Þjóðviljinn - 05.06.1991, Page 15
Eru líka til
ofurstólar?
Þýðingarvillur geta verið ákaf-
lega skemmtilegar. Þess
verður til dæmis lengi minnst
þegar Mogginn sló því upp
fyrir áratug að Vigdís forseti
og Margrét Danadrottning
hefðu boðið blaðamönnum í
kryddsíldarveislu. Þar brengl-
aðist þýðing orðsins „krydsild“
sem Danir nota þegar þeir
tala um yfirheyrslur blaða-
manna yfir viðmælendum sín-
um. ( Mogganum á miðviku-
dag er önnur skemmtileg þýð-
ingarvitleysa í fyrirsögn fréttar
um fall stjórnarinnar í Eþíópíu:
„Talið að marxismanum verði
kastað fyrir ofurborð“. Hér
hefur að líkindum skolast til
þýðing á enska orðasam-
bandinu „to throw overboard"
sem þýða mætti í þessu sam-
bandi „að kasta fyrir róða“ eða
„gefa upp á bátinn“...
Hvorki klámblöð
né kosningapésa
Starfsmenn Vegagerðarinnar
á Sauðárkróki hafa síðustu
daga unnið við að tína upp
rusl í vegköntum og „skeina“
vegstikur, þ.e. þrífa glitmerkin.
í Feyki segir frá því fyrir stuttu
að vegagerðarmenn hafi
fundið ótrúlegustu hluti í veg-
köntunum og má þar á meðal
nefna næturgagn nokkurt,
sveinsbréf í vélsmíði og spari-
sjóðsbók með 1500 króna
innistæðu. Klámblöð og kosn-
ingapésar hafa einnig fundist,
segir Þór vegagerðarmaður í
viðtali við Feyki en bætir strax
við: „En við höfum nú ekkert
verið að lesa það.“ Tilvitnun
lýkur...
Norsk sel-
skinnsslaufa
DV birti stóra frétt nýlega um
hálstau Konráðs Eggertsson-
ar, formanns Félags hrefnu-
veiðimanna, en það er forláta
þverslaufa úr selskinni. Kon-
ráð hefur fengið ýmsar at-
hugasemdir vegna slaufunnar
góðu og friðunarsinnar á árs-
fundi hvalveiðiráðsins
skömmuðu hann fyrir að
ganga með „höfuðieður fórn-
arlambanna" um hálsinn.
Áhugamönnum um selskinns-
slaufur til fróðleiks má láta
)ess getið að slaufuna fékk
<onráð að gjöf frá Norður-
ára, málfundafélagi íslend-
inga í sjávarútvegsdeild
Tromsöháskóla þegar hann
og fleiri áhugamenn um hval-
veiðar fóru í Noregsferð fyrir
ári...
Eiginhandaráritan-
ir eftir pöntun
Meira um ársfund Alþjóða-
hvalveiðiráðsins: í lok fundar
var íslenska sendinefndin að
vonum ósátt við málalok.
Hörð barátta var fyrir gýg unn-
in. En menn voru þó ekki
tapsárari en svo að ákveðið
var að færa einum harðasta
andstæðingi hvalveiða, for-
manni bresku sendinefndar-
innar, bók um ísland að gjöf í
kveðjuskyni. Þegar íslending-
arnir settust niður við að árita
bókina kom í Ijós að Óskar
Vigfússon var farinn af vett-
vangi. Opinber starfsmaður,
hvurs nafns við látum ógetið,
dó þó ekki ráðalaus - enda
eflaust ýmsu vanur úr starfinu
- heldur mundaði pennann.
Eftir nokkrar tilraunir á spás-
síu dagblaðs skrifaði hann
nafn Óskars í bókina og þótti
viðstöddum það svo vel gert
að Óskar hefði ekki gert betur
sjálfur...
RÚSÍNAN.
Borghildur Kristinsdóttir,
keppandi
A-flokki gæðinga.
^ sunnudaginn var
Avoru kynntir dómar
í stærstu kynbóta-
þrossasýningunni á
íslandi í ár. Tæp-
lega fjögur hundruð
kynbótahross voru
dæmd af hrossaræktarráðunautun-
um Kristni Hugasyni og Þorkeli
Bjarnasyni. Það tók þá viku að
dæma hrossin og voru úrslitin
kynnt á Gaddstaðaflötum. Samtím-
is héldu Geysismenn sitt árlega
hestaþing á flötunum og voru þar
dæmdir góðhestar og haldnar
kappreiðar.
Mikil breyting hefúr verið gerð
á Gaddstaðafíötum og er svæðið nú
með því besta sem þekkist hér á
landi og rúma áhorfendabekkir
þúsundir manna, enda er búist við
tíu til tólf þúsund manns á fjórð-
ungsmót sunnlenskra hestamanna
sem haldið verður á flötunum í
júnílok.
Kynbótahrossasýning á Gaddstaðaflötum
Sex efstu I bamaflokki. Myndir: G.T.K.
Hæst dæmdi kynbótagripurinn á mótinu.
oc
-S S! BlmáiiMiit i
ifpi 1 B 1 A L 1
</> z
111 i
1 o .j
o
m m o 1
<3 C3
SséÍ
Síða 15
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 5. júní 1991