Þjóðviljinn - 16.02.1991, Side 9
Akureyri
Ferðamenn sem koma til Ak-
ureyrar vita sjálfsagt ekki
við hvað er átt þegar talað er
um Grófargil, þó um gilið hafi
lengi legið ein fjölfarnasta og
jafnframt brattasta gata Akur-
eyrar og heitir Kaupvangs-
stræti. Svo bratt er strætið að
ókunnugum verður ekki um sel
að hugsa til þess að aka þar um
í hálku, og við þau skilyrði
reyna aðgætnir heimamenn að
velja sér aðrar leiðir ef þeir eiga
erindi upp á Brekku eins og það
er kallað á Akureyri. Beggja
megin götunnar standa allmörg
hús sem um árabil hafa hýst
margvíslega starfsemi Kaupfé-
lags Eyfirðinga. Af því að hér er
sagt frá aðstæðum í byggðarlagi
þar sem áttir skipta verulegu máli
í málfari, þá er rétt að byija neðst
í gilinu og segja: sunnan götunnar
við þær ffægu kirkjutröppur sem
margir nota sem mælikvarða á
heilsu sína og þrek, stendur Hótel
KEA, en norðan megin beint á
móti eru aðalskrifstofur KEA og
vöruhús. Bæði eru þessi hús raun-
ar skráð við Hafnarstræti og er því
vísast að fara varlegal fúllyrðing-
ar um staðfest upphaf eða austur-
enda Grófargils, hafandi ekki leit-
að staðfestingar sér fróðari manna
þar um.
I öðrum húsum í gilinu var
margvísleg iðnaðarstarfsemi, þar
unnu kunnáttumenn vörur úr
mjólk eyfirskra bænda, þar átti
efnaverksmiðjan Sjöfn sitt aðset-
ur, þar hefúr lengi verið gert
smjörlíki og er þá fátt nefht af því
sem hús þessi hafa vistað í gegn
um tíðina.
Breyttir tímar
En nú eru breyttir tímar. Iðn-
aðarhúsin þjóna ekki lengur sín-
um tilgangi nema að hluta, starf-
semin sem þar var er flutt annað
eða á forum; Mjólkursamlagið
komið langt upp á Brekku, en
Sjöfn út í Þorp. Þó ber þess að
geta að brauðgerð KEA er í Gró-
fargili og sömuleiðis þvottahúsið
Mjöll, einnig í eigu KEA.
Þetta fyrirbrigði er alþekkt um
allan hinn iðnvædda heim. Með
breyttri tækni og aukinni fram-
leiðslu þarf að reisa hentugra hús-
næði undir starfsemina, en í þessu
tilviki voru ekki bara húsin orðin
of óhentug, brekkan og þrengslin
utan húss geta ekki kallast heppi-
leg fyrir aðdrætti hráefna eða út-
keyrslu fullunninnar vöru.
Við þessar breyttu aðstæður
hafa fæðst hugmyndir um að gefa
húsunum nýtt hlutverk og breyta
Grófargili í Listagil. Bæjarstjóm
Akureyrar setti á laggimar nefnd
manna þann 3. ágúst síðastliðin.
Fól bæjarstjóm nefndinni að at-
huga möguleika á að nýta iðnað-
arhúsin undir listastarfsemi. Rétt
fyrir jólin skilaði nefndin af sér og
er hér stuðst við greinargerð
hennar til viðbótar því máli sem
myndimar tala. I greinargerðinni
segir meðal annars:
„Hugmyndin um að gerbreyta
hlutverki og yfirbragði Grófargils
er ekki ný af nálinni. Henni mun
fyrst hafa verið hreyft fyrir rúm-
um íjórum ámm, á málþingi um
menningarmál í nóvember 1986.
Þetta eru byggingarnar að sunnanverðu I Gilinu...
... og þessar eru norðanmegin. Myndlistarskólinn er í efsta húsinu. Á bak við það hafa myndlistarmennirnir
Guðmundur Ármann og Helgi Vilberg komið sér upp vinnustofum.
Þessi teikning eftir Guðmund Ármann Sigurjónsson mynd
listarmann á Akureyri birtist í Norðurlandi 30. apríl 1990.
texta með myndinni skrifaði Guðmundur m.a.:
„Væri ekki stórkostlegt að glæða Grófargilið nýju lífi, mála
og gera við húsin, jafnvel byggja ofan á þau. Breikka mætti
gangstéttarnar, hafa aðeins einstefnu niðurgilið, enn betra
væri að framlengja göngugötuna upp gilið að Eyrarlands-
vegi, planta trjám, setja niður bekki og jafnvel borð og selja
kaffi og kleinur. Þetta gæti orðið París norðursins. Þarna
væri hægt að hafa vinnustofur og ýmiskonar handverk-
stæði, litlar verslanir sem seldu vandaða handunna muni
úr (slenskri ull, birki, beinum, silfri og gulli, gleri og leir...“
Hann tiltók einnig myndlistarskóla; tónlistarskóla, listasafn
og sýningarsali fyrr utan annað og lauk textanum á þess-
um orðum: „Er vilji kannski allt sem þarf.“
Fullyrða má að þessi mynd Guðmundar hafi vakið almenn-
an skilning á þv( meðal bæjarbúa að Listagilið gæti orðiö
raunhæfur möguleiki.
Þessi umræða komst á nýtt stig,
þegar ljóst var að Kaupfélag Ey-
firðinga myndi flytja því sem
næst alla starfsemi sína úr Gró-
fargili. Endurbygging iðnaðar-
húss Sjafnar, þar sem nú er Mynd-
listarskólinn á Akureyri, og fram-
kvæmdir í bakhúsi þar sem nú eru
vinnustofúr myndlistarmanna,
hafa gefið þessum hugmyndum
byr undir báða vængi.
Sú hugmynd að reisa í Gró-
fargili miðstöð lista og menningar
á sér margar fyrirmyndir frá ná-
lægum löndum. Þar eins og hér
hafa menn orðið að gera það upp
við sig, hvað gera ætti við gamlar
og oft reisulegar byggingar i mið-
bæ, sem lokið hafa sínu fyrra
hlutverki. Niðurstaðan hefur í
mörgum tilfellum orðið sú, að
nýta þær undir menningarstarf-
semi, í takt við nýja tíma. Þar
kemur bæði til sú almenna til-
hneiging á Vesturlöndum um
þessar mundir, að veita meira fé
til menningar og iista annars veg-
ar, og sú viðleitni hins vegar að
veita nýju lífi í miðbæjarhluta,
sem hafa látið verulega á sjá
vegna breyttra aðstæðna.
Með uppbyggingu af þessu
tagi er í reynd stuðlað að upp-
gangi ýmissa fyrirtækja í verslun
og þjónustu. Er það ekki aðeins
vegna þess aðdráttarafls, sem
slíkar menningarmiðstöðvar hafa,
fyrir þá sem búa í nánasta um-
hverfi. Þær öiya einnig ferða-
mannastraum. í þessu sambandi
skiptir heildarfrágangur svæðis-
ins og yfirbragð allt miklu máli.
Það var í ljósi ffamangreindra
hugmynda, sem nefndin kannaði
möguleika á að nýta húsin í Gró-
fargili undir þá menningar- og
listastarfsemi, sem nú býr við
þröngan kost á Akureyri.“
Tónlist og myndlist
Nefndin hefur einkum haft að
leiðarljósi að koma til móts við
þarfir myndlistarmanna fyrir sýn-
ingarsal, að koma upp listasafni
og innrétta fjölnotasal, þar sem
halda mætti tónleika, fyrirlestra
og minni leiksýningar. Þá hefúr
nefndin einnig lagt áherslu á að
komið yrði upp húsnæði fyrir þá
sem stunda ýmiss konar listmuna-
gerð. Helstu kostir þess að efla
slika starfsemi í þessum bæjar-
hluta eru eftirfarandi:
Grófargil er mjög miðsvæðis í
bænum, raunar hluti af miðbæ
———
H-
Akureyrar, eins og miðbæjar-
skipulag sýnir. í gilinu er nú
blönduð starfsemi. Annars vegar
er þar iðnaður, sem er rekinn við
erfið skilyrði og þröng, og er af
ýmsum ástæðum víkjandi. Hins
vegar hefur Myndlistarskólinn á
Akureyri haslað sér völl efst í gil-
inu, auk þess sem tveir af starfs-
mönnum skólans hafa innréttað
sér vinnustofur í bakhúsi við
Myndlistarskólann.
I mynni Grófargils er Hótel
KEA og veitingastaðir. Gilið er
staður sem bæjarbúar og ferða-
menn komast ekki hjá að fara um,
enda er það tengiliður milli mið-
bæjar og Brekku. Þar er mjög
skýlt, en jafnframt er þar allmikil
umferð. Er gilið raunar eini stað-
urinn í bænum, þar sem vart verð-
ur mengunar af völdum umferðar.
í Grófargili eru stórar og áber-
andi byggingar, sumar mjög stíl-
hreinar og glæsilegar. Má þar
einkum nefna Samlagið. Bygg-
ingamar sunnan götunnar, Kaup-
vangsstræti 23 og 25, eru í svip-
uðum stíl. Ketilhúsið er sérkenni-
leg bygging, sem stingur þó ekki í
stúf við aðrar byggingar í Gró-
fargili og býður upp á talsverða
nýtingarmöguleika.
Yfir Grófargili drottna miklar
byggingar og áberandi. Má þar
nefna Akureyrarkirkju, Bama-
skóla Akureyrar og Frimúrara-
húsið, Sundlaug Akureyrar og
Gagnfræðaskólann. I sínu núver-
andi ástandi er Grófargil dmnga-
legur staður, sem varpar skugga á
nánasta umhverfi. Reisulegar
byggingar í gilinu, svo sem Sam-
lagið, njóta sín ekki.
Ef vel tækist til yrði endumýj-
un húsa í Grófargili til þess að
stórbæta yfirbragð miðbæjarins
og veita nýju lífi í deyjandi hverfi.
Listasafn Norðurlands
Með fundarhöldum með ýms-
um áhugamönnum um menning-
armál á Akureyri og með viðræð-
um við fjölda einstaklinga hafa
eftirfarandi hugmyndir mótast hjá
nefndinni:
1. I austurenda Samlagsins
yrðu tvær neðstu hæðimar (kjall-
ari og jarðhæð) sameinaðar í einn
347 m2 sýningarsal. Að öðm leyti
yrði kjallari hússins, sem er á
tveimur hæðum, nýttur undir
geymslur.
Þörf fyrir sýningarsal fyrir
myndlist er mjög brýn á Akureyri.
Þeir, sem sinna myndlistarmálum
hér í bæ, hafa um margra ára
skeið kvartað sáran yfir aðstöðu-
leysi. Með sýningarsal í Samlag-
inu, skapast mjög góð sýningar-
aðstaða fyrir myndlistarmenn, og
bæjarbúum gefst kostur á að
kynnast við bestu aðstæður ís-
lenskri og erlendri myndlist.
2. A fyrstu hæð Samlagsins
yrði komið fyrir þremur sölum,
samtals um 500 m2 að stærð. I
þeim yrði listasafn Norðurlands.
Safnið hefði þríþættu hlutverki að
gegna. I fyrsta lagi yrði þar varð-
veitt listaverkasafn Akureyrar-
bæjar. I öðru lagi yrðu þar sýning-
ar í samvinnu við Listasafri Is-
lands. I þriðja lagi mundi safnið
leitast við að skapa sér sérstöðu á
ákveðnu listasviði, sem ynni því
sérstakan sess meðal íslenskra
listasafna. Síðast talda atriðið
krefst þess að um starfsemi lista-
safnsins verði mótuð skýr stefna í
upphafi.
Slíkt safn gegndi ómetanlegu
fræðslu- og menningarhlutverki
fyrir héraðsbúa, Myndlistarskól-
ann og aðrar menntastofnanir á
Akureyri. Auk þess gæti safn af
þessu tagi haft mjög sterkt að-
dráttarafl fyrir ferðamenn og orð-
ið er tímar líða ein af merkilegri
menningarstofnunum bæjarins.
3. Efsta hæð Samlagsins, um
750 m2 að stærð, þar sem eru
rúmgóðir bjartir salir og hátt til
lofts, verður væntanlega ekki laus
til ráðstöfunar á næstunni. Er þvi
gott tóm til að finna henni hlut-
verk. Þar er raunar mjög glæsilegt
rými fyrir hvers konar sýningar
eða safnastarfsemi, og er mikils
virði að eiga slíka framtíðar-
möguleika.
4. Ketilhús yrði innréttað sem
fjölnotasalur. Þar yrði gert ráð
fyrir anddyri og snyrtingum á
neðri hæð ásamt aðstöðu fyrir
listamenn. A efri hæð yrði saíur-
inn, og getur hann tekið 230-250
manns í sæti. 1 salnum er gert ráð
fyrir sléttu gólfi með upphækkun
syðst og sviði nyrst. Lofthæð í
salnum er mjög góð. Að áliti arki-
tekts, sem er sérfræðingur í
hljómburði, má gera ráð fyrir að
hljómburður í húsinu sé góður og
ráðstafanir til að tryggja hann til-
tölulega ódýrar. I viðbyggingu
yrði stigahús og lyfta, ásamt
geymslu.
Þörf fyrir slíkan sal virðist
vera mikil. Hann myndi nýtast
Tónlistarskólanum mjög vel til
æfinga. Ennfremur hentar hann
vel fyrir þær mörgu hljómsveitir
og kóra, sem starfa í bænum.
Sama gildir um tónleika af öðru
tagi. Bent hefúr verið á að slíkur
salur hentaði vel leikhópum sem
starfa í nálægum sveitarfélögum
og ekki hafa hafl í neitt hús að
venda á Akureyri yfir vetrartím-
ann, þegar leikhúsið er upptekið.
Loks gæti salur af þessari stærð
nýst vel fyrir ráðstefnur, fyrir-
lestra og fundi.
Staðsetning fjölnotasalar í
miðbæ Akureyrar hefur ótvíræða
kosti. Með slíkum sal væri komin
miðstöð fyrir þá tegund tónleika,
sem er langalgengust hér í bæ.
Ætla má að húsið yrði í stöðugri
notkun.
5. Smjörlíkisgerð og Flóra
yrðu gerð að verkstæðum og sölu-
svæði fyrir list- og handverks-
muni og minjagripaframleiðslu.
Það yrði hlutverk bæjarins að
gera húsin upp að utan. Síðan er
gert ráð fyrir, að þeim, sem áhuga
hafa á að nota sér aðstöðuna,
verði leigt þar húsrými. Leigutak-
ar munu sjá sjálfir um allar inn-
réttingar. Gert er ráð fyrir að bæði
einstaklingar og félagasamtök
geti nýtt sér þessa aðstöðu.
I þessum húsum yrði einnig
innréttuð ibúð fyrir gestkomandi
listamann ásamt vinnustofu. Sú
framkvæmd kæmi í hlut bæjarins.
Það er mikilvægt, að mati
nefndarinnar, að almenningur eigi
greiða leið að þeim listmuna-
markaði, sem hér er gert ráð fyrir.
Ekki síst er brýnt að tengja starf-
semi hans ferðaþjónustu í bæn-
um. Við allan frágang húsanna og
umhverfis verður að huga sérstak-
lega að því að laða að gesti og
gangandi.
Uppbygging og endumýjun
Grófargils er nauðsynleg og verð-
ur bænum mikil lyftistöng. Gilið
er miðsvæðis og það mun á
nokkrum ámm breytast úr
dmngalegu iðnaðarhverfi í áhuga-
verða og lifandi listamiðstöð, sem
lífgar upp á miðbæinn og styrkir
verslun og þjónustu þar og í bæn-
um í heild.
Kostir þess að kaupa umrædd
hús em líka fólgnir í því, að fram-
kvæmdum má skipta í vel af-
markaða áfanga. Gera má einnig
ráð fyrir að hægt sé að dreifa
greiðslum fyrir húsin á alllangan
tíma.“
Hvað vinnst?
Áætlað er að kostnaður við
breytingar á umræddum húsum
yrði nál. 170 milljónir, en þar við
bættist kaupverð húsanna sem
ekki er vitað hvert verður, en fyrir
það fé fæst eftirfarandi að mati
nefndarinnar: 1) Lista- og menn-
ingarlíf á Akureyri mun stóreflast.
2) Á Akureyri verður ákjósanleg-
ur vettvangur fyrir innlenda og er-
lenda listviðburði. 3) Aðstaða til
listsköpunar og listmunagerðar
getur orðið með því besta sem
býðst hérlendis. 4) Starfsaðstaða
ungra listamanna batnar til muna.
5) Listamiðstöðin í Grófargili
mun laða að bænum fjölmarga
ferðamenn. 6) Markverður árang-
ur mun nást í umhverfismálum,
þegar óhijálegt iðnaðarhverfi
breytist í lifandi og aðlaðandi at-
hafnasvæði. 7) Ákvörðun um að
ráðast í þessa framkvæmd hefði
mjög örvandi áhrif á bæjarlíf og -
brag á tímum óhagstæðrar
byggðaþróunar og umdeildra
ákvarðana stjómvalda í þeim mál-
um nýlega.“
Eins og sjá má af framan-
sögðu em hér á ferðinni nýstár-
legar og að ýmsu leyti djarflegar
hugmyndir. Þröstur Ásmundsson
formaður menningarmálanefndar
Akureyrar sagði í samtali við
Þjóðviljann að um þessar mundir
stæðu fyrir samningaviðræður við
Kaupfélag Eyfirðinga um kaup á
húsunum, og sagðist Þröstur vera
bjartsýnn á að samningar tækjust,
enda hefði víða komið fram mik-
ill áhugi á að hrinda hugmyndinni
í framkvæmd, m.a. á fjölmennu
málþingi um síðustu helgi. Skoð-
anamunur sem þar kom fram
sagði Þröstur hafa staðið um for-
gangsröð, þ.e. hvort reisa ætti við-
byggingu við Amtsbókasafnið áð-
ur. Náist samningar sagðist Þröst-
ur reikna með að vinna við breyt-
ingar og lagfæringar gætu hafist
þegar á þessu ári.
hágé.
8.SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 16. febrúar 1991
Laugardagur 16. febrúar 1991 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9