Þjóðviljinn - 27.04.1991, Qupperneq 8
Öigefandl: Útgáfufólagið Bjarki h.f Framkvœmdastjórf: Hallur Páll Jónsson Rltatjörar: Ami Bergmann, Ótafur H. Torfason, Algraiósla:« 6613 33 AuglýsíngadeHd:» 88 13 10 - 68 13 31 Simfax: 68 19 35
Helgí Guðmundsson Umsjónarmaöur Helgarblaós: Bergdla EllertsdóUír Fré«a*fjöri: Slgurður Á. Friðþjó , Auglýsingastjóri: Stemar Haröarson Verö: 150 krúnur i lausasölu Satnln hf. Prentun: Oddi hf. Aðsetun Síðumúla 37,108 Reykjavík
Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis
Leiftursókn í stjómarráðið
Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðis-
flokksins hefur fengið umboð til að mynda rík-
isstjórn og hafði fyrir löngu lýst því yfir að
hann myndi fyrst ræða við Alþýðuflokkinn um
myndun stjórnar þessara flokka. Jón Baldvin
Hannibalsson, og að því er virðist meirihluti
flokksstjórnar Alþýðuflokksins hefur látið í Ijós
einlægan áhuga á að slík stjóm verði mynd-
uð, þannig að stjómarmyndunin sýnist ein-
ungis vera handavinna sem tekur af á fáum
dögum.
Þetta er vafalaus ein merkilegasta stjóm-
armyndun um langan aldur vegna þess
hversu afdráttarlaust hún gengur gegn úrslit-
um kosninganna fýrir viku. Fráfarandi stjóm-
arflokkar fengu meirihluta þingmanna, 32 af
63. Þetta er sami meirihluti og þeir lögðu upp
með áður en Borgaraflokkurinn kom til sög-
unnar. Þá var þingið í tveimur deildum, þann-
ig aö stjórnin hafði ekki hreinan meirihluta í
annarri deildinni. Framvegis verður þingið í
einni málsstofu þannig að 32ja þingmanna
meirihluti dugir ekki einasta til að verja stjórn
falli, hann tryggir henni meirihluta við af-
greiðslu allra mála.
Því er á þetta bent nú að formaður Alþýðu-
flokksins hefur talið fram þau rök fyrir stjórn-
armyndun með Sjálfstæðisflokknum að þing-
styrkur vinstri stjórnarinnar yrði of naumur.
Þessi röksemdafærsla er algerlega út í hött
og skiptir engu máli eins og á stendur. Það
sem skiptir máli er að þau öfl hafa nú orðið of-
an á í Alþýðuflokknum sem næst standa
Sjálfstæðisflokknum og hafa lengi mænt á
viðreisnarstjóm.
Málatilbúnaður talsmanna Alþýðuflokksins
undanfama daga bendir líka allur í eina átt og
svo langt er gengið í ýmsum atriðum að flokk-
urinn kemur hægra megin að Sjálfstæðis-
flokknum. Þannig talar formaður Alþýðu-
flokksins um nauðsyn þess að skera niður
ríkisútgjöld um marga milljarða króna. í þvf
sambandi hefur hann meðal annars nefnt bú-
vörsamninginn og sagt að lækka þurfi greiðsl-
ur vegna hans um fjóra milljarða. Þaö verður
fróðlegt að sjá hvernig talsmönnum bænda í
Sjálfstæðisflokknum gengur að kyngja þeim
bita.
Að hefja nú stjómarsamstarf með það efst
á stefnuskránni að skera niður ríkisútgjöld um
marga milljarða króna, á sama tíma sem at-
beina ríkisvaldsins þarf til aö endumýja þjóð-
arsáttina í haust, getur ekki bent til annars en
að oddvitar flokkanna hugsi sér að segja sátt-
inni upp. Háir skattar og mikil ríkisútgjöld geta
aldrei verið markmiö í sjálfu sér, en í þjóöfé-
lagi þar sem atvinnulífið emjar undan hvem'
launahækkun, hversu lítil sem hún er, þar
sem búið er að koma málum svo fyrir að
kauphækkanirfara beint út í verðlagið, verður
ekki komist hjá því að beita samfélagslegum
sjóðum til tekju- og aðstöðujöfnunar. Félags-
leg þjónusta, heilbrigðis- og tryggingakerfi
hafa bein áhrif á lífskjör þúsunda fólks. Fé-
lagslega húsnæðiskerfið þarfnast mikilla fjár-
muna. Fáist þeir ekki eiga tekjulægstu fjöl-
skyldumar engra góöra kosta völ í húsnæðis-
málum, svo aðeins eitt dæmi af mörgum um
nauösyn kjarajöfnunar sé tekið.
Allt bendirtil þess að myndun ríkisstjómar-
innar muni taka fáa daga, svo ástfangnir sem
flokkamir eru hvor af öðrum. Ummæli þeirra
og vinnubrögð minna á þá leiftursókn sem
Sjálfstæðisflokkurinn boðaði árið 1979 og
kallaði „Leiftursókn gegn verðbólgu" en var
ekkert annað en tilraun til leiftursóknar gegn
lífskjörum. Nú sýnist vera að hefjast ný leiftur-
sókn, til að byrja með inn í stjórnarráðið. Tak-
ist stjórnarmyndunin, sem lítil ástæða er til að
efast um þessa stundina, verður ekki annað
ráðið af orðum herforingjanna, en sókninni
verði innan tíðar snúið gegn lífskjörum launa-
manna, þar sem verðbólga og háir vextir
haldast í hendur við niðurskurð ríkisútgjalda
með afleiðingum fyrir launamenn og atvinnu-
lífið í heild sem ekki er þörf á að fjölyrða um
aö sinni. hágé
* #
8 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 27. apríl 1991