Þjóðviljinn - 05.06.1991, Page 10
FkA
acuriJmV
Bréf til ritstjóra
IÞjóðviljanum birtist í dag 4.
júní grein eftir mig, í fjórða
skiptið á u.þ.b. einu ári, held
ég. Það er líka í þriðja skipt-
ið sem samhengi fer forgörðum. í
eitt skipti rugluðust dálkar (þá
var greinin endurbirt); í annað
skipti varð efnisleg breyting
vegna setningarlegrar „lagfær-
ingar“; í greininni í gær er önnur
upphafsmálsgreinin horfín (sú
sem rammaklausan er tekin úr),
og þar með efniskafli.
Mér þykir líklegt að þetta hafi
hent annað efni en greinar mínar.
Hugsanlegar skýringar eru: a)
Vandamál varðandi tækni og vinnu-
brögð sem hefur ekki tekist að
leysa; b) tilraun til aðgerða þar sem
athygli svíkur, því viðkomandi er
þreyttur á að vera að lesa greinar
sem þessa; c) almennt sinnuleysi.
Skoðanaskipti á síðum dag-
blaða eru gott mál. í erlendum stór-
blöðum má stundum lesa heila
rannsóknamiðurstöðu einhvers pró-
fessors í hálfsíðu lesandabréfi, eða
annað brúklegt. í Morgunblaðinu
birtast langar greinar (biðtími er
líka langur) sem opna eða halda
áfram umræðu um lykilmál (t.d.
Nató). Tilgangur aðsendra greina er
yfirleitt stjómmálaumræða. Stund-
um er hafragrautur í grein sem er
birt. Stundum skýrt afmarkað rangt
mat, stundum afturhaldssöm skoð-
un. Stöku sinnum gott viðhorf
hugsandi manneskju. Það sem er
birt, á að vera fúllkomlega læsilegt
af hálfú blaðsins.
Með vinsemd.
4. júní
Sigurlaug S. Gunnlaugsdóttir
Opið bréf
til Þrastar Olafssonar
íþróttir
egar hnefaleikar voru bann-
aðir; var mjög gumað af því,
að Island væri eina landið
sem það gerði. Mikið var
talað um skaðsemi þessarar íþrótt-
ar, íþróttamannanna sjálfra vegna.
Fátitt var að þeir gættu ekki handa
sinna utan hringsins.
Á síðari tímum hafa verið teknar
upp hermannaíþróttir Asíumanna,
þar sem högg, spörk og margskonar
önnur fantabrögð eru iðkuð. Svo
virðist að iðkun þessara iþrótta hafi
færst í ríkum mæli til skemmtistaða
og i grennd þeirra, þar sem hinn al-
menni borgari og lögreglumenn eru
beittir þessum hermennskubrögðum.
Kunnátta og þjálfun þessara manna
jafngildir því, að þeir gangi vopnaðir
gegn vopnlausum og vamarlausum
manni.
Knattspyma og handknattleikur
em keppnisíþróttir, þar sem andstæð-
ar fylkingar ganga hart fram í óvægn-
um leik og slys em tíð, það er jafhvel
talað um, að í þessum greinum sé það
æft, að meiða andstæðing, sem erfitt
er að stöðva með heiðarlegum hætti.
Fjöldi þeirra afreksmanna, sem
skarað hafa ffamúr í greinum sínum,
hafa verið vændir um lyfjanotkun, en
búa síðan við heilsuleysi af neyslu
þeirra, eftir stuttan affeksferil. Væri
ekki drengilegt af þeim, sem þannig
hafa náð ofurárangri að tjá sig um
reynslu sína, öðmm til vamaðar, líkt
og ofdrykkjumenn, þegar þeir gera
hreint fyrir sínum dymm og hætta
áfengisneyslu, og vitna í heyranda
hljóði um vanda sinn. Ekki er vafi á
því, að þessar keppnisiþróttir móta
skapgerð iðkendanna og efla með
þeim árásarhneigð og ffekju. Fróð-
legt væri að fá álit lækna um þessi
mál, til dæmis slysatíðni hinna ýmsu
íþróttagreina og hvers eðlis slysin
em, hve alvarleg lyfjaneyslan er í
greinunum og hvers má vænta í skap-
gerðareinkennum iðkenda hverrar
greinar.
Hins vegar er nauðynlegt að lög-
regluyfirvöld gefi því gaum, hvort
rekja megi aukið ofbeldi til vissra
iðkenda eintakra íþróttagreina og
hafa þá í huga hvort þar em menn
sem ekki eiga þar heima. Þetta ætti að
vera auðvelt, með því að bera saman
félagaskrár íþróttafélaga og skýrslur
lögreglunnar.
Margir stjómmálamenn sækja at-
kvæði í hóp íþróttamanna, með því
að ausa almannafé í hinar ýmu stofn-
anir og félög þeirra. Þess em jafnvel
dæmi að ráðherrar ferðist heims-
homa milli og sýni þannig ofiiráhuga
sinn, með nærvem á íþróttakeppnum
íslenkra affeksmanna á erlendri
gmnd.
Almanna fé væri betur varið til
þarfari hluta en ofurkapps í stríðs-
íþróttum, sem færa þjóðinni fjölda
slasaðra manna á hveiju ári. Skammt
er að minnast þess að forsætisráð-
herra taíðist ffá störfum vegna gam-
alla meiðsla, sem hann hlaut í íþrótt-
um á yngri ámm.
Er ekki nær að beina þeim fjár-
munum sem í dag renna til þessara
slysaíþrótta til þarfari verkefna, til
dæmis mætti efla heilbrigðisþjónust-
una og menntamálin, eða létta byrð-
inni af skattgreiðendum.
Reykjavík, 5. maí 1991
Einar Vilhjálmsson
frá Seyðisfirði
í grein sem Þröstur Ólafsson
skrifaði í Morgunblaðið þann 22.
maí sl. talar hann mikið um
skemmdarverk annarra.
En það væri hollt fyrir hann að
lita í eigin barm.
Ekki alls fyrir löngu var Þröstur
framkvæmdastjóri Dagsbrúnar. Þá
vom unnin skemmdarverk af ýmsu
tagi, og vom t.d. margir ríkisstarfs-
menn sem em félagar í Dagsbrún
ekki par hrifnir af störfum Þrastar.
Það var búið að vera í samningum í
mörg ár að menn fengju heim-
keyrslu að loknum löngum vinnu-
degi. Það lét Þröstur afnema, stytti
matartimann úr klukkutíma niður í
hálftíma og lét afnema eftirmiðdag-
skaffið. Þetta em skemmdarverk
því þetta em hlutir sem kostað hafði
langa baráttu að fá inn í samninga.
I samningunum 1987 vaknaði
samninganefhd Dagsbrúnar upp við
það, að búið var að semja. Þá
gleymdi Þröstur að kalla samninga-
nefndina til undirskriftar.
Menn sem búa í glerhúsum ættu
ekki að henda steinum. Og Þröstur
mætti hafa meiri áhyggjur af AI-
þýðuflokknum en Alþýðubandalag-
inu. Það var svolítið einkennilegt að
þegar ákveðnir menn fóm úr Al-
þýðubandalaginu yfir í Alþýðu-
flokkinn jókst fylgi Alþýðubanda-
lagsins. Því það er eins og sumir
menn séu fæddir til að tapa. Eg man
að þegar Þröstur fór í forval hjá Al-
þýðubandalaginu 1987, þá tapaði
hann, hann tapaði í prófkjöri í Al-
þýðuflokknum nú á þessu ári og
minnstu munaði að hann tapaði
stjómarkosningunum í Dagsbrún í
vetur, en þá var Þröstur kosninga-
stjóri. Eins og ég sagði áðan: sumir
menn em fæddir til að tapa og eiga
aldrei að gefa sig að pólitík..
Þórir Karl Jónasson
Auglýsingar
Smáauglýsingar Þjóðviljans Lekur hjá þér þakið?
Opið mánudag - fbstudags Hafðu þá samband við mlg og
kl. 9-17 ég stöðva lekann!
Símar 681310 og 681331 Upplýsingar í síma 91-670269
RAFRUN H.F.
Smiðjuvegi 11 E
Alhliða rafverktakaþjónusta
Allt efni til raflagna
Sími 641012
Miðstjórnarfundur
Miðstjóm Alþýðubandalagsins er boðuð til fundar á Selfossi dag-
ana 8.-9. júní. Fundurinn hefst kl. 10.30 á laugardag og stefnt er
að því að Ijúka fundi um miðjan dag á sunnudag.
Rútuferöir eru frá Umferöarmiðstöðinni og fara bilar 6.50 og 9.30
á laugardagsmorgun. Nánari upplýsingar verða sendar út í fund-
arboöi.
Dagskrá:
Fundarsetning.
1. Kosningabaráttan - aöferðir og árangur.
2. Stjórnarskiptin - stjórnmálaviðhorfið.
3. Staða Alþýðubandalagsins - starfið framundan.
4. Skýrsla starfsháttanefndar og tillögur.
5. Önnur mál.
6. Afgreiðsla mála.
Stefnt er að því að fundi Ijúki ekki seinna en kl. 16.
Steingrímur J. Sigfússon
formaður miðstjórnar
Alþýöubandalagið í Reykjavik
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn í ABR í Risinu,
Hverfisgötu 105, miövikudaginn 5. júní nk.
kl. 20.30.
Fundarefni:
EES samningaviðræðurnar.
Frummælendur:
Hjörleifur Guttormsson alþingismaður og
Már Guðmundsson hagfræðingur.
Hvað hefur gerst?
Hvernig er staöan?
Hvert stefnir?
Félagar, fjölmennið og ræðið þetta mikil-
væga hagsmunamál Islendinga.
Stjórnin
Már
AB Keflavik og Njarövikum
Opið hús
Opið hús í Ásbergi á laugardögum kl. 14.
Félagar og stuðningsmenn velkomnir í kaffi og rabb.
Stjórnin
G-listinn Reykjanesi
Kosningahappdrætti
Dregiö var í kosningahappdrætti G- listans í Reykjaneskjördæmi
1991 hjá bæjarfógeta í Kópavogi 20. maí sl. Vinningarféllu þann-
ig á eftirtalin númer happdrættismiða:
1. Flugferð til Orlando, Florida, sumarið 1991, á miða no. 2399.
2. Leiguflug fyrir tvo til Winnipeg, Kanada, 23. júli 1991, á miða
no. 3198.
3. Flugferö til Parisar, sumarið 1991, á miöa no. 4966.
4. Flugferð til Frankfurt, sumariö 1991, á miða no. 3023.
5. Flugferð til Luxemborgar, sumariö 1991, á miða no. 2165.
6. Flugferð til Amsterdam, sumarið 1991, á miða no. 4584.
7. Flugferö til Kaupmannahafnar sumarið 1991 á miða no.
5858.
8. Sólarlandaferð til Benidorm 1991 á miða no 2979.
9. Sólarlandaferð til Santa Monsa, Mallorka, 1991 á miða no.
3016.
10. Sólarlandaferð til Riccione, Italíu, 1991 á miða no. 3614.
11. Sólarlandaferð til Cala d'Or, Mallorka, 1991 á miða no. 5666.
12. Leiguflug til Italíu sumarið 1991 á miða no. 3492.
13. Panasonic NV 330 myndbandstæki á miða no. 797.
14. Leiguflug til Basel sumarið 1991 á miða no. 3616.
15. Flugferö til Færeyja sumarið 1991 á miða no. 504.
16. Helgarferö til Egilsstaða utan sumaráætlunar á miða no.
2223.
17. Sony geislaspilari á miða no. 5860.
18. Sony geislaspilari á miða no. 5926.
19. Sony geislaspilari á miöa no. 505.
20. Helgarferð til Akureyrar utan sumaráætlunar á miða no.
2403.
21. Flugferð til Vestmannaeyja sumarið 1991 á miða no. 2374.
Handhafar vinningsmiða hafi samband við skrifstofu Alþýöu-
bandalagsins í Kóþavogi í síma 41746.
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins í Reykjaneskjördæmi.
Alþýöubandalagió I Reykjavik
Kosningahappdrætti
Dregið hefur verið I kosningahappdrætti G-listans ( Reykjavík.
Vinningsnúmerin voru innsigluð og verða birt fljótlega eftir mán-
aðamót.
Félagar og stuðningsmenn eru hvattir til að gera skil sem fyrst.
Kosningastjórn G-listans f Reykjavík
AB Norðurlandi eystra
Kosningahappdrætti
Dregið var í kosningahappdrætti ABNE 1. maí og númerin
innsigluð. Vinningsnúmer verða birt ( Þjóðviljanum um leið og
full skil hafa átt sér stað. Kosningastjórnin
Vopna-
fjörður -
opinn fundur
Fundur verður með
Hjörleifi Guttormssyni
og Þuríði Backman I
Austurborg, Vopnafirði,
mánudagskvöldið 10.
júní kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Alþýðubandalagið
Höfn -
opinn fundur
Fundur verður með
Hjörleifi Guttormssyni
og Einari Má Sigurðar-
syni í Verkalýðshúsinu
á Höfn I Hornafirði
föstudagskvöldið 7. júní
kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Alþýðubandalagið
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 5. júní 1991
Síða 10