. Vaka-Helgafell gaf út 1990. Vaka-Helgafell gaf út 1989. \
Mikiö skal haft
viö til heiöurs
Kólumbusi
Dóminikanar reisa sæfaranum írá Genúa
glæstan minnisvarða. Hinn aldni forseti landsins
lætur bágborið efhahagsástand sig
litlu skipta
Yfir fátækrahverfum Santo
Domingo,
höfuðborgar Dominikanska
lýðveldisins, hefiir að undan-
fomu risið ferlíki eitt mikið til
minningar um þann atburð að á
næsta ári eru liðin 500 ár frá því
að sæfarinn frá Genúa, Kristófer
Kólumbus, sté fæti sínum fyrst á
fast land í Ameríku.
Mannvirkið sem hér um
ræðir er viti og nefnist á máli
innfæddra E1 Faro a Colón (Kól-
umbusar- vitinn) er hugarfóstur
hins áttræða og blinda forseta
landsins, Jóakims Balaguers.
Þrátt fyrir hávær mótmæli gegn
þessum flottræfílshætti forset-
ans, lætur hann hvergi á sér bil-
bug flnna og svarar gagnrýnend-
um því einu til, að hann viti
ósköp vel að landsmenn hans
vanti skó og klæði. - Faro verð-
ur hálstauið þeirra, segir Balagu-
er.
Balaguer er staðráðinn í því
að hvergi verði til sparað svo að
tímamótin á næsta ári verði lengi
í minnum höfð. A vígsluathöfn-
ina sjálfa býst Balaguer við að
Karl Jóhann Spánarkonungur
láti svo lítið að sækja heim þessa
fyrrum nýlendu Spánar sem og
páfinn í eigin persónu.
Það er óhætt að segja að al-
menningur muni ekki taka smíði
minnismerkisins út með sæld-
inni. Þrátt fyrir það að ekki sé al-
veg ljóst hve mikill hluti opin-
berra útgjalda hefiir farið í smíði
minnismerkisins síðan hún hófst
fyrir rúmum fjórum árum. Engu
að síður er ljóst að síðan þá hef-
ur verðbólga farið úr tíu upp í 70
af hundraði, atvinnuleysi nefur
aukist og er nú ætlað að um 40%
vinnufærra manna mæli götum-
a_r, og síðast en ekki síst hefur
rikissjóður ekki getað staðið í
skilum með afborganir á erlend-
um skuldum.
En það er ekki einingis
kostnaðurinn sem landsmenn
Balaguers hafa hreyft mótbámm
við. I rauninni er allt á huldu um
það hvort Kólumbus hafi fyrst
eða jafnvel nokkum tímann stig-
ið fæti sínum á það land sem nú
telst vera Dóminikanska lýð-
veldið er hann „fann“ Ameríku.
Pétur
Tyrfingsson
skrifar um blús
Eg vaknaði mæddur í morgun
■ HOI
Son House -
Blúsklerkurinn
Frá 1925 og fram á kreppuár-
in blómgaðist útgáfa á plötum
blúsmanna úr suðurhémðum
Bandaríkjanna. í kreppunni dróst
þessi útgáfa saman. Frami margra
blúsmanna tók enda með þessum
samdrætti. Einn þeirra blúsmanna
sem illu heilli varð illa úti var Son
House. Grátlegt er að bara örfá
lög em til á plötum með þessum
mikla meistara frá blómaskeiði
hans.
Eddie James House jr. fæddist
21. mars 1902 í Clarksdale í
Mississippi. Hann lifði æskuárin í
Louisiana því hann flutti úr fylk-
inu á bamsaldri. 18 ára kvæntist
hann konu sem var 32 ára og basl-
aði við búskap með henni í Lou-
isiana. Eftir 5-6 ár fór Son House
frá konu og búi og hélt til Clarks-
dale í Mississippi. Þar hefur hann
líklega lært að spila á gítar og
byrjað að syngja blús.
Son House var af guðræknu
fólki kominn og sjálfur kirkju-
rækinn. Hann byijaði ungur að
predika. Drykkjuskapur, kven-
semi og blús tosuðu hann frá
kirkjunni. Blús var tónlist djöf-
ulsins. Innra með Son House
glímdu þeir alla tíð predikarinn
og blúsmaðurinn.
Son House varð manni að
bana í sjálfsvöm og dæmdist til
refsivistar á Parchman-farm, sem
margur blúsmaðurinn hefur sung-
ið um. Við getum velt því fyrir
okkur hvort þar hafi sálmasöngv-
arinn kynnst og æft blússöng. Son
House losnaði úr prísundinni eftir
2 ár (sennilega 1928-9). Honum
var gert að yfirgefa sýsluna og
lagðist í ferðalög.
Á ferð um Lula í Mississippi
árið 1929 kynntist Son House
þeim Charlie Patton og Willie
Brown. Með Brown og Son
House tókst mikil vinátta sem að-
eins dauði Browns batt endi á.
Þegar Patton átti kost á að hljóð-
rita fyrir Paramount 1930 kom
hann bæði Son House og Brown á
ffamfæri. Þrir blúsar sem Son
House söng við þetta tækifæri em
með þeim mikilfenglegustu frá
þessum tíma, - „My Black
Mama“, „Dry Spell Blues“ og
„Preachin' Blues“.
Það er í síðastnefnda
blúsnum sem við
skynjum sálartríð
predikarans og blús-
mannsins. Þessir
blúsar Son House
frá 1930 em dreifðir
á þijár sígildar saín-
plötur sem geyma
einnig annan Miss-
issippi- blús sem
gaman er að eiga:
„The Mississippi
Blues 1927-1940“
(Origin of Jazz Libr-
ary 5), „The Miss-
issippi BÍues No. 2“
(OJL 11) og „Re-
ally! The Country
Blues“ (OJL 2).
Árið 1933 fór Son House með
Patton-genginu í pmfuupptökur
hjá ARC í Jackson-borg. Eftirþað
fóm House og Brown saman til
Lake Comorant þar sem þeir
héldu til á Mr. Cox's plantekmnni
og spiluðu þar saman í mörg ár.
Þegar Patton og Bertha Lee fóm
til New York '34 að taka upp fyr-
ir ARC, bámst boð til Son House
um að koma líka. Það lýsir við-
horfi hins fallna predikara að
hann taldi sig hafa öðm að sinna!
Son House var ein mikilvæg-
asta fyrirmynd Roberts Johnsons
án þess þó að veita honum beina
tilsögn. Ungur sat Robert og
fylgdist gjörla með hvemig Son
spilaði á gítarinn og lærði af hon-
um fáein söngstef. Muddy Waters
fékk tilsögn hjá Son House og
minntist hans alla tíð með hlýju.
Ekki þarf annað en hlusta með
öðm eyranu á Son House til að
heyra gítarspil, laglínur og hljóð-
línur sem bergmála síðar hjá Ro-
bert Johnson og Muddy Waters.
Eftir samvinnu með Willie
Brown í áratug fluttist Son House
til Rochester í New York fylki og
fór að vinna fyrir jámbrautarfyrir-
tæki. Eitt sinn var Son House á
ferð um heimaslóðir, þegar á vegi
hans varð Alan Lomax, sem þá
var að safna blussöng fýrir þjóð-
skjalasafnið. Þar komst Lomax í
feitt og hljóðritaði Son House
1941 og 1942. Árangurinn vom
skemmtilegar og verðmætar upp-
tökur, sem fáanlegar em á hljóm-
plötu: „Son House: The Legend-
ary 1941/2 Recordings“ (Folk
Lyric 9002). Fáum ámm síðar
hætti Son House að spila og
syngja. Allir blúsvinir hans vom
dánir og því sá hann lítinn tilgang
með því.
Um miðjan sjöunda áratmg-
inn Ieituðu ungir blúsáhugamenn
að Son House og fundu hann.
Þessum aldna höfðingja var kom-
ið á ffamfæri þar sem hann spilaði
á nokkrum konsertum og söng
blús inn á breiðskífu fyrir Colum-
bia- fyrirtækið sem nú er fáanleg
með Edsel-merkinu: „Death Lett-
er“ (Edsel ED 167). Son House
átti þá rúma tvo áratugi ólifaða og
dó í hárri elli 1988.
Innra með Son House braust
áleitinn efi og hræðileg örvænt-
ing. Hann virðist alltaf hafa verið
að syngja úr sér einhvem sárs-
auka, sem hann losnaði aldrei við.
20.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 8. febrúar 1991