Þjóðviljinn - 27.04.1991, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 27.04.1991, Blaðsíða 3
Húsbréf Hvernig minnka má sorp Næstkomandi mánu- dagskvöld heldur Svíinn Per Berg, lektor við Chalm- ers tækniháskólann í Gautaborg, fyrirlestur um aðferðir við að minnka sorp og um reynslu Svía af til- raunum í þá átt. Per Berg hefur starfað síð- an 1977 sem forstöðumaður deildar við Chalmers sem hef- ur sérhæft sig í rannsóknum á meðhöndlun og nýtingu sorps en hefur auk þess starfað sem ráðgjafi fyrir bæjarfélög og fyrirtæki á Norðurlöndum. Ymsar tilraunir hafa verið gerðar á síðustu árum á veg- um sænskra bæjarfélaga af mismunandi stærð í samvinnu við rannsóknarstofnanir og fyrirtæki um að minnka og meðhöndla sorp með nýjum aðferðum. Per Berg hefur víð- tæka þekkingu á þessum mál- um og geta Islendingar vafa- lítið lært af reynslu annarra þjóða um meðferð sorps. Fyrirlesturinn þann 29. apríl er haldinn á vegum ís- landsnefndar Norræna um- hverfisársins og Norræna hússins og hefst kl. 20.30. Per Berg mun halda tölu sína á sænsku en fyrirspumir em að sjálfsögðu leyfðar bæði á ís- lensku og ensku. Greiðslumat á 168 stöðum 4 STÆRSTU LÁNASTOFNANIR LANDSINS HAFATEKIÐ HÖNDUM SAMAN: Greiðslumat umsækjenda í húsbréfakerfinu fer hér eftir fram í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. Frá og með 29. apríl nk. munu neðangreindar fjármálastofnanir veita viðskiptamönnum sínum mat á greiðslugetu þeirra: Jafnframt hættir Húsnæðisstofnun með öllu að veita umsækjendum greiðslumat vegna húsbréfaviðskipta. Þær umsóknir um greiðslumat sem nú þegar liggja fyrir í Húsnæðisstofnun, verða þó afgreiddar. Allt frá upphafi húsbréfakerfisins, í nóvember 1989, hefur staðið til að lánastofnanir tækju sjálfar upp þá þjónustu í þágu viðskiptamanna sinna að veita þeim mat á greiðslugetu þeirra, hyggðust þeir sækja um í húsbréfakerfinu. Er nú komið að því. HANDBRAGÐ MEISTARANS Bakarí Brauðbergs Ávallt nýbökuð brauð -heilnæm og ódýr- Aðrir útsölustaðír: Hagkaup-Skeifimni -Kringlunni Verslunin Vogar, Brauðberg Lóuiiúhur 2-6 sfeni 71Í39 Hreunberg 4 sfani 77272 Ofangreindir aðilar grundvalla greiðslumat sitt á sömu forsendum og Húsnæðisstofnun hefur gert til þessa og nota tölvuforrit hennartil þess. Er umsögn um greiðslugetu umsækjanda enn sem fyrr skilyrði fyrir afgreiðslu í húsbréfakerfinu. Þjónusta þessi verður veitt í alls 168 afgreiðslustöðum ofangreindra lánastofnana. Það er von okkar að þessi nýja tilhögun verði til hagsbóta fyrir almenning, auðveldi umsækjendum aðgang að húsbréfakerfinu og auki á öryggi væntanlegra húsnæðiskaupenda. Hér með bendum við því tilvonandi umsækjendum í húsbréfakerfinu á að hafa samband við viðskiptabanka sinn, sparisjóð eða verðbréfafyrirtæki og fá allar nánari upplýsingar um þessa nýju þjónustu. Reykjavík í apríl 1991 Ót 8K3 HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.