Þjóðviljinn - 15.03.1991, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 15.03.1991, Blaðsíða 5
mm JT Fiármálaráðherra Styður hækkun skattleysismarka Alþýðubandalagið tekur undir kröfu fiskvinnslufólks um lækkun skatta og styður eins dags verkfallþeirra í næstu viku. Samtökfiskvinnslustöðva: Olöglegar aðgerðir Oiafur Ragnar Grímsson, ijármálaráðherra og for- maður Alþýðubandalags- ins, segist styðja kröfur fisk- vinnslufólks um skattajöfnun með eins dags verkfalli á mið- vikudag i næstu viku. Þetta kom fram í ræðu fjár- málaráðherra í eldhúsdagsum- ræðunum á Alþingi í gærkvöldi. Olafur Ragnar sagði að Alþýðu- bandalagið myndi taka þátt í þess- ari baráttu fiskvinnslufólksins og standa með því í frystihúsunum og vinnustöðvunum í næstu viku til stuðnings kröfúnni um hækkun skattleysismarkanna og jöfnun Hfskjara. Ólafúr Ragnar segir að til þess verði að sækja fjármagnið til þeirra sem hafa 500-600 þús- und krónur í mánaðartekjur og skattfijálsar íjármagnstekjur, eins og Alþýðubandalagið leggur til í stefnuskrá sinni fyrir komandi þingkosningar. Að undanfomu hefúr sjálf- sprottin hreyfing fiskvinnslu- fólks, án þátttöku verkalýðsfé- laga, undirbúið eins dags verkfall miðvikudaginn 20. mars næst- komandi og mun það ná til nær allra fiskvinnslustöðva í landinu. Þessu hafa atvinnurekendur mót- mælt harðlega og telja vinnu- stöðvunina vera ólöglega. Framtíð jarðar er í innkaupa- körfunni þinni 1 dag er alþjóðlegur dagur neytendaréttar. Frá því 1983 hafa Alþjóðasamtök neytendafélaga haldið daginn hátíðlegan ásamt neytendafélögum um allan heim. Neytendasamtökin hafa reynt að vekja athygii íslenskra neytenda á sjálfsögðum lágmarksréttindum þeirra. Neytendasamtökin styðja þær sjö meginkröfúr sem neytenda- félög víðs vegar um heiminn hafa sett fram sameiginlega um árabil. Atriðin sjö eru: Öryggi gegn vömm, framleiðsluháttum og þjón- ustu sem er hættuleg heilsu og lífi manna. Upplýsingar, sem gera neytendum kleifl að taka ákvarðan- ir af skynsemi og ábyrgð. Val á fjöl- breyttum vamingi og þjónustu á samkeppnisverði. Áheym, þ.e. að sjónarmiða þeirra sé gætt og tillit tekið til hagsmuna þeirra. Bætur t.d. ef varan reynist léleg eða gölluð. Fræðsla og umhverfi, sem felur m.a. í sér vemd gegn umhverfis- spjöllum. Neytendasamtökin hvetja fólk til að hugleiða það hvort því séu tryggð þau lágmarksréttindi neyt- enda sem minnst var á hér að ofan. Neytendasamtökin, í samvinnu við Landvemd, Náttúruvemdarráð, Hollustuvemd dkisins, mennta- málaráðuneytið og umhverfisráðu- neytið eru að hefia herferð í terunn- skólum landsins þaf sem Vþeirri spumingu er beint til nemenda og foreldra þeirra hversu umhverfis- vænir þeir eni. Vakin er athygli neytenda á þeirra þætti í að við- halda jörðinni\og koma í veg fyrir frekari eyðingp og mengun náttúru \ hennar undir slagorðinu Framtíð \ jarðar er í innkaupakörfunni þinni. , BE Að sögn Sólveigar Vagnsdótt- ur á Þingeyri er þetta gert til að leggja áherslu á kröfuna um Iækk- un skatta. Hún segir að af hverj- um 100 krónum sem fiskvinnslu- fólk fái í kaup eigi það aðeins 45 krónur effir að skatturinn hefúr tekið sitt. Hún segir að fisk- vinnslufólkið muni ekki hvika frá þessari kröfú sinni, enda njóti hún stuðnings um land allt. “Við erum ekki þrælar heldur vinnum við að undirstöðuat- vinnugrein landsmanna og teljum okkur eiga njóta þess eins og til dæmis sjómenn sem njóta skatta- afsláttar," segir Sólveig Vagns- dóttir á Þingeyri. Þuríður Georgsdóttir, fisk- vinnslukona í Vestmannaeyjum, segir að almenn samstaða sé um þessar aðgerðir í Eyjum. Snær Karlsson, formaður fiskvinnsludeildar Verkamanna- sambands íslands, segir að kröfúr fiskvinnslufólksins um skatta- ívilnanir í fiskiðnaði séu ekki nýj- ar af nálinni. Þær hafi ofl verið uppá borði við gerð kjarasamn- inga en ekki náð fram að ganga. Hann segist persónulega skilja vel kröfur fiskvinnslufólksins og hafa samúð með sínu fólki í þessu máli. Snær sagði að i þessum efn- um ætti jafnt yfir alla að ganga og Sjálfsprottin hreyfing fiskvinnslufólks hefur skipulagt eins dags vinnustöðvun miðvikudaginn 20. mars f nær öllum frsytihúsum landsins, til aö leggja áherslu á kröfur sfnar um lækkun skatta. benti á að sjómenn um borð í frystitogurum, sem vinna sömu vinnu og fiskvinnslufólk í landi, njóti skattaafsláttar og einnig beitingamenn í landi. Amar Sigurmundsson, for- maður Samtaka fiskvinnslu- stöðva, sagði að það væri ffáleitt af fiskvinnslufólki að beina þess- um aðgerðum að einni tegund at- vinnurekstrar. Hann sagði vinnu- stöðvunina á miðvikudag vera ólöglega og því mundu fisk- vinnslumenn mótmæla. -grh Lántökur ríkissjóðs verði auknar um 1,2 miljarða Verði farið að tillögum ríkis- stjórnarinnar varðandi frumvarp til lánsfjárlaga hækka fyrirhugaðar lántökur ríkisins um 1,2 miljarða króna frá því sem samþykkt var í efri deild fyrir jólin auk þess sem ríkið mun ganga í ábyrgðir fyr- ir hundruðir miljónir króna til viðbótar áður samþykktum ábyrgðum, segja heimildir Þjóviljans. Frumvarpið fer loks að sjá dagsljós og er það ekki seinna vænna ef slíta á þingi í dag. Fund- ur er í fjárhags- og viðskiptanefnd neðri deildar fyrir hádegi í dag og þessar tillögur kynntar þar. I gær- dag átti enn eftir að ganga frá end- anlegum texta varðandi lánsfjár- heimildir til handa Landsvirkjun- ar vegna undirbúningsfram- kvæmda fyrir álver. Ágreiningur er um hve miklum skilyrðum heimildin eigi að vera háð. Ólafúr Ragnar Grímsson fjármálaráð- herra vill mun harðari skilyrði heldur en Jón Sigurðsson iðnaðar- ráðherra. Þá er einnig eftir að ganga ftá texta um ábyrgðir vegna jarðarkaupa undir álver. Samkvæmt heimildum er í þessum tillögum gert ráð fyrir að Framkvæmdasjóðir aldraðra og fatlaðra verði ekki skertir einsog fyrirhugað var, sama á við um Bjargráðasjóð. Bæta á ríkisfyrir- tækjum tjón vegna óveðursins í vetur uppá einar 350 miljónir króna. Þá er fyrirhugað að taka á vanda byggðarlaga sem illa hafa orðið úti vegna loðnubrestsins með því að taka 100 miljón króna lán sem nota á til framkvæmda á þessum stöðum. Á vanda loðnu- verksmiðjanna verður tekið með 400 miljón króna láni til að stofna sjóð sem stuðlar að úreldingu loðnuverksmiðja. Þá fær Síldar- verksmiðja ríkisins 200 miljón króna lán sem er vegna eldri vanda en loðnubrestsins. Þá mun í tillögunum vera gert ráð fyrir 100 miljón króna heim- ild fyrir þyrlukaupum; heimild verður til að fella niður aðflutn- ingsgjöld vegna byggingar flug- skýlis Flugleiða á Keflavíkurflug- velli; Djúpbátnum hf. á Isafirði verður heimilt að taka 45 miljón króna lán til kaupa á nýrri ferju; Ölfushreppur fær að taka 135 miljón króna lán til hafnarfram- kvæmda þ.e. verði af byggingu þilplötuverksmiðju. Einnig er gert ráð fyrir að rík- issjóður fái heimild til að gefa út skuldabréf fyrir 1,7 miljarð króna vegna búvörusamningsins til að stuðla að fækkun fjár og að ríkis- sjóði verði heimilt að yfirtaka 1,2 miljarða króna skuld Byggða- stofnunar hjá Framkvæmdasjóði íslands til að bæta eiginfjárstöðu stofnunarinnar. Nokkur fleiri atriði eru í til- lögunum en nefndin á eftir að fara yfir þetta allt saman og ekki ólík- legt að eitthvað breytist í meðfor- um hennar,- gpm Búvörusamningur Bændur sögðu já Þingfúlltrúar á aukafulltrúa- fúndi Stéttarsambands bænda samþykktu með miklum meiri- hluta nýja búvörusamninginn á fundi þeirra sem lauk í gær á Hót- el Sögu. Alls greiddu 45 atkvæði með samningnum en tveir voru á móti. Fimmtán sátu hjá og tveir voru fjarverandi. -grh Siglufiörður að er mikill misskilningur að hanaslagur Jóns Sæ- mundar Sigurjónssonar og Páls Péturssonar ráði úrslitum um hvort stálþil verði rekið niður í Siglufirði strax í sumar,“ sagði Ragnar Arnalds, Alþýðu- bandalagi í samtali við Þjóðvilj- ann. I gær skýrði Þjóðviljinn frá því að Jón Sæmundur, sem er í Alþýðuflokknum, vildi ekki af- greiða frumvarp sjávarútvegsráð- herra um ráðstafanir vegna loðnu- brests, úr nefnd í neðri deild, þar sem stæði á því að framkvæmd- um við stálþilið yrði fiýtt um ár. Stálþil Sagði Jón Sæmundur að stæði á Páli Péturssyni, Framsóknar- flokki, sem væri að þrýsta á um hafnarframkvæmdir á Blönduósi á móti. Þingmennimir þrír eru úr Norðurlandskjördæmi vestra. Ragnar sagði að hvorugur virtist hafa áttað sig á því að þetta mál væri nokkum veginn fullfrá- gengið. „Það eru bráðum tvær vikur síðan ég kynnti þetta mál fyrir Steingrími Sigfússyni sam- gönguráðherra og hann féllst þeg- ar á að beita sér fyrir að stálþilið yrði rekið niður í sumar,“ sagði Ragnar. Ekki er enn Ijóst hvort taka í sumar þurfi lán fyrir þremur fjórðu hlut- um ríkisframlags vegna þessa eða hvort fæst beint framlag; fáist framlagið þarf einungis lán fyrir hluta bæjarins. Ragnar sagði það rétt að styrr hefði staðið um brimvamargarð á Blönduósi. Hann sagði að Páll, Pálmi Jónsson, Sjálfstæðisflokki, og fiokksbróðir Páls, Stefán Guð- mundsson vildu allir samþykkja 160 miljón króna lántöku til að byggja brimvamargarðinnn og taka féð af fjárveitingum til kjör- dæmisins á næstu ámm. En allir þessir þingmenn em úr sama kjördæmi. Ragnar sagði að hann og Jón Sæmundur hefðu ekki samþykkt að skrifa uppá þessar fram- kvæmdir á Blönduósi. Hann við- urkenndi einnig að þingmenn kjördæmisins þyrfltu að skrifa uppá það að framkvæmdum við stálþilið yrði flýtt. Hinsvegar sagðist hann ekki trúa því að sam- þingmenn hans úr kjördæminu myndu láta afstöðu hans og Jóns í því máli bitna á Skagaströnd eða Siglufirði með því að vinna á móti niðursetningu stálþilsins. „En því hefúr verið hótað,“ sagði Ragnar. -gpm Föstudagur 15. mars 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.