Þjóðviljinn - 15.03.1991, Blaðsíða 6
\
1
Var
flóttinn
fjárkúgun?
Því er haldið fram að Ramiz Alia, núverandi
valdhafi Albaníu, hafi sleppt óánægðum þegn-
um sínum í tugþúsundatali yfir Otrantosund til
að reka á eftir efnahagsaðstoð frá Itölum
Eitt albönsku flóttamannaskipanna ( höfninni í Brindisi - margir höfðu ekki fengið mat og vatn dögum saríían.
Fjöldaflóttinn frá Albaníu yf-
ir Otrantosund til „hælsins“
á Ítalíu hefur vakið mikla at-
hygli. Á fáum dögum komu um
25.000 Albanir þessa leið til
hafnarborganna Bari, Mono-
poli, Brindisi og Otranto. Fólk-
ið kom á yfirfylltum skipum,
flestum mjög úr sér gengnum,
sem það hafði tekið traustataki
í höfnum föðurlandsins. Margt
af því hafði verið matar- og
vatnslaust í nokkra daga, sem
það tók að komast yfir sundið.
Þýska fréttatímaritið Der Spi-
egel telur að Ramiz Alia, núver-
andi hæstráðandi Albaníu, hafi
stuðlað að þessum flótta beinlínis
með það fyrir augum að knýja
Italíu til að láta grannríki sínu
handan sunds ríflega efnahagsað-
stoð i té.
Albanir í kröggum
Alia, sem nú er hálfsjötugur að
aldri. Framleiðsla hefur síðustu
árin dregist saman um 40 af
hundraði og nú eru þar allar
helstu matvörur skammtaðar.
Kröfur um fijálslegra stjóm-
arfar hafa farið síhækkandi allra
síðustu ár og beita stúdentar sér
einkum fýrir þeim, en margir aðr-
ir styðja þá. Alia hefur látið all-'
verulega undan þeim kröfum, en
hann á í þvi efni erfitt um vik, þar
eð i kommúnista- og ríkisflokki
landsins eru margir, sem vilja
halda fast við það sem verið hef-
ur. Þar í fylkingu er forysta hcrs-
ins. Alia hefur tekið miðjuafstöðu
og reynt að gera báðum til hæfis í
einu, íhaldsmönnum í flokki sín-
um og lýðræðissinnum. Stefna
hans hefur í framkvæmd orðið
nokkuð sveiflukennd, með þeim
afleiðingum að hann sætir gagn-
rýni og ákúmm frá báðum aðil-
um.
Alia tók við ríki af Enver
Hoxha, sem ríkti einvaldur í AI-
baníu frá því að skæruliðar undir
forystu hans sigmðust á Þjóðvetj-
um í Iok heimsstyijaldarinnar síð-
ari til þess er hann lést 1985. Alia
tók sér smámsaman fyrir hendur
að draga úr harðri miðstýringu í
stjómmáium og efnahagslífi, sem
fyrirrennari hans hafði haldið fast
við, og sömuleiðis að auka sam-
skipti við umheiminn, en þau
höfðu verið nokkuð takmörkuð á
tíð Hoxha. En ekki hefur Al-
bönum famast vel undir stjóm
Eins og kálfar á vordegi
I des. s.l. kom til mikilla upp-
þota undir fomstu stúdenta í Tir-
anaháskóla. Þá Ieyfði Alia að nýir
stjómmálaflokkar yrðu stofnaðir í
Albaníu, sem frá valdatöku
kommúnista hafði verið eins-
flokksríki. Hann ákvað líka að
láta fara fram fijálsar kosningar
innan skamms — svo skamms að
stjómarandstæðingar þóttust sjá
fram á að þeir
hefðu ekkert ráð-
Dagur
Þorieifsson
rúm til að skipuleggja kosninga-
baráttu sína.
Alia frestaði þá kosningunum
að kröfu þeirra, og nú eiga þær að
fara ffam á páskadag. En ekki
telja allir stjómarandstæðinga
miklu sigurstranglegri fyrir það.
Þeir hlupu út í lýðræðið eins og
kálfar á vordegi og hafa nú stofn-
að nokkuð á annan tug stjóm-
málaflokka. Þar að auki er óvíst
hversu mikils trausts þeir njóta. Á
sumum Albönum hefur heyrst að
hér sé raunar um að ræða inn-
byrðis erjur í gamla ríkisflokkn-
um, flestir frambjóðenda nýju
flokkanna séu nýgengnir úr hon-
um. „Þetta em menn, sem í gær
sungu Hoxha lof og dýrð og æpa
sig nú hása á lýðræði,“ hefur Der
Spiegel eftir hafnarverkamanni í
Durres, helstu hafnarborg lands-
ins.
Klofinn
lýðræðisflokkur
Sá öflugasti af nýju flokkun-
um er Lýðræðisflokkur Albaniu,
sem stúdentar og aðrir mennta-
menn stofnuðu í jan. En hann er
þegar klofinn í tvo arma, róttækan
sem vill sækja sem harðast að
gamla ríkisflokknum og annan
hægfara, sem vill vinna með hon-
um. Helstu leiðtogar Lýðræðis-
flokksins em Gramoz Pashko,
sérfræðingur um efnahagsmál, og
Sali Berisha læknir. Þeir vom
báðir áður virkir í kommúnista-
flokknum og em af fjölskyldum
sem hafa mikil ítök í bákni ríkis
og kommúnistafiokks. Ættemi
hefur alltaf ráðið miklu um vel-
gengni manna í Albaníu og svo
var það einnig á tíð Hoxha.
Lífskjarajöfnun!
Ólafur Ragnar Grímsson, Sigríður Jóhannesdóttir og
Sigurður T. Sigurðsson á opnum fundi í íþróttahúsinu
við Strandgötu, Hatnarfirði þriðjudaginn 19. mars kl.
20.30.
G-listinn á Reykjanesi
Albanía varð sjálfstætt riki
rétt fyrir heimsstyrjöldina fyrri og
þaðan í frá til þess er Hoxha kom
þar til valda vom ítök Itala þar
mikil, yfirleitt að óvilja lands-
manna. Eigi að síður virðist Italía
nú vera orðin draumaland fjöl-
margra Albana, sem vilja komast
í betri lífskjör og framtíðarmögu-
leika og meiri neyslu. Sérstaklega
á þetta við um unga menn, sem
telja að litlir sem engir möguleik-
ar séu fyrir þá að komast í nám og
fá störf sem þeir hafa áhuga á í
ættlandinu.
Kuldalegar viðtökur
Italska stjómin lofaði Alia
ekki alls fyrir löngu efnahagsað-
stoð, en mun hafa ætlað að draga
að efna það þangað til eftir kosn-
ingamar í mánaðarlokin. Ymsa
gmnar raunar að þeim kunni að
verða frestað eða þá að þær verði
ekki svo lýðræðislegar sem látið
hefur verið í veðri vaka.
Nú er sumra mál að við þess-
um drætti á aðstoðinni hafi Alia
bmgðist með því að sleppa flótta-
mamiastraumnum lausum á ítali.
Síðan í jan. höfðu Albanir farið til
Italíu í smáhópum og fengið góð-
ar viðtökur. Úr þeim viðtökum
gerði nú albanska ríkissjónvarpið
sem allra mest og jafnframt stein-
hætti lögreglan í Durrés að koma
í veg fyrir að fólk, sem þar hafði
safnast saman, tæki á sitt vald
skip og léti á þeim úr höfn til Ital-
íu. Að talsverðum líkindum var
þetta gert í þeirri von, að Italir
létu efnahagsaðstoðina í té þegar í
stað gegn því að albanska stjómin
stöðvaði fióttamannastrauminn.
Flóttamennimir, sem komu til
Apúlíu í s.l. viku fengu kaldar
viðtökur og sagt er að ítalska
stjómin vilji ekkert frekar en að
Albanía verði á ný lokað land eins
og var á tíð Hoxha. Bæði riki
munu nú hafa gert ráðstafanir til
að stöðva strauminn og senda
eitthvað af fólkinu til baka, en
ekki hefur enn fram komið hvort
þetta bragð Alia til að flýta fyrir
ítölsku efnahagshjálpinni hefúr
heppnast eða ekki.
Sexmenningarnir frá Birmingham “
Lausir eftir 16 ára
fangavist
gær voru látnir lausir „sex-
| menningarnir frá Birming-
ham“, sem svo hafa verið
nefndir, sex írar sem dæmdir
voru sekir um sprengjutilræði
þar í borg og til ævilangrar
fangelsisvistar 1975. Hafa þeir
setið í fangelsi síðan, eða í 16 ár.
Hér var um að ræða mann-
skæðustu tilræði írska lýðveldis-
hersins (IRA) i Bretlandi til þessa.
Sprungu sprengjur á tveimur
krám 1974 og urðu að bana 21
manneskju og særðu og limlestu
yfir 160. Mennimir sex, sem
dæmdir voru, játuðu fýrir rétti, en
hafa síðan haldið því fram að lög-
reglan hefði neytt þá til þess með
ofbeldi og auðmýkingum. Varð
mál þetta eitt þeirra umdeildustu í
dómsmálasögu Bretlands.
Mál sexmenninganna var tek-
ið fýrir að nýju, í annað sinn á
Qórum ámm, eftir að Sir Allan
Green, saksóknari hins opinbera,
tilkynnti að hann væri ekki lengur
sannfærður um að þeir væm sekir.
Fór svo að áfrýjunarréttur ógilti
dómana yfir þeim og fengu þeir
eftir það að fara frjálsir ferða
sinna.
Sá elsti þeirra, Hugh Callag-
han, er nú sextugur og sá yngsti,
Gerard Hunter, 42 ára.
r
Irak
Barist við Babýlon
Samtök, sem standa að upp-
reisninni í Suður-írak, segja
að þeirra menn hafi tekið Hilla,
sem er skammt þar frá sem
Babýlon stóð og höfuðborg
stjórnarumdæmis sem kennt er
við þá fornfrægu höfuðborg
Mesópótamíu. Segir í frétt frá
uppreisnarmönnum að liðs-
menn lýðveldisvarðliðs Sadd-
ams gangi nú í lið með þeim.
Teheranútvarpið sagði í gær
að kúrdneskir skæmliðar hefðu
gert áhlaup á stjómarherstöðvar í
borginni Ranya, handtekið þar 19
emSættismenn og tekið þá alla af
lífi þegar í stað. Flóttamenn frá
bardagasvæðum, nýkomnir til ír-
ans, segja stjómarher nýlega hafa
skotið sprengikúlum á Amara,
borg norðvestur af Basra, og
drepið og sært fjölda óbreyttra
borgara.
Iraksstjóm hefur nú loks við-
urkennt nokkumveginn urr.búða-
laust að hún eigi við uppreisn að
stríða, en fátt er um hlutlausar
fréttar af átökunum. Talsmenn
Bandaríkjahers héldu því ffarn í
fýrradag að stjómarhemum hefði
því sem næst tekist að bæla upp-
reisnina niður.
6 SÍÐA— NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 15. mars 1991