Þjóðviljinn - 16.02.1991, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 16.02.1991, Blaðsíða 16
.augardagur 16. febrúar 1991 33. tölublað 56. árgangur RAFRUN H.R Smiðjuvefi 11 E Alhliða rafverktakaþjónusta Sími 641012 mSPURNINGINm Óttastu afleiðingar þess að is- lendingar taki upp stjórnmála- sambanu við Litháen? Þórdís Arnljótsdóttir leikkona: Samhengið skiptir máli; sömu menn og berjast fyrir sjálfstæði Litháens ganga harðast fram í þvi að við göngum í EB. En það er ekki ástæða til að óttast afleið- ingar framgöngu íslands í þessu máli. Foreldrafélög leikskóla Réttur allra barna verði tryggður Fulltrúar 12 foreldrafélaga leikskóla í Reykjavík vilja að réttur allra barna til leikskóla verði tryggður. Vilja að leikskólinn heyri einungis undir menntamálaráðuneyti Fulltrúar 12 foreldrafélaga leikskóla í Reykjavík hafa sent frá sér ályktun þar sem lýst er yfir furðu á því að réttur allra barna til leikskóla skuli ekki tryggður í leikskólafrum- varpinu. Jafnframt er lýst yfir stuðningi við að leikskólinn heyri einungis undir mennta- málaráðuneytið. Svokölluð forskólanefnd samdi á sínum tíma drög að frum- varpi um leikskóla og í drögunum var skýrt tekið fram að öllum bömum á leikskólaaldri væri tryggður réttur á leikskóla. í með- förum ríkisstjómarinnar vom svo gerðar breytingar á fmmvarpinu þannig að réttur bamsins er ekki tryggður. 1 bréfi sem foreldrafélögin sendu öllum þingmönnum á að- ventu segir að þær breytingar séu gerðar til þess að fella fmmvarpið að fmmvarpi félagsmálaráðherra um félagsþjónustu sveitarfélaga. I bréfinu til þingmanna segir orðrétt: „Breytingunum mótmæl- um við harðlega. Svo og mótmæl- um við harðlega hugmyndafræði, markmiðum og skipan frum- varpsins um félagsþjónustu sveit- arfélaga á dagvistarmálum bama þar, með því að dagvistarmál verði flutt til félagsmálaráðuneyt- isins. Að sögn Odds Sigurgeirs- sonar jarðfræðings, sem er fulltrúi hópsins sem sendi frá sér ályktun- ina, hafa engin viðbrögð orðið á bréfið ffá þingmönnum, enda er lýst yfir undrun í ályktuninni á því að alþingismenn, aðrir en fé- lagsmálaráðherra og mennta- málaráðherra, hafi ekki látið þetta mikilsverða málefhi bama og for- eldra til sín taka og em þeir hvatt- ir til að taka opinbera afstöðu til málefnisins. „Við munum fara á fund for- manna þingflokkanna og fara fram á að þeir geri grein fyrir af- stöðu sinna þingflokka til máls- ins. Við viljum vita um afstöðu stjómmálamannanna til þessa máls fyrir kosningar," sagði Odd- ur og bætti því við að þetta væri alls ekki pólitískt mál. Að álykt- uninni standa 43 fulltrúar for- eldrafélaga eftirtalinna leikskóla: Amarborgar, Álftaborgar, Gull- borgar, Jöklaborgar, Hálsaborgar, Hálsakots, Klettaborgar, Kvista- borgar, Langholts, Lækjaborgar, Valhallar og Aspar. -Sáf Óskar Mar framkvæmdastjóri: Ég tel ekki ástæðu til að óttast þær. Sovétmenn gera varla meira úr þessu, þeir mega ekki missa þá aðstöðu sem þeir hafa hérna. Koby Ohawon ferðamaður: Ástandið hefur farið versnandi í Sovétríkjunum og ef svo heldur fram sem horfir verður það aftur eins og á Stalínstímanum. Sjálf- stæðisbaráttu Litháens ber að styðja. Mengun í borgum, fljótum og jafnvel á ræktuðu landi er gífurleg í Kína. Liggur nú við hörmu- legu umhverfisslysi vegna alvarlegra mengunarvandamála verði ekkert að gert. Kolavinnsla í sveitahéraöi í Kina. Kol eru einn helsti mengunarvaldurinn i landinu. Skortur á fjármagni og þekkingu stendur úrbótum fyrir þrifum. Margar hafnir eru mjög mengaðar af olíu og skít. Verksmiðjur dæla eiturefnum í vötn og ár með hræðilegum af- leiðingum. Kol eru aðalorku- gjafinn og einnig helsti meng- urnarvaldurinn í landinu. Vandinn sem stjórnvöld eiga við að glíma er sá að ekki er til þekking og ijármagn til að bæta mengunarvarnir verk- smiðja. Umhverfisráðuneytið hefur þó látið gera lista yfir 140 helstu mengunarvalda í stór- iðnaði, sem verði að lagfæra eða eyða algjörlega fyrir árið 1995. Verði ekki orðið við tilskipun ráðuneytisins mega stjórnend- ur verksmiðja eiga von á háum sektum og jafnvel fangelsun. Áætlaður kostnaður við að hreinsa upp helstu ár og vötn er gífurlegur og er ekki séð fyrir endann á þeim vanda. I Sjanghæ, sem er verulega menguð borg, er verið að vinna að byggingu vatnshreinsistöðvar, sem mun vinna eiturefni frá iðn- aði þannig að hægt verði að veita þeim í ánna Yangtze. Fleiri slíkar stöðvar verða byggðar í framtíð- inni. Ráðstafanir af þessu tæi eru samt sem áður ekki nægjanlegar. Hreinsibúnaður á verksmiðjum er yfirleitt úreltur og ófúllnægjandi. Það sem stendur Kínverjum fyrir þrifum, eins og fleiri „yngri“ iðn- aðarþjóðum, er skortur á fjár- magni. Sama er upp á tengingn- um í fleiri Asíulöndum, í Afríku og S-Ameriku. Ibúar Mexíkó- borgar eru að kafha úr mengun og þar sést ekki lengur til himins. Þá hafa fréttir borist síðastliðna mán- uði af alvarlegri mengun í A- Evr- ópu og Sovétríkjunum. Meðan eingöngu „gömlu“ iðnríkin í vestri hafa efhi á að gerast „græn“ verður ekki séð fyrir endann á eyðingu og mengun jarðarinnar. Byggt á South, febrúar 1991. Umhverfismál Kolamengun í Kfna Friðrik Einarsson markaðsfulltrúi: Það er fáránlegt að samþykkja sjálfstæði Litháens eingöngu. Hvað með öll hin Sovétlýðveldin sem krefjast sjálfstæðis? Island á að vera samstiga öðrum þjóð- um í þessu máli. AUGLÝSINGASIMAR ÞJÓÐVILJANS eru 681310 og 681331

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.