Þjóðviljinn - 27.04.1991, Síða 10
Stjama
Jim
Morrisons
skín
skærar
en nokkru
sinni fyrr
„Mr. Mojo Risin“ knúinn áfram af sjálfseyðingarhvötinni. Hann mun hafa drukkið þrjár viskíflöskur á dag ofan í
aðra ólyfjan. Áhorfendur fylgjast spenntir með.
Ljóð
vega
menn
Helgi Ólafsson skrifar
„Um skeið var hann guð á
jörð, hafði allt sem hugurinn
girntist en varð leiður á því,“
sagði Oliver Stone leikstjóri
kvikmyndarinnar um rokk-
hljómsveitina The Doors sem
bráðlega verður tekin til sýn-
inga hér á landi. Myndin snýst
þó fyrst og fremst um söngvara
hljómsveitarinnar Jim Morri-
son og fall hans. Fáir persón-
leikar rokksögunnar hafa haft
meiri seiðmögnun en Jim
Morrison. Því hefur verið hald-
ið fram að í vitundarlífi hans
hafi átt sér stað klofningur
milli grísku guðanna Dionysus,
guð frjósemi, getnaðarþróttar
leiðsluástands og víns, og Ap-
pollon guð sólar, Ijóss, söngva,
hófsemdar og meistara mennta-
gyðja. Leiksvið Jim Morrison
hafi verið sú óræða borg Los
Angeles, einhvers konar nútíma
útgáfa Aþenu til forna.
Lífstíll frönsku ljóðskáldanna
Baudelaire og Rimbaud orkaði
sterkt á hann og nafn hljómsveit-
arinnar The Doors er fengið hjá
cnska 18. og 19. aldar ljóðskáld-
inu William Blake og rithöfund-
inum og heimsspekingnum Aldo-
us Huxley með skírskotun til bók-
ar þess síðamefnda, The Doors of
Perccption. Huxlcy hvatti til þess
að mcnn víkkuðu út huga sinn
mcð töku ofskynjunarlyfja. Það er
ljóst að margir textar Jim Morri-
son cru skrifaðir upp í vímu-
ástandi, ljölmargir þeirra hvetja
beinlínis til neyslu slíkra efna,
Break on Through er gott dæmi
þar um. En gengdarlaus áfengis-
og fíkniefhaneysla kom aftan að
honum. 27 ára var hann allur. I
Paris er leiði hans í Pére-Lachaise
kirkjugarðinum í París fjórði vin-
sælasti viðkomustaður ferða-
manna.
Persónugerving-
ur andófsins við
Vietnamstríöió
Sýrukóngurinn, gæruhippinn,
demon, kóngur skriðdýranna,
alkóhólisti, égóisti, flagari, eitu-
ræta. Þetta var Jim Morrison,
sögðu menn. Og kvikmyndin ein-
blínir kannski um of á þessar
skuggahliðar hans. Staðreyndin
var sú að hann gaf mikið af sjálf-
um sér, útdeildi á báðar hendur
þeim veraldlega auð sem honum
áskotnaðist á stuttum ferli og var
einn helsti persónugervingur hins
kraftmikla andófs við Vietnam-
stríðið. Reiðir ungir menn í
Bandaríkjunum höföu í þá tíð aðr-
ar væntingar til lífsins en að deyja
sundurskotnir fyrir glataðar hug:
sjónir foreldrakynslóðarinnar. í
mynd Francis Ford Coppola,
Apocalypse Now, er lagið The
End, sem tekur tæpar 12 mínútur í
flutningi, látið hljóma í dauðför-
inni til móts við Kurtz hershöfö-
ingja. Og nokkkrar tökur sem
ekki komu fram í endanlegri gerð
myndarinnar gerðu ráð fyrir fleiri
lögum Doors. The End var upp-
haflega ástarljóð sem sífellt
breyttist í flutningi, Jim Morrison
fór í textagerðinni í smiðju til
Freud og Nietzche. Vörumerki
hljómsveitarinnar, Hammond-
orgelið, og sítarinn gæddu svo
flutninginn enn meiri dýpt.
Stríðsárabarn
James Douglas Morrison var
stríðsárabam, fæddur í 8. desem-
ber 1943 í Melboume Florida og
var elstur þriggja bama George S.
Morrison og Klöm Morrison.
Faðir hans var á hröðu klifri upp
metorðastigann innan bandariska
hersins og dvaldi langdvölum
Qarri Qölskyldu sinni. Raunar var
hann fulltrúi alls þess sem Jim
Morrison varð andstætt, enda var
samband þeirra stirt. Aðeins fjög-
urra ára gamall varð Jim fyrir lífs-
reynslu sem í höndum Oliver
Stone verður meginþema kvik-
myndarinnar: fjölskyldan er á leið
ffá Santa Fe til Albuerque þegar
hún ekur fram á alvarlegt bilslys.
Nokkrir indjánar liggja særðir og
deyjandi við vegarkantinn.“Sál
eins þeirra tók sér bólfestu í mér,“
sagði Jim Morrison síðar.
Jim þótti fremur ódæll í æsku,
afar uppátækjasamur, erfiður.
Honum sóttist námið hinsvegar
vel, gleypti í sig þungmeltar bók-
menntir einkum þær sem snertu
heimsspeki og ljóðagerð. Þýski
heimsspekingurinn Friedrich Ni-
etzche var í sérstöku uppáhaldi
hjá honum. 1 bóksölum gerði
hann það stundum að leik að biðja
vini sína að taka ffam einveija
bók og lesa upp úr henni og hann
sór að hann gæti sagt frá höfundi
og titli bókarinnar. Samhliða
skrifaði hann í litla kompu at-
hugasemdir og ljóðabrot. Hann
yfirgaf íjölskyldu sína fyrir fullt
og fast aðeins rúmlega tvítugur að
aldri, fékk inngöngu í UCLA
kvikmyndaskólann í Los Angel-
es, hætti eftir að prófverkefni
hans fékk slæma útreið og reikaði
um með strandljónum Kalifomíu
þar til hann stofnaði hljómsveit-
ina The Doors ásamt Ray Manza-
rek. Til liðs við þá gengu John
Densmore og Robby Krieger.
Þrátt fyrir augljósar takmarkanir;
hann kunni ekki á neitt hljóðfæri
og varla að syngja en öskraði bet-
ur en fiestir aðrir, höföu félagar
hans trú á honum og ekki leið á
löngu þar til hljómsveitin náði vel
saman og fann sinn farveg og stíl.
Lögin vom ótrúlega löng miðað
við það sem gerist í dag en uppi-
staðan var seiðandi, eggjandi og
margræður kveðskapur Morrison.
Eftir lát Jim Morrison reyndi hljómsveitin að halda áfram en neistann ________________________________
vantaði. Frá vinstri: Ray Manzarek, Jim Morrison, Robby Krieger og
John Densmore. 10 SlÐA _ NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 27. apríl 1991