Þjóðviljinn - 16.02.1991, Síða 2
FRETTIR
Alþingi
Halldór
einn á báti
Frumvarp um ráðstafanir vegna loðnubrests
fluttar af sjávarútvegsráðherra einum
II alldór Ásgrímsson sjávar-
■■ útvegsráðherra lagði fram
frumvarp um ráðstafanir vegna
aflabrests á loðnuveiðum í nafni
sjávarútvegsráðherra, en ekki
sem stjórnarfrumvarp á
fimmtudaginn í Efri deild AI-
þingis.
Þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins samþykkti ekki frumvarp-
ið sem kveður á um að breyta lög-
unum um Hagræðingarsjóð þann-
ig að sjóðurinn geti úthlutað
loðnuskipunum bolfisk- og
rækjukvóta.
Óvíst er um afdrif frumvarps-
ins þar sem ríkisstjómarmeiri-
hlutinn stendur ekki að baki frum-
varpinu. Skúli Alexandersson,
Abl., sagði í gær að hann væri
mótfallinn ffumvarpinu þar sem
margir þættir þess stönguðust á
við markmið Hagræðingarsjóðs
og ýmislegt í stefnu sjávarútvegs-
ráðherra og fiskveiðilögum.
Hagræðingarsjóð var ætlað að
koma bæjar- og sveitarfélögum til
hjálpar í þeim tilfellum þegar þau
missa kvóta og skip úr byggðar-
lögunum. Þess vegna er nauðsyn-
legt að breyta lögunum þegar um
sértaka aðgerð er að ræða sem
þessar ráðstafanir.
-gpm
Norræn skólaskák
Meðbyr hjá
landanum
órshöfn/rk -íslensku kepp-
endurnir á Norræna skóla-
skákmótinu, sem haldið er í
Norðurlandahúsinu í Þórshöfn
í Færeyjum, stóðu sig með
ágætum í fyrstu umferð móts-
ins, sem tefld var í gærmorgun.
í hlut íslensku skákmannanna
féllu fimm vinningar og tvö jafnt-
efli. Ólafur H. Ölafsson, annar
liðstjóra íslenska liðsins, sagðist
vera bærilega ánægður með hlut
sinna manna, en erfitt væri að spá
fyrir um framhaldið.
„Hér eru samankomnir margir
efnilegir skákmenn,“ sagði Ólaf-
ur.
I mótinu taka alls 60 keppend;
ur þátt, í fimm aldursflokkum. I
hveijum flokki eru tveir keppend-
ur frá hvcrju Norðurlandanna, að
Álandseyjum og Grænlandi frá-
töldum.
Úrslit í skákum íslensku
keppendanna í fyrstu umferð voru
sem hér segir: í flokki 17-20 ára
vann Sigurður D. Sigfússon sina
skák, en jafntefii varð í skák
Magnúsar P. Ömólfssonar. í
flokki 15-16 ára töpuðu báðir ís-
lendingamir, þeir Þórleifur Karls-
son og Ragnar F. Sævarsson, sín-
um skákum.
í flokki 13-14 ára vann Helgi
Áss Grétarsson sína skák, en
Magnús Öm Úlfarsson hélt jöfnu.
í flokki 11-12 ára unnu Amar F.
Gunnarsson og Matthías Kjeld
báðir. í yngsta aldursflokki, 10
ára og yngri, öttu íslensku kepp-
endumir kappi hvor við annan og
lagði Jón Viktor Gunnarsson
Bergstein Einarsson.
Ónnur umferð var tefld síð-
degis í gær og lágu úrslit ekki fyr-
ir þegar þetta var skrifað. Mótinu
lýkur á morgun, sunnudagskvöld
og halda keppendur til síns heima
í bítið á mánudagsmorgun.
-rk
Flotvinnubúningar
Þrenna hjá Bjama. Bjarni Friðriksson júdókappi úr Ármanni var kjörinn fþróttamaður Reykjavlkur fyrir árið
1990 I gær og er þetta þriðja sinn sem Bjarni hlýtur þessa útnefningu. Áður hafði hann hlotið þennan titil árið
1984 og 1989. Auk þess styrkir (þróttabandalag Reykjavíkur Bjarna með sérstöku fjárframlagi mánaðarlega til
að auðvelda honum æfingarframn að Olympiuleikunum sem verða í Barcelona á Spáni á næsta ári. Fyrr á ár-
inu var Bjarni kjörinn fþróttamaður ársins 1990 af Samtökum íþróttafréttamanna. Mynd: Kristinn
Loðnuveiðar
Brýnt að sýna aðgát
i
Hafrannsóknastofnun vill stórauka rannsóknir á fæðukerfi nytjafiska
Lífakkeri sjómanna
Allir bjargast sem hafa fallið útbyrðis
í flotvinnugalla
E rá því að sjómenn fóru að
■ klæðast flotvinnubúningum
við störf sín hafa þeir allir
bjargast sem á annað borð hafa
fallið útbyrðis. Áður mátti það
Seliaskóli
Mjólkin á tíu
krónur
Minnsta mjólkurfeman er seld á
tíu krónur í Seljaskóla í Breiðholti
en ekki á 15-16 krónur, eins og
fram kom í frétt frá Verðlagsstofn-
un.
Mistökin liggja í því að í byrjun
skólaárs var feman seld á því verði
sem Verðlagsstofnun greinir frá í
sinni verðlagskönnun, en það var
fljótlega lækkað í tíu krónur.
Einhverra hluta vegna barst sú
lækkun ekki til Verðlagsstofnunar
og í því liggja mistökin. Það er því
leiðrétt hér með. -grh
heita algjör undantekning að
sjómenn sem féllu fyrir borð
kæmust lífs af.
Þetta kom fram í ræðu Magn-
úsar Jóhannessonar siglingamála-
stjóra þegar kynntar voru niður-
stöður úr skyndikönnun fiski-
skipa íyrir árið 1990. Að mati
siglingamálastjóra verður því
aldrei ofmetið mikilvægi þess að
allir sjómenn, sem em við vinnu á
opnu þilfari, klæðist ávallt viður-
kenndum vinnuflotgöllum við sín
störf.
í máli siglingamálastjóra kom
fram að þótt notkun búninganna
hafi aukist mikið að undanfömu
er enn langur vegur frá því að um
almenna notkun sé að ræða. Hann
sagði að þrátt fyrir kröfur um bún-
að og fyrirkomulag, sem á að
tryggja eftir föngum að sjómenn
falli ekki útbyrðis við störf, svo
sem kröfur um lunningahæð,
rekkverk og líflínur, þá verði
þessi slys engu að síður. -grh
I akob Jakobsson forstjóri
* Hafrannsóknastofnunar
segist taka heilshugar undir
með ályktun borgarafundar í
Ólafsvík að nauðsyniegt sé að
sýna aðgát í loðnuveiðum með
tilliti til þess að loðnan er lykil-
kerti í fæðuöflun nytjafiska eins
og þorsks.
Hinsvegar sagðist Jakob ekki
geta fallist á það sjónarmið Ólafs-
víkinga að samband sé á milli
loðnuveiða á undanfömum árum
og lítillar þorskgengdar í Breiða-
firði.
Forstjóri Hafrannsóknastofh-
unar sagði ennfremur að stofnun-
in væri að berjast fyrir því að fá
heimild til að stórauka rannsóknir
sínar á fæðukerfi nytjafiska og
væri meðal annars að vinna að til-
lögum þar að Iútandi. Hvort þær
næðu fram að ganga færi síðan
eftir afstöðu ljárveitingarvalds-
ins.
Eins og kunnugt er hefur sjáv-
arútvegsráðherra heimilað veiðar
á 175 þúsund tonnum úr 525 þús-
und lonna loðnustofni sem þýðir
að stofninn verður aðeins 350
þúsund tonn. Það er 50 þúsund
tonnum minna en þau lágsmarks-
mörk sem fiskifræðingar hafa tal-
ið nauðsynlegt til að viðhalda
2 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. október 1990
stofninum, eða 400 þúsund tonn.
Jakob Jakobsson segir að
loðnustofninum sé engin hætta
búin vegna þessa mismunar.
Að undanfömu hafa verið
uppi hugmyndir um að senda
rannsóknaskip til loðnuleitar
norður á Kögurgmnn, en að mati
Hafrannsóknastofhunar þykir það
ekki tímabært fyrr en um næstu
mánaðamót.
-grh
Janúaraflinn
Munar mest um loðnuna
Heildaraflinn tœp 57þúsund tonn á móti tæpum
240 þúsund tonnum í janúar í fyrra
Heildarflskaflinn í janúar var
aðeins tæp 57 þúsund tonn á
móti tæpum 240 þúsund tonnum
á sama tíma í fyrra og munar
þar mestu hve lítið veiddist af
loðnu í síðasta mánuði, sam-
kvæmt bráðabirgðatölum Fiski-
félags íslands. Vegna ótíðar og
gæftaleysis veiddist einnig
minna af öðrum flsktegundum,
en mismunandi þó eftir skipa-
flokkum.
í síðasta mánuði veiddust að-
eins 13.700 tonn af loðnu á móti
rúmum 203 þúsundum í janúar í
fyrra. Þá fiskuðu togarar aðeins
6.794 tonn af þorski á móti 11.446
tonnum í fyrra. Aftur á móti varð
um aukningu að ræða í afla ýsu og
karfa en minnkun í ufsa. Heildar-
afli togara í janúar varð þó engu að
síður svipaður í janúar í ár og í
fýrra eða hátt í 19 þúsund tonn.
Þorskafli báta var nokkur
hundruð tonnum meiri í mánuðin-
um en í sama mánuði í fyrra eða
9.540 tonn á móti 8.733 tonnum.
Heildarafli bátanna var umtalsvert
minni í mánuðinum eða 36.874
tonn á móti 219.988 tonnum í
fyrra. Þar munar mest um loðnuna
og einnig minni síldarafla.
Þorskafli smábáta var 759 tonn
í janúar í ár á móti 984 tonnum í
sama mánuði í fyrra og var heild-
arafli þeirra 1.097 tonn á móti
1.145 tonnum á sama tíma fyrir
ári. -grh