Þjóðviljinn - 16.02.1991, Síða 4
ÞJÓÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
ÞINGLYNDI
Kosningabarátta
og auglýsingabindindi
Kosningar eru að nálgast og menn eru farnir að
velta fyrir sér ýmsum spurningum sem tengjast
sjálfri aðferð kosningabaráttunnar. Svavar Gests-
son menntamálaráðherra reifaði þá hugmynd á
þingi að réttast væri og skynsamlegast að flokkarn-
ir kæmu sér saman um að stilla sig um að búa til út-
varps- og sjónvarpsauglýsingar sínum mönnum til
framdráttar. Og Sjálfstæðisflokkurinn hefur skrifað
öðrum flokkum í sama anda. Röksemdirnar sem
fylgja þeirri hugmynd að flokkarnir geri með sér
„heiðursmannasamkomulag“ um slíkt auglýsinga-
bindindi eru helstar þær, að slíkt auglýsingastríð er
feiknalega dýrt og mundi takmarka mjög möguleika
flokkanna á að hugsa sér að öðru leyti til pólitísks
hreyfings.
Þetta er vafalaust rétt. Og hér mætti mörgu við
bæta sem styður ofangreindar hugmyndir umaug-
lýsingabindindi. Ef flokkar dragast nauðugir viljugir
út í að spandera sínu kosningafé í t.d. sjónvarps-
auglýsingar, þá eru þeir að gera líf stjórnmálanna
lágkúrulegra, forsendur vitlegrar umræðu mun lak-
ari en þær hafa þó verið til þessa. í auglýsingastríði
flyst athyglin óhjákvæmilega enn lengra frá málefn-
um og röksemdum en ella og yfir á persónuleika
fárra stjórnmálaforingja, eða öllu heldur: yfir á mat-
reiðsluna á þeirra persónu. Stjórnmálabaráttan
verður „ímyndarhönnun“ með örfáum slagorðum,
sem verða að fela í sér skaðlega einföldun. Allt
breytist í einskonar tilbrigði við markaðssetningu á
nýrri neysluvöru: VIÐ erum þeir nýju, við erum þeir
eldhressu, við erum þeir sem tökum til hendi, við
erum þeir sem þorum og þar fram eftir götunum.
Fremur innantómt hjal sem að sönnu er þegar haf-
ið, en verður í auglýsingastríði allsendis yfirgnæf-
andi: heyrist ekki hundsins gelt hvað þá mennsk
rödd fyrir þeim látum.
Slík þróun yrði liður í því sem kalla mætti „amrík-
aniseringu" stjórnmálanna. En þar er ímyndarstríð
það sem nú var nefnt komið á svo háskalegt stig,
að æ erfiðara verður að fá sæmilegt fólk til að gefa
sig að stjórnmálum.í annan stað er ýtt undir þá am-
ríkaníseringu að það verður ekki fyrir nema þá sem
eiga aðgang að mjög gildum sjóðum að fara í fram-
boð og heyja kosningbaráttu. Þingmannsefni og
flokkar verða mun háðari þeim sem mikla peninga
eiga og þeim sem með forræði fara yfir fyrirtækjum,
og þar með háðari hagsmunum þeirra sömu fyrir-
tækja en góðu hófi gegnir.
Það hefur og spurst, að það sé helst Alþýðu-
flokkurinn sem dragi lappir í þessu máli. Með þeim
rökum að auglýsingabindindi komi best Sjálfstæð-
isflokknum sem getur beint og óbeint beitt fyrir sig
miklum blaðakosti - Morgunblaðinu og að sumu
leyti DV (DV er náttúrlega ekki flokksblað, en þau
viðhorf sem þar svífa yfir vötnum eru skyldust Sjálf-
stæðisflokknum eins og allir vita). Það er sann-
leikskjarni í slíkri ábendingu. En hitt er vafalaust, að
sjónvarpsauglýsingastríð vegur ekki upp þann mun
sem er á forréttindastöðu Sjálfstæðisflokksins í
landinu og þar með í fjölmiðlum. Og um leið skal ít-
rekað að margnefnt auglýsingaflóð hefur það
margar neikvæðar afleiðingar í för með sér að
meðmæli með því hljóta að verða léttvæg. Ljósvak-
auglýsingar í kosningaslag eru blátt áfram skref í
ranga átt.
ÁB.
Hverju á ég nú
að ljúga
. að honum?
Hefur þú nokkuð
heyrt að Davíð ætli
fram gegn mér? Á
Myndir: Kristinn
Eigum við ekki að
bæta því inn í
þingsályktunina um
Litháen að pólitískir
flóttamenn frá íslandi
tai þar hæli.
ÞJOÐVIUINN
Síðumúla 37 — 108 Reykjavík
Sími: 681333
Símfax: 681935
Útgefandi: Útgáfufélagið Bjarki h.f.
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson
Ólafur H. Torfason.
Fréttastjóri: SigurðurÁ. Friðþjófsson.
Aðrir blaðamenn: Bergdls Ellertsdóttír, Dagur
Þorieifsson, Elías Mar (pr.), G. Pétur Matthíasson,
Garðar Guðjónsson, Guðmundur Rúnar Heiðarsson,
Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim Smart (Ijósm.), Kristinn
Ingvarsson (Ijósm.), Ólafur Gíslason, Saevar
Guðbjömsson.
Skrifstofustjóri: Sigrún Gunnarsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson.
Auglýsingar: Sigríður Siguröardóttir, Svanheiður
Ingimundardóttir, Unnur Ágústsdóttir.
Afgreiðstustjóri: Hrefna Magnúsdóttir:
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Halla Pálsdóttir,
Þorgerður Sigurðardóttir, Þórunn Aradóttir.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Skrifstofa, afgreiðsla, ritstjóm, auglýsingar:
Siðumúla 37, Rvtk.
Simi: 681333.
Simfax: 681935.
Auglýsingar: 681310, 681331.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Öddi hf.
Verö i iausasölu: 100 kr. Nýtt Heigarblað: 150 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 1100 kr.
4.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. febrúar 1991