Þjóðviljinn - 15.03.1991, Page 10

Þjóðviljinn - 15.03.1991, Page 10
Gunnar Gunnarsson: Aö ráðskast með lífs- afkomu „Öryggið er listamönnum hættulegt,“ segir Stefán Baidurs- son þjóðleikhússtjóri í viðtali við DV þann 9. þ.m. Vel má vera að það sé rétt hjá honum - í einhverj- um tilvikum og í einhveijum skilningi. En fyrst og fremst er hér klisja á ferðinni, sem erfitt er að ræða; hér er um staðhæfingu að ræða eilegar skoðun sem litlu máli skiptir í leiklistarumraSðu dagsins: uppsögnum nokkurra/ fastráðinna leikara og fáeinná annarra sem starfa við Þjóðleik- húsið. / I rauninni munu flestir lista- menn sem við leikhús starfa vera á því, að í þeim litlu leikhúsum sem hér er haldið úti, sé þörf á meiri hreyfanleik leikara, meira svigrúmi stjómenda leikhúsanna til að marka sér stefnu við verk- efnavai og hlutverkaskipan. End- umýjun er sérhverri stofnun nauðsynleg - endumýjun að ein- hvetju marki og ný hugsun. Það er reyndar tilgangurinn með því að ráða leikhússtjóra aðeins til ijögurra ára - sem og bókmennta- ráðunaut hans - að stnðla þannig að nýsköpun, ferskri hugsun, ferskum tökum; koma í veg fyrir stöðnun, sem löngum hefur ein- kennt íslenskt ieikhús, ekki síst Þjóðleikhúsið. En listræn stefna og ný hugs- un við stjómun eins leikhúss er eitt, ráðningaröryggi og trygg lífsafkoma er annað. Stundum heyrir maður listafólk úr leikhús- unum segja að „leiklistin sé lífs- hættuleg". Væntanlega eiga menn þá við að öllu sé til kostað, tíma og hæfdeikum, og á endanum standi leikarinn eftir berskjaldað- ur vegna þess að í rauninni vinni hann aðeins hjá sjálfum sér, geti ekki reitl sig á neitt nema sjálfan sig. í þessum skilningi er leiklist- in áreiðanlcga lífshættuleg og vegna þessa á enginn listamaður að setjast að og gerast makráður í tryggri stöðu. Hitt er svo annað, að manneskja sem hefúr unnið einu fyrirtæki af trúmennsku ámm, jafnvel áratugum saman, á það síst af öllu skilið að vera vís- að á dyr vegna duttlunga nýrra stjómenda. Trúlega er þetta tvennt: ráðningar- eða afkomuör- yggi starfsmanna annars vegar og listræn stefnumörkun skamm- tímastjómenda hins vegar með öllu ósættanlegt. „Sárt og persónu- legt mál“ I DV-viðtali sagði þjóðleik- hússtjóri að uppsagnir eins og þær sem hann hefur staðið að væm ævinlega „sárt og persónulegt mál“. Vissulega. Það sem Stefán hefði þurft að gera var að brjóta algerlega upp allt ráðningarfyrir- komulag við leikhúsið, hugsan- lega ýta til hliðar þessu fólki sem hann rak út, setja það á einhvers konar biðlaun, þaðan sem það ætti svo hvenær sem væri afturkvæmt inn á skammtímasamning sem gæfi meira af sér, bæði í Iaunum og hlutverkum. Frá hreinu rekstr- ar- eða viðskiptasjónarmiði verð- ur leikhús að byggja á stöðugri endumýjun. En það verður jafn- framt að halda fast í reynslu, menntun og hæfileika sem það sjálft hefur átt mestan þátt í að rækta. Leikhús er ekki aðeins sviðið, æfmgasalir og áhorfenda- rými. Það er líka háskóli starfs- mannanna, símenntunarstofnun. Leikhús er ekki aðeins eign þjóð- arinnar, áhorfenda - það er líka eign leikhúsfólksins. Tilvist þess byggist ekki síður á því fólki sem þar starfar og skapar hefðir, stendur fyrir nýsköpun, en því fólki sem kaupir aðgöngumiða. „Sárt og persónulegt,“ sagði Stefán. Án efa - það er ævinlega sárt að lenda í þeirri uppgjafar að- Nokkrir „kóngsins lausamenn" í leiklistinni utan við Þjóðleikhúsið. - Myndin erfrá 1983. gerð að höggva á hnút sem aðrir hafa hnýtt. Það er miklu mann- borulegra að beita hæfileikum sínum og gáfum til að leysa hnút- inn. Það kann að vera að ráðn- ingaröryggi sé sumum einstak- lingum hættulegt. Öðrum er það nauðsyn. Sá leikarafjöldi, sem árum saman hefur sinnt Iist sinni á mjóum þvengjum og ekki búið við ráðningaröiyggi, tekur undir réttmæti uppsagnanna í samtöl- um. Og ekki nema eðlilegt, þvf Iausráðnir vilja komast að, fá staðfestu í lífinu. Það er þó alveg Ijóst að margir þeirra kóngsins lausamanna í leiklistinni myndu þroskast og taka framforum ef þeir aðeins byggju við einhvers konar ráðningaröryggi. Lífsaf- koman skiptir nefnilega máli. Það er bara kokhreysti að segja mann- eskju upp ráðningarsamningi - vegna þess að ekki er áhugi á því að nýta starfskrafía hennar - en segja jafnframt að hún hljóti að spjara sig á hlaupum í framtíð- inni. Hvemig? Eða berum við enga félagslega ábyrgð? „1932“ í Borgar- leikhúsinu Á Qölum Borgarleikhússins var frumsýnt um daginn nýtt leik- rit eflir Guðmund Ólafsson, leik- ara og rithöfund m.m. Yrkisefni Guðmundar er kreppan á fjórða áratugnum, atvinnuleysið sem þá ríkti, örlög einstaklinga sem áttu sér fáar bjargir í miskunnarleysi fátæktar. Á þeim árum sem verkið fjallar um, var íslenskt þéttbýlis- samfélag að myndast, borgara- Alþýðubandalagið í Kópavogi Félagsfundur Félagsfundur verður haldinn mánudaginn 18. mars í Þinghóli, Hamraborg 11. Fundurinn hefst kl. 20.30. Dagskrá: Kosningaundirbúningur og kynning á kosningastefnuskrá Alþýðubandalagsins. Framsögur: Sigríður Jóhannesdóttir, í 2. sæti G-listans á Reykjanesi, og Valþór Hlöðversson, bæjar- fuíltrui og í 3. sæti G-listans á Reykjanesi. Sigríður Almennar umræður - fyrirspumir og svc; Önnur mál. Stjórnin. Valþór stétt og verkalýðshreyfmgu báð- um að vaxa fiskur um hrygg, sú pólitík sem átti eftir að setja mark sitt á íslenskt samfélag næstu ára- tuga að skjóta rótum. Atvinnuleysingjamir, það fólk sem umrót tíðarinnar bitnaði harðast á, eiga alla samúð höfúnd- ar. Hann er að fjalla um hvers- dagsumhverfi afa og ömmu, pabba og mömmu. Fátæktarsam- félagið er ekki lengra frá okkur í tíðinni en svo - við munum þetta í raun og veru vel. Vitneskjan eða tilfmningin fyrir fátæktinni og skortinum hlýtur að blossa upp í hvert skipti sem talið berst að uppsögnum. Við heyrum þannig ræðu næstum daglega. Við heyr- um af uppsögnum í ýmsum starfs- greinum: veiðimannasamfélagið er fallvalt - ennþá; það þykir sjálfsagt að segja upp fólki í fisk- vinnslu, iðnaði og þjónustu; lyrir- tæki fara á hausinn, skipta um eigendur o.s.frv. Það öryggisnet sem heldur sérhveijum á ævi- löngu floti hefur víst ekki enn ver- ið fundið upp. Einmitt þess vegna eru uppsagnir hjá gróinni stofhun sem, á stundum að minnsta kosti, starfar af þrótti - ærið kaldrana- legar. Leikari eða starfsmaður Leikarar í Félagi íslenskra leikara munu vera vel á þriðja hundraðið. Stöðugildi við Þjóð- leikhúsið, hjá L.R. og L.A. munu ekki vera nema tæplega sextíu. Af því leiðir að maður verður á stundum var við öfúndamöldur þeirra sem utan húsanna standa. Og eins hræðslu þeirra sem halda ráðningu, en hafa ekki náð að “slá í gegn” eða gera stórum hlutverk- um skil. Það er víst að margir þeirra sem hafa “haldið stöðum” innan leikhúsanna hefðu gott af að fara í endurhæfingu utan veggja þeirra. Á stundum er hvíslað: hvers vegna er þessi á samningi? Hvers vegna ráðið þið ekki þennan eða þessa? Á ekki að fara að endur- nýja - segja upp? En svarið við þannig spumingum þarf ekki endilega að koma frá stjómendum leikhúsanna heldur - og ekki síð- ur - frá hveijum og einum starfs- manni: það er ekkert eðlilegra en að menn scgi starfi sínu lausu. Flestir leikarar em reyndar ffemur starfsmenn en listamenn - hinir snjöllu leikarar á íslensku leik- sviði em ekki svo margir; hinir sem aðeins nýtast vel em fleiri. Þeir sem fylla stærri hópinn mynda gjaman áhrifahópa, beita sér af alefli á félagslega sviðinu til að halda völdum og áhrifum, mynda “fjölskyldur” innan leik- hússins, hnýta hnúta sem enn erf- iðara er að leysa en þann sem þjóðleikhússtjóri hjó á. Smám saman verður valdahópurinn að sterkri klíku sem lokar að sér, múlbindur í raun allt og alla í kringum sig, enga ákvörðun er hægt að taka vegna þess að hún kann að koma einhveijum í ráð- andi klíku illa. Og aldrei er hugs- að langt fram á veginn, nema þeg- ar búa þarf enn betur i haginn fyr- ir ráðandi “fjölskyldu”. Þessi hópur hugsar ekki lengur um leik- list - félagsstarfið hefúr komið í staðinn. Það er lögmál að valda- hópar verða eigingjamir, íhalds- samir, hræddir um eigið skinn. Þar af leiðir að koma þarf í veg fyrir sjálfvirka framlengingu ráðningarsamninga og sjálfkrafa endurkjör í trúnaðarstöður. Uppsagnir - liður í stef numótun í rauninni er það eðlilegt, að nýr listrænn stjómandi leikhúss kippi upp að hlið sér þeim lista- mönnum sem hann helst vill vinna með - og marki þannig nýja stefhu. Þar af leiðir að hann verð- ur nauðugur viljugur að ýta ein- hverjum frá sér, jafnvel segja þeim upp. Þegar gengið var til ráðningar nýs þjóðleikhússtjóra á síðasta ári, hlýtur það að hafa komið til tals að væntanlegur þjóðleikhússtjóri ætlaði sér að segja hluta starfsliðsins upp. Varla heftir hann tekið það upp hjá sér eftir að ffá ráðningu hans sjálfs var gengið. Það væri nánast sið- laust - a.m.k. í nokkmm uppsagn- artilvikanna. Hafi þær uppsagnir sem nú em afstaðnar verið ræddar og ákveðnar þegar nýr stjómandi var ráðinn að Þjóðleikhúsinu - í sambandi við hans listrænu stefnumörkun - hefði stjóm húss- ins átt að segja fólkinu upp þannig að nýi maðurinn kæmi að “hreinu borði”. Rekstrarfyrirkomulag Þjóð- leikhússins er ekki þannig að einn stjómandi geti eða eigi einn að bera alla ábyrgð. í lýðræðisþjóð- félagi em gerðar miklar kröftir til einstaklinga. Og í listastofhun eins og leikhúsi verða starfskraft- ar og stjómendur að sæta því að bera ábyrgð, að vinna sinni stofn- un á jákvæðan og uppbyggilegan hátt, þjóna listinni og ekki meint- um eigin hagsmunum. Það er svo annað mál hvort stofhunin hefúr á að skipa stefnuföstum og snarráð- um stjómanda; þannig stjómandi á að vinna skoðunum sínum og listrænni stefnu framgang í krafti aðstöðu og útsjónarsemi - en ekki með því að mgga bátnum þannig að áhöfnin óttist það stöðugt að lenda útbyrðis og geri því ekkert nema halda sér fast til að tmfla ekki siglinguna. (Höfundur cr leiklistarráðunautur Leikfélags Reykjavíkur) 10 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. mars 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.