Þjóðviljinn - 07.06.1991, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 07.06.1991, Blaðsíða 18
Naisbitt í besta heimi allra heima John Naisbitt heitir maður sem von er á hingað um helg- ina. Hann er mjög eftirsóttur fyrirlesari um efni sem hann hefur skrifað um bækur: um „megatrends“ svonefnda, um „stórstrauma“ í sögunni. En í þeim bókum (þá síðustu Meg- atrends 2000 hefur hann skrif- að í samvinnu við konu sína Patriciu Abudene) er dregið saman margskonar efni til spá- sagnar um það á hvaða leið við erum, á hverju við megum eiga von. Nú skal það strax fram tekið að vitaskuld er margt sennilegt og reyndar augljóst af því sem Nais- bitt heldur fram. Til dæmis að taka úr bókinni síðustu: við eig- um vafalaust von á hraðastri efna- hagsþróun á Kyrrahafsströndinni, við eigum vafalaust von á fleiri konum í áhrifastöðum í ffamhaldi af jafnréttishreyfíngu og mennt- unarbyltingu meðal kvenna víða um heim. Aðrir „stórstraumar“ eru svo vafasamari eða þá að þeir fá skelfilega yfirborðslega túlkun. Hvað er trúarieg vakning? Tökum tif dæmis þá hugmynd Naisbitts að nú sé að hefjast (reyndar þégar hafin) mikil trúarleg vakning í heiminum. Það getur svosem vel verið: en rök- semdimar sem hann fer með eru heldur Htilíjörlegar margar hveij- ar. Hann leggur mesta áherslu á að rekja það hve vel gangi að „markaðssetja“ bæði alla þá súpu úr kukli, stjömuspádómum, hug- leiðslu, heilsurækt og hvaðeina sem kallast „nýöldin“, sem og allskonar nýjar kirkjur í Banda- ríkjunum. Ekki síst þær sem hræra saman vísindalegu yfir- bragði, „neytendavinsemd" (sem birtist m.a. í því að guðs- þjónustan er sem best faiin í alls- konar tómstundagamni öðm og kirkjan líkist helst ekki kirkju) og svo heittrúartilburðum. Það má kalla þetta ýmsum nöfnum, en hvers vegna „trúarvakningu“? Að minnsta kosti hlýtur maður að láta sér fátt um þá „vakningu" fínnast sem kemur fram í því að atvinnumenn í markaðssetningu hafi á tilteknum tíma komið á fót 2000 nýjum kirkjum í Bandarikj- unum með símhringingum. Hér, eins og í svo mörgu öðm sam- hengi, virðist Naisbitt síst af öllu vera að tala um trúarbrögð eða þá menningu (hann boðar menning- arvakningu líka), heldur er hann fyrst og fremst að tala um það hvemig útsmogin sölutækni legg- ur undir sig fleiri og fleiri svið mannlífsins - og þá trúarlífið líka. Aö selja bjartsýni Annað er það sem hlýtur að espa lesanda Megatrends 2000 til andmæla, og það er hin auðvelda bjartsýni bókarinnar. Naisbitt segir á þá leið í formála að það séu meira en nógir sem tala um erfiðleikana og vandamálin, segja vondar fféttir. „Okkar hlutverk er annað,“ segir hann. Semsagt það, að gera gott úr öllu. Gefa mönn- um (ekki síst þeim sem eiga pen- inga til að fjárfesta í einhveiju) vítamínsprautu bjartsýninnar. Ami Sigfússon, framkvæmda- stjóri Stjómunarfélags íslands, sem stendur að heimsókn Nais- bitts hingað, hann lýsir þessu hlutverki Naisbitts af hreinskilni í grein sem hann birti fyrir skömmu í Morgunblaðinu. En þar segir Ami strax í fyrirsögn að Na- isbitt fari með „Hugmyndir sem skila arði“. Þar segir hann t.d. að Naisbitt spái auknum hagvexti og betra mannlífi og klykkir út um þann „stórstraum“ með þessum orðum: „Við megum ekki falla flöt fyrir neikvæðni bölsýnis- manna sem telja þessu öfúgt far- ið“. (Naisbitt kemst reyndar mjög svipað að orði sjálfúr i fyrsta kafla bókarinnar.) Dæmið er með öðrum orðum sett upp á þá leið að sumir „selja“ vondar fféttir, en Naisbitt tekur að sér að safna þeim góðu saman og skjóta þeim á móti neikvæðinu. Þessi rammi verður svo til þess að lesanda finnst heldur en ekki grunnt á „stórstraumum“ hjá Na- isbitt. Blátt áfram vegna þess að gagnrýnina vantar. Hún er ekki höfð með nema rétt í títuprjón- slíki. Öll tíðindi sem um er getið í kafla um hvem „stórstraum“ em túlkuð á hinn besta veg. Samræm- ið ríkir. Andstæður þurrkast út í framsókn til hins besta heims allra heima. Á menningar- markaði Af þessu em mörg dæmi. Til dæmis að taka kaflinn um menn- ingarframsóknina miklu sem John Naisbitt sér allt í kringum sig og ekki síst í Bandaríkjunum. Hann sankar að sér tölum: aðsókn að söfnum hefur aukist, aðsókn að ópemm, sala bóka, fleiri vilja fjárfesta í menningu en áður, fleiri fyrirtæki en áður tengja sína „ímynd“ við eitthvað menningar- legt (og draga nokkuð úr íjá- raustri sínum í homabolta og mg- by). Þetta er náttúrlega allt gott og blessað. En þessi leikur með nokkrar magntölur segir vita- skuld næsta fátt um menningarlíf til dæmis Bandaríkjanna. Þegar Naisbitt talar um það fagnandi að aldrei hafi jafnmargir miðar selst á leiksýningar á Broadway og 1988- 89 - þá.hrekkur það upp úr honum í leiðinni að helmingur miðanna hafi selst á fimm söng- leiki. En þama er komið að veiga- miklu atriði í menningarlífi: viss- ir geirar tútna út (það er enn auð- veldara en áður að selja söngleiki og ópemstjömur, m.a. vegna þess að það er peningur og þar með samfélagsvirðing í þeim bisness). En aðrir hröma að sama skapi, leikhúslíf verður t.d. bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi mun einhæfara en áður vegna þess að það er vaxandi krafa um að allt „borgi sig“ og það gera helst ekki nema söngleikir af vissri gerð. Svo mætti lengi áffam halda. Það liggur til dæmis ekki í augum uppi að ástæða sé til að láta sem lygilega hátt verð sem borgað er fýrir málverk eftir Van Gogh á uppboðum komi myndlistum til góða eins og Naisabitt vill vera láta: Slíkar uppákomur segja varla annað en það, að það er hægt að selja fyrir morð fjár hvem þann sjaldhafnargrip sem tengdur er frægri persónu sem komin er i vissa sögulega fjar- lægð, nógir peningar em að leita sér að holdtekningu í slíku ævin- týri. (A hvað skyldi annars vera hægt að selja endajaxl úr Napóle- ón ef fyndist?) Enn eitt um menninguna: við hvað er miðað? Þegar Naisbitt gleðst yfir því að í Bandaríkjun- um séu nú um 200 atvinnuleik- hús, þá er það nú ekki meira en svo að svarar til fjögurra leikhúsa í Danmörku. Þætti víst fáum mik- ið. Upp upp minn hagvöxtur Hin ramma árátta að gera gott úr öllu er einna skýmst þegar Na- isbitt-hjónin ræða um væntanlega grósku í efnahagslífi. Höfuðkenn- ingin er að „hagvexti em reyndar engin takmörk sett“. Þessi form- úla er fengin með því að bemda á að orkuneysla í Bandaríkjunum hafi dregist saman og að iðnaður- inn sé ekki eins hráefnafrekur og áður (þetta á að stinga upp i þá sem hafa áhyggjur af því hve ört gengur á auðlindir jarðar). Og síðan er bent á það að kaupglöð- um neytendum sé að fjölga að miklum mun í Suðaustur-Asíu, að skattar séu að lækka (og þar með meira svígrúm fyrir einstaklinga til fjárfestinga og neyslu) og fleira í þá vem. Það er að sönnu minnst aðeins á umverfisvemdarmál sem slík. En þau em afgreidd með ótrúlega léttúðugum hætti: vandamálin em talin upp (eyðing skóga, spilling andrúmslofts o.fl.) en um leið er sagt: „Það er að skapast vaxandi samstaða um að við verðum öll að vinna saman að umhverfismál- um.“ Og síðan er vitnað í Bush, Gorbatsjov og ffú Thatcher til að „sanna“ að leiðtogar heimsins séu komnir í einskonar samkeppni um að standa sig sem best í um- hverfismálum. Stórstraumur sem vantar Hér er sem fyrr allt gert auð- velt í nafni bjartsýninnar. Raun- sæi krefst þess hinsvegar að menn taki eftir öðm: það er rétt að allir leiðtogar heimsins og iðnaðarins telja sig knúna til að vera „græn- ir“ í tali. En mest af því er ódýr varaþjónusta án skuldbindinga um aðgerðir. Það em alltaf ein- hveijir aðrir sem eiga að standa sig í þeim málum. Þegar á heild- ina er litið er Naisbitt að afneita einmitt þeim „megatrend" þeim stórstraumi sem er reyndar stærst- ur á okkar tíma. En hann er, eins og Stephan Schmidheiny, þekktur svissneskur bisnessmaður með umhverfisverndarsamvisku, kemst að orði: spennan milli þró- unar og umhverfisvemdar. Minna er betra Það er ekki að ástæðulausu að svo er að orði komist. Eitt af því sem mestu skiptir í okkar sam- tíma er að menn átti sig á því að sá hagvöxtur sem Naisbitt trúir á, hann er falskur. Hann er að því leyti falskur að ekki er með því reiknað hvað hann kostar í rán- yrkju og mengun. Það er um „spennu“, andstæður að ræða, milli þess skammtímavaxtar sem Naisbitt talar um („nógar auðlind- ir enn um skeið“) og þess, að þeg- ar til lengri tíma er litið (lífs- möguleikar næstu kynslóða) þá fer best á því að við drögum úr ffamleiðslu og neyslu á mörgum sviðum. Andstæður eru þetta blátt áffam vegna þess að ef fólk drægi vemlega úr bílanotkun og margs- konar sóun í efnaðri hluta heims, þá mundi það um leið þýða eftia- hagslegan aflurkipp: minna mundi seljast af ýmislegum vam- ingi og þjónustu. Þversögnin sem er flestum nýr „stórstraumur“ er sú, að „meira“ er ekki lengur það sama og „betra“, heldur er upp kominn sá sannleikur að „minna er betra“. (Mætti reyndar geta þess líka, að ef trúarvakningin hans Nais- bitts er meira en orðin tóm, þá ætti hún einmitt að virka gegn hagsveiflu upp á við: hún (t.d. „nýöldin") mælir með einfaldara lífi og spameytnara.) Fríðurog óskhyggja Svona mætti lengi áffam halda. Og þá alltaf í þá vem að í boðskap Naisbitts er fyrst og síð- ast gengið út frá því að þótt alls- konar vandkvæði séu enn uppi, þá séu andstæður sem óðast að leys- ast og ganga upp í betri tilveru. Til dæmis að taka finnst honum að „gróska í efnahagslífi" og fleiri „stórstraumar“ muni tryggja frið í heiminum. „Allsstaðar era menn að byrja að átta sig á því að stríð em úrelt aðferð til að leysa vandamál," segir hann á einum stað. Á öðrum talar hann um að „velferð og lýðræði" muni að lok- um binda enda á öll svæðisbundin átök. Þetta er rétt - ef vemleikinn gerði sig líklegan til að hlýða formúlunni. Það gerir hann hins- vegar ekki, helvítið að tama. Eftir að bók Naisbitts kom út var háð stórstyrjöld um Kúveit. Og þegar á bæði þann heimshluta og aðra er litið, þá sjáum við ekki fyrir okk- ur samfellda þróun til velferðar og lýðræðis. Miklu heldur vax- andi mun á ríkum og fátækum - bæði innan samfélaga og svo mun á ríkum og fátækum þjóðum. Meðan efnahagur batnar í Suð- austur-Asíu fara kjör fólks versn- andi í Suður-Ameríku, Afriku og víða í Asíu. Slíkt misvægi er ekki efni í frið, heldur stríð. Góðvilj- aðir menn hafa reyndar alltaf haldið því ffam að stríð sé ekki aðferð til að leysa vandamál. Það hefúr ekki staðið á þeim, heldur á þesskonar þróun mála sem gæti breytt siðferðismati þeirra í vem- leika. HELGARPISTILL Arni Bergmann 18 SlÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 7. júní 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.