Þjóðviljinn - 27.04.1991, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 27.04.1991, Blaðsíða 16
Ávarp í tilefni alþjóðadags dansins 29. apríl 1991 Dansinn er elsta tjáningar- form mannsins. Hann dansaði í takt við hljómfall náttúrunnar, þytinn í tijánum og öldunið hafs- ins. Þörfín til að tjá sorg og gleði, ást og athafnir í dansi hefur fylgt manninum frá upphafí. Hann dansaði á vorin til dýrðar nýju lífi, hann dansaði þakkardans á haust- in fyrir góða uppskeru. Frá fæð- ingu til dauða átti hver merkisat- burður í lífi mannsins sér dans. Dansinn hefur ávallt verið rík- ur þáttur í lífi mannsins og menn- ingu þjóða. En hvemig hlúum við að þessari eðlislægu hvöt manns- ins. Erdansinn ekki jafn nauðsyn- legur nútímamanninumsemskap- andi afl og hann var í bemsku mannkyns? Hver er staða dansins í okkar listmenningu? Um þessar mundir stendur yfir Listahátíð Æskunnar dagana 20. til 28. apríl og það er mikið ánægjueíhi að daglega er framin danslist með bömum á ýmsan hátt á mörgum stöðum í Reykjavík. Hreyfing og dans er heillandi tjáningarmáti, sem á sér ótak- markaða túlkunarmöguleika í formi og myndum. Hann á sér engin landamæri og segir meira en orð fá lýst. A síðari ámm hefúr athygli manna sem láta sig varða uppeldi bama beinst í æ ríkara mæli að þörf bama til að sameina hreyf- ingar og tilfinningar til samskipta við umhverfi sitt. En því miður hafa ekki öll böm jöfn tækifæri til dansupplifunar og að þroska með sér skapandi hæfileika í dansi. Hingað til hafa einungis þau böm sem hafa félagslegan og siðferðis- legan stuðning í sínu nánasta um- hverfi slík tækifæri og þá í sér- skólum. Nú hefur menntamálaráðu- neytið með sinni menningarstefnu gefið okkur nýja framtíðarsýn í uppeldi bama með eflingu list- kennslu í skólum. Vonandi fáum við möguleika til að varðveita og þroska þá náttúrulegu hreyfigleði, sem í baminu býr en umhverfið heftir oftast í uppvexti þess. Bam- ið verður að fá hvatningu og þjálf- un í að skapa og tjá sig um það sem á vegi þess verður, og sá vett- vangur sem gæti gefið öllum bömum jafnan möguleika til þroska á sviði dansins í tengslum við raunveruleika þeirra, samfé- lagið og aðra listsköpun, era gruxmskólamir. Nanna Ólafsdóttir, formaður Félags íslenskra listdansara wmÆZiiSií'iMiBlmCS: Framhaldsskólinn í Austu r-Skaftafel Issýsl u Framlengdur er umsóknarfrestur um áður auglýstar stöður við skólann næsta skólaár, 1991-1992. Lausar kennarastöður og stöðugildi í dag- skóla: Danska hálf staða, enska heil staða, þýska hálf staða, stærðfræði heil staða, raungreinar (efnafræði, eðlisfræði, líffræði) hálf staða, við- skiptagreinar og tölvufræði heil staða, íþróttir og bókleg kennsla á íþróttabraut heil staða, skipstjórnargreinar (1. stig) heil staða. Auk þess kennsla við öldungadeild skólans eftir nánara samkomulagi. Jafnframt er auglýst eftir aðila til starfa að fé- lagsmálum með nemendum (hlutastarf). Þá er auglýst laust til umsóknar starf fjármála- stjóra skólans, hálf staða. Umsóknir fylgi upplýsingar um menntun og fyrir störf. Umsóknarfrestur er til 15. maí næstkomandi. Nánari vitneskju veitir skólameistari í síma 97- 81870 eða 97-81176. Fyrir hönd Framhaldsskólans Skólameistari Frá menntamálaráðuneytinu: Laus er til umsóknar staða skólameistara Vélskóla íslands. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík fyrir 1. júní nk. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ 't C z "\S5í Innkaupastofnun ríkisins fyrir hönd heilbrigðis og tryggingamálaráðuneytis, óskar hér með eftir tilboðum í smíði tengigangs milli eldhús- byggingar og aðalbyggingar Landspítalans í Reykjavík. Helstu kennitölur: Heildargólfflötur 2.770 ferm Heildarrúmmál húsa 11.000 rúmm Uppgröftur 7.300 rúmm Steypa 1.600 rúmm Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Inn- kaupastofnunar ríkisins eftir næstkomandi þriðjudag gegn 20.000,- kr. skilatryggingu. Tilboð skulu hafa borist Innkaupastofnun ríkis- ins, Borgartúni 7, eigi síðar en miðvikudaginn 22. maí 1991 kl. 11:00 f.h. og verða þau þá opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda. I INNKAUPASTOFWUN RÍKISINS BORGAHTÚNI 7; 105 REYKJAVIK Útboð % ■T Bitrufjörður 1991 Vegagerð ríkisins óskar eftir til- ,N boðum í lagningu 9,5 km kafla á /JHV Hólmavíkurvegi í Bitrufirði. Helstu magntölur: Fyllingar 10.400 rúmm, buröarlag 22.000 rúmm og bergskering 3.000 rúmm. Verkinu skal lokið 15. nóvember 1991. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerö ríkisins á Isafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 29. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöð- um fyrir kl. 14.00 þann 13. maí 1991. Vegamálastóri V ) ALÞYÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið I Reykjavík Almennur félagsfundur Almennur félagsfundur verður haldinn að Hverfisgötu 105 mánudaginn 29. apríl kl. 20.30. Dagskrá: 1. Kosning uppstillinganefndar vegna aðalfundar. 2. Stjórnmálaviðhorfið - almennar um- Svavar ræður. Frummælandi Svavar Gestsson alþingismaður. 3. Önnur mái. Stjórn ABR. AB Kópavogi Morgunkaffi Morgunkaffi laugardaginn 27. apríl f Þinghóli i Kópavogi frá kl. 10 til kl. 12. Valþór Hlöðversson bæjarfulltrúi verður til viötals. Allir velkomnir. Bæjarmálaráð ABK. Valþór G-listinn í Reykjavík Sigurhátíð Sigurhátíð í Risinu, Hverfisgötu 105, þriðjudaginn 30. apríl kl. 21. Dans, veitingar, fjöldasöngur og uppákomur. Félagar og stuðningsmenn fjölmennum. AB Keflavík og Njarðvíkum Opið hús Opið hús í Ásbergi á laugardögum kl. 14. Félagar og stuðningsmenn velkomnir ( kaffi og rabb. Stjórnin AB Keflavik og Njarðvíkum 1. maí kaffi 1. maí kaffi ( Ásbergi að kvöldi 1. maí kl. 20.30. Gestir kvöldsins verða: Ólafur RagnarGrlmsson, Svavar Gestsson, Geir Gunnars- son, Sigríður Jóhannesdóttir, Sólveig Þórðardóttir, Jón Páll Eyjólfsson og Bjargey Einarsdóttir. Allir velkomnir. Stjórnin AB Kópavogi Spilakvöld Spilakvöld á mánudag, 29. apríl, kl. 20.30, ( Þinghóli. Allir velkomnir. Stjórnin 16 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 27. apríl 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.