Þjóðviljinn - 04.05.1991, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 04.05.1991, Qupperneq 4
Leikfélag Revkiavíkur Á ég hvergi heima? Næstkomandi fimmtudag verður ífumsýnt leikrit eftir sovéska leikskáldið Alexander Galin Nú standa yfir æfingar í Borgarleikhúsinu á verkinu Á ég hvergi heima eftir sovéska leik- skáldið Alexander Galin, sem frumsýnt verður á stóra sviðinu næstkomandi fimmtudagskvöld. Leikstjóri er María Kristjáns- dóttir, en leikarar eru þau Bessi Bjamason, Eggert Þorleifsson, Guðrún Asmundsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Sigríður Hagalín og Þóra Friðriksdóttir. Ami Berg- mann þýddi leikritið. Söguþráðurinn er í stuttu máli sá að ekkjumaðurinn Tjmutin, sem kominn er á eftirlaun, býr við þröngar aðstæður á heimili dóttur sinnar og tengdasonar í Moskvu. Tengdasonurinn freistar þess að losna við karlinn með því að koma honum í kynni við konur með það að augnamiði að sá gamli kvænist. Því býður hann heim þremur eldri konum; fyrrum ballerínu, hjúkmnarfræðingi og næturverði. Tjmutin hefur hins vegar lítinn áhuga á kvenfólki og kýs helst að flytja út í sveit til systur sinnar. Höfundur dregur upp mynd af lífi og örlögum aldraðra sem oft búa einir í litlu herbergi inni á yngri kynslóðinni og em upp á náð þeirra yngri komnir. Kring- umstæðumar geta verið ömurleg- ar, en sá gamli Tjmutin er ekki dauður úr öllum æðum, heldur tendrar neista í bijóstum kvenn- anna þriggja - og trúlega leikhús- gesta lika, eins og segir í leik- skránni. Alexander Galin fjallar gjam- an um sérstæðar persónur, sjálf- stæða einstaklinga, sem bindast hver öðmm fjölskylduböndum eða standa andspænis sameigin- legum örlögum. Hann fjallar af glöggskyggni um sovéskt samfé- Maron Björnsson áttræður Áttræður er á morgun, sunnudaginn fímmta maí, Maron Bjömsson frá Siglufirði, nú til heimilis að Ásbraut 3 Sandgerði. Maron tekur á móti gestum í húsi -Slysavamafélagsins i Sandgerði kl. 17-19 á afmælisdaginn. HANDBRAGÐ MEISTARANS Bakarí Brauðbergs Ávallt nýbökuð brauð -heilnæm og ódýr- Aðrir útsölustaðir: Hagkaup-Skeifunni -Kringlunní -Hólagarði Versiunin Vogar, Kópavogi. Brauóberg ióuhiter 2-6 sto) 7í SJ9 Hraunberg 4 sími 77272 lag, gagnrýnir hart, án þess nokkm sinni að áfellast. Á ég hvergi heima hefúr verið sviðsett á meira en hundrað leik- sviðum í Sovétríkjunum og mjög víða erlendis, þar á meðal á öllum hinum Norðurlöndunum. Leikmynd hannaði Steinþór Sigurðsson, en búninga Sigríður Guðjónsdóttir. Lýsingu annast Láms Bjömsson. Umsjón með tónlist hefúr Jóhann G. Jóhanns- son. Bessi Bjarnason túlkar hlutverk Tjmutin gamla í verki Alexanders Galins, Á ég hvergi heima? sem fmmsýnt verður bráðlega. Sitjandi er Guðrún Ásmundsdóttir leikkona. Mynd: Kristinn. 4 SlÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 4. maí 1991 Leikhús Lína Langsokkur í Keflavík víkur hefúr greinilega unnið hér mjög gott verk. Hraði sýningar- innar er mjög góður og tæpast nokkurs staðar dauður punktur, enda hafa ungir áhorfendur litla samúð með leikriti sem haltrar; þeir fara þá bara að ræða önnur áhugamál. Hér mátti hinsvegar ekki á milli sjá hvorir skemmtu sér betur leikarar eða áhorfendur. Umgerð sýningarinnar var vel við hæfi. Leikmyndin var í kátum litum og línum og tónlistin sem flutt var af ungu fólki úr Tónlist- arskólanum í Keflavík var skemmtileg og féll vel inn í sýn- inguna. Undirritaður varð að vísu svolítið mglaður til augnanna þegar allt í einu birtust á sviðinu þeir Kasper, Jesper og Jónatan ásamt Soffiu frænku, en hinir ungu áhorfendur létu þessa uppá- komu ekkert trafla sig, sem er raunar alveg rökrétt afstaða, því í leikhúsi búa jú leikpersónur. Hvort þær tilheyra heldur þessu leikritinu eða hinu er bara skipu- lagsatriði hinna fúllorðnu og skiptir í raun litlu máli. Og þótt að mér hafi læðst sá þanki að sjóræningjamir mættu að ósekju vera ofúrlítið blóðþyrst- ari eða löggumar ofurlítið aðsóps- meiri, þá er vafalaust um að kenna smekk sem orðinn er af- vegaleiddur af of mörgum glæpa- myndum í tímans rás. Að minnsta kosti held ég að leikendur geti tæpast fengið já- kvæðari gagnrýni en þá sem ég heyrði glöggt frá ungum manni sem sat einhversstaðar skáhallt aflan við hægra eyrað á mér og leiðbeindi Línu með háum hróp- um sýninguna út. „Passaðu þig á löggunum!" „Varaðu þig á þjóf- unum!“ Ég held að meðan Leikfé- lag Keflavíkur fær slíkar leiðbein- ingar frá áhorfendum hljóti það að vera á réttri leið. Á.Á. Húsíýllir og blómvendir í Félagsbíói gera því skóna að frumsýningar- dagurinn hafi verið valinn með sérstöku tilliti til nefndra eigin- leika Línu, enda hefur Lína þessi ýmsa aðra merkilega kosti sem hafa gert hana bæöi langlífari og vinsælli en flestar stelpur aðrar. Það fór ekki milli mála að þessi sterkasta stelpa í heimi, sem á með sig sjálf eins og Salka Valka, kúskar skúrka jafnt og löggur og hefur endaskipti á við- urkenndum gildum, hún hefur í engu glatað vinsældum sínum. Penir og puntaðir litlir leikhús- gestir sáu í þessu verki, rétt eins og foreldrar þeirra á sinum tíma, uppreisn gegn kúgunarvaldi hinna fullorðnu sem hafa af óskiljanlegri þrákelkni haldið því fram í gegnum aldimar, þvert of- an i alla skynsemi, að mannasiðir hafi eitthvað með það að gera að verða að manni. Rétt eins og að hafi farið framhjá mönnum sem bæði skrýddust hálstaui og hörð- um höttum. Það fór aðdáendakliður um salinn þegar Lína slengdi ijóma- tertum framan í snobbaðar góð- borgarafrúr eða teygði úr sér f rúminu með fætuma á koddanum. í þessu leikriti ber að sjálf- sögðu mest á Línu. Það er þetta litla stelpuskrípi með rauða gaddavírshárið sem þarf að bera sýninguna uppi og því skiptir öllu máli hvemig henni tekst til. Á umræddri sýningu hér í Keflavík fer Vigdís Jóhannsdóttir með hlutverk Línu og stendur sig með stakri prýði. Hún hefur góða rödd sem skilar sér vel fram í salinn og lék af ótrúlegum krafti og öryggi þrátt fyrir ungan aldur. Þar sem hér er á ferðinni mik- ill fjöldi komungra leikara sem margir era að stíga sín fyrstu spor á leiksviði hefur leikstjóra verið ærinn vandi á höndum, en Hulda Ólafsdóttir, sem hér setur upp sitt íjórða verk hjá Leikfélagi Kefia- Leikrit Astrid Lindgren um Línu Langsokk, leikritið um stelpuna sem skrökið bara svona gusast upp úr, var frum- sýnt í Keflavík á kosningadag- inn. Ekki ætla ég hér með að Vigdís Jóhannsdóttir sem Lína Langsokkur.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.