Þjóðviljinn - 07.06.1991, Page 6
Hver verður næsti „yfirkonungur“
(eða ,,-drottning“) heimsins?
Tilgátur eru margar en einna líklegast er að
kona (án mikils tillits til þess hvaðan hún er)
verði íyrir valinu. Eins og sakir standa benda
hvað flestir á Gro Harlem Brundtland
Staða aðalritara Sameinuðu þjóðanna er laus frá 1. jan.
1992 og verður ráðið í hana til fimm ára, með möguleika á
framlengingu um önnur fimm ár. Breyting getur orðið hér á,
þannig að ráðið verði í stöðuna til sjö ára án möguleika á
framlengingu. Umsækjendur verða að vera alþjóðlega þekkt-
ir sem dugnaðarmenn. Æskilegt er að þeir séu áhugamenn
um vandamál þriðja heimsins og umhverfismál.
Árslaun eru 192.000 dollararað viðbættri risnu. Stöðunni
fylgir íbúð á Sutton Place á East Side á Manhattan (vinsælt
hverfi) auk bifreiðar með einkabílstjóra, allt að kostnaðar-
lausu. Konur eru hvattar til að sækja um
Þannig telur helgarblað
norska blaðsins Aftenposten að
umsókn um stöðu framkvæmda-
stjóra (eða aðalritara) S.þ. ætti að
geta litið út. Eflir er aðeins rúm-
lega hálft ár af öðru kjörtímabili
þess er nú gegnir „heimsins æðstu
stöðu“, Perúmannsins Javiers
Pérez de Cuéllar. Hann segist
ekki vilja vera í stöðunni eitt kjör-
tímabil í viðbót. Svo að senn hvað
líður verður heimurinn að koma
sér niður á hvem hann vill hafa
fyrir næsta „yfirkonung" sinn.
Tveir skandínavar
fyrstir
Frá því að S.þ. var hleypt af
stokkunum í lok heimsstyijaldar-
innar síðari hafa fimm menn
gegnt þessari heimsins virðuleg-
ustu - en ekki valdamestu -
stöðu: Norðmaðurinn Trygve Lie
(1946-53), Sviinn Dag Hammar-
skjöld (1953-61), Búrmamaður-
inn Situ U Thant (1961- 71),
Austurrikismaðurinn Kurt Wald-
heim (1971-81) og Pérez de
Cuéllar (frá 1981).
Allsheijarþing kýs fram-
kvæmdastjórann samkvæmt
uppástungu ffá Öryggisráði. En
kosningin hefur hingað til varla
verið annað en formsatriði. Fram-
kvæmdastjóramir hafa allir verið
valdir að undangengnu marg-
slungnu baktjaldamakki milli
stórvelda, bandalaga, heimshluta,
ríkja, stofnana, samtaka. A bak
við valið á þeim öllum hefur sem
sé fyrst og fremst legið málamiðl-
un, þótt vitaskuld hafi verið haft í
huga að ekki væri teljandi hætta á
að þeir yrðu sér beinlínis til
skammar í stöðunni.
Aðaldrifkrafturinn á bak við
stofnun S.þ. var Roosevelt
Bandaríkjaforseti og til greina
kom að fyrsti framkvæmdastjóri
þeirra yrði engilsaxi. Bandaríski
hershöfðinginn (og síðar forset-
inn) Eisenhower, Anthony Eden,
utanríkisráðherra (og síðar for-
sætisráðherra) Breta og kanadíski
stjómmálamaðurinn Lester Pear-
son komu til greina. En niðurstað-
an varð eins og kunnugt er Tryg-
ve Lie, lögfræðingur sem átti
langan feril að baki í norskum
innanlandsstjómmálum á vegum
Verkamannaflokksins þar. Er-
lendis var hann lítt þekktur, nema
hvað Bretar og Bandaríkjamenn
könnuðust eitthvað við hann af
því að hann var utanríkisráðherra
í norsku útlagastjóminni í Lund-
únum á stríðsárunum. Norðmenn
vom vel látnir fyrir framlag sitt í
baráttunni gegn Hitlers- Þýska-
landi, kalda striðið var enn ekki
komið í fullan gang og þeir í
Kreml vildu heldur smáþjóðar-
mann og skandínava en mann úr
efsta lagi engilsaxneska heimsins.
Trygve
og Rockeffeller
Trygve Lie var aðsópsmikill
dugnaðarmaður og átti drjúgan
þátt í að aðalstöðvum S.þ. við
East Side River á Manhattan var
komið upp. Hann fékk til Iiðs við
sig við það annan athafnasaman
mann, bandaríska auðkýfmginn
John D. Rockefeller, sem gaf átta
og hálfa miljón dollara til ffam-
kvæmdanna, Staðsetning aðal-
stöðvanna þama varð til þess að
verð á lóðum í grennd stórhækk-
aði. Kom þá í Ijós að Rockefeller
átti margar þeirra.
En kalda stríðið var áður en
varði komið af stað með fullum
ofsa, Noregur var meðal stofnað-
ila Nató og Bandaríkin, Bretland
og bandamenn þeirra háðu Kór-
eustríðið undir fána S.þ. Lie var
mjög eindregið vesturveldanna
og sérstaklega Bandaríkjanna
megin í öllum þeim átökum. A ár-
um McCarthyæðisins hleypti
hann njósnumm frá FBl, banda-
risku alríkislögreglunni, inn í að-
alstöðvar S.þ. fil að þeir gætu
fylgst með bandarískum starfs-
mönnum þar, sem grunaðir vom
um að vera „bleikir".
Yfirlætislaus
aristókrat
Þegar hann hætti sættust
Austur og Vestur á Dag Hammar-
skjöld sem eftirmann hans, af því
að hann var frá hlutlausu ríki sem
þar að auki naut alþjóðlegrar
Trygve Lie (1946-53) - aðsóps-
mikill og Bandaríkjasinnaður.
Situ UThant (1961-71)-afskipta-
lítið prúömenni.
virðingar. Þessi prúðmannlegi,
yfirlætislausi sænski aristókrat
var að margra dómi að öllu sam-
anlögðu sá besti í stöðunni til
þessa. Hann var meiri diplómat
en fyrirrennarinn og gerði sitt
besta til að gæta hlutleysis í deil-
um kaldastríðsaðila. Hann rak
FBI- mennina úr aðalstöðvunum,
fækkaði Bandaríkjamönnum í
áhrifamiklum S.þ.-stöðum og
réði Afríkumenn, Asíumenn og
Austur-Evrópumenn í staðinn. En
í Kongódeilunni komst hann eigi
að síður í kast við Sovétríkin, sem
tóku eindregna afstöðu með ein-
um deiluaðila þar. Undir hans
stjóm sendu S.þ. friðargæslulið til
belgíska Kongó (nú Zaire) og var
það fyrsta aðgerð alþjóðasamtak-
anna af því tagi. Hammarskjöld
fórst sem kunnugt er í flugslysi í
eftirlitsferð þarlendis og er sumra
mál að það hafi ekki verið ein-
leikið.
U Thant varð fyrir valinu sem
Dag Hammarskjöld (1953-61) -
rak FBI úr aðalstöðvunum.
Kurt Waldheim (1971-81) - vildi
gegna „æöstu stöðu heims” þrjú
kjörtímabil.
eftirmaður hans vegna þess að
Búrma var talið eitt það hlutlaus-
asta af öllum hlutlausum ríkjum
og þar að auki vegna aukins væg-
is þriðja heimsins í alþjóðastjóm-
málum. Búrmamaður þessi var
fremur afskiptalítið prúðmenni
og tókst að komast hjá árekstrum
við risaveldin bæði og önnur stór-
veldi. Umdeilt er hversu mikill
skömngur hann hafi verið. Þetta á
að miklu leyti einnig við um nú-
verandi framkvæmdastjóra. Þeir
voru báðir endurkosnir, bæði
vegna vinsælda og viðurkenning-
ar á því að síðustu áratugi hafa
vandamálin í samskiptum Norð-
urs og Suðurs slagað jafnt og þétt
hærra upp í vandann kringum
Austur- Vestur-togstreituna.
Annar
Norömaðurtil?
Kurt Waldheim er sá eini af
umræddum fimmmenningum,
sem vildi sitja í embætti þijú kjör-
tímabil. Hann rak meira að segja
fyrir þvi þó nokkra „kosningabar-
áttu“, en Kínveijar, sem hafa neit-
unarvald í Öiyggisráði, tóku það
ekki í mál, sennilega vegna þess
að þeir hafa viljað fá þriðjaheims-
mann í staðinn, sem og varð. Þá
var enn ekkert vitað um feril
Waldheims í heimsstyijöldinni
síðari. Héðan í frá er víst að fortíð
allra ffambjóðenda til umræddrar
stöðu verður grannskoðuð.
Þar sem kalda stríðið er ekki
lengur verður að líkindum tals-
vert erfiðleikaminna að finna
mann í stöðuna nú en í fyrri skipt-
in. Bandaríkin og Sovétríkin eiga
nú efalaust auðveldara en fyrr
með að verða sammála um fram-
bjóðanda. Sovétríkin gætu nú að
líkindum sætt sig við vesturlanda-
mann í stöðuna og Vesturlönd
jafhvel við austanmann. En ekki
eru allir erfiðleikar viðvíkjandi
valinu þar með úr sögunni.
Afríkuríki sunnan Sahara eru
líkleg til að líta svo á að nú sé röð-
in komin að þeim, einnig íslams-
riki og raunar austurblökkin fyiT-
verandi og Norður-Ameríka. Ur
því gæti orðið einhver togstreita.
En margra mál er að tími sé til
kominn að kona taki við stöðunni.
Er þá helst tilnefnd Gro Harlem
Brundtland, forsætisráðherra
Noregs. Hún yrði þá annar Norð-
maðurinn í stöðunni og þriðji
Norðurlandabúinn. í þessu felst
virðing fyrir Norðurlöndum sem
mannúðlegustu og á margan hátt
siðmenntuðustu rikjum heims.
Pérez de Cuéllar hefur að sögn
mælt með Gro.
Áhersla
á umhverffisvernd
Tveir aðrir Norðurlandabúar
hafa raunar heyrst nefhdir í þessu
sambandi, Finninn Martti Ahtisa-
ari, sem af hálfú S.þ. hafði um-
sjón með því er Namibía varð
sjálfstætt ríki, og Svíinn Jan Mar-
tensson, yfirmaður Mannréttinda-
deildar S.þ. í Genf og vinsæll
reyfarahöfundur í heimalandinu.
Georgíumaðurinn Eduard She-
vardnadze, fyrrum utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, er sagður
koma til greina, en hann segist
ekki vilja stöðuna og leggur til að
Pérez de Cuéllar verði þriðja
kjörtímabilið.
Brian Urquhart og Erskine
Childers, tveir menn með langa
reynslu að baki á vettvangi S.þ.,
hafa komið fram með uppástung-
ur um hvað eftirleiðis skuli öðru
fremur haft í huga við val á fram-
kvæmdastjóra samtakanna. Hann
eða hún skuli vera alþjóðlega orð-
lagður/orðlögð fyrir dugnað, helst
hafa verið forsætis- eða utanríkis-
ráðherra, hafa áhuga og þekkingu
á vandamálum í samskiptum
Norðurs og Suðurs og umhverfis-
vemd. Uppruni og ættland ætti að
skipta minna máli. Kjörtímabilið
ætti að vera sjö ár í staðinn fyrir
fimm nú og ekki framlengt.
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Sérfræðingur í geðlækningum óskast til starfa á Geðdeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri frá 15. sept. 1991.
Um er að ræða afieysingastööu til 15. júní 1992, sem hugsan-
lega verður framlengd. Umsóknarfrestur er til 15. júlí 1991.
Umsóknir um stöðuna sendist Sigmundi Sigfússyni, yfirlækni
Geðdeildar F.S.A., og gefur hann allar nánri upplýsingar.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Javier Pérez de Cuéllar og Gro Harlem Brundtland - sagt er að hann
vilji gjarnan geta boðið hana velkomna sem eftirmann sinn.
6 SlÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 7. júní 1991