Þjóðviljinn - 27.04.1991, Blaðsíða 25

Þjóðviljinn - 27.04.1991, Blaðsíða 25
Hættulegt fjör á Gufunni Hvenær má klippa? Brlet Héðinsdóttir sem dagskrárgerðarmaðurinn Karlotta Meyer Þjóðleikhúsið / Litla sviðið, Lindargötu 7 Ráðhcrrann kiipptur (Prometheus i saksen) Höfúndur: Emst Bruun Olsen Þýðing: Einar Guðmundsson og leik- hópurinn Leikstjóm: Signin Valbcrgsdóttir Hljóðmynd: Vigfús Ingvarsson Leikmynd og búningar: Messíana Tómasdóttir Lýsing: Ásmundur Karlsson í nútímaíjölmiðlun útvarps og sjónvarps þrifst öfugmælið „að ldippa saman“ segulbönd og myndræmur. (Fyrri tíðar fólk gat aðeins „klippt sundur“ hlutina). Með „samklippingum" útvarps- og sjónvarpsþátta er síðan hægt að ífamkalla öfugmæli og staðl- eysur, hagræða sannleikanum. Og í þessu hlægilega leikriti, „Ráð- herrann klipptur", er meðal ann- ars fjallað um þær hættulegu til- færingar í útvarpsþætti, þegar umsjónarmaðurinn, menntamála- ráðherra danskra krata segir eitt en meinar annað. Og framkvæmir það þriðja. Þetta verk um atburði í hljóð- stofu númer átta á Gufunni fjallar um stjómmál og siðferði, ábyrgð, hugrekki og vinnusiðgæði. Allt er þetta fléttað inn í fjöruga atburða- rás þar sem segulbandstækið og rafeindatæknin nýtast á frumleg- an máta til að ílétta saman þær kyndugu tilviljanir, misskilning og mistök sem henta farsakennd- um atriðum. Menntamálaráðherrann Hans Erik (Erlingur Gíslason) er skop- mynd af hála, undirforula stjóm- málaálnum sem ætlar sér að skreyta útvarpsþátt sinn með við- tali við unga, óreynda mennta- konu, og þótt orðin sprautist úr honum fer þó svo að írena Krist- ensen (Erla Ruth Harðardóttir) reynist sú gedda í viðskiptum að alít fer upp í loft, bæði varðandi blessaðan útvarpsþáttinn og í hugum tæknimannsins Ola hljóðs (Baltasar Kormákur) og Karlottu Meyer, dagskrárgerðarmanns (Bríet Héðinsdóttir). Skemmst er ffá að segja að ungu leikaramir Erla Ruth og Baltasar em þama jafn spriklandi fiskar í vatninu og hinir þaul- reyndu listamenn Bríet og Erling- ur. Þau móta eftirminnilegar og margtóna persónur, og leikstjór- inn Sigrún Valbergsdóttur nýtir allan efnivið sinn á þaulhugsaðan og markvissan hátt. Enginn er hér boðskapsvaðall, en leikritið er samið til þess að vekja til umhugsunar og að draga dár að ýmsum öfugmælum í fjöl- miðlun og stjómmálum, yfir- drepsskap, hræsni og sjálfs- ánægju. Um leið kynnumst við brotum úr daglegu amstri, ástum, lífi og áhyggjum persónanna og hér er Ioksins allt eins og maður vill hafa það: Frumlegt, fýndið, ágengt og vel skrifað erlent leikrit með erindi, sem tekist hefur full- komlega að nema land. Traust leikstjóm og sannfærandi flutn- ingur, þar sem ungir og ferskir leikarar fara á kostum með reynd- ari hetjum. Hrein og notadrjúg leikmynd, búningar og lýsing. Möguleikar Litla sviðsins brúk- aðir með besta hætti. 1 fáum orð- um: Lifandi leikhús, sprelllifandi. Margir Islendingar hafa áður séð þetta danska leikrit í sjón- varpsbúningi frá Danmarks Radio. Undirritaður sá einnig danska frumuppfærslu verksins á sviði á sínum tíma og tók þá þátt í býsna fjörugum sam-norrænum umræðum leikhúsfólks um sýn- inguna og boðskap hennar. Þarf- lítið er að metast í þessu efni, en ekki verður annað séð en íslenska útgáfan í leikstjóm Sigrúnar Val- bergsdóttur á Litla sviðinu slái þeim dönsku báðum við. Jafnt hraðinn og ákafinn sem og blíðari tónar verksins komast vel til skila og styrkja alvarlegri straumana. Þótt efniviðurinn sé að vísu að nokkru leyti stað- og tímabund- inn og dragi dám af hugarfari og orðbragði upp úr olíukreppu sjö- unda áratugarins, kemur i ljós að kjami verksins um ábyrgð ein- staklingsins og tilvísan til goð- sagnanna um Prómeþeif (frelsið) og Irenu (friðinn) er það traust- lega bundinn i textanum, að sýn- ingin verður um leið sígild hug- leiðing um frelsi, vald og vald- níðslu. I leikskrá hnykkja að- standendur þessa velheppnaða leikhúss skemmtilega á öllu sam- an með vel til fundnum „slaðhæf- ingum“ og textabrotum um sama efhi. ÓHT Fílharmónía Haydn- tónleikar Söngsveitin Fílharmónía heldur _ Haydn-tónleika undir stjóm Ulriks Ólasonar i Krists- kirkju, Landakoti, í dag kl. 17 og á morgun kl. 20:30. Auk 80 söngvara í kómum koma fram einsöngvaramir Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Þuriður Baldurs- dóttir, Þorgeir J. Andrésson og Tómas Tómasson. Ennfremur 24 manna hljómsveit þar sem Szym- on Kurán er konsertmeistari. A efhisskrá em Sinfónía nr. 26 í d-moll, Lamentatione, og Nelson messa i d-moll. Franz Joseph Haydn (1732-1809) samdi fyrra verkið 1768 og vísar heitið til laglínu úr Gregorsöng kirkjunnar. Nelson messan er á Englandi stundum nefnd „krýn- ingar-“ eða „konungsmessa“ vegna virðuleika síns, en hún er samin 1798 milli „Sköpunarinn- ar“ og „Árstíðanna". ÓHT Vortónleikar Stefnis Vortónleikar karlakórsins Stefnis i Mosfellsbæ verða haldn- ir í Hlégarði á sunnudaginn kl. 17, og aftur á þriðjudaginn kl. 20:30, en loks miðvikudag 1. maí í Langholtskirkju kl. 20:30. Stjóm- andi er Láms Sveinsson, undirleik annast Guðrún Guðmundsdóttir. Einsöngvarar á tónleikunum em Þorgeir Andrésson, Böðvar Guð- mundsson, Bjöm Ó. Björgvinsson og Þórður Guðmundsson. ÓHT UM HELGINA Merkinaar: * NÝTTI VlKUNNl ! LÝKUR UM HELGINA MYNDLIST Ásmundarsafn við Sigtún: Sýningin „Bókmenntirnar í list Ásmundar Sveinssonar". Ný viðbygging hefur verið opnuð. Opið 10-16 alla daga. Bókasafn Kópavogs, Jón G. Ferdínandsson sýnir dúk- prent í liststofu. Opið má-fö 10-21, lau 11-14. FlM-salurinn, Garðastræti 6, lau kl 14: Helga Magnús- dóttir opnar málverkasýningu, opið 14—18 til 5. maí. Gallerí Borg, Pósthússtræti 9: Eiríkur Smith með nýjar vatnslitamyndir. Opið virka daga 10-18 og um helgar 14- 18 til 30. apríl. Gallerí einn einn, Skóla- vörðustíg 4A lau kl 15: Perfor- mans við opnun sýningar Hannesar Lárussonar á blönd- uðum, nýjum verkum. Dagl 14- 18 til 2.maí. Gallerí List: Wu Shan Zuan sýnir olíumálverk, blekverk á pappír og rýmisverk. Til 3. maí. Gallerí Sævars Karls: Birg- ir Andrésson með myndlistar- sýningu. Opið 9-18 virka daga, 10-2 á laugardögum til 17. maí. Gerðuberg: Samsýning reykvískrar æsku í tilefni af Listahátíð æskunnar. Opið má-fim 10-22, fö-su 10-18, til 18. maí. * Hafnarborg, Hafnarfirði: Baltasar með 30 málverk. Op- ið 14-19 daglega og 14-19 um helgar til 12. maí. * Kjarvalsstaðir lau kl 16: Yoko Ono opnar yfirlitssýn- ingu. * Austursalur lau kl 16: Opnuð sýning á verkum Flux- us-listamanna. Dagl 11-18 til 21. apríl. Listasafn Einars Jónsson- ar: lau og su 13.30-16, garöur- inn alla daga 11-17. Listasafn íslands: Sýning á verkum danskra súrrealista. Til 5. maí. „Fiðrildi og furðudýr", myndir og skúlptúrar nemenda Bústaðaskóla. Opið 12-18 nema mánudaga. Listasafn Sigurjóns Ólafs- sonar: Andlitsmyndir 1927- 1980. Um helgar 14-17 og þrið.kvö 20-22. Mokka-kaffi við Skóla- vörðustíg: Ljósmyndasýning Davíðs Þorsteinssonar, til 15. maí. ! Norræna húsið: Jón Reykdal með málverkasýn- ingu. Til 24. apríl. Anddyri: Sýning á teikning- um og myndskreyttum Islensk- um barnabókum í tenglsum v. Listahátíð æskunnar. Til 28. apríl. * Nýlistasafnið lau kl 16: Guðjón Ketilsson opnar sýn- ingu á máluðum tréskúlptúrum og Finnbogi Pétursson opnar myndlistarsýningu. Opið 14-18 alla daga til 21. apríl. Safnaðarheimili Akureyrar- kirkju Myndlistarsýning fimm kvenna á Kirkjulistaviku undir þemanu „trú“. Slunkaríki, isafirði: Kristján Guðmundsson með myndlist- arsýningu. Opið mið - su kl 16-18. Verkalýðsfélagið Árvakur á Siglufirði; Myndlistarsýning Helgu Sigurðardóttur. Opið 20- 22 virka daga en 14-19 um helgar til 5. maí. TÓNLIST Akureyrarkirkja su kl 14: Hátíðarmessa, Missa Brevis (orgelmessan) eftir Mozart. Kammersveit Akureyrar, Kór Akureyrarkirkju, einsöngvarar. Áskirkja su kl 17: Kammer- sveit Reykjavíkur með verk eft- ir Mozart og J. G. Naumann. Bústaðakirkja su kl 17: Orgeltónleikar, Marteinn H. Friðriksson. Gerðuberg má kl. 20:30: Ljóðatónleikar, Hlégarður su kl 20:30: Karlakórinn Stefnir með tónleika í stjórn Lárusar Sveinssonar. íslenska óperan má kl 20:30: Tónlistarskólinn í Reykjavík, einleikarapróf, Sif Tulinius (fiðla), Steinunn Birna Ragnarsdóttir (píanó). Kristskirkja lau og su kl 17: Söngsveitin Fílharmónía, ein- söngvarar og hljómsveit flytja Nelson-messu e. Haydn. Stjórnandi Úlrik Ólason. Langholtskirkja lau kl 17: Karlakórinn Fóstbræður m. ár- lega samsöngva á 75 ára af- mælinu, sex stjórnendur. Minni kór og hátíðarkór eldri félaga. Safnaðarheimili Akureyrar- kirkju kl 17: Ljóðatónleikar m. trúarlegum Ijóðum, Margrét Bóasdóttir sópran og Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari. Salur frímúrara á ísafirði lau kl 17: Einar Kristján Einars- son með gítartónleika, íslensk, japönsk, spænsk og suð- ur-amerísk verk. HITT OG ÞETTA Borgarleikhúsið, 14-17: Sýningin „( upphafi var óskin“. Ferðafélag íslands su kl 10:30: Gönguferð um gosbelt- ið, Eldvörp-Sandfells- hæð-Bláa lónið. Su kl 13: Eld- vörp (borholan) - „Útilegu- mannakofarnir" - Bláa lónið. Brottför frá Umferðarmiðstöð austanmegin. Hana nú í Kópavogi, laug- ardagsgangan, lagt af stað kl 10 frá Fannborg 4 (ekki Digra- nesvegi 12, - heimaslóðin hef- ur verið fluttl). Kramhúsið sunnudags- kvöld: Danssýning, dansverk, uppákoma, tangó, afró-karab- ísk danssveifla. Kvæðamannafélagið Iðunn á Hallveigarstöðum lau kl 20: Fundur m. fjölbreyttri dagskrá í bundnu og óbundnu máli. Góðar vetingar. MÍR, Vatnsstíg 10 SU kl 16, síðasta reglubundin kvik- myndasýning á starfstímabil- inu: „Hvítur fugl með svartan díl“, leikstj. Júrí lljenko, um misjöfn viðbrögð innan úkra- ínskrar fjölskyldu við innrás nasista. Enskt tal. Myndin hlaut m.a. verðlaun á 7. kvik- myndahátíðinni í Moskvu. 1. maí síðdegis: Syrpur stuttra mynda, teiknimynda osfrv. Aðgangur að öllum sýn- ingum ókeypis. Norræna húsið má kl 20:30: Per Berg frá Gautaborg með fyrirlestur um sorpeyð- ingu. Útivist: Kl. 10:30 og 13: Brottför frá Umferðarmiðstöð, bensínsölu, stansað á Kópa- vogshálsi, v. Ásgarð í Garða- bæ og Sjóminjasafnið í Hafn- arfirði. Laugardagur 27. apríl 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 25

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.