Þjóðviljinn - 15.03.1991, Blaðsíða 24
Þaö þarf stundum að leggja töluvert á sig til að ná góðu skoti ( biljarð.
Föstudagur 15. mars 1991 52. tölublað 56. árgangur
Mikla nákvæmni og eftirtekt þarf til að ná árangri ( biljarð.
Knattborðsleikir
Með slæma
fortíð en
Til að kjuðinn sé góður þarf að krit’ann með vissu millibili.
bjarta framtíð
Knattborðsstofum hefur Qölgað, enda vaxandi
áhugi á íþróttinni. Birgir Lárusson: Eigum efni-
lega spilara sem geta náð langt
Hér á árum áður voru
knattborðsleikir betur
þekktir sem afþreying allskonar
slarkara og misindismanna.
Knattborðsstofurnar voru álitn-
ar gróðrarstía spillingar og síð-
ur en svo heppilegar fyrir unga
og heilbrigða æsku. I dag er
þessu öðruvísi farið þótt enn
eimi eftir af þessu í hugum eldri
manna.
Á síðustu árum hafa komið
fram á sjónarsviðið mjög svo
frambærilegir spilarar. Þeir líta á
knattborðsleikina sem hverja aðra
íþrótt sem hægt er ná langt í, ef
vilji er fyrir hendi. Þar nægir að
nefna núverandi Islandsmeistara í
snóker, Brynjar Valdimarsson,
sem sló í gegn á dögunum í keppni
í Englandi.
Biljarður er samheiti yfir
knattborðsleikina sem eru tvenns-
konar: Annarsvegar snóker, sem
er enska útgáfan af biljarði, og
hins vegar pool sem er ameríska
útgáfan. 1 orðabókum er það þýtt
sem vasabiljarður sem hefur allt
aðra merkingu en að skjóta kúlum
með kjuða. Munurinn á þessum
tveimur knattborðsleikjum er sá
að í snóker er leikið með 22 kúlum
á 12 feta borðum en í svokölluðum
vasabiljarði (pool) er leikið með
15 kúlum á 9 feta borðum. Þar eru
kúlumar einnig stærri en í snóker.
Birgir Lárusson, eigandi knatt-
borðsstofunnar við Hverfisgötu
46, segir að keppt sé í báðum þess-
um knattborðsleikjum en þó sé
snókerinn vinsælli enn sem komið
er. I biljarðinn sækja aðallega 14-
17 ára strákar sem að mati Birgis
eru mjög efnilegir. Hann segist
ekki vera í nokkrum vafa um að
þeir geti orðið spilarar á heims-
mælikvarða, verði verði þeið hald-
ið við efnið. Birgir segir að gald-
urinn við þessa íþrótt sé sá sami og
við flestar aðrar, það er að vera í
Skipverjar á togaranum Sigurfara ÓF styttu sér stundir [ gær við að spila biljarð á knattborðsstofunni að Hverf-
isgötu 46 og einn þeirra gaf sér tíma til að sýna þessari ungu stúlku réttu handtökin. Myndir: Jim Smart.
góðu jafnvægi og hafa einbeiting-
una í lagi. Enda sé það spuming
um millimetra hvort kúlan rati
rétta leið eða ekki.
Á síðasta ári fjölgaði knatt-
borðsstofum mikið á höfuðborgar-
svæðinu og jafnvel víðar og sömu-
leiðis jókst áhugi almennings á
íþróttinni. Það sem einkum varð til
þess að glæða áhugann vom heim-
sóknir heimsþekktra spilara hing-
að til lands, og nægir þar að nefiia
Steve Davis sem er margfaldur
heimsmeistari í snóker. Samhliða
þessum heimsóknum var íþróttin
mikið auglýst og sýnt frá keppn-
um í sjónvarpi. -grh
NÝTT
Heíáarblad
piómnuiNN áP*