Þjóðviljinn - 05.06.1991, Blaðsíða 1
103. tölublað Miðvikudagur 5. júní 1991 56. árgangur
Ríkisvíxlar:
Vextir hafa hækkað um
rúm 5 0% á tæpum mánuði
Enn halda vextir áfram að hækka með hækkun ríkisins á
forvöxtum ríkisvíxla úr 14,5 prósentum í 17 prósent á
mánudaginn. 1 byrjun maí reið ríkið á vaðið með því að
hækka forvexti ríkisvíxlanna úr 11 prósentum í 14,5 pró-
sent. Þannig hafa forvextir ríkisvíxla hækkað um 54 pró-
sent á innan við mánuði.
Vaxtahækkunin nú er svar við
hækkim banka og sparisjóða á for-
vöxtum bankavíxla 1. júní. Ríkis-
víxlar eru skammtímabréf til 45-
120 daga og tekur vaxtahækkunin
nú mið af spám um tveggja stafa
verðbólgu næstu þrjá mánuði, að
sögn Péturs Kristinssonar, ffam-
kvæmdastjóra Þjónustumiðstöðvar
ríkisverðbréfa. Hann bjóst ekki við
frekari hækkun á forvöxtunum að
sinni en viðurkenndi að það væri
'
Hemema bílarAusturstræti?
Kaupmannasamtök íslands efna í dag til opins fundar um
málefni miðbæjarins. Fundurinn verður haldinn á Hótel
Borg og hefst kl. 18.15. Þar verður rætt m.a. um hvort
opna eigi Austurstræti fyrir bflaumferð, um opnunartíma
verslana á svæðinu, um framtíðarskipulag miðbæjarins, umferð-
armál og umgengni á svæðinu um nætur.
Umræða um opnun Austur-
strætis fyrir bílaumferð hefur verið
í gangi lengi og mun borgarráð
væntanlega taka málið fyrir á
næsta fúndi sínum.
Þróunarfélag Reykjavíkur
sendi borgarráði formlega tillögu
um þetta í janúar og síðan þá hafa
borgaryfirvöldum og félaginu bor-
ist áskoranir og beiðnir um að
Austurstrætið verði opnað fyrir bíl-
um, flestar ffá kaupmönnum.
Stefán Hermannsson aðstoðar-
borgarverkfræðingur gerði lauslega
áætlun fyrir borgarráð um kostnað,
kosti og galla slíkrar breytingar
eftir að tillaga Þróunarfélagsins var
lögð fram og áætlaði þá að kostn-
aður yrði um fimm miljónir. Stefán
segir að þá hafi verið gert ráð fyrir
að lögð yrði einfold akrein eftir
Austurstræti og engum beygju-
straumi yrði hleypt eftir Lækjar-
götu, bílastæði væru fá og hindran-
ir settar upp til að koma i veg fyrir
að bílum yrði lagt á það svæði sem
ætlað væri gangandi vegfarendum.
Auk þess yrði settur upp búnaður
þannig að hægt væri að loka göt-
unni fyrir bílaumferð á góðviðris-
dögum að sumarlagi eflir hentug-
leikum.
Borgarráð hefúr beðið Stefán
að útfæra áætlun sína nánar og
hann kveðst ætla að ljúka þeirri
vinnu fyrir borgarráðsfund næsta
þriðjudag.
Skoðanir eru mjög skiptar um
þetta mál innan borgarráðs. Kristín
Á. Ólafsdóttir, fulitrúi Nýs vett-
vangs, segist ekki mótfallin því að
Austurstrætið verði opnað bílaum-
ferð, til reynslu a.m.k., ef einnig
verði farið að tillögu sem Nýr vett-
vangur lagði fram í fyrra um upp-
byggingu Austurvallar fyrir gang-
andi fólk.
Þar er m.a. gert ráð fyrir því að
lokað verði fyrir bílaumferð með-
fram Austurvelli og í staðinn verði
hellulagt svæði fýrir gangandi veg-
farendur.
-vd.
erfítt að spá um það. Enda hefúr
efnahagsmarkaðurinn hér á landi
tekið miklum breytingum að und-
anfomu. Pétur taldi heldur ekki
líklega hækkun á vöxtum spari-
skírteina ríkissjóðs. Hann sagði að
hækkunin nú á forvöxtunum væri
til að tryggja ríkinu hlut sinn á
markaðnum.
Útseldir ríkisvíxlar hafa að
undanfömu verið á bilinu 7-9 mil-
jarðar króna sem er svipað og stað-
an var um síðustu áramót. Fyrir
hækkunina í byijun maí var staðan
komin niður í fjóra miljarða króna.
En Pétur sagði að hældcunin hefði
skilað sér í stórsölu á ríkisvíxlun-
um og væri ætlunin að halda í
horfinu.
Forvextir bankavíxla em nú að
meðaltali 18,3 prósent og em því
vextir rikisvíxlanna aðeins undir
því. Bankamir hækkuðu forvexti
bankavíxla um 2,75-3,25 prósent á
laugardaginn.
Vegið meðaltal fyrir hækkun
var 15,3 prósent. Ríkið hækkaði
vexti sína þvi heldur minna eða um
2,5 prósent.
Ávöxtunarkrafa spariskírteina
ríkissjóðs á eftirmarkaði Verð-
bréfaþings íslands lækkaði á
mánudag um 0,1 prósent. Algeng-
asta ávöxtunarkrafan var 8,65 pró-
sent og fór hún í 8,55 prósent.
Þetta er þó nokkxu hærra en vextir
á nýútgefnum spariskírteinum sem
em 7,9 prósent og 8,1 prósent ef
keypt er í áskrifl. Ávöxtunarkrafan
var mest 8,85 prósent.
-gpm
Hvalurinn
í nefnd
Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra hefur ákveðið að
skipa nefnd sem mun undirbúa
úrsögn íslendinga úr Alþjóða
hvalveiðiráðinu og leita eftir
viðhorfum annarra þjóða til
samstarfs um hvalveiðistjómun
á nýjum vettvangi.
Ráðherra greindi frá stöðu
málsins á ríkisstjómarfundi í
gær. Þessi ákvörðun er tekin í
framhaldi af því að íslenska
sendinefndin á fundi ráðsins
mælti með úrsögn eflir að tillög-
ur hennar um veiðistjómunar-
kerfi til bráðabirgða fengust
ekki ræddar. -vd.